Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
mundi515
Lúðvík Kristjánsson (d.10.2.2001) frá Steinholti flettir Biblíunni í predikunarstól í kirkjunni í Möðrudal í N - Múlasýslu í hringferð með starfsmönnum Guðmundar Lárussonar kringum 1970.
mundi512
Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar, smíði eikarbáta. Mennirnir eru óþekktir.
mundi635
Bernódus Ólafsson í ræðustól í Fellsborg
30680021
Vilhjálmur Skaftason í löndunarkrananum
mundi451
Sigurður Jónsson upp í mastri á bát á sjómannadegi.
30680018
Unnið að málun og viðhaldi löndunarkranans
Guðmundur Guðnason082
Halldór Árnason frá Eyjakoti. Líklega er þessi mynd tekin í tilefni af fermingu hans.
Guðmundur Guðnason331
Þorkell Magnússon (d. 30.8.1968) úr Goðhól til vinstri og Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992) frá Höfðakoti til hægri hljóta heiðursmerki sjómannadagsins 1967. Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) (með hatt) frá Brúarlandi og Bjögvin Jónsson (d. 4.5.1992) frá Höfðabrekku klappa fyrir sjömönnunum öldnu.
Guðmundur Guðnason230
Jón Haraldson í Gautsdal, lengst til hægri, skoðar snjósleða með félögum sínum. Maðurinn fyrir framan Jón bónda er sonur hans Gauti, sem nú er bóndi í Hvammi í Langadal.
Guðmundur Guðnason211
Kaupfélagið rak í mörg ár sláturhús á haustin á neðri hæðinni í gamla frystihúsinu undir Höfðanum (nú H59). Slátrun var hætt þar á sjöunda áratugnum. Brugðið á leik í vinnunni. Frá vinstri: Hörður Ragnarsson, Helgi Jónatansson og Þórarinn Hjartarson frá Vík.
Guðmundur Guðnason307
Sigurður Bjarnason frá Bjargi til vinstri og Sigurjón Guðbjartsson frá Vík til hægri á ferðalagi 1974. Þarna eru þeir staddir í kvíum á Húsafelli.
Guðmundur Guðnason283
Á þessari mynd situr Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) á muilli tveggja óþekktra vina sinna. Ef þú þekkir mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason279
Þessir tveir heiðursmenn eru Bjarni Ó. Frímannsson (d. 10.11.1987) oddviti frá Efri Mýrum til vinstri og óþekktur til hægri. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason320
Vinirnir Jón Kristinsson (d.?) til vinstri og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988).
Guðmundur Guðnason309
Þrír félagar á ferðalagi í Húsafelli 1974. Frá vinstri: Guðmundur Kr. Guðnason frá Ægissíðu (d. 21.11.1988), Guðmundur Rúnar Kristjánsson frá Grund og Sigurður Bjarnason frá Bjargi standa við fræga kvíahellu þar.
Guðmundur Guðnason352
<P>Bernódus Ólafsson kynnir atriði á sjómannadegi á planinu við Hafnarhúsið.</P>
Guðmundur Guðnason368
Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) skáld, organisti og kórstjórnandi frá Grund á sviðinu í Fellsborg.
Guðmundur Guðnason326
Þessi maður er Rósberg G. Snædal (d. jan. 1983) skáld með Hún Snædal son sinn í fanginu. Þeir sitja á hlaðinu á Hvammi í Laxárdal en þar bjuggu foreldra Rósbergs fram til ársins 1948 er þau fluttu að Ægissíðu á Skagaströnd. Rósberg var bróðir ljósmyndarans Guðmundar Guðnasonar (d. 21.11.1988).
Guðmundur Guðnason292
Séra Ólafur Hallgrímsson í ræðustól í Húnaveri. Tilefnið var hátíð vegna 100 ára afmælis Bergstaðakirkju 1983.
