Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn 1511
Vinirnir Gunnar Þór Gunnarsson, við stýrið, og Ragnar Hlynur Jónsson skemmta sér á bát í höfninni á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 4
Stöku sinnum kom að fyrir að sjómenn tækju sér smá pásu frá verkunum um borð og stælust í land til að fá sér egg í soðið í einhverju fuglabjarginu. Þessi mynd var tekin við eitt slíkt tækifæri og það er Árni Björn Ingvarsson sem er á henni með ungan fugl í höndunum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1975 þegar Árni var á Auðbjörgu Hu 6.
Ólafur Bernódusson 1028
Sævar Rafn Hallgrímsson kom að landi á bát sínum, Hafgeiri HU 121, í september 1998 með fullfermi. Eins og sjá má eru körin á dekkinu full og auðvitað eru svo ílátin í lestinni sneisafull líka. Á myndinni er Sævar byrjaður að landa og búinn að hífa hluta aflans upp á bryggju. Honum til aðstoðar um borð er dóttir hans Alma Eik Sævarsdóttir.
Helgi Gunnarsson 25
Rúnar Kristjánsson til vinstri og Sigurjón Karlsson til hægri njóta veitinga í reisugilli íþróttahússins sumarið 1997.
Óskar Kristinsson safn 007
Síðutogarinn Arnar Hu 1 þræðir færa leið í hafísnum vorið 1969. Maðurinn með svörtu húfuna er Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) en sitjandi við spilið er liklega Óskar Þór Kristinsson.
Óskar Kristinsson safn 077
Sigurjón Haraldsson (Jónki) um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 einhverntíma á árunum 1969 - 1971.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 88
Ragnar Smári Ingvarsson við saumavélina. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari657
Hjónin á Sólbakka, Jón Pálsson (d.18.9.1931) og Margrét Sigurðardóttir (d.22.2.1947). Sólbakki stóð rétt austan við þar sem Spákonuhofið er í dag. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari546
Jón Hinrik Árnason (d.11.4.1986) bóndi á Steinnýjarstöðum sitjandi til vinstri. Kona hans, Sigurlaug Pálsdóttir (d.18.6.1965), situr til hægri. Milli þeirra er Stefán Ingólfsson (d.21.10.2004) uppeldissonur þeirra. Standandi til vinstri eru dæturnar Una Guðrún Jónsdóttir (d.1.5.2009) og Ingiríður Jónsdóttir (d.21.10.2011) er til hægri. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson safn 076
Sigurjón Haraldsson (Jónki) um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1969 - 1971.
Óskar Kristinsson - safn 222
Myndin var tekin um borð í Örvari Hu 21. Óskar Kristinsson er með gilsinn í hendinni til að setja í stroffu um belginn svo hægt sé að hífa og sturta fiskinum niður í móttökuna. Sævar Hallgrímsson er í búrinu til vinstri og stjórnar hífingum. Aðrir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 176
Rúnar Þór Ingvarsson rafvirki vinnur við rafmagnstöflu hjá bróður sínum Ragnari Smára Ingvarssyni í nýbyggingu hans að Ránarbraut 21.
Óskar Kristinsson safn 080
Ekki er vitað hvar né hvenær þessi mynd var tekin. Hún er af vinunum og skipsfélögunum Þorvaldi Skaftasyni til vinstri og Ómari Jakobssyni til hægri um borð í einhverju skipi.
gunnar008
Myndin var tekin á sjómannadegi þegar róðrarsveit unglinga er að gera sig klára við rásmarkið. Þetta ár, einhverntíma kringum 1965, var róið í austur frá höfninni en lokamarkið var fram af Skúffugarðinum. Stýrimaður á bátnum er Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) en ræðarar eru, talið fram eftir bátnum: óþekktur, Árni Ólafur Sigurðsson, Sigurjón Ástmarsson, óþekktur, Gunnlaugur Sigmarsson og ? Sigurður Bjarnason?
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1660
Þór Arason (d.11.8.2018) steypir gólfplötu í verðandi forstofu við Spákonuhofið 24. júní 2011.
