Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Óskar Kristinsson safn 004
Næst okkur er Óskar Þór Kristinsson um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) er stjórnborðsmegin frammi undir hvalbaknum með svarta húfu. Maðurinn við spilið er líklega Árni Petersen og maðurinn sem bograr við stíuna er líklega Jón Helgason (d.1.12.2019). Myndin var líklega tekin 1969 á fyrsta starfsári Skagstrendings hf.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1696
Á árum áður verkuðu margir grásleppuveiðimenn hrognin sín sjálfir og seldu þau sem fullunna vöru. Á myndinni, frá 10. apríl 2010, eru Eiríkur Lýðsson til vinstri og Stefán Sveinsson til hægri að sigta hrognin eftir veiðiferð áður en látið er síga af þeim eina nótt og síðan söltuð í tunnu. Grásleppuna veiddu þeir félagar á Dagrúnu HU 121.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 125
Hjónin Kristín Jónsdóttir og Ragnar Smári Ingvarsson með nýjan fjölskyldumeðlim í maga Kristínar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1681
Sambúðarfólkið Sturla Pétursson (d.?) og Björg Ólafsdóttir (d.1.3.2007). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari518
Hjónin í Höfnum á Skaga, Jón Benediktsson (d.30.12.2003) og Elínborg Teitný Björnsdóttir (2.5.1971). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Guðrún Þórbjarnardóttir135
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Ægir Hu 30 í höfninni á Skagaströnd. Mennirnir um borð eru óþekktir en bátinn átti Þórbjörn Jónsson (d.22.1.1996) með Guðmundi Jóhannessyni (d.17.4.2018). Bátinn notuð þeir félagar til fiskveiða og einnig sem kafarabát því báðir voru þeir lærðir hjálmkafarar og stunduðu köfun í mörg ár.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 117
Stefán Jósefsson í kojunni um borð í bát sínum Ólafi Magnússyni HU 54. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Dagrún HU 121 image 6
Janette Kerr er listamaður sem dvaldi hjá Nes listamiðstöð í mars 2020. Þá fór hún einn netaróður með feðgunum á Dagrúnu HU 121 í köldu en góðu veðri. Á myndinni eru þeir feðgarnir Eiríkur Lýðsson og Friðmar Kári Eiríksson að blóðga fiskinn sem var í síðustu trossu sem þeir drógu.
Guðrún Þórbjarnardóttir - safn 010
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni eru Fritz Hendrik Magnússon (d.19.10.1965) framar og Árni B. aftar. Ekki er vitað hver Árni er en ef þú veist það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 1
Gylfi Njáll Jóhannsson frá Lækjarbakka á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin kringum 1970.
Óþekktur ljósmyndari504
Ásmundur Árnason (d.18.6.1962) bóndi í Ásbúðum á Skaga. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1687
Myndin var tekin vorið 1961 um borð í óþekktum bát á netaveiðum. Karlarnir eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1446
Áning á bekk á Hnappstaðatúninu 30. ágúst 2012. Hallbjörn Björnsson til vinstri og Adolf H. Berndsen til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1657
Ólafur Bernódusson mundar pensilinn við lógó Spákonuhofsins á stafni þess 23. júní 2011.
Óskar Kristinsson - safn183
Högni Jensson var matsveinn á nokkrum af skipum Skagstrendings hf gegnum árin. Á myndinni er hann í eldhúsinu á einhverju þeirra en ekki er vitað hvenær og ljósmyndarinn er líka óþekktur.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 18
Heiðar Elvan Friðriksson í klefanum sínum, líklega um borð í síðutogaranum Arnari HU 1, einhverntíma kringum 1970.
Óþekktur ljósmyndari620
Jakob Pálsson (d.14.2.1955) á Karlsminni á hesti sínum. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari482
Myndin var tekin í Fellsborg af þeim Eddu Pálsdóttur (d.8.4.2016) og Halldóri Hermannssyni á fatamarkaði verslunar Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin á níunda áratugnum.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 63
Myndin var tekin á fermingardegi Ragnars Smára Ingvarssonar vorið 1968 utan við heimili hans að Bogabraut 16. Á myndinni eru, frá vinstri: Ari H. Einarsson, Birgir Árnason (d.2.2.2005), Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988) faðir Ragnars, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) og Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Árni Geir Ingvarsson, bróðir Ragnars, situr á nýja reiðhjólinu, sem hefur líklega verið fermingargjöf til Ragnars.
gunnar018
Myndin var tekin um borð í Húna Hu 1 á netaveiðum líklega einhverntíma 1960 - 65. Maðurinn lengst til vinstri, með prjónahúfuna, er líklega Sigurjón Magnússon (d.16.3.2007) en aðrir eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson safn 087
Myndin var tekin um borð í netabátnum Stapafell SH 15 frá Ólafsvík. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en maðurinn fremst á henni er Heiðar Elvan Friðriksson (Teni) hinn maðurinn er óþekktur.
