Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Óskar Kristinsson - safn162
Myndin var tekin 26. september 1991 en ekki er vitað hver tók hana. Hún er af fundi á Hótel Dagsbrún með undirmönnum á Örvari Hu 21. Fundarefnið var aðallega umræðan um föst frí sjómannanna. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Kristmundur Stefánsson (d.4.11.2000), Einar Ásgeirsson, Gunnar Jón Jónsson, Einar Kristberg Einarsson (nær), Kristján Alexandersson (fjær), Jón Alexandersson, Sigurjón Ingólfsson og Sveinn Gíslason.
Óskar Kristinsson - safn195
Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, annar frá hægri, og Magnús Schram fisksölumaður, lengst til hægri, hitta viðaskiptavini í Japan 27. ágúst 1991. Japanarnir heita Jun Hariya og Masatashi Hirooha samkvæmt áleturn aftan á myndinni.
Óskar Kristinsson safn101
Ragnar Högnason trekkir utanborðsmótorinn í gang á gúmmítuðrunni áður en hún er sjósett. Maðurinn með honum í bátnum er óþekktur en Einar ??son heldur bátum kyrrum. Myndin var líklega tekin um borð í Örvari Hu 21 en ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 166
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Á henni eru Ragnar Smári Ingvarsson til vinstri og Jón Gunnar Jósefsson til hægri í útilegu einhversstaðar.
Óskar Kristinsson safn 021
Myndin var tekin í Bergen í Noregi 1992 þegar stjórn Skagstrendings hf og yfirmenn á Arnari Hu 1 voru þar að kynna sér smíði á nýjum frystitogara, sem þar var byggður fyrir félagið. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002), Magnús B. Jónsson, óþekktur, Guðjón Guðjónsson og Gylfi Sigurðsson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 111
Líklega er þetta hljómsveitin Janus á sviðinu. Söngvarinn er Þorvaldur Skaftason og Guðmundur Jónsson spilar á gítarinn. Aftan við þá spilar Kristján Blöndal á trommurnar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 018
Myndin var tekin í Bergen í Noregi 1992 þegar stjórn Skagstrendings hf og yfirmenn á Arnari Hu 1 voru þar að skoða teikningar af nýjum frystitogara sem þar var byggður fyrir félagið. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Adolf H. Berndsen, Magnús B. Jónsson stjórnarmenn, Magnús Sigurðsson vélstjóri og útgerðarstjóri og Kristinn Jóhannsson (d.9.2002) stjórnarmaður.
Óskar Kristinsson - safn 218
Óskar Þór Kristinsson safnar mótorhjólum. Á myndinni er hann utan við Hólabraut 7 með eitt af þeim fimm sem hann á. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 74
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 þegar Örvar HU 14 átti erindi við áhöfnina á Arnari. Skagstrendingur hf átti báða togbátana samtímis á árunum 1970 - 1972 og einhverntíma á því tímabili var myndin tekin. Hvert erindið var er ekki vitað og mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Guðrún Guðmundsdóttir 085
Á myndinni eru Pálmi Guðnason (d.23.3.1994) ættaður frá Ægissíðu á Skagaströnd til vinstri og Skafti Fanndal Jónasson (d.2.9.2006) Lundi til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1988 í einhverjum hittingi eldri borgara frá Skagaströnd og Blönduósi.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 029
Ómar Jakobsson dregur af spilkopp um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 vorið 1969. Líklega er hann að hífa pokann innfyrir. Myndina tók Guðmundur J. Björnsson.
Óþekktur ljósmyndari489
Árni Árnason (d.?) bóndi á Höfðahólum. Myndin er úr bókinni Föðurtún eftir Pál Kolka.
Helgi Gunnarsson 31
Hallbjörn Björnsson rafvirki sá um rafmagnið í íþróttahúsinu. Myndin af honum þar var tekin 26. nóvember 1997.
Óskar Kristinsson safn 011
Magnús B. Jónsson vinnur við að "láta það fara" um borð í Arnari Hu 1 árið 1969.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1514
Stefán Jósefsson á kunnuglegum slóðum í brúarglugganum á Ólafi Magnússyni HU 54 sem hann átti og gerði út í mörg ár. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1500
Sigurður Skagfjörð Bjarnason (d.16.5.2022) Glaðbeittur í vinnunni.
Ljósmyndakeppni 2022 60
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Signý Ósk Richter og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja".
Óskar Kristinsson safn 065
Aðgerð um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 einhverntíma á árunum 1969 - 1971. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: óþekktur, Indriði Hjaltason (d.2.4.2006), Óskar Þór Kristinsson og Magnús B. Jónsson.