Óþekktur ljósmyndari556
Hjónin á Örlygsstöðum, Árni Björnsson (d.26.5.2000) og Guðrún Alexandra Hallgrímsdóttir. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1580
Ágúst Þór Bragason skrúðgarðafæðingur klippir runnana við Fellsbraut 15 8. maí 2011.
Óþekktur ljósmyndari478
Hressir menn gera sér glaðan dag á Hótel Dagsbrún. Stefán Jósefsson til vinstri, Sæmundur Gunnarsson í miðið og Gunnar Reynisson til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari459
Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) smakkar Hong Kong pottrétt hjá konu sinni Guðmundu Sigurbrandsdóttur (d.15.8.2015) þar sem hún var að kynna réttinn í verslun Kaupfélgs Húnvetninga við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn510
Haukur Gunnlaugsson (d.18.1.2004) og Guðrún Soffía Pétursdóttir á jólahlaðborði í Kántrýbæ 4. desember 1999.
Óþekktur ljósmyndari610
Ingvar Jónsson (d.27.7.1978) í Holti. Ingvar bjó seinna lengi í Norður Skála við Skagaveg með systur sinni Þóreyju Jónsdóttur (d.29.12.1966). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
gunnar048
Síld landað til söltunar á Skagaströnd úr Húna HU 1, líklega kringum 1960. Myndin sýnir vel hvernig staðið var að slíkri löndum á þessum tíma. Síldinni var mokað með háfum í tunnur sem voru síðan hífðar með bómu skipsins upp á bryggjuna. Þar var sturtað úr tunnunum á handvagn sem síðan var ekið, með handafli, að síldarkössunum þar sem söltunarstúlkurnar biðu tilbúnar með saltið og hnífana sína.
Óskar Kristinsson safn 032
Hjónin Karl Rósinbergsson (d.29.2004) og Steinunn Steinþórsdóttir á einhverju rútuferðalagi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1607
Sigursveit í kappróðri á sjómannadegi 2. júní 2012 tekur við verðlaunum sínum. Frá vinstri: Ragnar Björnsson, Finnbogi Guðmundsson stýrimaður sveitarinnar, Sæþór Bragi Ágústsson, Patrik Bjarnason, Stefán Velemir, Elías Gunnar Hafþórsson og Sævar Tryggvason.
Óskar Kristinsson safn 064
Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 líklega árið 1969.
Óskar Kristinsson safn 088
Skipsfélagar á Stapafelli SH 15 gera sér glaðan dag í landi. Frá vinstri: Sævar Rafn Hallgrímsson, Gylfi Jóhannsson, Ómar Jakobsson og Matthías ??son. Ekki er vitað hvemnær myndin var tekin. Ef þú veist hvers son Matthías er, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Helgi Gunnarsson 23
Helgi Gunnarsson, verktaki við byggingu íþróttahússins, við hluta veitinganna sem hann og konan hans, Ragnheiður Sigurjónsdóttir, buðu starfsmönnum sínum og undirverktökum upp á í reisugilli íþróttahússins sumarið 1997.
Óþekktur ljósmyndari592
Hjálmar Stefánsson (d.14.4.1989) á Flankastöðum, bjó seinna á Blönduósi. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 27
Á myndinni eru frá vinstri: Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020), Stefán Jósefsson, Jón Stefánsson (d.3.8.1991) og Ragnar S. Ingvarsson. Þrír þeir fyrstnefndu áttu saman útgerð og Ragnar var lengi á sjó hjá útgerðinni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það einhverntíma á áttunda áratugnum.
Óþekktur ljósmyndari607
Sambýlisfólkið á Hnappsstöðum, Óskar Janúaríus Bergsson Laufdal (d.24.1.1946) og Helga Vilhelmína Sigurðardóttir (d.18.3.1974). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 159
Ólafur Bernódusson bíður, fullsminkaður, eftir að fara á svið í "Síldin kemur og síldin fer" sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp vorið 1987.
