Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Guðrún Þórbjarnardóttir123
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er sonur hans, Þórbjörn Jónsson (d.22.1.1996).
Ólafur Bernódusson 1100
Á myndinni frá 12. mars 2014 er Jón Sveinsson netagerðamaður til hægri að vinna í voðinni með sjómönnunum af snurvoðarbátnum/dragnótabátnum Hafrúnu Hu 12. Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson skipstjóri til vinstri og Hafþór Smári Gylfason stýrimaður í miðið.
Guðrún Þórbjarnardóttir079
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er sonur hans Björgvin Jónsson (d.4.5.1992).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1415
Frændurnir Árni Geir Ingvarsson til vinstri og Halldór Gunnar Ólafsson til hægri á Kántrýhátíð 13. ágúst 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1424
Þráinn Bessi Gunnarsson á vélfáki sínum 19. ágúst 2012 en þá stóð yfir Kántrýhátíð á Skagaströnd.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 69
Ómar Jakobsson fær sér fyrsta kaffibollann og fyrstu sígarettuna nýkominn á vaktina um borð í síðutogaranum Arnari HU 1. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1970.
Guðrún Guðmundsdóttir 2
Sveinn Kristófersson (d.9.5.1991) frá Bergi. Myndin var tekin við gróðurskála við Hólabraut 22 líklega snemmsumars 1984.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 182
Jón Helgason (d.1.12.2019) sópar á svölunum hjá sér.
Guðrún Þórbjarnardóttir117
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á myndinni, sem er klippt út úr blaði, er Fritz H. Berndsen (d.19.10.1965).
Ragnar S. Ingvarsson - safn 65
Heiðar Elvan Friðriksso til vinstri og Magnús Margeirsson til hægri vinna við trollið á dekkinu á síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Skagstrendingur hf gerði Arnar út frá Skagaströnd á árunum 1969 - 1972.
Ólafur Bernódusson 1101
23. júní 2014 var vígð ný göngubrú yfir Hrafná niður við ósa hennar. Á myndinni er Jakob Guðmundsson, bóndi á Árbakka og því eigandi landsins innan við ána, nýbúinn að klippa á borða, sem lokaði brúnni að sunnanverðu, og opna hana þannig formlega. Jakob veifar til viðstaddra en Adolf H. Berndsen oddviti Sveitarfélagsins Skagastrandar klappar fyrir opnuninni.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 97
Myndin var tekin í sjómannadagspartýi heima hjá Stefáni Jósefssyni útgerðarmanni Ólafs Magnússonar HU 54. Á myndinni stikar Jón Gunnar Jósefsson aftast en í sófanum sitja frá vinstri: Snorri Gíslason (d.29.5.1994), Guðmundur J. Björnsson og Rúnar Jósefsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1458
Myndin var tekin 11. september 2011 af Hallgrími Hjaltasyni bónda á Skeggjastöðum 2 á hesti sínum við smölun.
Ólafur Bernódusson 991
Myndin var tekin 22. september 1983 þegar Landsbankaútibúið á Skagaströnd var opnað formlega. Þá var reyndar liðið u.þ.b. eitt ár frá því að Landsbankinn yfirtók starfssemi Sparisjóðs Skagastrandar. Á myndinni bera saman bækur sínar Alþingismennirnir, frá vinstri: Stefán Guðmundsson (d. 10.9.2011), Ragnar Arnalds, Páll Pétursson og Pálmi Jónsson (d. 9.10.2017).
Guðrún Þórbjarnardóttir092
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er hann sjálfur á yngri árum.
Ólafur Bernódusson 956
Myndin var tekin í hófi í Fellsborg vegna vígslu nýs verslunarhúss Kaupfélags A-Hún við Bogabraut á Skagaströnd. Líklega var þetta árið 1983. Á myndinni fer Ólafur Magnússon (d.23.8.1991) frá Sveinsstöðum, þáverandi formaður stjórnar kaupfélagsins, yfir byggingarsögu hússins. Lengst til hægri sér í Björn Magnússon á Hólabaki og lengst til vinstri sér í Guðmund Theódórsson (d.28.2.2020) á Blönduósi. Maðurinn á milli Guðmundar og Ólafs er óþekktur.
Guðrún Þórbjarnardóttir020
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Maðurinn er Valdimar B(jörnsson ?). frá Syðri Ey.
Ólafur Bernódusson 990
Myndin var tekin 22. september 1983 þegar Landsbankaútibúið á Skagaströnd var opnað formlega. Þá var reyndar liðið u.þ.b. eitt ár frá því að Landsbankinn yfirtók starfssemi Sparisjóðs Skagastrandar. Á myndinni spjallar Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf til hægri við Lúðvík Jósefsson (d.18.11.1994) Alþingismann, ráðherra og þáverandi stjórnarformaður Landsbankans til vinstri. Í baksýn er Jón Jónsson (d.9.7.1991) hreppsnefndarmaður Höfðahrepps.
gunnar056
Maðurinn um borð í Stíganda HU 9 í línuróðri er óþekktur. Ekki er helddur vitað hvenær myndin var tekin. Myndin er því miður nokkuð skemmd.