Guðmundur Guðnason314
Sverrir Haraldsson frá Gautsdal, sem lengi bjó á Æsustöðum í Langadal
Skagaströnd - safn448
Magnús B. Jónsson lengst til vinstri í vinabæjarheimsókn á óþekktum stað á norðurlöndum. Ekki er heldur vitað hvenær myndin var tekin og mennirnir með Magnúsi eru óþekktir.
Skagaströnd - safn469
Steindór Rúniberg Haraldsson sat í hreppsnefnd Sveitarfélagsins Skagaströnd 2014 - 2018.
Ólafur Bernódusson228
Myndin var tekin um borð í Arnarborg Hu í febrúar 1988 þar sem hópur nemenda í pungaprófi - 30 tonna skipstjórnarréttinda - er að kynna sér tækin í brúnni. Lengst frá okkur, með loðhúfu, er Sigurjón Guðbjartsson sem leiddi hópinn í allan sannleik um notkun tækjanna. Aðrir á myndinni eru frá vinstri: Árni Björn Ingvarsson, Gunnar Hafdal, Þorvaldur Skaftason, Björgvin Karlsson og Magnús Sigurðsson.
Óskar Kristinsson - safn178
Myndin var tekin á einhverri árshátíð Skagstrendings hf í Fellsborg. Á henni eru stjórnarmenn og framkvæmdastjóri félagsins að taka þátt í léttu gríni. Mennirnir eru, frá vinstri: Jón Ingi Ingvarsson veislustjóri, Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002), Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri, Gylfi Sigurðsson og Hallbjörn Björnsson.
Óskar Kristinsson safn132
Gunnar Þór Gunnarsson kokkar um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Hjörtur Guðbjartsson tók hana.
Óskar Kristinsson safn135
Sigurbjörn Björgvinsson albúinn að fara um borð í gúmmítuðruna um borð í frystitogaranum Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það gerði Hjörtur Guðbjartsson.
Ólafur Bernódusson375
Bjarni Guðmarsson höfundur bókarinnar: Byggðin undir Borginni, áritar bókina á útgáfudegi í desember 1989.
Óskar Kristinsson - safn176
Unnið að vírasplæsingu um borð - líklega í isfisktogaranum Arnari Hu 1 (Japans Arnari). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og ljósmyndarinn er óþekktur. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Jón Alexandersson, óþekktur, Kristján Alexandersson, Jón Gunnarsson og Ingvar Þór Jónsson.
Óþekktur ljósmyndari348
Björgvin Brynjólfsson (d. 28.2.2007) verkalýðsfrömuður, hreppsnefndarmaður, sýslunefndarmaður, bóksali og sparisjóðsstjóri í Sparisjóði Skagastrandar. Myndin var tekin á heimili Björgvins en ártalið er óþekkt.
Þórður Jónsson037
Verkamennirnir Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) til vinstri og Valgarð Ásgeirsson (d. 22.4.1996) múrari til hægri fá sér pilsner í pásu í vinnunni.
Ólafur Bernódusson 557
Þorvaldur Skaftason heima í stofunni sinni. Tilefni myndatökunnar var að daginn áður hafði trilla, sem Þorvaldur var einn á, sökk undir honum þegar hann var á leið í róður. Þorvaldur komst í gúmmíbát og sendi upp blys sem sást frá landi og var honum bjargað um borð í Þórdísi, sem var björgunarbátur Björgunarsveitarinnar Strandar á Skagaströnd. Þorvaldi var ekki meint af volkinu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það mun hafa verið á níunda áratugnum.
mundi552
Frá vinstri: séra Pétur Ingjaldsson (d.1.6.1996), sr Árni Sigurðsson (d.26.10.2020) , sr Jón Kr. Ísfeld (d.1.12.1991). Húsin á bak við eru,næst götunni, frá vinstri: Sólvellir, samkomuhúsið Tunnan og rafstöðin.
mundi633
Ingvar Jónsson hreppsstjóri stjórnar húrrahrópum á samkomunni.
mundi636
<P>Jón Ísberg sýslumaður í ræðustól í Fellsborg líklega við vígslu Fellsborgar 1971</P>
mundi625
Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) flytur frumsamið ljóð við vígslu Fellsborgar
30680012
F.v. Birgir Árnason (d.2.2005) og Þorbjörn Jónsson (d.2.9.1986)við vinnu sína á planinu. Á bak við þá má sjá bíl Birgis H 40
30600021
Kári Kristjánsson (d.11.12.1990) frá Kárastöðum við beykistörf.
mundi577
Þorfinnur Bjarnason (d.6.11.2005) oddviti í ræðustól í Fellsborg.
