Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson 942
Leikklúbbur Skagastrandar setti Kardimommubæinn á svið í febrúar 1992. Á myndinni, sem tekin var á æfingu, eru í hlutverkum ræningjanna, frá vinstri: Ingólfur Bjarnason, Rúnar Jóhannsson og Jón Ingvar Valdimarsson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 146
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Á henni eru, frá vinstri: Ragnar Smári Ingvarsson, Ástmar Kári Ástmarsson og Bergþór Gunnarsson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 151
Mágarnir Ragnar Smári Ingvarsson til vinstri og Guðmundur Jónsson til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 992
Ingvar Jónsson (d.18.1.2003) frá Sólheimum við vinnu sína hjá KH (Kaupfélagi Húnvetninga) í gamla kaupfélagshúsinu á Skagaströnd 1984. Ingvar var starfsmaður í byggingavörudeildinni, sem var í kjallaranum, en hjálpaði oft til í versluninni á miðhæðinni. Þeirri verslun var lokað 1989 en deildin í kjallaranum var opin í 10 ár lengur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1566
Helgi Gunnarsson til vinstri og óþekktur maður frá verktaka til hægri fylgjast með niðurbroti á þrónum við síldarverksmiðuna 4. maí 2011.
Ólafur Bernódusson 1093
Sandburður inn í höfnina er vandamál á Skagaströnd. Þessi mynd var tekin 12. mars 2014 en þá hafi sandur sest á brautir dráttarbrautarinnar úti í sjó. Það varð til þess að sleðinn, sem bátarnir eru dregnir upp í, fór út af brautunum. Á myndinni eru starfsmenn Vélaverkstæðis Skagastrandar, Hjörtur Guðbjartsson til vinstri og Gísli Snorrason til hægri, að undirbúa að hífa sleðann og bátinn í honum upp á brautirnar aftur til að hægt sé að draga bátinn upp á sinn stað. Við þessa vinnu voru notaðar tvær stórar beltagröfur.
Ólafur Bernódusson 934
Helgi Gunnarsson til vinstri og Björn Sigurðsson til hægri þökuleggja framan við þjónustuíbúðirnar við Ægisgrund 2- 8. Myndin var tekin í febrúar 1992.
Barnaból - safn595
Myndin var tekin 6. júlí 2007 þegar leikskólinn Barnaból hélt upp á 30 ára afmæli sitt. Á myndinni spjalla saman þeir Guðmundur J. Björnsson til vinstri og Guðjón Ólafsson skólamálastjóri til hægri.
Helgi Gunnarsson 15
Sigurður Björnsson við vinnu sína á trésmíðaverkstæði Helga Gunnarssonar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1998.
Dagrún HU 121 image 9
Janette Kerr er listamaður sem dvaldi hjá Nes listamiðstöð í mars 2020. Þá fór hún einn netaróður með feðgunum á Dagrúnu HU 121 í köldu en góðu veðri. Á myndinni eru feðgarnir, Eiríkur Lýðsson skipstjóri til vinstri og Friðmar Kári Eiríksson til hægri, komnir í land og búnir að landa eftir ágætan túr. Dagrúnin í baksýn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1624
Pétur Eggertsson vinstra megin og Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi) til hægri á þorrabóti í hjúkrunarheimilinu Sæborg 3. febrúar 2012.
Dagrún HU 121 image 7
Janette Kerr er listamaður sem dvaldi hjá Nes listamiðstöð í mars 2020. Þá fór hún einn netaróður með feðgunum á Dagrúnu HU 121 í köldu en góðu veðri. Á myndinni er Friðmar Kári að ganga frá aflanum úr síðustu trossu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1667
Myndin var tekin 2. júlí 2012 á bryggjunni við Hafrúnu Hu 12. Þar eru þeir að spá í spilin Sigurjón Guðbjartsson útgerðarmaður til vinstri, Hallbjörn Björnsson rafvirki í miðjunni og Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson skipstjóri til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1573
Árni Geir Ingvarsson bæjarverkstjóri lokar veginum niður á höfnina 6. maí 2011 vegna framkvæmda við niðurbrot á þrónum við síldarverksmiðjuna.
