Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
gunnar040
Síld landað úr Húna Hu 1 á Skagaströnd. Síldinni var mokað í tunnur eins og sjást á myndinni og svo hífðar upp og sturtað úr þeim í handvagn eins og stendur á hafnarbakkanum. Í vagninum var síldinni síðan ekið að söltunarbásunum þar sem henni sturtað í og söltunarstúlkurnar tóku til við að hausskera og slógdraga síldarnar áður en þær voru svo saltaðar og lagðar niður í tunnur. Þegar tunnan var full var hún fjarlægð, konan fékk lítinn málmpening í stígvélið sitt og komið var með nýja tunnu. Að söltun lokinni framvísuðu konurnar peningunum og eftir fjölda peninga fór svo kaupið eftir þá söltunartörn.
Óskar Kristinsson safn129
Þessa mynd tók Vilhelm Þórarinsson í lestinni á ísfisktogaranum Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær en lestin er greinilega að fyllast því karfinn er ísaður í stíum en ekki í kössum eins og gert var yfirleitt. E.t.v. voru allir kassar orðnir fullir eða verið var að spara þá undir annan afla en karfa. Maðurinn á myndinni er óþekktur.
Ólafur Bernódusson1055
Myndin var tekin sumarið 1997 af stórgrýti sem safnað var úti á Skaga, lagerað á uppfyllingunni neðan við sundlaugina og síðan raðað í grjótvörn við höfnina. Eins og sjá má eru steinarnir engin smásmíði .
Ragnar S. Ingvarsson - safn 66
Ómar Jakobsson tekur í spil um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíman á árunum kringum 1970.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1619
Agnes Sævarsdóttir og Björn Ingi Óskarsson í vinnunni í Höfðaskóla 1. febrúar 2011, hún sem kennari og hann sem tæknimaður.
Óþekktur ljósmyndari470
Myndin var tekin á litlu jólum í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Á henni er Guðlaugur Hjaltason til hægri en maðurinn til vinstri er óþekktur Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari538
Lárus Hinriksson (d.20.3.1967) bóndi í Kurfi. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninsa.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1504
Stefán Þór Árnason. Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn181
Kári Sigurbjörn Lárusson við vinnu um borð, líklega í Örvari Hu 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og ljósmyndarinn er óþekktur.
Óskar Kristinsson - safn173
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hver gerði það. Líklega var hún tekin þegar einn af togurum Skagstrendings hf var að koma í land eða að leggja af stað í nýjan túr. Mennirnir eru frá vinstri: Hafsteinn Pálsson, Óskar Kristinsson og óþekktur.
Óskar Kristinsson - safn 213
Á myndinni eru tveir vélstjórar, Vladimir Dorowski til vinstri og Finnur Kristinsson til hægri. ekki er vitað hvar myndin var tekin en það var gert 28. desember 1995. Vladimir bjó um tíma á Skagströnd og var m.a. vélstjóri á Ólafi Magnússyni Hu 54 um tíma. Finnur var vélstjóri á togurum Skagstrendings hf í áratugi.
Óþekktur ljósmyndari448
Halldór Hermannsson verlunarstjóri verslunar Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari568
Hjónin í Barnaskólanum (Bjarmanesi) með elstu börn sín. Eðvarðsína Kristjánsdóttir (d.27.4.1944) og Einar Ragnar Guðmundsson (d.19.11.1984). Börnin eru Kristján Ragnarsson (d.13.7.2018) og Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011). Sigurlaug var dóttir Eðvarðsínu. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Helgi Gunnarsson 17
Sigurjón Karlsson kastar mæðinni við byggingu íþróttahússins sumarið 1997.
Óskar Kristinsson safn 010
Magnús B. Jónsson þræðir í nál uppi á bátadekki í síðutogaranum Arnari Hu 1, líklega vorið 1969.
Helgi Gunnarsson 3
Hrólfur Pétursson til vinstri og Sigurður Björnsson til hægri vinna við sökkla undir íþróttahúsið haustið 1996. Mennirnir tveir, lengra frá, eru óþekktir.
