Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Ragnar S. Ingvarsson - safn 32
Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) sparibúinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn130
Gott hal á dekkinu á ísfisktogaranum Arnari Hu 1 og verið að leysa frá pokunum. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1976 - 1982. Myndina tók Vilhelm Þórarinsson. Á henni er Gylfi Guðjónsson lengst til vinstri, maðurinn í bláu peysunni er líklega Óskar Kristinsson og maðurinn í blárri peysu og brúnum buxum, aftarlega, er skipstjórinn Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017). Maðurinn í bússunum uppi á belgnum er Guðjón Guðjónsson. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1628
Myndin var tekin 11. júní 2011 í Kántrýbæ þegar sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi kom og heiðraði Hallbjörn Hjartarson fyrir framlag hans til kántrýtónlistar á Íslandi. Á myndinni er Hallbjörn til hægri með hönd undir kinn en hjá honum situr bróðir hans Sigurður Hjartarson (d.1.8.2020). Í horninu til vinstri sér í eiginkonu Hallbjörns, Amy Evu Eymundsdóttur (d.7.3.2012).
Ragnar S. Ingvarsson - safn 98
Myndin var tekin í sjómannadagspartýi heima hjá Stefáni Jósefssyni útgerðarmanni Ólafs Magnússonar HU 54. Á myndinni eru Guðjón Pálsson (Dúi)(d.14.12.1989) til vinstri og Sævar Bjarnason til hægri.
gunnar007
Myndin var tekin á sjómannadegi þegar kappróður unglinga er að hefjast. Myndin var líklega tekin kringumum 1965. Þá var róið í austur frá höfninni og lokamarkið var fram af Skúffugarðinum. Strákarnir um borð eru líklega, talið frá vinstri: Örn Berg Guðmundsson, Eðvarð Ingvason?, Sævar Hallgrímsson, Reynir Sigurðsson og tveir óþekktir. Stýrimaður gæti verið ?Birgir Árnason? (d.2.2.2005).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1636
Myndin var tekin 12. júní 2011 af golfurunum Adolf H. Berndsen til vinstri og Ingibergi Guðmundssyni til hægri að koma fyrir auglýsingum á brautarskiltinu við braut 9 á Háagerðisvelli.
Óþekktur ljósmyndari427
Ingvar Jónsson (d.18.1. 2003) frá Sólheimum var vinsæll verslunarþjónn hjá Kaupfélagi Húnvetninga á Skagaströnd. Þessi mynd var líklega tekin af honum við afgreiðslustörf í byggingavörudeildinni í "Kjallaranum" í Kaupfélagshúsinu við Einbúastíg. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn521
Ragnhildur Jónsdóttir (d.19.1.2005) til vinstri og Haukur Gunnlaugsson (d.18.1.2004) til hægri skemmta sér á jólahlaðborði í Kántrýbæ 4. desember 1999.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 2
Stöku sinnum kom að fyrir að sjómenn tækju sér smá pásu frá verkunum um borð og stælust í land til að fá sér egg í soðið í einhverju fuglabjarginu. Þessi mynd var tekin við eitt slíkt tækifæri. Karlarnir á myndinni voru líklega í áhöfn Auðbjargar Hu 6. Mennirnir eru Stefán Jósefsson til vinstri, óþekktur í miðið en til hægri er líklega Gunnar Sveinsson (d. 3.11.2020). Ekki er vitað hvaða bjarg er á myndinni.
Guðrún Þórbjarnardóttir032
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Hún er af þeim hjónum Jóni og Þorbjörgu Halldórsdóttur (d.30.6.1970) þegar þau héldu upp á gullbrúðkaupsdaginn sinn með veislu í Skátaskálanum 1967.
Óskar Kristinsson safn 016
Myndin var tekin um borð í síðutorgaranum Arnari Hu 1 líklega 1969. Maðurinn til vinstri er Árni Petersen en sá til hægri er Indriði Hjaltason (d.2.4.2006). Líklega er verið að slaka trollinu og þess vegna er Árni við spilið.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 54
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Verið er að hífa pokann inn en meiri fiskur bíður í belgnum eftir að að fara í pokann í næsta hífi. Karlarnir á myndinni eru óþekktir. Framundan má sjá í hafísröndina þannig að skipið hefur verið að toga innan um ísinn, sem oft gafst vel svo fremi það væri mögulegt.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 10
Myndin ver tekin um borð í Auðbjörgu Hu 6 á færaveiðum, líklega kringum 1975. maðurinn með hattinn er Stefán Jósefsson, Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) er út við lunninguna en maðurinn til vinstri er óþekktur (?Árni Björn Ingvarsson?).
