Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Dagrún HU 121 image 3
Janette Kerr er listamaður sem dvaldi hjá Nes listamiðstöð í mars 2020. Þá fór hún einn netaróður með feðgunum á Dagrúnu HU 121 í köldu en góðu veðri. Á myndinni er Friðmar Kári Eiríksson við úrgreiðsluborðið en pabbi hans, Eikur Lýðsson, klöngrast yfir borðið.
Óskar Kristinsson safn 002
Magnús B. Jónsson vinnur í neti um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Myndin var líklega tekin 1969.
Óskar Kristinsson - safn203
Fjölmennt gæðanámskeið var haldið 22.september 1992 í Fellsborg. Skagstrendingur hf stóð fyrir námskeiðinu fyrir starfsfólk sem kom nálægt útgerðinni á einn eða annan hátt. Á þessari mynd eru vinstra megin við borðið, talið frá vinstri: Björn Viðar Hannesson, Bergþór Gunnarsson, Guðmundur Gunnlaugsson, Óli Albertsson, Slavko Velemir, Hjörtur Guðmundsson, Hafsteinn Pálsson og Einar Ásgeirsson. Hægra megin við borðið, frá vinstri: Einar Kristberg Einarsson, Valgarður Jökulsson (d.19.10.2021), óþekktur, Þórarinn Grétarsson, tveir óþekktir og Jens Jónsson.
Óþekktur ljósmyndari536
Hjónin í Hróarsstöðum, Ingimar Sigvaldason (d.4.5.1991) og Auður Lundfríður Sigurðardóttir (d.6.4.2009). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson - safn166
Myndin var tekin 22. janúar 1992 þegar mennirnir á myndinni voru á Sauðárkróki að skoða sérbyggða vél sem skar kinnar og gellur úr þorskhausum. Mennirnir eru, frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson, Sigurður Alexandersson, Rúnar Jósefsson og Rögnvaldur Ottósson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 23
Rúnar Jósefsson hreinsar ánetjaðan kola úr pokanum eftir að hann var nýbúinn að losa hann í stíu um borð í Auðbjörgu HU 6. Hinn maðurinn er óþekktur og ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var líklega einhverntíma kringum 1975.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1714
Lions karlar að leggja tertur á borð í Fellsborg 26. desember 2010 en þá fór þar fram jóla-barnaball á þeirra vegum. Terturnar voru hluti þess sem gestum var boðið upp á á ballinu. Lionkarlanir eru frá vinstri: Guðjón Guðjónsson, Guðmundur Finnbogason, Gunnar Reynisson og Sigurður Svavarsson. Strákurinn á myndinni er Guðjón Dunbar.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 92
Ragnar Smári Ingvarsson heima hjá sér á Suðurveginum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn193
Myndin var tekin á Nýja Sjálandi 29. febrúar 1992. Þá voru feðgarnir Ingólfur Sveinsson og Sveinn S. Ingólfsson, framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, í viðskiptaferð í landinu. Þeir feðgar eru fyrir miðju á myndinni en mennirnir beggja megin við þá eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari509
Hjónin á Björgum, Kristján Sigurðsson (d.30.5.1996) og Svava Sigmundsdóttir (d.30.5.2011). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson - safn164
Myndin var tekin 26. september 1991 en ekki er vitað hver tók hana. Hún er af fundi á Hótel Dagsbrún með undirmönnum á Örvari Hu 21. Fundarefnið var aðallega umræðan um föst frí sjómannanna. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Arnar Arnarson, Jón Gunnarsson, Sigurður Alexandersson, Ragnar Högnason (nær), Einar Ásgeirsson (fjær), Ingvar Þór Jónsson, Þórarinn Grétarsson (nær), Gunnar Jón Jónsson (fjær) og Kristján Alexandersson.
Óskar Kristinsson - safn179
Myndin var líklega tekin um borð í Örvari Hu 21 en ekki er vitað hvenær. Mokafli hefur fengist í trollið þannig að fiskurinn er blóðgaður áður en honum er hleypt niður í vinnsluna á millidekkinu. Mennirnir eru, frá vinstri: Ólafur Ásgeirsson, þrír óþekktir, Valgarður Jökulsson (d.19.10.2021), óþekktur, Sigurður Alexandersson, tveir óþekktir og Páll Valgeirsson.
Ólafur Bernódusson 1104
Dr. James Kennedy tekur myndir þegar opnuð var göngubrú yfir Hrafná 23. júní 2014. Ekki er vitað hvert barnið á myndinni er.
