Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Ragnar S. Ingvarsson - safn 83
Pokinn tekinn innfyrir á Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Karlarnir eru óþekktir.
Skagaströnd - safn510
Haukur Gunnlaugsson (d.18.1.2004) og Guðrún Soffía Pétursdóttir á jólahlaðborði í Kántrýbæ 4. desember 1999.
Óskar Kristinsson - safn158
Myndin var tekin 20. apríl 1992 á fundi með áhöfn Arnars Hu 1 (Japans Arnars) um ýmislegt sem betur mátti fara að mati framkvæmdastjórans Sveins S. Ingólfssonar. Rætt var um öryggismál, veikindi, slys og margt annað sem áhöfnin var beðin að hafa í huga í störfum sínum. Sjómennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Sævar Hjaltason?, Ernst Berndsen, Guðjón Guðjónsson, Vilhjálmur Jónsson, Hafþór Gylfason, Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017), Gestur Arnarson og Birgir Þórbjarnarson sem er standandi.
Óþekktur ljósmyndari607
Sambýlisfólkið á Hnappsstöðum, Óskar Janúaríus Bergsson Laufdal (d.24.1.1946) og Helga Vilhelmína Sigurðardóttir (d.18.3.1974). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson 1038
Tveir rannsakendur frá Hafrannsóknarstofnun taka sýni úr hnúfubak sem dregin var að landi á Benna Ólafs Hu í áúst 1998. Dýrið reyndist vera karlkyns kálfur um 8 metra langur sem enn hafði verið á spena þegar hann dó. Eftir að þetta fólk hafði lokið störfum sínum dró Benni Ólafs Hu hræið aftur langt út á sjó aftur og sleppt þar sem fæða fyrir fugla og fiska.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 157
Ardís Ólöf Arelíusdóttir (d.12.9.2018) sminkar tengdason sinn, Magnús B. Jónsson, áður en hann stígur á svið í leikritinu "Síldin kemur og síldin fer", sem Leikklúbbur Skagastrandar sýndi vorið 1987, undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1498
Tónlistamennirnir Hallbjörn J. Hjartarson til vinstri og Björgvin Halldórsson til hægri, spjalla saman á pallinum við Kántrýbæ. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var á einhverri kántrýhátíðanna.
Óþekktur ljósmyndari510
Hjónin á Björgum, Jón Andrés Ólafsson (d.2.8.1985) og Sigurbjörg Jónsdóttir (d.22.9.1993). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari481
Þór Gunnlaugsson lögreglumaður í eldhúsinu í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það á áttunda áratugnum.
gunnar079
Þessi maður er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Myndina tók Stefán M. Bergmann sem stofnaði ljósmyndastofu í Keflavík 1904.
Óskar Kristinsson safn 141
Þessa mynd tók Ómar Jakobsson, líklega í eldhúsinu á ísfisktogaranum Arnari Hu 1 (Japans Arnari). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru, frá vinstri: Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017) vélstjóri, óþekktur vélstjóri og Gunnar Reynisson, kokkur. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
gunnar011
Þessi mynd var líklega tekin um borð í Húna HU 1 á netaveiðum vorið 1965. Karlarnir á henni eru óþekktir en eru í aðgerð,
Þórunn Bernódusdóttir - safn 035
Jóhann Björn Þórarinsson - Baddi - að gera við bíl á hlaðinu heima hjá sér að Bankastræti 9. Guðmundur J. Björnsson tók myndina en ekki er vitað hvenær.
Höfðaskóli - safn474
Myndin var tekin 1. maí 1997 í Skíðaskálanum þegar þar stóð yfir bekkjarkvöld nemenda Höfðaskóla fæddra 1988. Fólkið á myndinni átti börn í bekknum, þau eru frá vinstri: Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018), Aðalheiður Guðmundsdóttir og Guðbjörg Kristinsdóttir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 50
Líklega er það Magnús Margeirsson sem stendur við þvottakarið um borð í síðutogranum Arnari Hu 1. Maðurinn sem veifar fram við forgálgann er líklega Ómar Jakobsson. Það var Skagstrendingur hf sem gerði Arnar út á árunum 1969 - 1972 og var það upphafið af útgerðarveldi Skagstrendings hf.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 21
Frændurnir Ragnar Smári Ingvarsson til vinsti og Heiðar Elvan Friðriksson til hægri í klefanum sínum líklega um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970.