Óskar Kristinsson - safn151
Þessa mynd tók Ómar Jakobsson þegar verið var að landa á Skagströnd úr síðutogarnum Arnari Hu 1 vorið 1969. Arnar var fyrsta skip nýstofnaðs Skagstrendings hf og kom til Skagastrandar um jólin 1968. Fiskurinn var settur í stíur í lestinni þannig að það var töluvert verk að landa úr Arnari. Í þessari löndun er líka fiskur í stíum á dekkinu en yfir hann hefur verið breitt segl eins og sjá má. Fiskurinn var hífður í land í þar til gerðum málum eins og því sem sést hægra megin á myndinni. Málin klofnuðu í miðju þegar þau voru opnuð þannig að það tók bara augnablik að losa þau á vörubílspall. Maðurinn á lúgunni, með hvíta prjónahúfu er líklega Birgir Árnason (d.2.2.2005) og berhöfðaði maðurinn í lestinni er Páll Jóhannesson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Janette Kerr 2
Janette Kerr er listamaður sem dvaldi hjá Nes listamiðstöð í mars 2020. Þá fór hún einn netaróður með feðgunum á Dagrúnu HU 121 í köldu en góðu veðri. Eiríkur Lýðsson skipstjóri stoppar spilið og býr sig undir að greiða þorsk úr netinu.
Óskar Kristinsson - safn160
Myndin var tekin 26. september 1991 en ekki er vitað hver tók hana. Hún er af fundi á Hótel Dagsbrún með undirmönnum á Örvari Hu 21. Fundarefnið var aðallega umræðan um föst frí sjómannanna. Mennirnir eru: næst okkur er Ingvar Þór Jónsson, næstur honum er Þórarinn Grétarsson og þá kemur Kristmundur Stefánsson (d.4.11.2000). Maðurinn í hvítu peysunni er Einar Kristberg Einarsson en aftan við hann er Áki Áskelsson. Til hægri eru Óskar Kristinsson í jakka með loðkanti og Sveinn Gíslason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1567
Guðmundur Henry Stefánsson til vinstri og Skúli Tómas Hjartarson til hægri á jóla- barnaballi Lions í Fellsborg 26. desember 2011.
Óskar Kristinsson - safn 258
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin utan við Hólabraut 7. Á henni styður Óskar Þór Kristinsson sig við einn af fallegu Amerísku bílunum sem hann hefur átt.
Guðrún Þórbjarnardóttir136
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Réttarholt, heimili Jóns í áratugi. Ekki er vitað hvað fólk er á myndinni.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 171
Ingvar Karl Sigtryggsson (d.10.7.1988) á 60 ára afmæli sínu 25. október 1987.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 51
Á myndinni er stund milli stríða hjá þeim Ómari Jakobssyni til vinstri og Finni Kristinssyni til hægri. Maðurinn lengst til vinstri er óþekktur. Myndin var tekin í messanum/borðsalnum um borð í síðutogaranum Arnari HU 1, sem Skagstrendingur hf gerði út á árunum 1969 - 1972.
Guðrún Þórbjarnardóttir083
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er sonur hans Björgvin Jónsson (d.4.5.1992) sem lengi bjó í Höfðabrekku (Bankastræti 10).
Guðrún Þórbjarnardóttir058
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Ekki er vitað hvaða fólk þetta er en ef þú veist það vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Þórbjarnardóttir - safn 002
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Ekki er vitað hver maðurinn á myndinni er en ef þú Þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 116
Myndin var tekin í sjómannadagspartýi heima hjá Stefáni Jósefssyni útgerðarmanni Ólafs Magnússonar HU 54. Á henni er kappróðrarsveit útgerðarinnar það árið. Sitjandi frá vinstri: Rúnar Jósefsson, Stefán Jósefsson, Jón Gunnar Jósefsson og Ragnar Smári Ingvarsson.Standandi frá vinstri: Stefán Kristinsson (d.19.5.2011), Sævar Bjarnason og Guðmundur Jón Björnsson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 186
Systkinin Kristín Jónsdóttir og Guðmundur Jónsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 952
Myndin var tekin 1983 á vélaverkstæði Hólaness hf sem staðsett var á jarðhæðinni þar sem nú er gistiheimilið Salthús. Á henni eru starfsmennirnir á verkstæðinu að gæða sér á kóki og Prins póló. Mennirnir eru frá vinstri: Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi), Guðmundur Jón Björnsson og Gunnar Albertsson (d.27.7.2019).