Guðmundur Guðnason807
Ólöf Jóhanna Smith (Lólý) og Guðmundur Víglundsson vinur hennar.
Guðmundur Guðnason030
Rósberg Guðnason Snædal skáld og rithöfundur, f. 8.8.1991 og d. 9.1.1983, á heimaslóðum í Laxárdal sem þá voru komin í eyði. Rósberg var bróðir Guðmundar Guðnasonar ljósmyndara.
Guðmundur Guðnason002
Hrólfur Jónsson (d.1.8.1989) í Bjarmalandi fæddur í Brúarlandi.
Guðmundur Guðnason310
Smalað til réttar í Hofsrétt utan við Steinnýjarstaði. Bræðurnir Óskar Jóhannesson nær okkur og Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000) fjær í fyrirstöðu. Maðurinn lengst til vinstri er óþekktur.
Guðmundur Guðnason253
Guðmundur Kr. Guðnason (d. 21.11.1988) (Mundi póstur) póstur, ljósmyndari og organisti frá Ægissíðu.
Guðmundur Guðnason232
Gauti Jónsson frá Gautsdal hvílir sig á snjósleða um há sumar. Myndin er sennilega tekin á hlaðinu í Gautsdal.
Guðmundur Guðnason296
Séra Hjálmar Jónsson í ræðustól í Húnaveri.Tilefnið var hátíð vegna 100 ára afmælis Bergstaðakirkju 1983.
Guðmundur Guðnason250
Kappróður hefur verið fastur liður á sjómannadögum á Skagaströnd í áratugi. Sennilega var þessi mun tekin 1967 eða 1968. Greinilega hefur báturinn sem nær er á myndinni tapað í rimmunni við áhöfnina á hinum bátnum. Á þessum "nær" bát eru frá vinstri: Jón Ólafur Ívarsson (d. 29. 12.2013) stýrimaður en ræðararnir eru: Þorgrímur Pàlsson, Gylfi Sigurðsson, Bjarni Loftsson (d.?), Jóhann Björn Þórarinsson, Már Hall Sveinsson (d. 1.3.2008) og Sveinn Ingólfsson. Mennirnir á hinum bátnum eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason362
Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) frá Grund æfir sig á orgelinu í Hólaneskirkju eldri. Þar var Kristján organisti og kórstjórnandi um árabil.
Guðmundur Guðnason241
Þessi prestur er óþekktur. Ef þú veist hver þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason316
Óþekktur harmoníkuleikari. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason396
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) póstur frá Ægissíðu til vinstri og Páll Jónsson ( . 19.7.1979) skólastjóri til hægri. Myndin var tekin í skólanum við orgel sem þar var. Báðir voru þeir Guðmundur og Páll organistar meðfram störfum sínum.
Hinsta ferðin ?
Þetta er blaðaúrklippa og þess vegna er myndin mjög grófkornótt. Hún sýnir vinnubrögð við að flyta lík til greftrunar eða sjúkling til læknis áður en bílaöld hófst á Íslandi. Ekki er vita hvar né hvenær myndin var tekin en ef þú veist eitthvað um myndina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn470
Róbert Kristjánsson sat í hreppsnefnd Sveitarfélagsins Skagaströnd 2014 - 2018. Hann var síðan endurkjörin fyrir kjörtímabilið 2018 - 2022.
Skagaströnd - safn471
Adolf H. Berndsen sat í hreppsnefnd Sveitarfélagsins Skagaströnd um árabil þar á meðal kjörtímabilið 2014 - 2018 og þá sem oddviti.