Óskar Kristinsson safn129
Þessa mynd tók Vilhelm Þórarinsson í lestinni á ísfisktogaranum Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær en lestin er greinilega að fyllast því karfinn er ísaður í stíum en ekki í kössum eins og gert var yfirleitt. E.t.v. voru allir kassar orðnir fullir eða verið var að spara þá undir annan afla en karfa. Maðurinn á myndinni er óþekktur.
Óskar Kristinsson safn 145
Aðgerð um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Myndina á Ómar Jakobsson sem veifar þorski til ljósmyndarans. Til vinstri er Árni Petersen en maðurinn á milli Ómars og Árna er óþekktur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Skagstrendingur hf gerði þetta skip út á árunum 1969 - 1972.
Ólafur Bernódusson1055
Myndin var tekin sumarið 1997 af stórgrýti sem safnað var úti á Skaga, lagerað á uppfyllingunni neðan við sundlaugina og síðan raðað í grjótvörn við höfnina. Eins og sjá má eru steinarnir engin smásmíði .
gunnar068
Aftan á þessari mynd stendur: Þorsteinn. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari516
Sigurður Árnason (d.10.6.1959) bóndi í Höfnum á Skaga. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari619
Mæðginin á Karlsminni, Guðmundur Pálsson (d.14.12.1976) og móðir hans Sigríður Vilhelmína Jóhannesdóttir (d.24.9.1930) . Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1707
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni er óþekktur unglingur að leiða Ólaf Guðmundsson (d.6.10.1985) úr Brautarholti á kjörstað í Fellsborg. Ólafur var orðinn blindur sem skírir af hverju unglingurinn leiðir hann. Húsin í baksýn er Baldursheimur (hvítur) og Goðhóll fjær.
Óþekktur ljósmyndari611
Hjónin á Hólanesi, Sigurður Sölvason (d.24.9.1968) og Margrét Konráðsdóttir (d.16.9.1974). Þau hjón bjuggu seinna lengi í íbúð inn af verslun sinni, Borg. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson - safn 260
Óskar Þór Kristinsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn096
Á myndinni er verið að sjósetja gúmmítuðruna líklega um borð í Örvari Hu 21. Hjörtur Guðbjartsson er til vinstri en maðurinn til hægri er óþekktur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
gunnar049
Áhöfn Húna HU 1 stillir sér upp fyrir myndatöku eftir vel heppaðan síldartúr. Mennirnir eru frá vinstri: óþekktur (? Gísli Ófeigsson?), Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016), Birgir Þórbjarnarson, Jónas Skaftason (d.17.11.2017), Hákon Magnússon (d. 2.8.2020) skipstjóri, Eðvarð Jóhannesson, Gunnar Albertsson (d.27.7.2019), Snorri Gíslason (d.29.5.1994) og Högni Jensson.
Ólafur Bernódusson 1105
Dr. James Kennedy 20. júlí 2014 á tjaldstæðinu á Bakkagerð (Borgarfirði Eystra). Tjaldsvæðið er í skjóli við Álfaborgina sem sést í baksýn. Þarna var Jim staddur ásamt hópi frá Skagaströnd sem gekk Víkurnar þar eystra sér til gamans.
Óskar Kristinsson - safn159
Myndin var tekin 20. apríl 1992 á fundi með áhöfn Arnars Hu 1 (Japans Arnars) um ýmislegt sem betur mátti fara að mati framkvæmdastjórans Sveins S. Ingólfssonar. Rætt var um öryggismál, veikindi, slys og margt annað sem áhöfnin var beðin að hafa í huga í störfum sínum. Sjómennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Jóhann Ásgeirsson, óþekktur, Reynir Lýðsson (standandi), Jón Sveinsson og Sigurbjörn ??. Ekki er vitað hver tók myndina.