Óskar Kristinsson safn 118
Gúmmítuðran sjósett með fjóra karla um borð. Ekki er vitað hvers vegna þetta var gert í þetta sinn en stundum þurfti að koma mönnum eða umbúðum á milli skipa og þá var tuðran notuð. Karlarnir á myndinni eru óþekktir en Ólafur Ásgeirsson tók hana 24. ágúst 1996, líklega um borð í Arnari Hu 1.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 23
Rúnar Jósefsson hreinsar ánetjaðan kola úr pokanum eftir að hann var nýbúinn að losa hann í stíu um borð í Auðbjörgu HU 6. Hinn maðurinn er óþekktur og ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var líklega einhverntíma kringum 1975.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 42
Finnur Kristinsson mundar byssu um borð í síðutogaranum Arnari HU 1. Hinn maðurinn er óþekktur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það upp úr 1970.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1680
Ingvar Karl Sigtryggsson (d.10.7.1988) með barnabarn í fanginu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Helgi Gunnarsson 24
Nokkrir starfsmanna Helga Gunnarssonar njóta veitinga í reisugilli íþróttahússins sumarið 1997. Mennirnir eru, frá vinstri: Sigurður Björnsson, Einar Gunnarsson, Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) og Hrólfur Pétursson.
Óþekktur ljósmyndari669
Hjónin í Vík, Hjörtur Jónas Klemensson (d.6.2.1965) og Ásta Þórunn Sveinsdóttir (d.2.11.1947). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari652
Hjónin í Sigurðarhúsi, Sigurður Jónsson (d.17.4.1956) og seinni kona hans, Steinunn Trine Friðrikka Hansen (d.21.10.1958). Byggt hefur verið við Sigurðarhús og í dag gengur það undir nafninu Miðnes. Myndin er úr bókinni Ættir Austur H'unvetninga.
Óskar Kristinsson safn095
Róbert Gunnarsson við frystitækin um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 89
Félagarnir, Bergþór Gunnarsson til vinstri og Guðjón Pálsson (Dúi) (d.14.12.1989) til hægri, láta fara vel um sig í sófanum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari658
Hjónin í Sólheimum (eldri), Guðmundur Þórarinn Jónsson (d.14.6.1963) og Steinunn Carla Berndsen Fritzdóttir (d.13.9.2002). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga
Óskar Kristinsson - safn 225
Sigurður Skagfjörð Bjarnason í vinnu sinni í Rækjuvinnslunni hf. Sigurður var einn traustasti og reynslumesti starfsmaður vinnslunnar og vann þar í áratugi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 9
Stefán Jósefsson dregur fisk á færi um borð í Auðbjörgu Hu 6. Líklega var myndin tekin kringum 1975.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1703
Myndin var líklega tekin um borð í Auðbjörgu HU 6 einhverntíma á árunum 1973 - 1977 þegar hún átti heimahöfn á Skagaströnd. Á henni sést að það hefur fiskast ágætlega enda eru karlarnir hressir. Þeir eru frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson, Eiður Hilmarsson og Stefán Jósefsson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 28
Ragnar Smári Ingvarsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Helgi Gunnarsson 27
Reisugilli í íþróttahúsinu sumarið 1997. Á myndinni eru, frá vinstri: Rolf Árnason (d.3.6.2014), helgi Gunnarsson, Sigurjón Ástmarsson, Gunnar Dór Karlsson og Árni Max Haraldsson.
Helgi Gunnarsson 40
Eftir bruna gamla Kántrýbæjar var fljótlega hafist handa við endurbyggingu hans. Keypt var tveggja hæða bjálkahús frá Finnlandi sem var raðað saman á byggingarstað. Það verk annaðist Helgi Gunnarsson með starfsmönnum sínum. Á myndinni, frá 24. apríl 1998, eru menn að vinna við efri hæð hússins. Mennirnir eru,frá vinstri: Baldvin Hjaltason, óþekktur, Rúnar Kristjánsson og lengst til hægri sér í Sigurð Björnsson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 76
Gylfi Guðjónsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1970.