Guðrún Þórbjarnardóttir030
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Jón til hægri að spjalla við Lúðvík Kemp (d.30.7.1971) til vinstri. Hvenær og hvar er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1591
Nágrannarnir Stefán Jósefsson til vinstri og Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) til hægri spjalla saman 12. maí 2011.
gunnar025
Á myndinni er verið að gera Húna II Hu 2 kláran fyrir næstu veiðiferð á síld. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það einhverntíma á árunum 1960 - 65. Karlarnir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1579
Flugeldasala björgunarsveitarinnar Strönd og umf Fram 29. desember 2011. Afgreiðslumennirnir eru frá vinstri: Kristján Pétur Guðjónsson, Stefán Sveinssaon og Eiríkur Lýðsson. Barnið er líklega sonur Stefáns, Daði Snær Stefánsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1610
Myndin var tekin 21. janúar 2012 af hjónunum Steindóri R. Haraldssyni og Ingibjörgu Björgvinsdóttur (d.14.2.2018) í hófi kirkjukórs Hólaneskirkju en Ingibjörg söng með kórnum um árabil. Steindór þjónaði aftur á móti sem meðhjálpari í áratugi.
Ólafur Bernódusson 1034
Þessi mynd af áhöfn Arnars Hu 1 var tekin í september 1998 þegar þeir komu að landi með met afla. Fólkið á myndinni er, standandi frá vinstri: ? Gylfadóttir, Ívar Gylfason, ? Gylfadóttir, Guðjón Guðjónsson skipstjóri (fjær), Kristján Pétur Guðjónsson (nær), Grétar Smári Hallbjörnsson, Gunnar Reynisson, Hafþór Smári Gylfason, Þorlákur Ómar Guðjónsson, Jóhann Ásgeirsson, Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002), óþekktur, Björn Sigurþór Sigmundsson, Gestur Arnarson, Róbert Gunnarsson, Sigurjón Ingólfsson, óþekktur, Sævar Berg Ólafsson, Svanur Árnason, Reynir Lýðsson og Jónas Fanndal Þorvaldsson. Krjúpandi frá vinstri: Ingvar Þór Jónsson, Hólmgeir Kristmundsson með Mikael Garðar Hólmgeirsson í fanginu, Tryggvi Hlynsson, Skúli Tómas Hjartarson, Óskar Þór Kristinsson og Þröstur Árnason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1641
Sigurður Ingimarsson starfsmaður fiskmarkaðarins til vinstri og Sævar R. Hallgrímsson sjómaður til hægri að landa þorsklifur í kalsaveðri 22. febrúar 2012.
Helgi Gunnarsson 28
Rolf Árnason (d.3.6.2014) tæknifræðingur sveitarfélagsins til vinstri og Helgi Gunnarsson verktaki til hægri fagna með veisluföngum í reisugilli íþróttahúsinu sumarið 1997.
Óþekktur ljósmyndari453
Halldór Hermannsson afhendir Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) blóm eftir að hann tók við sem verslunarstjóri í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. María hafði gegnt því embætti nokkru áður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en staðurinn er Hótel Dagsbrún sem rekið var á miðhæðinni í Stjórnsýsluhúsinu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1690
Ingvar Jónsson (d.18.1.2002) í Sólheimum með hestinn sinn og barn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvert barnið er.
Helgi Gunnarsson 12
Starfsmenn Helga Gunnarssonar vanda vinnuna við undirlagið undir steypt gólf íþróttasalarins. Maðurinn með réttskeiðina er Viktor Pétursson en beint aftan við hann stendur Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011). Til hægri er Sigurður Björnsson og maðurinn í ljósu peysunni er Steinþór Karlsson. Lengst til vinstri er Baldvin Hjaltason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1572
Haraldur Árnason starfsmaður Fiskmarkaðs Skagastrandar hvolfir ýsu í kör í löndun 6. maí 2011. Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson skipstjóri fylgist með.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1568
Myndin var tekin 5. maí 2011 af þeim Bjarna Jónassyni til vinstri og Halldóri Gunnari Ólafssyni til hægri að sansa bauju vegna einhvers rannsóknarverkefnis á vegum BioPol.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1587
Viggó Brynjólfsson að dunda við bílinn sinn 10. maí 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1324
Spjallað fyrir utan Spákonuhofið 22. maí 2012. Mennirnir eru: Adolf H. Berndsen við hjólið, Þór Arason (d.11.8.2018) í smíðasvuntu og Sigurður Bjarnason.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 124
Rúnar Jósefsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 005
Magnús B. Jónsson um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 líklega árið 1969.