Óskar Kristinsson safn 070
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 einhverntíma á árunum 1969 - 1971. Karlarnir grípa í netaviðgerðir á stíminu. Þeir eru frá vinstri: ?Guðjón Jónsson?, Magnús B. Jónsson, baksvipur ?Már Hall Sveinsson (d.1.3.2008)? og Ómar Jakobsson.
Óskar Kristinsson safn 143
Árni Ólafur Sigurðsson kíkir í blöðin um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1. Ómar Jakobsson tók myndina en ekki er vitað hvenær.
Óþekktur ljósmyndari513
Sambýlisfólk á Brandaskarði, Vilhjálmur Benediktsson (d.21.10.1955) og Jensína Hallgrímsdóttir (d.6.2.1963). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari472
Sæmundur Gunnarsson verslunarstjóri færir Jóhönnu Sigurjónsdóttur jólapakka í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
gunnar064
Aftan á þessari mynd stendur: Jón Stef. Líklega er hér um að ræða Stefán Sveinsson (d.3.5.1949) bónda á Steinnýjarstöðum með fósturson sinn Jón Ólafsson (d.5.9.1993) sem lengi bjó á Ólafsvöllum/Náttbrún á Skagaströnd.
Óþekktur ljósmyndari563
Hjónin í Ásholti, Andrés Guðjónsson (d.5.10.1968) og Sigurborg Hallbjarnardóttir (d.3.12.1983). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Guðrún Guðmundsdóttir 090
Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) les upp ljóð eða sögu á hótel Dagsbrún fyrir eldri borgara á Skagaströnd og Blönduósi. Myndin var líklega tekin 1991 eða 1992.
Óþekktur ljósmyndari502
Guðmundur Ólafsson (d. 1861) bóndi á Vindhæli. Myndin er úr bókinni Föðurtún eftir Pál Kolka.
Óþekktur ljósmyndari673
Kristján Björn Jónasson (d.19.1.1983) í Þórshamri. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari543
Hjónin á Skeggjastöðum, Hjalti Árnason (d. 4.7.2010) og Anna Lilja Magnúsdóttir (d.18.8.2000). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari588
Páll Ingvar Jónsson (d. 14.12.1958) verkamaður á Finnsstöðum. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson - safn202
Myndin var tekin á fundi í Noregi 28. maí 1991. Á honum eru þrír Norskir fulltrúar og Sævar Hallgrímsson, með hönd undir kinn, og Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017), með gleraugu. Þeir voru fulltrúar Skagstrendings hf á fundinum. Fundarefnið var líklega að ganga frá ýmsum lausum endum í sambandi við nýsmíði fyrir Skagstrending hf.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 103
Ragnar Smári Ingvarsson um borð í gondol í Feneyjum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn 220
Myndin var tekin af iðnaðarmönnum við járnsmíðar í Rækjuvinnslunni hf. Hún var í fremstu röð rækjuvinnslna, afar tæknivædd og afkastamikil. Mennirnir á myndinni eru, talið frá vinstri: Björn Viðar Hannesson, Vilhelm Þórarinsson, Ari Þórsson (fjær) og Guðjón Árnason (nær). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 144
Ómar Jakobsson tók þessa mynd á matartíma um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1 (Japans Arnari) en ekki er vitað hvenær. Á myndinni eru, frá vinstri: Jón Helgason (d.1.12.2019) Jón Gunnar Jósefsson og Gylfi Guðjónsson. Standandi er Gunnar Jón Jónsson.
Óskar Kristinsson safn 014
Már Hall Sveinsson (d.1.3.2008) við vírastýrið á spilinu um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Myndin var líklega tekin einhverntíma á árunum 1969 - 1971.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 44
Björn Ómar Jakobsson í messanum um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1487
Feðginin Stefán Sveinssson og Stefanía Stefánsdóttir undirbúa sig fyrir að dorga á bryggjunni á Skagaströnd. Eitthvað virðist Stefanía ekki vera hrifin af makrílnum sem pabbi hennar er að skera í beitur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 015
Mennirnir á myndinni eru að vinna við netabætingar um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 líklega árið 1969. Maðurinn til vinstri er Magnús B. Jónsson en til hægri er Árni Petersen.
