Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1682
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) til vinstri og Hjörtur Erlendsson til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1631
Myndin var tekin 11. júní 2011 í Kántrýbæ. Á henni eru Lárus Ægir Guðmundsson til vinstri og Friðrik Pálsson til hægri. Tilefni myndatökunnar var að sendiherra Bandaríkjanna kom og heiðraði Hallbjörn Hjartarson fyrir framlag hans til Kántrýtónlistar á Íslandi.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 64
Myndin var tekin í messanum/borðsalnum á síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Á henni eru þeir Finnur Kristinsson bátsmaður til vinstri og Björn Haraldsson (d.21.9.1988) stýrimaður/skipstjóri til hægri að fá sér kaffi og í pípu.
Helgi Gunnarsson 20
Myndin er af vöskum starfsmönnum Helga Gunnarssonar sem unnu við að byggja íþróttahúsið. Myndin var tekin sumarið 1997 þegar lokið var að reisa sperrurnar/burðarvirkið. Karlarnir eru, frá vinstri: Einar Gunnarsson, Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000), Baldvin Hjaltason, Hrólfur Pétursson, Eðvarð Ingvason (d. 29.5.2011), Guðmundur Rúnar Kristjánsson (fjær), Sigurður Björnsson (nær), Gunnar Helgason (nær), Helgi Gunnarsson verktaki (fjær), Sigurjón Karlsson, Árni Max Haraldsson, Hjörtur Guðmundsson, Gunnar Dór Karlsson, Björn Sigurðsson og Þorsteinn ?.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1621
Hjónin Magnús B. Jónsson og Guðbjörg Viggósdóttir setja niður kartöflur 2. júní 2011 í garðinum sunnan við íþróttavöllinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1074
Myndin var tekin 26. mars 2010 á bryggjunni. Á henni eru Halldór Gunnar Ólafsson til vinstri og Jakob Casper til hægri, báðir starfsmenn BioPol, að taka sýni úr selum til rannsóknar hjá BioPol. Fyrirtækið sá um rannsóknir og talningar á sel á þessum árum.
Ólafur Bernódusson 975
Stund milli stríða hjá Ingibergi Guðmundssyni á kennarastofunni í Höfðaskóla haustið 1984.
Helgi Gunnarsson 37
Starfsmenn Helga Gunnarssonar binda járn í sérhannað fótstykki sem var notað sem undirstaða fyrir endurvarpa sem komið var fyrir á toppi fjallsins Jörundar (Jörundarfells 1018m hátt) í Vatnsdal. Mennirnir eru, frá vinstri: Björn Sigurðsson, Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) og Sigurður Björnsson. Gunnar Helgason (d.19.10.2007) stendur lengst hægri og fylgist með. Líklega var myndin tekin sumarið 1997.
Guðrún Þórbjarnardóttir062
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er Jón að dansa við tengdadóttur sína Hlín Kristensen (d.28.4.1984). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1199
Tveir kirkjunnar menn á spjalli í Hólaneskirkju 5. desember 2010 eftir aðventukvöld þar. Steindór Haraldsson meðhjálpari til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson sóknarnefndarformaður til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1672
Þráinn Bessi Gunnarsson með son sinn Bjarna Braga Bessason í kerru 5. júlí 2012.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 80
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Karlarnir tveir við spilið eru að hífa eða slaka vírunum. Þeir eru óþekktir en ágiskun er að Ómar Jakobsson sé til vinstri og Heiðar Elvan Friðriksson til hægri. Maðurinn milli þeirra er óþekktur.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 123
Karl Berndsen (d.28.1.2020) klippir Leif Þór Ragnarsson sem situr í fangi föður síns Ragnars Smára Ingvarssonar. Myndin var tekin kringum 1985.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1454
Guðmundur Finnbogason að koma frá því að taka bensín á fjórhjólið sitt 8. október 2012.