Óskar Kristinsson - safn159
Myndin var tekin 20. apríl 1992 á fundi með áhöfn Arnars Hu 1 (Japans Arnars) um ýmislegt sem betur mátti fara að mati framkvæmdastjórans Sveins S. Ingólfssonar. Rætt var um öryggismál, veikindi, slys og margt annað sem áhöfnin var beðin að hafa í huga í störfum sínum. Sjómennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Jóhann Ásgeirsson, óþekktur, Reynir Lýðsson (standandi), Jón Sveinsson og Sigurbjörn ??. Ekki er vitað hver tók myndina.
Guðrún Guðmundsdóttir 15
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Austurland 25. - 28. júní 1991. Í ferðinni gisti hópurinn á Hótel Edda á Hallormsstað. Á þessari mynd eru Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) Vík á Skagaströnd til vinstri og Pétur Björnsson (d.19.1.1997) Skriðulandi til hægri. Á myndinni eru þeir að grínast eitthvað með trúðagleraugun sem Pétur er með.
Óskar Kristinsson - safn186
Sveinn S. Ingólfsson var forystumaður við stofnun Skagstrendings hf 1968 og lengi framkvæmdastjóri félagsins. Hann átti stærstan hlut í að byggja upp það stórveldi sem fyrirtækið var orðið þegar það var selt 2003. Þá hafð Sveinn hætt störfum hjá félaginu nokkrum árum fyrr.
Óþekktur ljósmyndari598
Hjónin í Garði, Jóhannes Pálsson (d.9.3.1972) og Helga Þorbergsdóttir (d.30.9.1970). Jóhannes var menntaður skósmiður. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson safn 117
Fiski pakkað í öskjur um borð í Örvari Hu 21. Hver askja var svo sett í frystitækin til frystingar áður en þeim var síðan pakkað þremur saman í stærri pappakssa og niður í lest þar sem frostið var um 30° C. Karlarnir á myndinni eru: næst okkur er óþekktur, Grétar Smári Hallbjörnsson er í miðjunni og Jóhann Ásgerisson fjærst. Myndina tók Ólafur Ásgeirsson 20. ágúst 1996.
Guðrún Guðmundsdóttir 11
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Norðurland 12. - 15. júní 1990. Í ferðinni gisti hópurinn á Húsavík. Á þessari mynd eru þeir Björn Kristjánsson (d.18.7.1998) Húnsstöðum til vinstri og Sófus Guðmundsson (d.2.8.1991) Skrapatungu til hægri.
Óskar Kristinsson safn 140
Birgir Þórbjarnarson stýrimaður og skipstjóri á togurum Skagtrendings hf. Á myndinni er hann líklega í stólnum um borð í Örvari Hu 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það gerði Ómar Jakobsson.
Óþekktur ljósmyndari436
Eðvarð Hallgrímsson, í rauðri peysu, stjórnarmaður í Kaupfélagi Húnvetninga, vinnur við vörutalningu með Ingvari Jónssyni (d.18.1.2003) starfsmanni Kaupfélagsins í versluninni við Einbúastíg (gamla kaupfélaginu). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 71
Skipsfélagarnir Ómar Jakobsson til vinstri og Gylfi Jóhannsson til hægri láta fara vel um sig í koju um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970.
Óþekktur ljósmyndari584
Sambýlisfólkið í Drangey, Þórdís Alexandra Jósefsdóttir Stiesen (d.6.7.1948) og Jakob Guðmundsson (d.18.6.1932). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson safn 030
Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004) í sparifötunum á einhverjum hótelgangi. Ekki er vitað hvenær myndin tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1469
Jón Ólafur Ívarsson (Daddi) (d.29.12.2013) málar grindverkið við heimili sitt að Ránarbraut 22. Ekki er vitað hveær myndin var tekin
Óskar Kristinsson - safn 244
Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf flytur ræðu á Hótel Dagsbrún. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin
Árni Geir Ingvarsson - safn 1507
Vinirnir Gunnar Þór Gunnarsson við stýrið og Ragnar Hlynur Jónsson í stafni. Líklega eru þeir á leiðinni að vitja um silunganet. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
gunnar021
Myndin var tekin um borð í Húna Hu 1 þegar verið var að kippa á milli netatrossa. Þess vegna tók því ekki að fara úr stakknum heldur tylltu menn sér bara á steinahrúgu á dekkinu. Fremstur er Sigurjón Magnússon (d.16.3.2007) og aftastur er Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016). Maðurinn á milli þeirra er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari593
Hjónin á Flankastöðum, Kristinn Ágúst Jóhannsson (d. 9.11.2002) og Guðný Sigríður Finnsdóttir. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
gunnar078
Nikulás Helgason (d.25.8.1931) Skeggjastöðum og víðar á bæjum í A-Hún.