Óskar Kristinsson safn 027
Myndin var tekin í brúnni á skuttogaranum Arnari Hu 1 (Japans- Arnari). Mennirnir eru Magnús Sigurðsson til vinstri og Guðjón Guðjónsson til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það einhverntíma á áttunda áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1637
Trostan Agnarsson til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson til hægri á opnu húsi í listamiðstöðinni Nes 21. febrúar 2012.
Guðrún Guðmundsdóttir 4
Hallbjörn J. Hjartarson til vinstri spjallar við óþekktan gest á Kántrýhátíð, líklega á hátíðinni 2004. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Helgi Gunnarsson 19
Á myndinni er verið að reisa burðarvirki íþróttahússins sumarið 1997. Mennirnir á myndinni eru óþekktir en þeir voru starfsmenn Helga Gunnarssonar verktaka. Vörubíllinn sem hífir sperrurnar var í eigu Gunnars Helgasonar (d.19.10.2007).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1560
Þessir Lionkarlar stilltu sér upp fyrir myndatöku á annan í jólum 2011 rétt áður en jóla-barnaball hófst í Fellsborg á vegum Lionklúbbs Skagastrandar. Mennirnir eru frá vinstri: Guðmundur Finnbogason, Gunnar Reynisson, Guðjón Guðjónsson og Slavko Velemir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1474
Þorlákur Sveinsson með rauða húfu og Guðni Már Lýðsson með bláa, um borð í Bergi sterka Hu 17, 4. mars 2011. Báturinn að verða klár fyrir grásleppuvertíðina.
Guðrún Þórbjarnardóttir108
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er sonur hans Jens Jónsson (d.7.12.1975).
Inga Stefánsdóttir 3
Stefán Ragnar Pálsson (d.1.10.1964) frá Kálfshamarsvík.
Óþekktur ljósmyndari534
Fjölskyldan í Króksseli á mynd sem líklega var tekin kringum 1945. Á henni eru hjónin Páll Júlíus Sigurðsson (d.9.11.1953) og Ingibjörg Ólafsdóttir (d.6.3.1991) með börnum sínum Sigríði Guðný (d.1.10.2020), Ólafi (d.26.3.2004) og Sigurði. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson 947
Á árum áður var laxveiði í Blöndu stundum með öðrum veiðarfærum en nú í dag. Þá var áin kolmórauð enda Blönduvirkjun ekki til. Veitt var með stórum spón og laxinn húkkaður í 99 % tilvika. Á myndinni er verið að landa einum en til þess var notuð ífæra með stórum krók. Maðurinn er óþekktur.
gunnar015
Myndin var líklega tekin kringum 1960. Á henn verið að landa síld til söltunar úr Húna Hu 1 í höfninni á Skagaströnd. Maðurinn næst okkur á myndinni með húfu og gleraugu er Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) en aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1507
Sigurður Skagfjörð Bjarnason að undirbúa málningu á þaki húss síns að Breiðabliki 1. apríl 2011.
Ólafur Bernódusson 1030
Ragnheiður Magnúsdóttir aðstoðar mann sinn,Sævar Hallgrímsson, við að landa metafla, sem hann fékk á bát sínum Hafgeiri Hu 121, í september 1998.
Óskar Kristinsson - safn157
Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017) vélstjóri um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1 (Japans Arnari). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hver gerði það.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 109
Hjónin Kristín Jónsdóttir og Ragnar Smári Ingvarsson við jólaborðið. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn 212
Óskar Þór Kristinsson pakkar fiski um borð í frystitogaranum Arnari Hu 1. Hinn maðurinn á myndinni er óþekktur en frystitækin sjást til vinstri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 8
Mennirnir á myndinni eru að þrífa stíufjalir um borð í Auðbjörgu Hu 6. Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) er til hægri, Stefán Jósefsson er í appelsínugula gallanum en maðurinn til vinstri er óþekktur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1975.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 114
Erna Magnúsdóttir og Rögnvaldur Ottósson voru lengi par og áttu saman einn son. Síðar skildi leiðir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn518
Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) og Jón S. Pálsson skólastjóri slaka á milli kennslustunda á kennarastofunni í Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það einhverntíma snemma á níunda áratugnum.