Óskar Kristinsson safn107
Myndin var tekin 13. júlí 1992 þegar Ísfisktogarinn Arnar Hu 1 er að leggja að í Reykjavíkurhöfn til löndunar. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Hafþór Gylfason, Guðmundur E. Guðmundsson, Stefán Sveinsson og óþekktur.
Óskar Kristinsson safn 142
Högni Jensson matsveinn hrærir í pottunum, líklega um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1 (Japans Arnari). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hana tók Ómar Jakobsson.
Ólafur Bernódusson 973
Magnús Ólafsson (d.23.7.2012), bæjarverkstjóri á Skagaströnd, fær kaffisopa á kennarastofunni í Höfðaskóla veturinn 1983-84.
Guðrún Þórbjarnardóttir125
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er mágur Jóns, Halldór Halldórsson Snæhólm (d.28.11.1964) 42 ára þegar hún var tekin.
Óskar Kristinsson safn 054
Feðgarnir Ómar Jakobsson og Andri Þór Ómarsson í rólegheitunum heima. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
gunnar016
Á myndinni er verið að landa síld úr Húna HU 1 í Skagastrandarhöfn. Líklega var myndin tekin kringum 1960. Mennirnir eru frá vinstri: með hvítu húfuna er óþekktur, hálfur bak við tunnuna er Björn Haraldsson (d.21.9.1988), Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) er með húfu, óþekktur í köflóttri skyrtu og Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020).
Óskar Kristinsson - safn166
Myndin var tekin 22. janúar 1992 þegar mennirnir á myndinni voru á Sauðárkróki að skoða sérbyggða vél sem skar kinnar og gellur úr þorskhausum. Mennirnir eru, frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson, Sigurður Alexandersson, Rúnar Jósefsson og Rögnvaldur Ottósson.
Guðrún Þórbjarnardóttir120
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Njörður Snæhólm (d.18.5.2003).
Ragnar S. Ingvarsson - safn 29
Stefán Jósefsson kíkir á bátana í Skagastrandarhöfn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en nær okkur er Helga Björg Hu 7 með gamla sýrishúsið sem seinna var tekið og annað sett í staðinn. Fjær er Hringur HU 42.
gunnar072
Jón Lárusson (f. 7.6.1904 - d.?) til vinsti og Valdimar Benediktsson (d.6.12.1924) frá Brandaskarði til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1592
Myndin var tekin á bryggjunni 13. maí 2011. Mennirnir þrír eiga það sameiginlegt að vera, eða hafa verið, skipstjórar á frystitogaranum Arnari HU 1. Þeir eru frá vinstri: Guðjón Guðjónsson, Guðmundur Henry Stefánsson og Árni Ólafur Sigurðsson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 154
Á myndinni situr Ragnar Smári Ingvarsson hjá syni sínum Leifi Þór Ragnarssyni þar sem hann liggur veikur á einhverju sjúkrahúsi. Líklega var myndin tekin kringum 1985.
Óskar Kristinsson safn128
Þessa mynd tók Vilhelm Þórarinsson en ekki er vitað hvenær. Hún sýnir nokkra karla í matsalnum um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1. Sitjandi eru Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004) vinstra megin og Hólmgeir Kristmundsson til hægri. Standandi eru óþekktur til vinstri og Stefán Sveinsson til hægri.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 52
Skaufi er það kallað þegar aflinn er það lítill í trollið að hann fyllir ekki pokann í enda trollsins. Á myndinni býr Finnur Kristinsson sig undir að leysa frá pokanum á dekkið á síðutogaranum Arnari Hu 1 einhverntíma kringum 1970. Maðurinn með sjóhattinn er óþekktur.
Dagrún HU 121 image 3
Janette Kerr er listamaður sem dvaldi hjá Nes listamiðstöð í mars 2020. Þá fór hún einn netaróður með feðgunum á Dagrúnu HU 121 í köldu en góðu veðri. Á myndinni er Friðmar Kári Eiríksson við úrgreiðsluborðið en pabbi hans, Eikur Lýðsson, klöngrast yfir borðið.
Óskar Kristinsson - safn 228
Magnús Margeirsson líklega um borð í Arnari Hu 1. Sennilega hefur hann átt afmæli miðað við kökuna sem hann er með í höndunum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
1
…
18
19
20
…
32
Leita í myndasafninu
Leita