Ólafur Bernódusson178
Starfsfólk Rækjuvinnslunnar sótti námskeið 1987 sem gaf því formleg réttindi sem fiskvinnslufólk. Haldið var hóf í lok námskeiðsins til að halda upp á þennan áfanga fólksins. Á þessari mynd flytur Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) frumsamið ljóð í hófinu.
Óskar Kristinsson safn136
Á myndinni, sem Hjörtur Guðbjartsson tók um borð í frystitogaranum Örvari Hu 2, er verið að sjósetja, eða taka um borð, gúmmítuðruna sem var þar. Uppi í tuðrunni er Ragnar Högnason. Guðmundur Gunnlaugsson er í köflóttri skyrtu við stefni bátsins en aðrir eru óþekktir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn133
Þessa mynd af Guðjóni Ebba Sigtryggssyni (d.16.7.2017) skipstjóra tók Hjörtur Guðbjartsson um borð í frystitogaranum Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það einhverntíma á árunum 1992 - 1995. Ebbi var farsæll og fengsæll skipstjóri á togurum Skagstrendings hf um áratugi.
Óskar Kristinsson - safn177
Skipsfélagarnir Árni Ólafur Sigurðsson til vinstri og Magnús Sigurðsson til hægri. Myndin var tekin Í Fellsborg, líklega á árshátíð Skagstrendings hf. Ekki er vitað hvenær né hver tók myndina.
MBJ001
Líklega er myndin frá aðalfundi Búnaðarsambands A-Hún einhverntíma á árabilinu 1950 - 1960. Í fremri röð eru, frá vinstri: Grímur Gíslason (d.31.3.2007) Saurbæ, Sigurjón Oddsson (d.10.9.1989) Rútsstöðum, Pétur Pétursson (d.7.5.1977) Höllustöðum, Jón S. Pálmason (d.9.11.1976) Þingeyrum, Hafsteinn Pétursson (d.28.8.1961) Gunnsteinsstöðum, Hilmar A. Frímannsson (d.13.6.1980) Fremstagili, Guðmundur Jósafatsson (d.16.6.1982) Brandsstöðum, Jóhannes Hinriksson (d.27.10.1973) Ásholti á Skagaströnd, Gísli H. Jónsson (d.7.12.1985) Stóra-Búrfelli og Sigurður Erlendsson (d.28.9.1981) Stóru-Giljá. Aftari röð, frá vinstri: Skúli Jónsson (d.12.7.1999) Þórormstungu, Halldór Jónsson (d.21.1.1983) Leysingjastöðum, Lárus G. Sigurðsson (d.14.10.1983) Tindum, Magnús Björnsson (d.20.7.1963) Syðra-Hóli, Pálmi Jónsson (d.9.10.2017) Akri, Kristinn Magnússon (d.26.11.1979) Kleifum, Sigurður Þorfinnsson (d.11.7..1966) Skeggsstöðum, Björn Jónsson (d.21.4.1992) Ytra-Hóli, Bjarni Ó. Frímannsson (d.10.11.1987) Efri-Mýrum, Hilmar Árnason (d.16.3.1988) Hofi, Sigurður Ö. Þorbjarnarson (d.15.3.2002) Geitaskarði, Páll Geirmundsson (d.28.1.1975) Blönduósi, Hafsteinn Sigurbjarnarson (d.18.5.1974) Reykholti á Skagaströnd og Ólafur Magnússon (d.23.8.1991) Sveinsstöðum.
Guðmundur Guðnason270
Séra Oddur Einarsson faman við altarið í Hólaneskirkju eldri.
Óþekktur ljósmyndari324
Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) frá Höfðabrekku, framkvæmdastjóri og eigandi saumastofunnar Víólu, í símanum á skrifstofu sinni í Gamla Kaupfélagshúsinu snemma á áttunda áratugnum.
1
2
3
4
5
…
32
Leita í myndasafninu
Leita