Óskar Kristinsson - safn 224
Stefán Þór Árnason til vinstri og Björn Viðar Hannesson til hægri að fínstilla ný færibönd og skammtara í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1561
Þessir þrír spiluðu fyrir dansi á jóla-barnaballi 26. desember 2011. Ballið var haldið í Fellsborg á vegum Lionklúbbs Skagastrandar. Hljómsveitarmennnirnir eru frá vinstri: Viggó Brynjólfsson, Hjörtur Guðbjartsson og Fannar Viggósson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1658
Sigurjón Guðbjartsson útgerðarmaður hjá Vík ehf vinnur við veiðarfæri sín á planinu hjá netagerðinni Toppnet 14. mars 2012.
Skagaströnd - safn514
Hjónin Sveinbjörn Blöndal (d.7.4.2010) og Birna Jónsdóttir Blöndal (d.26.10.2018) á jólahlaðborði í Kántrýbæ 4. desember 1998.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1647
Fritz Hendrik Berndsen púttar á Háagerðisvelli 17. júní 2011.
Guðrún Þórbjarnardóttir044
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni eru Þóra Jónsdóttir (d. 1966) skáldkona frá Kirkjubæ í Norðurárdal. Maður hennar er til hægri á myndinni en nafn hans er óþekkt. 1972 voru ljóð Þóru gefin út í bókinni: Ljóð Þóru frá Kirkjubæ.
Óskar Kristinsson - safn175
Guðmundur Guðjónsson Ba 205 var gerður út á rækjuveiðar frá Skagaströnd 1991 en átti heimahöfn á Brjánslæk. Á myndinni er verið að afgreiða togarann á Skagaströnd. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Gunnar Stefánsson, óþekktur, Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017), Finnur Kristinsson, Atli Þórsson, Gylfi Guðjónsson, Stefán Ægir Lárusson, óþekktur og Halldór Gunnar Ólafsson. Barnið á myndinni er óþekkt. Ljósmyndarinn er óþekktur.
gunnar065
Á þessari mynd stendur: Stefán og Una Steinnýjarst. Líklega eru þetta Una Ólafsdóttir (d.22.6.1911) og Stefán Sveinsson (d.3.5.1949) maður hennar, sem lengi bjuggu á Steinnýjarstöðum. .
Helgi Gunnarsson 36
Árni Max Haraldsson til vinstri og Gunnar Dór Karlsson til hægri vinna í vörubrettum á athafnasvæði Trésmiðju Helga Gunnarssonar. Líklega var myndin tekin sumarið 1998.
Óskar Kristinsson safn102
Reynir Lýðsson um borð í Örvari Hu 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari572
Hjónin Bjarni Jóhannsson (d.12.9.1971) og Rósa Pálsdóttir (d.1.5.2002) áttu lengi heimili á Bjargi. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 133
Lárus Ægir Guðmundsson. Myndin var tekin á sjóamannadegi en ártalið er ekki vitað.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1655
Bræðurnir Friðþór Norðkvist Sveinsson til vinstri og Þorlákur Sigurður Sveinsson til hægri um borð í bát sínum, Bergi Sterka HU 17 að gera klárt fyrir grásleppuvertíð 13. mars 2012.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 60
Þessi mynd var tekin um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Á henni eru Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) stýrimaður til vinstri og Jóhann Baldvinsson (d.9.4.1990) vélstjóri til hægri að borða í messanum/borðsalnum.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 56
Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) stýrimaður í stólnum í brúnni á síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1692
Hjónin Björk Axelsdóttir og Jón S. Pálsson í kaffidrykkju í Fellsborg 23. október 2011. Maðurinn til vinstri er Óli Aandegaard .
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1535
Menn á vegum RARIK vinna við að skipta um þverslár í staurastæðu í hlíðum Spákonufells 12. apríl 2011. Þverslárnar hafa greinilega brunnið sundur einhverra hluta vegna enda gríðarleg orka á ferðin. Mennirnin á myndinni voru starfsmenn Rarik: Kristján (Diddi) í bláum samfestingi, Leifur að bogra við bílinn og Guðmundur uppi í staurnum.
Steingrímur Jóhannesson Selá
Steingrímur Jóhannesson (d.21.6.1971) bóndi á Selá á Skaga. Í minningargrein um hann í Glóðafeyki (17. hefti 01.09.1976 bls 77 -78) segir m.a.: "Steingrímur var í hærra meðallagi á vöxt en fremur grannvaxinn, nokkuð toginleitur í andliti, dökkhærður og gráeygur. Hann var talinn góður verkmaður, ágætlega verklaginn; einnig þótti hann góður sjómaður".
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1600
Myndin var tekin á sjómannadaginn 2. júní 2012 af félögum í björgunarsveitinni Strönd á hraðbátnum Aðalbjörg. Eins og sjá má gengur Aðalbjörgin mikið á fullu ferðinni.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 110
Jón Helgason í heimókn á Suðurveginum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
1
…
17
18
19
…
32
Leita í myndasafninu
Leita