Óþekktur ljósmyndari541
Sambýlisfólkið á Saurum í Nesjum, Guðmundur Einarsson (d.24.4.1973) og Margrét Benediktsdóttir (d. 1.1.1973). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga. Saurar eru þekktir fyrir meintan draugagang þar vorið 1964. Blöð og útvarp voru uppfull af sögum um draugaganginn dögum saman. Málið dó svo snarlega út þegar í ljós kom að einn heimilismaður á Saurum stóð fyrir draugaganginum að gamni sínu.
Óskar115
Á myndinni frá 16. ágúst 1996 er læknir að koma sjúklingi fyrir í sjúkrabörum fyrir hífingu um borð í þyrlu af hvalbaknum á Örvari Hu 21. Einn af skipverjunum heldur í línuna frá þyrlunni til að hún flækist ekki. Myndina tók Ólafur Ásgeirssoon.
Óþekktur ljósmyndari596
Hjónin í Garðhúsum, Ágúst Jakobsson (d.1.6.1989) og Guðný Einarsína Hjartardóttir (d.14.3.2011). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
gunnar006
Húni Hu 1 landar nánast fullfermi af síld á Skagaströnd. Maðurinn í bússunum er líklega Gylfi Sigurðsson en sá með húfuna gæti verið Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016). Drengurinn á myndinni er óþekktur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var einhverntíma kringum 1960.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 037
Myndin var tekin heima á Jaðri líklega um jól. Guðmundur J. Björnsson spjallar við frændsystkin sín, Elísabetu Hallbjörnsdóttur nær og Björn Hallbjörnsson fjær. Myndin var líklega tekin 1971 eða 1972.
Óskar Kristinsson safn 114
Myndin var tekin 16. ágúst 1996 um borð í Örvari Hu 21. Maðurinn lengst til vinstri er líklega læknir en honum var slakað niður úr þyrlu til að gera sjúkling kláran fyrir upphífingu af Örvari. Ef grannt er skoðað má sjá línu sem liggur upp í þyrluna. Hinir mennirnir tveir voru skipverjar um borð. Mennirnir eru allir óþekktir. Myndina tók Ólafur Ásgeirsson.
Höfðaskóli - safn524
Stefán Ægir Lárusson kenndi eitt ár við Höfðaskóla eftir stúdentspróf. Á myndinni er hann niðusokkinn í vinnu sína í skólanum.
Óþekktur ljósmyndari676
Hjónin í Ægissíðu, sigurður Finnbogason Júlíusson (d.23.1.1980) og Guðbjörg Guðjónsdóttir (d.5.12.1965). Ægissíða stóð austan við veginn norður með Höfðanum austan við Laufás. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 052
Myndin var tekin 1991 eða 1992. Á henni er Kristbjörg Una Guðmundsdóttir í heimsókn hjá afa sínum á Sæborg, Birni Sigurðssyni (d.5.10.1999) frá Jaðri.
Höfðaskóli - safn431
Myndin var tekin 24. febrúar 2006 á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Á sviðinu eru kennarar og starfsfólk skólans að flytja sitt atriði. Sitjandi til vinstri er Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri og dökklæddi stjórnandinn er Carl Erik Jakobsen. Aðrir eru, talið frá vinstri: Bergþóra Guðjónsdóttir?, Anna Margrét Sigurðardóttir, Vigdís Elva Þorgeirsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Hjördís Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022), Dagbjört Bæringsdóttir, Erna Berglind Hreinsdóttir, Ólafur Bernódusson, Þóra Ágústsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir, óþekktur, Helga Ólína Aradóttir, Einar Arason, Guðrún Elsa Helgadóttir og Dagný Rósa Úlfarsdóttir
Óþekktur ljósmyndari644
Hallgrímur Valdimar Guðjónsson (d.28.8.1959) í Melstað. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson safn 028
Ómar Jakobsson borðar pylsu meðan hann spjallar við Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004). Ekki er vitað hvenær né hvar myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn 254
Systkinin Ingibjörg E. Kristinsdóttir og Óskar Þ. Kristinsson í grillveislu við hús Ingibjargar að Hólabraut 4. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1985.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 115
Myndin var tekin í sjómannadagspartýi heima hjá Stefáni Jósefssyni útgerðarmanni Ólafs Magnússonar HU 54. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin en á henni eru, frá vinstri: Stefán Jósefsson, Lárus Ægir Guðmundsson og Rúnar Jósefsson.