Óþekktur ljósmyndari471
Guðlaugur Hjaltason spilar á gítar á litlu jólum starfsfólks í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
gunnar047
Síld landað úr Húna HU 1 í Skagastrandarhöfn einhverntíma kringum 1960. Á myndinni er Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) í svartri peysu en Gylfi Sigurðsson í köflóttri skyrtu. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 1045
Á myndinni er Hallbjörn J. Hjartarson að afhjúpa brjóstmynd af sjálfum sér á Kántrýhátíð í ágúst 1998. Myndina gerði brottfluttur Skagstrendingur, Rúnar Hartmannsson, og færði Hallbirni að gjöf við þetta tækifæri.
Óskar Kristinsson safn 023
Myndin var tekin í Bergen í Noregi 1991 af Hallbirni Björnssyni sem þar var til að kynna sér smíði nýs frystitogara, Arnars Hu 1, sem þar var í byggingu fyrir Skagstrendings hf.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1670
Ólafur Bernódusson og afstrákurinn hans Ólafur Halldórsson láta fara vel um sig í blíðunni 3. júlí 2012.
Ólafur Bernódusson 943
Guðmundur Kr. Guðnason (d.21.11.1988) póstur, ljósmyndari, organisti og kórsöngvari að bera út póst í Stórholt (Bankastræti 3). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Guðmundur var maður vinsæll en dó ógiftur og barnlaus. Í baksýn er húsið Héðinshöfði, sem nú er horfinn.
Óþekktur ljósmyndari529
Sambýlisfólkið í Hvammkoti á Skaga, Kristján Guðmundsson (d.14.2.1979) og Guðríður Jónasdóttir (d.20.4.1982). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
gunnar020
Hákon Magnússon (d.2.8.2020) skipstjóri á Húna Hu 1 hjálpar til við löndun á risastórum sel sem hefur komið í veiðarfæri Húna. Myndin var tekin í Skagastrandarhöfn en ekki er vitað hvenær það var en líklega var það einhverntíma 1960 - 65.
Óskar Kristinsson - safn201
Menn á vegum Skagstrendings hf skoða togara á Nýfundnalandi 19. mars 1991. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: óþekktur, Hallbjörn Björnsson, óþekktur, Árni Ólafur Sigurðsson og Magnús Sigurðsson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 72
Þrír hásetar á frívakt aftur á bátadekki á síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Mennirnir eru, frá vinstri: óþekktur, Reynir Sigurðsson og Þorvaldur Skaftason. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson - safn 250
Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) skipstjóri og útgerðarmaður til vinstri og Stefán Kristinsson (d.19.5.2011) til hægri landa netafiski úr Auðbjörgu Hu 6. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Helgi Gunnarsson 30
Myndin var tekin 19. ágúst 1997 þegar verið var að klæða íþróttahúsið. Sigurður Björnsson stendur á jörðinni, sá í stiganum er óþekktur en uppi á þakinu eru, frá vinstri: Hrólfur Pétursson, Steinþór Karlsson og Gunnar Helgason.
Óþekktur ljósmyndari460
Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015) starfsmaður verslunar Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut kynnir Sigurjóni Guðbjartssyni SAH bjúgu á kynningu á þeirri afurð í búðinni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn113
Þessi mynd var líklega tekin á hótelherbergi í Grimsby í september 1992. Þá voru þar í vinnuferð Sveinn S. Ingólfsson, framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, til vinstri og Sævar Rafn Hallgrímsson, bátsmaður, til hægri.
Óskar Kristinsson safn 057
Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 á köldum degi. Myndin var líklega tekin 1969.
Ólafur Bernódusson 1056
Hallbjörn J. Hjartarson syngur fyrir gesti við vígslu nýja Kántrýbæjar 27. júní 1998.
Óskar Kristinsson safn 062
Ómar Jakobsson til vinstri og Óskar Þór Kristinsson á ís-útkíkki á hvalbaknum á síðutogaranum Arnari Hu 1 ísavorið 1969. Hlutverk þeirra var að segja skipstjóranum til þegar skipið var að þræða vakir gegnum hafísinn sem þá var á miðunum, Eins og sjá má er ísinn ansi þéttur framundan.