Helgi Gunnarsson 38
Starfsmenn Helga Gunnarssonar steypa utan um sérhannað fótstykki sem var notað sem undirstaða fyrir endurvarpa sem komið var fyrir á toppi fjallsins Jörundar (Jörundarfells 1018m hátt) í Vatnsdal. Þangað var fótstykkið flutt með stórri herþyrlu sem var á Norðurlandi vegna einhverra heræfinga. Myndin var líklega tekin sumarið 1997. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Baldvin Hjaltason, Sigurður Björnsson og Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011). Maðurinn sem sést yfir höfuð Eðvarðs er óþekktur bílstjóri steypubílsins.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn142
Kjartan Bjarnason frá Holti (Eyri) situr á tröppunum við Fellsborg.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn112
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) tollvörður á Skagaströnd með embættishúfuna í febrúar 1964.
Helgi Gunnarsson 16
Menn frá Helga Gunnarssyni ganga frá sperrum /burðarvirki íþróttahússins sumarið 1997. Mennirnir eru, frá vinstri: Steinþór Karlsson, Viktor Pétursson, Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) og Gunnar Helgason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1298
Finnur Kristinsson til vinstri og Steindór Haraldsson til hægri að koma upp flóknu framleiðslukerfi í húsnæði Rækjuvinnslunnar 11. maí 2012. Ekki voru þó tækin notuð við vinnslu á rækjum heldur var um einhvers konar eimingartæki að ræða, sem Steindór notaði við framleiðslu sína.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn133
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996). Mynd klippt út úr blaði frá 1940. Myndbirtingin var í tengslum við björgunarafrek sem hann vann er hann bjargaði félaga sínum frá drukknun í Reyjarfirði í Árneshreppi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1376
Hlynur Tryggvason með færi og beitu tilbúinn að taka þátt í dorgveiðikeppni á bryggjunni á Kántrýhátíð 18. ágúst 2012.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 34
Vilhelm Þór Þórarinsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1713
Viggó Brynjólfsson fær sér kaffibolla áður en hann fer að spila fyrir dansi á harmonikuna sína í jóla-barnaballi Lions í Fellsborg 26.desember 2010.
Skagaströnd - safn495
Þetta fólk voru nágrannar í áratugi og síðan bjuggu þau bæði á Sæborg undir það síðasta. Gunnar Helgason (d.19.10.2007) leiðir þessa gömlu grannkonu sína Jónínu Valdimarsdóttur (d.12.3.2020) á leið í félagsstarf aldraðra í Fellsborg.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1220
Myndin var tekin 4. júlí 2011 þegar Magnús B. Jónsson til vinstri og Ólafur Bernódusson til hægri, félagar í Skógræktarfélagi Skagastrandar, plöntuðu fallegum og sterklegum birkiplöntum í hornið á skólalóðinni vestan við íþróttahúsið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1511
Myndin var tekin 16. nóvember 2011 í þokusudda þegar unnið var við niðurrif á olíutanki Olís við Höfðann. Mennirnir eru óþekktur vinnuvélastjórnandi til vinstri og Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) umboðsmaður Olís á Skagaströnd til hægri.
Guðrún Þórbjarnardóttir124
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Ekki er vitað hver maðurinn á hestinum er en það gæti verið sonur Jóns, Jens Jónsson (d.7.12.1975).
Guðrún Þórbjarnardóttir160
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Sölvason, Þorbjörn Sigurðsson og Árni Kristófersson (d.11.10.1982). Jón og Árni eru langafar Þorbjörns. Myndin var tekin 1966.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 965
Einar Sigurbergur Arason kennari á skólavellinum 26. mars 2007.
Ólafur Bernódusson 896
Pétur Eggertsson formaður Rauðakross deildar Skagastrandar flytur ávarp þegar húsnæði deildarinnar var tekið í notkun í apríl 1999.