Óþekktur ljósmyndari568
Hjónin í Barnaskólanum (Bjarmanesi) með elstu börn sín. Eðvarðsína Kristjánsdóttir (d.27.4.1944) og Einar Ragnar Guðmundsson (d.19.11.1984). Börnin eru Kristján Ragnarsson (d.13.7.2018) og Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011). Sigurlaug var dóttir Eðvarðsínu. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari531
Hjónin á Kálfshamri, Jóhannes Björnsson (d.14.6.1977) bóndi og Dagný Guðmundsdóttir (d.22.4.2004). þau bjuggu síðar í áratugi á Skagaströnd. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari581
Hjónin í Drangey, Jóhanna Benónýsdóttir (d.5.4.1957) og Pétur Andrésson (d.5.11.1973). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson safn127
Ólafur Ásgeirsson í matsalnum á ísfisktogaranum Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það gerði Vilhelm Þórarinsson.
Óskar Kristinsson safn 088
Skipsfélagar á Stapafelli SH 15 gera sér glaðan dag í landi. Frá vinstri: Sævar Rafn Hallgrímsson, Gylfi Jóhannsson, Ómar Jakobsson og Matthías ??son. Ekki er vitað hvemnær myndin var tekin. Ef þú veist hvers son Matthías er, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1558
Stefán Sveinsson hjálpar börnum sínum í dorgveiði á bryggjunni 3. maí 2011. Daði Snær Stefánsson til vinstri og Stefanía Stefánsdóttir til hægri.
Óskar Kristinsson safn 069
Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998) vélstjóri við stjórnvölinn um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Helgi Gunnarsson 23
Helgi Gunnarsson, verktaki við byggingu íþróttahússins, við hluta veitinganna sem hann og konan hans, Ragnheiður Sigurjónsdóttir, buðu starfsmönnum sínum og undirverktökum upp á í reisugilli íþróttahússins sumarið 1997.
Óþekktur ljósmyndari643
Hjónin á Læk, Jóhann Dalmann Jakobsson (d. 23.3.1987) og Katrín Bryndís Sigurjónsdóttir (Stella) (d.8.12.2003). þau hjón bjuggu síðan lengi í Blálandi á Skagaströnd. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari671
Hjónin í Þórshamri, Bogi Theodór Björnsson (d.29.1.1969) og Sigrún Jónsdóttir (d.4.4.1970). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1694
Sigurður Sigurðarson hélt sýningu á nokkrum af ljósmyndum sínum 15. ágúst 2010. Sýningin var sett upp á loftinu í gamla kaupfélaginu og gerði mikla lukku enda myndirnar allar fallegar og vel gerðar.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 57
Jóhann Baldvinsson (Jói norski) (d.9.4.1990) um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Jói átti ævintýralegt líf m.a. við selveiðar á norskum selföngurum í áratugi lengst norður í íshafinu. Þar lenti hann í því einu sinni að báturinn sem þeir voru á festist í ís og brotnaði í spón. Karlarin björguðust upp á ísinn með eitthvað af hafurtaski sínu þar sem þeir voru seinna hirtir upp af öðrum selfangara. Um ævintýri Jóa norska má lesa í bókinni: "Jói Norski" eftir Erling Davíðsson, sem út kom árið 1972.
Óþekktur ljósmyndari654
Hjónin, Gunnar Hermann Grímsson (d.11.9.2003) og Sigurlaug Helgadóttir (d.21.10.2009) bjuggu í húsinu Skagaströnd en það var líka stundum kallað Verslunarstjórahús og stóð rétt vestan við Gamla kaupfélagið. Gunnar var kaupfélagsstjóri á Skagaströnd. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari583
Hjónin í Drangey, Guðmundur Ari Gíslason Kaldbak (d.2.6.1956) og Sigríður Helga Gísladóttir (d.6.8.1970). Þau hjón eignuðust 14 börn saman áður en þau skildu. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson safn139
Ingólfur Sveinsson og Ingibjörg Skúladóttir njóta sólarinnar uppi á brúarþaki á Arnari Hu 1 í heimagerðum hengirúmum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það gerði Hjörtur Guðbjartsson.
Óskar Kristinsson safn106
Myndin var tekin 13. júlí 1992 þegar ísfisktogarinn Arnar Hu 1 kemur inn til löndunar í Reykjavíkurhöfn. Mennirnir á hvalbaknum eru, frá vinstri: Ólafur Ásgeirsson, Guðmundur Finnbogason og Sævar Hjaltason.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1486
Mynd frá opnun gámastöðvar Gámafélagsins og Sorphreinsunar Vilhelms Harðarsonar ehf 29. júlí 2010. Á myndinni eru, frá vinstri: Adolf H. Berndsen oddviti sveitarfélagsins Skagastrandar, Vilhelm B. Harðarson eigandi og framkvæmdastjóri félagsins og Magnús B. Jónsson sveitarstjóri. Á myndinni eru þeir að klippa borða og opna þannig gámastöðina formlega.