Óskar Kristinsson - safn 221
Ingólfur Bjarnason verkstjóri í Rækjuvinnslunni hf við stjórnborð vinnslunnar. ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn103
Myndin var tekin í Noregi í október 1992. Á henni eru, frá vinstri: Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, Magnús P.? vélasölumaður, Magnús Sigurðsson útgerðarstjóri og Gylfi Sigurðsson stjórnarformaður félagsins. Ástæða Noregsfararinnar að þessu sinni var að vinna að smíði nýs togara þar fyrir Skagstrending hf.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 065
Myndin af þessum heiðursmönnum var tekin í janúar 1992 á Sæborg. Lengst til vinstri er Haukur Gunnlaugsson (d.18.1.2004), Skafti Fanndal Jónasson (d.2.9.2006) og Björn Sigurðsson (d.5.10.1999).
Ragnar S. Ingvarsson - safn 7
Finnur Kristinsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1970.
Baldvin Jóhannesson
Baldvin Jóhannesson (d.1.1.1981) ættaður frá Tjörn á Skaga en bjó lengi í Ásholti á Skagaströnd.
Óskar Kristinsson safn 148
Finnur Kristinsson, líklega um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1 (Japans Arnari). Ekki er vitað hvenær Ómar Jakobsson tók þessa mynd.
Óskar Kristinsson safn 051
Stund milli stríða hjá Ómari Jakobssyni. Stundina nýtir hann til að leggja kapal. Ekki er vitað hvenær né hvar myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 048
Matthías Guðmundsson með hvolp um borð í togara Skagstrendings hf, Arnari Hu 1 (Japans Arnari). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn158
Myndin var tekin 20. apríl 1992 á fundi með áhöfn Arnars Hu 1 (Japans Arnars) um ýmislegt sem betur mátti fara að mati framkvæmdastjórans Sveins S. Ingólfssonar. Rætt var um öryggismál, veikindi, slys og margt annað sem áhöfnin var beðin að hafa í huga í störfum sínum. Sjómennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Sævar Hjaltason?, Ernst Berndsen, Guðjón Guðjónsson, Vilhjálmur Jónsson, Hafþór Gylfason, Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017), Gestur Arnarson og Birgir Þórbjarnarson sem er standandi.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1498
Tónlistamennirnir Hallbjörn J. Hjartarson til vinstri og Björgvin Halldórsson til hægri, spjalla saman á pallinum við Kántrýbæ. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var á einhverri kántrýhátíðanna.
Óþekktur ljósmyndari510
Hjónin á Björgum, Jón Andrés Ólafsson (d.2.8.1985) og Sigurbjörg Jónsdóttir (d.22.9.1993). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson - safn 232
Óskar Kristinsson nýtur sólarinnar sunnan undir vegg með litlu frænku sinni Rakel Petreu Finnsdóttur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1990.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 168
Það var aldrei langt í gítarinn þar sem Jón Helgason (d.1.12.2019) var. Á myndinni er hann að kenna afastráknum sínum, Jóni Inga Ragnarssyni, udirstöðuatriði í gítarspili. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það 1987-´88.
Ólafur Bernódusson 1038
Tveir rannsakendur frá Hafrannsóknarstofnun taka sýni úr hnúfubak sem dregin var að landi á Benna Ólafs Hu í áúst 1998. Dýrið reyndist vera karlkyns kálfur um 8 metra langur sem enn hafði verið á spena þegar hann dó. Eftir að þetta fólk hafði lokið störfum sínum dró Benni Ólafs Hu hræið aftur langt út á sjó aftur og sleppt þar sem fæða fyrir fugla og fiska.
Óskar Kristinsson safn127
Ólafur Ásgeirsson í matsalnum á ísfisktogaranum Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það gerði Vilhelm Þórarinsson.
1
…
20
21
22
…
32
Leita í myndasafninu
Leita