Helgi Gunnarsson 4
Unnið við að steypa upp neðri hæð íþróttahússins vorið 1997. Steypan kom frá Steypustöð Blönuóss en Sigurjón Ásarsson hífði steypuna með Benz vörubíl sínum. Starfsmenn Helga Gunnarssonar taka á móti.
Guðrún Þórbjarnardóttir094
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Halldór Halldórsson Snæhólm (d.28.11.1964) frá Sneis í Laxardal. Halldór var mágur Jóns Sölvasonar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1609
Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) spilar á harmóniku fyrir félaga í kirkjukór Hólaneskirkju í hófi í Kántrýbæ 21. janúar 2012.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 152
Feðgarnir Ægir Thorberg Jónsson og Jón Helgason (d. 1.12.2019). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið um áramót einhverntíma kringum 1985.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 47
Myndin var tekin í brúnni á síðutogaranum Arnari HU 1 kringum 1970. Nær okkur er Jóhann Baldvinsson (d.9.4.1990) (Jói norski) en fjær er Björn Haraldsson (d.21.9.1988) (Bangsi). Jói var í vélinni en Bangsi var stýrimaður og stundum skipstjóri um borð.
Guðrún Þórbjarnardóttir036
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er Jón með eitthvert barnabarna sinna í fanginu.
gunnar010
Húni Hu 1 höfninni á Skagaströnd með fullfermi af síld. Mennirnir um borð eru líklega Gunnar Sveinsson (.d3.11.2020) í svartri peysu og Gylfi Sigurðsson í köflóttri skyrtu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líkla var það kringum 1960.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 19
Ómar Jakobsson til vinstri og Þorvaldur Skaftason til hægri pósa og sýna hve stæltir þeir eru á bátadekkinu um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970.
Helgi Gunnarsson 18
Myndin var tekin í júlí 1997 þegar Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og Árni Max Haraldsson eru að vinna við glugga á veturhlið íþróttahússins. Sigmar er sá með gleraugun.
Ólafur Bernódusson 994
Guðmundur Haukur Sigurðsson framkvæmdastjóri saumastofunnar Violu sýnir ullarteppi sem er eins og teppi sem Viola gaf Rauða krossinum. Teppin, sem um ræðir, eru í kössunum á bak við Guðmund. Myndin var tekin 1984.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1608
Myndin var tekin í Kántrýbæ 21. janúar 2012. Á henni eru vinirnir og söngbræðurnir, Jón Ólafur Sigurjónsson til vinstri og Halldór Gunnar Ólafsson til hægri.
Guðrún Þórbjarnardóttir153
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Jón sjálfur að skála en með honum á myndinni er Jón Árni Jónsson (d.9.3.2004) bóndi á Sölvabakka.
Guðrún Þórbjarnardóttir089
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Tryggvi B. S. en ekki er vitað hver það er. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1529
Helgi Gunnarsson undirbýr málun á Arnari HU 1 með því að háþrýstiþvo seltuna af togaranum í höfninni á Skagaströnd 26. nóvember 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1623
Mæðginin Karitas Laufey Ólafsdóttir og Ragnar Smári Ingvarsson á leið í þorrablót í hjúkrunarheimilinu Sæborg þar sem Karitas bjó. Myndin var tekin 3. febrúar 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1704
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin utan við frystihúsið á Hólanesinu. Á henni er Kári Kristjánsson (d.11.12.1990) í hvítu og hjá honum lætur Jósef Sigurðsson fara vel um sig. Sá á horninu er óþekktur.