Óþekktur ljósmyndari552
Þorgeir Mikael Sveinsson (d.29.6.2016) ráðsmaður á Tjörn. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari617
Hjónin á Iðavöllum, Hallgrímur Jónsson (d.2.12.1983) og Anna Ragnheiður Fritzdóttir (d.4.3.1992). Hallgrímur var póstmeistari og símstöðvarstjóri. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 039
Guðmundur J. Björnsson tók þessa mynd að aflokinni æfingu skipverja á Arnari Hu 1 - Japans Arnari - í notkun flotbúninga. Birgir Þórbjarnarson stýrimaður skolar af búningunum. Mennirnir í búningunum eru, frá vinstri: Ómar Jakobsson?, Hafþór Gylfason, Vilhelm Jónsson og óþekktur sem er að tala við Guðjón Ebba Sigtryggsson (d.16.7.2017) skipstjóra. Aðrir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari574
Hjónin í Brautarholti, Ólafur Jón Guðmundsson (d.6.10.1985) og Lilja Þuríður Jakobsdóttir (d.19.7.1965). Ólafur var blindur síðustu æviár sín. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari555
Sigurður Björnsson (d.10.5.1987) á Örlygsstöðum. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson 964
Myndin var tekin á fyrstu Kántrýhátíðinni 1984. Á henni er Hallbjörn Hjartarson sem hélt hátíðina. Hallbjörn virðist áhyggjufullur á myndinni enda veðjaði hann töluverðu með hátíðahöldunum.
Óþekktur ljósmyndari642
Hjónin á Læk (Nýja Læk eða Neðri Læk) við Strandgötu, Kristján Axel Jón Helgason (d.27.7.1971) og Jóhanna Helga Lárusdóttir (d.12.12.1980). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 15
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af Ragnari Smára Ingvarssyni.
Óþekktur ljósmyndari604
Hjónin í Háagerði, Kristján Sigurðsson (d.3.11.1966) og Unnur Gíslína Björnsdóttir (d.14.12.1990). Þau bjuggu líka lengi í Þórshamri - Skagavegi 15 - á Skagaströnd. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari645
Hjónin í Móum, Sigurður Jónasson (d.6.2.1944) og Björg Bjarnadóttir (d.6.7.1959). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
gunnar014
Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) veifar smákarfa um borð í Húna HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1960.
gunnar043
Löndun í gangi úr Húna HU 1 í Skagastrandarhöfn. Maðurinn í köflóttu skyrtunni er líklega Gylfi Sigurðsson en Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) er til vinstri á myndinni að hífa. Maðurinn á bryggjunni er óþekktur. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1960.
Óskar Kristinsson safn 071
Benóný Gunnarsson í brúnni á síðutogaranum Arnari Hu 1. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1969 - 1971.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 33
Ragnar S. Ingvarsson að borða gamaldags mat, sviðakjamma , á gamaldags máta eingöngu með vasahnífnum sínum.
Ólafur Bernódusson1084
Myndin var tekin í ágúst 1996 á hafnarsvæðinu á Skagaströnd. Á henni eru slysavarnamenn úr Káraborg á Hvammstanga að æfa sig í meðferð fluglínutækja. Myndin var tekin þegar einn félaginn úr sveitinni skýtur línu yfir á Skúffugarðinn. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari535
Sambýlisfólkið í Króki, Sveinbjörn Sigvaldason (d.18.7.1981) og Svanlaug Halldórsdóttir (d.26.2.2018). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson - safn152
Aðgerð um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 einhverntíma vorið 1969. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Ómar Jakobsson, óþekktur, Gylfi Jóhannsson (fjær) og Björn Sigmundson (nær). Myndina tók Magnús B. Jónsson. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson safn105
Séra Egill Hallgrímsson (d.9.6.2021) biður fyrir og blessar Arnar Hu 1 og áhöfn hans nýkominn til heimahafnar á Skagaströnd í lok mars 1996.
Ljósmyndakeppni 2022 45
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Þórey Jónsdóttir og sendi inn í flokkinn "Gamalt".
Ingibergur Guðmundsson 366
Myndin var tekin í maí 1988 á kennarastofunni í Höfðaskóla. Á henni eru kennararnir Ólafur Bernódusson og Vilborg Magnúsdóttir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 58
Magnús Margeirsson í kojunni sinni líklega um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970.
Óþekktur ljósmyndari660
Hjónin á Spákonufelli, Jakob Jens Jóhannsson (d.5.6.1935) og Pálína Emma Jónsdóttir (d.29.2.1976). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson - safn161
Myndin var tekin 20. apríl 1992 á fundi með áhöfn Arnars Hu 1 (Japans Arnars) um ýmislegt sem betur mátti fara að mati framkvæmdastjórans Sveins S. Ingólfssonar. Rætt var um öryggismál, veikindi, slys og margt annað sem áhöfnin var beðin að hafa í huga í störfum sínum. Sjómennirnir á myndinni eru, sitjandi frá vinstri: Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017), Gestur Arnarson, Guðmundur E. Guðmundsson og Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004). Standandi frá vinstri: Birgir Þórbjarnarson, Jóhann Ásgeirsson, óþekktur og Stefán Sveinsson. Ekki er vitað hver tók myndina en ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1
…
23
24
25
…
32
Leita í myndasafninu
Leita