Óskar Kristinsson safn 119
Ekki er vitað hvað var í gangi þegar myndin var tekin. Gúmmíbátarnir tveir eru á leið frá einhverju skipi, líklega Arnari Hu 1, yfir í Örvar Hu 21. Myndina tók Ólafur Ásgeirsson 24. ágúst 1996.
Óþekktur ljósmyndari462
Sæmundur Gunnarsson þáverandi verslunarstjóri í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Helgi Gunnarsson 26
Myndin var tekin sumarið 1997 í reisugilli íþróttahússins. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: óþekktur, Sigurjón Ástmarsson, Rúnar Kristjánsson, Baldvin Hjaltason, Rolf Árnason (d.3.6.2014) og Helgi Gunnarsson sem situr á stólnum.
Óþekktur ljósmyndari593
Hjónin á Flankastöðum, Kristinn Ágúst Jóhannsson (d. 9.11.2002) og Guðný Sigríður Finnsdóttir. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
gunnar078
Nikulás Helgason (d.25.8.1931) Skeggjastöðum og víðar á bæjum í A-Hún.
Óskar Kristinsson - safn198
Myndin var tekin á Taiwan 4. september 1991 þegar Sveinn S. Ingólfsson var þar í viðskiptaferð sem framkvæmdastjóri Skagstrendings hf. Sveinn er til hægri á myndinni en Magnús Schram sölumaður hjá Fiskileiðum til vinstri. Milli þeirra er óþekktur Taiwani.
Óskar Kristinsson - safn 215
Yfirmennirnir á Arnari Hu 1 standa kátir á belgnum á trollinu eftir risa karfahal. Þeir eru Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri til vinstri og Guðjón Guðjónsson 1. sýrimaður til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 53
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970. Mennirnir í aðgerðinni eru óþekktir. Fiskinum var sturtað á dekkið úr pokanum og þurfti því að beygja sig eftir hverjum fiski til að gera að honum milli handanna. Honum var svo kastað í þvottakarið sem er næst okkur fyrir miðri mynd. Þaðan fór fiskurinn í lestina, eftir að hafa skolast vel í karinu. Í lestinni var fiskurinn síðan ísaður í stíum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1513
Ragnar Ingvarsson smúlar dekkið, líklega um borð í Ólafi Magússyni HU 54. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn167
Myndin var tekin þegar áhöfn Örvars Hu 21 fékk viðurkenningu frá fiskútflytjanda fyrir gæðaframleiðslu um borð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það upp úr 1990. Áhafnarmeðlimirnir eru, frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Níels Grímsson (nær), óþekktur (fjær), Gunnar Reynisson, Þráinn Bessi Gunnarsson, Guðmundur E. Guðmundsson, Ágúst Ómarsson, Jóhann Ásgeirsson, óþekktur, Gunnar Þröstur Ásgeirsson, Hafþór Gylfason, Grétar Smári Hallbjörnsson, Guðmundur Henry Stefánsson, Ólafur Ásgeirsson og Einar Haukur Arason. Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari551
Hjónin á Tjörn, Guðbjörg Rannveig Kristmundsdóttir (d.18.6.1967) og Sveinn Mikael Sveinsson (d. 7.4.1932). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari437
Sigmar Jónsson (d.18.9.1986) starfsmaður Kaupfélags Húnvetninga rýnir í reikninga á skrifstofu verslunarinnar við Einbúastíg (gamla kaupfélaginu). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari520
Hjónin í Hlíð á Skaga. Sigurbjörn Björnsson (d.11.10.1986) og Gurid Björnson (d.26.4.2007) (Gurid Sandsmark Sveinbjörnsson). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Björn B. Jónsson Örlygsstöðum
Aftan á þessari mynd stendur: "Björn Björnsson". Líklega átti hann heima á Örlygsstöðum á Skaga. Ef þú veist eitthvað um Björn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1
…
21
22
23
…
32
Leita í myndasafninu
Leita