Óskar Kristinsson safn 073
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 líklega 1969. Eins og sést er mokafli af frekar smáum fiski. Maðurinn við spilkoppinn bakborðsmegin er Ómar Jakobsson og maðurinn með sígarettuna í miðri kösinni er Indriði Hjaltason (2.4.2006). Hinir karlarnir eru óþekktir. Myndin var tekin löngu áður en kvótakerfið var sett á og því fiskuðu menn eins og þeir gátu án þess að hafa miklar áhyggjur af samsetningu aflans.
Guðrún Þórbjarnardóttir042
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Myndina hefur Jón klippt út úr blaði og því eru myndgæðin mjög slæm. Texti myndarinnar segir hverjir mennirnir eru en Bjarni lést 8.11.1990 og Kristján 10.10.2007. Myndin var tekin 1963 eða 1964 en þá átti Hólanes hf Keili og gerði hann út.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1689
Myndin var tekin 10. mars 1995 af Höfðaborg (Bankastræti 9). Á tröppunum stendur Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) og býr sig undir að moka tröppurnar hjá sér.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 16
Stöku sinnum kom að fyrir að sjómenn tækju sér smá pásu frá verkunum um borð og stælust í land til að fá sér egg í soðið í einhverju fuglabjarginu. Á þessari mynd er Ragnar S. Ingvarsson að laumast að lundum í lundabyggð einhversstaðar. Ragnar hefur líklega verið áhafnarmeðlimur á Auðbjörgu Hu 6 þegar myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 960
Einar Hjartarson verslunarstjóri í verslun Kaupfélags A-Hún á Skagaströnd í nýrri verslun félagsins við Bogabraut. Myndin var líklega tekin 1983.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 93
Vala Rós Ingvarsdóttir og Karl Berndsen (d.28.1.2020) í nánu samtali.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 137
Jón Gunnar Jósefsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 84
Ekki er vitað hvar né hvenær þessi mynd var tekin. Maðurinn til vinstri er Ragnar Smári Ingvarsson en hinir tveir eru óþekktir. Ef þú þekkir þá vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 184
Myndin var tekin á Ránarbraut 21 þegar ný búið var að koma fyrir stigapallinum á milli hæða. Á pallinum pústa augnablik bræðurnir Árni Geir Ingvarsson til vinstri og Ragnar Smári Ingvarsson til hægri, átti íbúðina. Hjá þeim er sonur Ragnars, Jón Ingi í náttfötunum sínum. Myndin var líklega tekin 1986 eða 1987.
gunnar031
Myndin var líklega tekin um borð í Húna Hu 1 þegar verið var að landa síld til söltunar í Skagastrandarhöfn. Myndin var líklega tekin kringum 1960. Maðurinn lengst til vinstri, á kafi í síldinni, er Birgir Þórbjarnarson en aðrir eru óþekktir. Löndun síldarinnar fór þannig fram að mennirnir mokuðu henni í tunnur með háfunum sem sjást á myndinni. Tunnan var með grind sem var á þolinmóð um miðjuna en læsingu efst. þannig að auðvelt var að sturta úr henni á bílpall eða handvagn á bryggjunni eftir að hún hafði verið hífð upp með bómu bátsins. Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1697
Myndin var tekin 30. apríl 2010 þegar Arnar HU 1 var að leggja af stað í veiðiferð. Karlarnir á myndinni eru frá vinstri: Hólmgeir Kristmundsson, Þröstur Árnason og Jóhannes Indriðason.
Skagaströnd - safn522
Hrefna Hákonardóttir (d.1412.2004) biður Kristján Hjartarson um óskalag á jólahlaðborði í Kántrýbæ 4. desember 1999.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 78
Fiskur út um allt dekk á síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Eins og sjá má var vinnuaðstaðan ekki upp á marga fiska því það þurfti að beygja sig eftir hverjum fiski, blóðga og gera að honum og koma honum í þvottakarið. Þaðan rann hann niður í lest þar sem hann var ísaður í stíum. Karlarnir, sem eru í keng í aðgerðinni, eru óþekktir
1
…
16
17
18
…
32
Leita í myndasafninu
Leita