Guðrún Þórbjarnardóttir122
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á hana hefur hann skrifað, Ingibjörg Aðalsteinsson, en nefnir ekki manninn. Ef þú veist einhver deili á þessu fólki vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Helgi Gunnarsson 43
Eftir bruna gamla Kántrýbæjar var fljótlega hafist handa við endurbyggingu hans. Keypt var tveggja hæða bjálkahús frá Finnlandi sem var raðað saman á byggingarstað. Það verk annaðist Helgi Gunnarsson með starfsmönnum sínum. Myndin var tekin 28. apríl 1998 þegar lokið var við að reisa nýja húsið. Á henni eru karlarnir sem komu mest að byggingu hússins, frá vinstri: Rúnar Kristjánsson, Einar Gunnarsson, Hrólfur Pétursson, óþekktur, Hallbjörn J. Hjartarson eigandi Kántrýbæjar, óþekktur, Baldvin Hjaltason og Sigurður Björnsson.
Guðrún Þórbjarnardóttir061
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni eru synir Jóns. Frá vinstri: Þórbjörn Jónsson (d.22.1.1996), Jens Jónsson (d.7.12.1975) og Björgvin Jónsson (d.4.5.1992). Myndin var tekin í garðinum við Flankastaði, heimili Þórbjörns, sumarið 1963. Húsið næst í baksýn er Kárastaðir, sem nú er horfið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 773
Stefán Sveinsson til vinstri og Reynir Lýðsson til hægri á hátíð í kofabyggðinni um miðjan ágúst 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 750
Hjónin Helga Berndsen og Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) (Bíbí og Laugi) í Karlsskála hjálpast að við að hengja út þvottinn. Myndin var tekin haustið 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1100
Vinirnir Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) og Guðrún Guðmundsdóttir fyrir utan heimili Gunnars að Oddagötu 5. Bæði voru/eru þau áhugafólk um söfnun gamalla muna og að halda sögunni til haga. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1389
Þeir njóta sólarinar á Kántrýhátíð á Hnappstaðatúninu 12. ágúst 2011, Hjalti Hólmar Indriðason með hatt til vinstri og Ómar Jakobsson til hægri.
IMG_5953
Kátir karlar í vinnunni í fiskvinnslu Fisk Seafood í húsnæði Rækjuvinnslunnar 15. október 2007. Frá vinstri: Guðmundur Kristinsson, Jón Heiðar Jónsson og Baldvin Hjaltason.
Helgi Gunnarsson 35
Hjónin Helgi Gunnarsson verktaki og Alda Ragnheiður Sigurjónsdóttir á góðum degi, 15. mars 1998, þegar íþróttahúsið var vígt. Helgi sá um byggingu hússins.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1630
11. júní 2011 kom sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi í Kántrýbæ og heiðraði Hallbjörn Hjartarson fyrir framlag hans til kántrýtónlistar á Íslandi. Við það tækifæri afhenti Ólafur Thorarensen Hallbirni veglegan indíána höfuðbúnað að gjöf, Á myndinni er Hallbjörn til vinstri og Ólafur til hægri á sviðinu í Kántrýbæ.
Ólafur Bernódusson 1098
14. maí 2014 kom Sigurjón Guðbjartsson með nýjan yfirbyggðan bát til Skagastrandar í fyrsta sinn. Báturinn hét Kristinn HU 712 en var skírður Alda Hu 112 eftir að hann komst í eigu Víkur ehf, sem er í eigu Sigurjóns. Eins og ávallt þegar nýr bátur kemur til hafnar hópast sjómenn að til að skoða gripinn og spá og spekúlera. Á myndinni er sonur Sigurjóns, Jóhann Guðbjartur, til vinstri á spjalli við gamlan sjó- og útgerðarmann, Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) til hægri. Jóhann var skipstjóri á bátnum meðan hann var gerður út frá Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson 1095
Hjónin Signý Richter og Ingibergur Guðmundsson 5. júlí 2014 í einhverju óþekktu samsæti í Fellsborg.
Ólafur Bernódusson 1000
Þórarinn Eldjárn les úr verkum sínum í kjallara Fellsborgar haustið 1984.
Guðrún Þórbjarnardóttir143
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er sonur hans, Björgvin Jónsson (d.4.5.1992).