Helgi Gunnarsson 14
Gólfið undir íþróttasalnum var steypt í einingum eins og sést á myndinni. Á henni er steypuvinna í fullum gangi. Mennirnir á myndinni eru óþekktir nema sá sem stendur uppi á miðhæðinni rauðum samfestingi og er að hífa steypuna. Það er Baldvin Hjaltason.
Skagaströnd - safn479
Haukur Gunnlaugsson (d.18.1.2004) á góðri stund í Kántrýbæ 4. desember 1998.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 100
Árni Geir Ingvarsson og Kristín Jónsdóttir mágkona hans í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Þórbjarnardóttir038
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er sonur hans, Jens Jónsson (d.7.12.1975).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1677
Platan steypt á nýjum viðlegukanti - Sægarði - í Skagastrandarhöfn síðsumars 1991. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1189
Þrír skipsfélagar um borð í Arnari HU 1 á annan í jólum 2010. Líklega eru þeir að undirbúa jóla-barnaball Lionsklúbbsins því þeir eru allir Lionfélagar. Frá vinstri: Guðmundur Finnbogason, Gunnar Reynisson kokkur og Guðjón Guðjónsson skipstjóri.
Óskar Kristinsson safn 086
Myndin var tekin um borð í Stapafelli SH 15 frá Ólafsvík þegar það var á netaveiðum. Gylfi Jóhannsson til vinstri og Heiðar Elvan Friðriksson (Teni) til hægri hvíla sig á stíminu milli trossa. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 59
Á myndinni, sem ekki er vitað hvenær var tekin né hvar, eru frá vinstri töffararnir: Heiðar Elvan Friðriksson, Karl Guðmundsson og óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 179
Hjónin Aðalheiður Guðmundsdóttir (d.24.9.2011) og Jón Helgason (d.1.12.2019) á góðri stundu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1537
Ólafur Magnússon Hu 54 settur á flot 13. apríl 2011. Gísli Snorrason stendur í stafni en aftar eru Sævar Hallgrímsson í blárri úlpu og Stefán Jósefsson eigandi bátsins aftan við hann.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 101
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin í Fellsborg en líklega hefur það verið á sjómannadegi. Á henni eru frá vinstri: óþekktur, Stefán Jósefsson, Hjörtur Guðbjartsson, Pétur Ingjaldur Pétursson, Guðmundur Haukur Sigurðsson og Björn Sigurbjörnsson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 126
Ragnar Smári Ingvarsson. Ekki er var hvenær myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 41
Vinirnir Ragnar Smári Ingvarsson og Sigríður Birna Björnsdóttir kringum 1970. Í bragganum, í baksýn til hægri, var rekið vélaverkstæði og seinna slökkvistöð Skagastrandar.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 167
Feðgarnir Ragnar Smári Ingvarsson og Jón Ingi Ragnarsson hakka efni í slátur/lifrapylsu ? heima í eldhúsi. Myndin var líklega tekin seint á níunda áratugnum.
Helgi Gunnarsson 8
Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) til vinstri og Baldvin Hjaltason til hægri vinna við byggingu íþróttahússins vorið 1997.
Ólafur Bernódusson 1060
Listamaðurinn Guido van Helten stendur framan við stóra graffiti veggmynd sem hann spreyaði á Ketilhúsið við höfnina á Skagaströnd. Myndin var tekin 5. júní 2013 þegar hann hafði ný lokið verkinu. Guido er ástralskur snillingur með spreybrúsana sem hefur gert risastór garffiti verk víða um heim, gjarnan á stóra gluggalausa húsgafla, tanka of fleiri slíkar byggingar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1471
Myndin var tekin 3. mars 2011 í ketilhúsinu við veksmiðjuna. Í þessu rými var stór gufuketill, sem kyntur var þegar síldaverksmiðjan var í gangi. Hann framleiddi gufu sem bæði var notuð til að snúa gufuhverfli til að búa til rafmagn fyrir verksmiðjuna og síðan var gufan leidd yfir í versmiðjuna þar sem hún var notuð til að gufusjóða síldina. Á myndinni er búið að fjarlægja ketilinn og húsnæðið komið í eigu Sigurjóns Guðbjartssonar, sem styður sig við skóflu á myndinni, Hjá honum er Guðmundur Jón Björnsson gröfumaður, sem hjálpaði til að fjarlægja undirstöðurnar fyrir ketilinn svo hægt væri að steypa nýtt gólf í húsið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1388
Ragnheiður Linda Kristjánsdóttir, starfsmaður BioPol, gefur bróður sínum, Ómari Jakobssyni, að smakka á fiskisúpu í samkomutjaldinu á Hnappstaðatúninu á Kántrýhátíð 12. ágúst 2011
Guðrún Þórbjarnardóttir081
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er óþekktur maður. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 965
Einar Sigurbergur Arason kennari á skólavellinum 26. mars 2007.