Höfðaskóli - safn580
Íþróttamennirnir Ingibergur Guðmundsson til vinstri og Kristinn Guðmundsson til hægri. Ekki er vitað hvenær né í hvaða íþróttasal myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn 228
Magnús Margeirsson líklega um borð í Arnari Hu 1. Sennilega hefur hann átt afmæli miðað við kökuna sem hann er með í höndunum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 066
Jónas Skaftason (d.17.11.2017), kokkur um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1, stoltur með tvær rjómatertur sem hann hefur bakað og skreytt. Myndin var líklega tekin 1969.
gunnar002
Þessi mynd var tekin sumarið 1968 á sjávarútvegssýningunni "Íslendingar og hafið". Mennirnir sem standa upp við seglbátinn eru frá vinstri: Björgvin Jónsson (d.4.5.1992), Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017), Reynir Sigurðsson, Sveinn Ingólfsson og Árni Ólafur Sigurðsson. Allir störfuðu þeir á næstu árum hjá Skagstrendingi hf, sem þá var nýstofnaður. Sveinn sem framkvæmdastjóri, Björgvin sem stjórnarmaður , Jón og Reynir sem vélstjórar og Árni sem stýrimaður og skipstjóri.
Guðrún Þórbjarnardóttir083
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er sonur hans Björgvin Jónsson (d.4.5.1992) sem lengi bjó í Höfðabrekku (Bankastræti 10).
Ólafur Bernódusson 1040
Guðmundur J. Björnsson býr sig undir að fara út á hnúfubak til að koma á hann böndum til að draga hann upp í fjöru til rannsóknar. Hvalinn drógu Guðmundur og Ólafur Bernódusson til lands á Benna Ólafs Hu í ágúst 1998. Hvalurinn reyndist vera ungur karkyns kálfur um 8 metrar á lengd. Litla stúlkan um borð er dóttir Guðmundar, Kristbjörg Una. Til gamans má segja frá því að kynfærin af honum voru send til Hins Íslenska reðursafns, að þeirra ósk, og þar voru þau höfð til sýnis ásamt öðrum spendýrs líffærum af sama toga.
gunnar012
Myndin var tekin um borð í Húna Hu 1 einhverntíma kringum 1960 í höfninni á Skagaströnd. Karlarnir eru að snúast kringum línubala bakborðsmegin á Húna. Karlarnir eru óþekktir en ágiskun er að maðurinn í bússunum sé Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) en sá með hvítu húfuna sé Stefán Hólm (d.22.7.2018). Sá bogni er óþekktur.
Óþekktur ljósmyndari602
Hjónin í Grund, Guðjón Ingólfsson (d.22.10.1993) og Aðalheiður Guðbjörg Frímannsdóttir (d.30.4.2008). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson - safn163
Myndin var tekin 26. september 1991 en ekki er vitað hver tók hana. Hún er af fundi á Hótel Dagsbrún með undirmönnum á Örvari Hu 21. Fundarefnið var aðallega umræðan um föst frí sjómannanna. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðmundur Gunnlaugsson, Adolf H. Berndsen, Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018), Valgarður Jökulsson (d.19.10.2021), Jóhannes Sómonsen (nær), Jens Jónsson (fjær), Ingvar Þór Jónsson (nær) og Rúnar Jósefsson (fjær).
Óþekktur ljósmyndari655
Hjónin í Skagaströnd, Helgi Þórðarson (d.11.12.1951) og seinni kona hans Ingibjörg Skarphéðinsdóttir (d.11.3.1965). Húsið Skagaströnd var líka kallað Verslunarstjórahúsið og stóð rétt vestan við Gamla kaupfélagið. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 82
Unnið í trolli á dekkinu á síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Ljóshærði maðurinn í bláu peysunni er Finnur Kristinsson, sá með alpahúfuna er Jóhann Baldvinsson (d.9.4.1990) og í köflóttu skyrtunni er Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998). Líklega er það Ómar Jakobsson sem er í stakk með ljósa húfu. Hinir tveir mennirnir eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari498
Jósep Jóelsson (d. 1877) bóndi og hreppstjóri á Spákonufelli. Jóel faðir hans hafði verið einn af lífvörðunum í sveit Jörundar hundadagakonungs. Myndin er úr bókinni Föðurtún eftir Pál Kolka.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 49
Bræðurnir Rúnar Jósefsson nær og Stefán Jósefsson fjær. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið einhverntíma á áttunda áratugnum í ?Húnaveri?.
Óskar Kristinsson safn 001
Jónas Skaftason (d.17.11.2017) um borð í síðutogaranum Arnari HU 1. Arnar var fyrsta skip Skagstrendings hf, sem var stofnað 1968. Myndin var tekin eftir áramótin 1969, sem var eins og sést á myndinni var það hafísvetur. Jónas var kokkur um borð í Arnari þegar myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari515
Sambýlisfólkið í Garðshorni í Kálfshamarsvík, Lárus Guðmundsson (d.29.9.1970) og Þórey Una Frímannsdóttir (d.17.4.1976). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1650
Ian Witting sendiherra Breta á Íslandi kom í heimsókn til Skagastrandar sumarið 2011. Á myndinni er hann til hægri á spjalli við Ingiberg Guðmundsson ráðgjafa hjá SSNV 23. júní 2011.