Guðrún Þórbjarnardóttir - safn 005
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Eggert Ragnar Sölvason (d.3.3.1963) var bróðir Jóns. Í minningargrein í Morgunblaðinu frá 9. október 1963 kemur m.a. fram að Eggert hafi verið söngelskur hagyrðingur og að hann hafi kunnað Flóru Íslands utanað. (Heimild: https://timarit.is/page/1054838?iabr=on#page/n4/mode/2up)
Skagaströnd - safn485
Hjónin Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003) og Skafti Fanndal Jónasson (d.2.9.2006) í Kántrýbæ 4. desember 1998 þegar eldri borgarar á Skagaströnd gerðu sér glaðan dag þar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1429
Birkir Rafn Gíslason gítarleikari spilar á hljóðfæri sitt á Kántrýhátíð 13. ágúst 2011.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 26
Þessi mynd var tekin af hjónunum Gunnhildi Lindu Vigfúsdóttur (d.30.1.2018) og Heiðari Elvan Friðrikssyni þegar þau voru í tilhugalífinu á áttunda áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1431
Ungir menn á svölunum á þorrablóti í Fellsborg 5. febrúar 2011 taka þátt í fjöldasöng. Frá vinstri: Ragnar Már Björnsson, Stefán Velemir, Sigurjón Elí Eiríksson, Sæþór Bragi Ágústsson og Ernst Guðni Hólmgeirsson.
Skagaströnd - safn487
Hjónin Helga G. Guðmundsdóttir og Kristján G. Sigurðsson (d.4.12.2019) frá Höskuldsstöðum 27. maí 2002.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1409
Systkinin Vala Rós Ingvarsdóttir og Ragnar Smári Ingvarsson í sólskini utan við Bjarmanes 13. ágúst 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1315
Árni Geir Ingvarsson hengir upp ljósmyndir sínar 14. ágúst 2012 fyrir sýningu í íþróttahúsinu. Á sýningunni, sem stóð í nokkra daga og var fjölsótt, sýndi Árni myndir úr mannlífinu á Skagströnd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1153
Séra Magnús Magnússon og Stella Kristjánsdóttir skólastjóri Höfðaskóla á spjalli utan við íþróttahúsið 19. mars 2003.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1169
Þessi mynd var tekin í gamla vigtarskúrnum 5. september 2005. Þórey Jónsdóttir hafnarvörður situr við skrifborðið en Þröstur Líndal Gylfason "starfsmaður á plani" spjallar við hana.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1179
Vilhjálmur Jónsson til vinstri og Stefán Sveinsson hægri 4. september 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1421
19. ágúst 2012 var þessi mynd tekin af þessum bræðrum. Frá vinstri: Þórarinn Brynjar Ingvarsson, Ragnar Smári Ingvarsson og Árni Geir Ingvarsson.
Guðrún Þórbjarnardóttir045
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Hún er klippt út úr blaði og því eru myndgæðin mjög slæm. Hún er samt birt hér vegna þess hve skemmtileg hún er. Myndin er líklega tekin kringum 1965 af mönnum frá Skagaströnd sem voru í vinnu hjá síldaröltunarstöð Gunnars Halldórssonar á Raufarhöfn. Mennirnir eru frá vinstri: Sigurður Pálmason, ?Árni Sigurðsson ?, Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988), Kristján Hjartarson (d.2.8.2003), Kristinn Guðmundsson (d.1.12.1986), óþekktur, Sveinbjörn Blöndal (d.7.4.2010), ?Pétur Jóhannsson?, Georg Hjartarson (d.13.9.2001), Hartmann Jóhannesson (d.22.12.1976) og Kristófer Árnason (d.10.5.2000). Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 182
Jón Helgason (d.1.12.2019) sópar á svölunum hjá sér.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 97
Myndin var tekin í sjómannadagspartýi heima hjá Stefáni Jósefssyni útgerðarmanni Ólafs Magnússonar HU 54. Á myndinni stikar Jón Gunnar Jósefsson aftast en í sófanum sitja frá vinstri: Snorri Gíslason (d.29.5.1994), Guðmundur J. Björnsson og Rúnar Jósefsson.
Guðrún Þórbjarnardóttir076
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Jón með tveimur (?afa?) stúlkum. Ef þú þekkir stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1
…
14
15
16
…
32
Leita í myndasafninu
Leita