Ólafur Bernódusson 896
Pétur Eggertsson formaður Rauðakross deildar Skagastrandar flytur ávarp þegar húsnæði deildarinnar var tekið í notkun í apríl 1999.
Guðrún Þórbjarnardóttir093
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er óþekktur drengur á ljósmynd tekinni af Ara Björnssyni. Ef þú þekkir drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 1039
Á ágústkvöldi 1998 drógu félagarnir, Guðmundur J. Björnsson og Ólafur Bernódusson, hnúfubak til lands á bát sínum Benna Ólafs Hu. Myndin var tekin morguninn eftir þegar þeir félagar voru að undirbúa að draga hvalinn upp í fjöru. Guðmundur stendur á lunningunni en hjá honum er dóttir hans Kristbjörg Una Guðmundsdóttir. Eins og sjá má var hvalurinn álíka langur og báturinn.
Guðrún Þórbjarnardóttir087
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Tryggvi Bergs. Ekki er vitað hvort Tryggvi var Bergsson, Bergsteinsson eða eitthvað annað og ekkert er vitað um Tryggva. þannig að ef þú veist eitthvað um hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Þórbjarnardóttir088
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Björn Þorleifsson (d.26.5.1956) verslunarstjóri og fyrsti oddviti Höfðahrepps eftir skiptingu Vindhælishrepps hins forna 1939.
Ólafur Bernódusson 1061
Halldór Gunnar Ólafsson framkvæmdastjóri Biopol tekur við viðurkenningu til fyrirtækisins á degi atvinnulífsins 5. desember 2012 úr höndum Jóns Óskars Péturssonar framkvæmdastjóra SSNV. Biopol var kjörið fyrirtæki ársins á norðurlandi vestra árið 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1626
Magnús B. Jónsson til vinstri og Ólafur Bernódusson til hægri kynna næsta atriði á þorrablóti í Fellsborg 4. febrúar 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1691
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) hefur náð sér í lúðu í soðið 13. febrúar 2006. Ekki er vitað hvar myndin var tekin en líklega hefur það verið í höfninni í Grindavík og báturinn fyrir aftan Hebba er líklega Ólafur Magnú HU 54 frá Skagaströnd..
Ragnar S. Ingvarsson - safn 136
Myndin var tekin í einhverju kaffisamsæti í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær né hvert tilefnið var. Á henni eru Ragnar Smári Ingvarsson og Anna Jóna Geirsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1673
Sævar Hallgrímsson til vinstri og Hjörtur Guðbjartsson til hægri fylgjast með þegar verið var að taka upp bát 16. mars 2012 í leiðinda veðri.
Ólafur Bernódusson 925
Myndin var tekin á Þorláksmessu 1998 á árlegri skötuveislu togaramanna í Fellsborg. Á myndinni skammta á diska gesta yfirmennirnir á Arnari Hu, Ernst Berndsen yfirvélstjóri til vinsri með kartöflurnar og Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri til hægri með feitina á skötuna.
Guðrún Þórbjarnardóttir040
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er Jón til hægri en Steingrímur Þormóðsson til vinstri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
gunnar053
Myndin var tekin um borð í Stíganda HU 9 á línuveiðum. Bjarni Helgason (d.30.12.1983) skipstjóri stingur hausnum út um gluggann en maðurinn á dekkinu er óþekktur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Þórbjarnardóttir142
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er sonur hans, Björgvin Jónsson (d.4.5.1992).
Guðrún Þórbjarnardóttir163
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Helgi Jónatansson (d.22.8.2020) fóstursonur Björgvins Jónssonar (d.4.5.1992) sonar Jóns Sölvasonar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1648
Ian Witting sendiherra Breta á Íslandi kom í heimsókn til Skagastrandar sumarið 2011. Á myndinni er hann til vinstri að spjalla við Halldór Gunnar Ólafsson og Jón Ólaf Sigurjónsson til hægri á skrifstofu BioPol 23. júní 2011.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 178
Einar Haukur Arason smiður vinnur við eldhúsinnréttingu á Ránarbraut 21.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1711
Sævar Hjaltason til vinstri og Rúnar Jósefsson til hægri eru báðir orðnir afar. Það skírir kannski hvers vegna þeir eru á jóla-barnaballi Lions í Fellsborg 26. desember 2012.
Ólafur Bernódusson 942
Leikklúbbur Skagastrandar setti Kardimommubæinn á svið í febrúar 1992. Á myndinni, sem tekin var á æfingu, eru í hlutverkum ræningjanna, frá vinstri: Ingólfur Bjarnason, Rúnar Jóhannsson og Jón Ingvar Valdimarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1035
Pétur Eggertsson og Snati hvíla lúin bein á bekk á Hnappstaðatúninu á Kántrýhátíð 19. ágúst 2006.
Guðrún Þórbjarnardóttir094
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Halldór Halldórsson Snæhólm (d.28.11.1964) frá Sneis í Laxardal. Halldór var mágur Jóns Sölvasonar.
1
…
15
16
17
…
32
Leita í myndasafninu
Leita