Óskar Kristinsson - safn149
Þeir eru kátir karlarnir á þessari mynd, sem tekin var fyrir Ómar Jakobsson, um borð í síðutogaranum Arnar Hu 1, sem Skagstrendingur hf átti og gerði út á árunum 1969 - 1972. Mennirnir eru, frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Már Hall Sveinsson (d.1.3.2008), Ómar Jakobsson og Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) með lúðulok í hendinni.
Inga Stefánsdóttir 1
Á myndinni eru frá vinstri: Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018), Óskar ?? og Leó Árnason (d.11.2.1995). Ekki er vitað hvar eða hvenær myndin var tekin. Ef þú veist föðurnafn Óskars vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Þórbjarnardóttir138
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Myndin var tekin utan við Réttarholt og á henni eru Kristín og Pétur P.S., eins og stendur á henni. Annað er ekki vitað um fólkið en ef þú þekkir það vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 22
Myndin var tekin um borð í Auðbjörgu HU 6 en ekki er vitað hvenær (líklega kringum 1975). Auðbjörgin virðist hafa verið á togveiðum þegar myndin var tekin. Rúnar Jósefsson hnýtir fyrir pokann en hinn maðurinn er óþekktur. Aflinn er góður eins og sést greinilega á dekkinu.
Óskar Kristinsson - safn 247
Myndin var tekin í Rækjuvinnslunni hf þegar verið var að prófa einhverjar nýjar vélar. Mennirnir á henni eru, frá vinstri: Jóel Kristjánsson rekstrarstjóri vinnslunnar, Sigurður Bjarnason, Björn Ingi Óskarsson báðir starfsmenn vinnslunnar. Björn Viðar Hannesson, Ari Þórsson og Vilhelm Þórarinsson. Þrír þeir síðastnefndu voru starfsmenn Vélaverkstæðis Karls Berndsen. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 024
Myndin var tekin í Bergen í Noregi 1992 þegar stjórn Skagstrendings hf og yfirmenn á Arnari Hu 1 voru þar að kynna sér smíði á nýjum frystitogara, Arnari Hu 1, sem þar var byggður fyrir félagið. Maðurinn á myndinni er Árni Ólafur Sigurðsson.
Óþekktur ljósmyndari590
Hjónin á Flankastöðum, Jón Frímann Sigurðsson (d.26.2.1979) og Júlíana Guðbjartsdóttir (d.2.11.1970). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson safn 150
Óskar Kristinsson til vinstri og Ómar Jakobsson í matsalnum, líklega á síðutogaranum Arnari Hu 1, sem Skagstrendingur hf gerði út á árunum 1969 - 1972. Myndin er í eigu Ómars Jakobssonar.
Óskar Kristinsson safn 019
Myndin var tekin í Bergen í Noregi 1992 þegar stjórn Skagstrendings hf og yfirmenn á Arnari Hu 1 voru þar að kynna sér smíði á nýjum frystitogara, sem þar var byggður fyrir félagið. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: óþekktur, Adolf H. Berndsen, óþekktur, Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002), Magnús Sigurðsson, Gylfi Sigurðsson og Guðjón Guðjónsson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 99
Myndin var tekin í sjómannadagspartýi heima hjá Stefáni Jósefssyni útgerðarmanni Ólafs Magnússonar HU 54. Á henni er róðrarsveit útgerðarinnar með bikar sem þeir fengu fyrir sigur í kappróðri dagsins. Krjúpandi eru bræðurnir, frá vinstri: Stefán Jósefsson, Jón Gunnar Jósefsson og Rúnar Jósefsson. Standandi frá vinstri: Ragnar Smári Ingvarsson, Guðmundur Jón Björnsson, Sævar Bjarnason og Guðjón Pálsson (Dúi) (d.14.12.1989).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1635
Myndin var tekin í Kántrýbæ 11. júní 2011 af Guðmundi J. Björnssyni á spjalli við Eddu Þórarinsdóttur.
Óþekktur ljósmyndari662
Hjónin á Stóra-Bergi, Fritz Hendrik Berndsen (d.31.1.1961) og Regína Henrietta Hansen Berndsen Jörgensdóttir (d.18.1.1947). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari668
Jónatan Guðmundsson (d.9.10.1950) í Viðvík. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1597
Feðginin Þórarinn Brynjar Ingvarsson og Karitas Líf Þórarinsdóttir knúsast 21. maí 2011.
1
…
19
20
21
…
32
Leita í myndasafninu
Leita