Ólafur Bernódusson 1111
Hjónin Magnús B. Jónsson og Guðbjörg Viggósdóttir í svefnstað í Breiðavík á gönguferð hóps Skagstrendinga um Víkurnar við Borgarfjörð eystra 19. júlí 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1654
Ágúst Jónsson til vinstri og Þröstur Líndal Gylfason steypa í gólfið í kjallara Fellsborgar 8. mars 2012. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óskar Kristinsson - safn153
Myndina tók Magnús B. Jónsson um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 árið 1969. Mokafli hefur verið í síðasta hali því það er fiskur út um allt dekk. Karlarnir í aðgerðinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson - safn189
Sveinn S. Ingólfsson til vinstri og Páll Þorfinnsson (d.1.9.1993) til hægri í laxveiðitúr við Laxá í Refasveit. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og ljósmyndarinn er óþekktur.
Óskar Kristinsson safn 067
Þessi mynd var líklega tekin í borðsalnum um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 einhverntíma 1968 - 1970. Maðurinn til vinstri er Viggó Maríasson (d.30.7.1973) en sá með pípuna er Már Hall Sveinsson (d.1.3.2008) frá Réttarholti.
Óskar Kristinsson - safn156
Kátir karlar á dekkinu á ísfisktogaranum Arnari Hu 1. þeir eru nýbúnir að skera hákarl því beiturnar liggja á dekkinu við hlið þeirra. Mennirnir eru, frá vinstri: Hafþór Gylfason, óþekktur vélstjóri, Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002), magnús Hjaltason (d.16.6.2014) og Guðmundur E. Guðmundsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hver tók hana. Ef þú þekkir óþekkta vélstjórann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson - safn155
Myndina tók Magnús B. Jónsson um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 árið 1969. Á henni er Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) að sigta grásleppuhrogn sem síðan voru söltuð í tunnur. Andvirði hrognanna rann óskipt í starfsmannasjóð áhafnarinnar um borð.
Ólafur Bernódusson 1033
Jóel Kristjánsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf til hægri óskar Guðjóni Guðjónssyni skipstjóra á Arnari Hu 1 til hamingju með mettúr í september 1998. Með Guðjóni er sonur hans Kristján Pétur.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 5
Myndin var tekin um borð í Auðbjörgu Hu 6 þegar hún var gerð út á færaveiðar. Líklega var myndin tekin kringum 1975. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn475
Myndin var tekin utan við Skíðaskálann 1. maí 1997. Þá fór þar fram bekkjarkvöld nemenda Höfðaskóla fæddra 1988. Gísli Snorrason og Guðbjörg Viggósdóttir áttu bæði syni í bekknum og voru þess vegna á staðnum.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 049
Myndin var tekin um páskana 1991 þegar nokkrir jeppakarlar frá Skagaströnd fóru upp á Langavatn til að veiða gegnum ís. Á ýmsu gekk að komast að vatninu í ófærðinni og erfitt að komast frá bakkanum út á ísinn. Á myndinni er Milan Durica að hjálpa til við að ná rússajeppa Guðmundar J. Björnssonar úr festu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1488
þessi mynd var tekin á einhverri Kátrýhátíðinni en ekki er vitað hvenær. Á henni spjalla þeir saman með hattana sína, Viggó Brynjólfsson til vinstri og Stefán Jósefsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1499
Hallbjörn J. Hjartarson með myndarlegt höfuðskraut sem Ólafur Thorarensen gaf honum í samkvæmi 18. september 2012. Samkvæmið var haldið þegar sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi kom í Kántrýbæ með fríðu föruneyti til að heiðar Hallbjörn fyrir framlag sitt til sveitatónlistar á Íslandi. Heiðrunin kom frá: "The Country Music Association", sem eru samtök kántrýtónlistarfólks í USA. Vinstra megin við Hallbjörn er Þórður Árnason gítarleikari.
Óskar Kristinsson safn 074
Hilmar Gunnarsson nýtur sólar um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1969 - 1971.
Óskar Kristinsson safn 013
Mennirnir á stjórnborðs brúarvæng síðutogarans Arnars Hu 1 eru frá vinstri: Óskar Þór Kristinsson, Sigurjón Haraldsson (Jónki), Jón Helgason (d.1.12.2019) og Guðjón Jónsson (Gutti). Myndin var tekin hafísvorið 1969.
Óþekktur ljósmyndari530
Jóhannes Einarsson (d.24.6.2961) í Hvammi í Kálfshamarsvík. Í prestþjónustubók skrifaði séra Pétur Þ. Ingjaldsson m.a.: "Jóhannes var síðasti sjómaðurinn þar í Nesjum". Mynd og tilvitnun eru úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 118
Rúnar Jósefsson við radarinn um borð í Ólafi Magnússyni HU 54. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn200
Sveinn S. Ingólfsson lætur fara vel um sig í brúnni á einhverjum togara sem hann og aðrir ráðamenn hjá Skagstrendingi hf voru að skoða 19. mars 1991 á Nýfundnalandi.
Óþekktur ljósmyndari634
Sambýlisfólkið á Litla-Felli, Þorsteinn Sigurbjörn Guðlaugsson (d.27.5.1982) og Hólmfríður Björg Kristjánsdóttir (d.24.11.1963). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
gunnar054
Myndin var tekin í línuróðri á Stíganda HU 9 á Húnaflóa. Maðurinn á henni er óþekktur og ekki er vitað hvenær hún var tekin.
Óskar Kristinsson - safn184
Sigurbjörn Björgvinsson var lengi á sjó á skipum Skagstrendings hf. Fyrst sem háseti en seinna matsveinn um árabil. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af Sigurbirni né hver ljósmyndarinn var.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 043
Myndina tók Guðmundur J. Björnsson í Hólaneskirkju eldri. Þá fór þar fram messa sem fermingarsystkin frá árinu 1963 sóttu. Á myndinni les eitt þeirra, Kolbrún Jónsdóttir, úr ritningunni. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996), sem fermdi hópinn, hlýðir á lesturinn til vinstri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1614
Myndin var tekin 26. maí 2011. Karlarnir á henni eru að undirbúa flutning á nýsmíðuðu sumarhúsi frá verkstæði Helga Gunnarssonar út að Tjörn á Skaga. Mennirnir eru frá vinstri: Rúnar Kristjánsson, Gísli Snorrason, Sæþór Bragi Ágústsson ?, Jakob Guðmundsson og Einar Gunnarsson.
Óskar Kristinsson - safn 236
Á myndinni setur Óskar Kristinsson stroffu á belginn á trollinu ofan við pokann svo hægt sé að híífa hann upp þannig að fiskurinn í honum renni út og niður í fiskmóttökuna. Hinir mennirnir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1499
Á einni kántrýhátíðinni mætti KK og hélt námskeið í skólanum í götuspilamennsku (buski). Einnig kom hann fram á hátíðinni m.a. með tónleikum í Bjarmanesi. Á myndinni er KK (Kristján Kristjánsson) til hægri á spjalli við Steindór Haraldsson sem er vinstra megin. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ekki er vitað hvaða ár þetta var.
Óskar Kristinsson safn 022
Jóhannes Sveinsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 1094
Gylfi Sigurðsson bíður eftir nýjum bát í flota Skagstrendinga 14. maí 2014. Þá var að koma til hafnar nýr notaður bátur í eigu Vík ehf. Báturinn hét Kristinn SH 712 en hlaut nafnið Alda Hu 112 eftir að hann komst í eigu Víkur. Gylfi var á þessum tíma landmaður í beitningu hjá Vík ehf.
1
…
22
23
24
…
32
Leita í myndasafninu
Leita