Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Ragnar S. Ingvarsson - safn 58
Magnús Margeirsson í kojunni sinni líklega um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 einhverntíma kringum 1970.
gunnar043
Löndun í gangi úr Húna HU 1 í Skagastrandarhöfn. Maðurinn í köflóttu skyrtunni er líklega Gylfi Sigurðsson en Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) er til vinstri á myndinni að hífa. Maðurinn á bryggjunni er óþekktur. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1960.
Óskar Kristinsson safn 071
Benóný Gunnarsson í brúnni á síðutogaranum Arnari Hu 1. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1969 - 1971.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 55
Góður afli er í trollinu hjá síðutogaranum Arnari Hu 1 þegar myndin var tekin einhverntíma kringum 1970. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 33
Ragnar S. Ingvarsson að borða gamaldags mat, sviðakjamma , á gamaldags máta eingöngu með vasahnífnum sínum.
gunnar064
Aftan á þessari mynd stendur: Jón Stef. Líklega er hér um að ræða Stefán Sveinsson (d.3.5.1949) bónda á Steinnýjarstöðum með fósturson sinn Jón Ólafsson (d.5.9.1993) sem lengi bjó á Ólafsvöllum/Náttbrún á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1480
Feðgarnir Guðni Már Lýðsson og Lýður Hallbertsson skoða ummerki í Auðbjörgu Hu 6 þegar byrjað var að brjóta hana niður í slippnum á Skagaströnd. Auðbjörgin var smíðuð á Akureyri 1960 og var þá fyrsti frambyggði báturinn sem smíðaður var á Íslandi. Hún var gerð út frá Skagaströnd á árunum 1977 til 1998 þegar henni var komið fyrir á hliðargarði í slippnum. Þar stóð hún þar til hún var svo brotin niður í september 2009. (Heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson)
Óþekktur ljósmyndari618
Hjónin á Jaðri, Kristín Pálsdóttir (d.26.2.1948) og Frímann Finnsson (d. 18.3.1937) kennari. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson safn 047
Sævar Rafn Hallgrímsson með hvolp um borð í einhverju skipa Skagstrendings hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 081
Ómar Jakobsson stendur við Mercury Comet bíl Óskars Þórs Kristinssonar utan við þáverandi heimili Óskars að Hólabraut 7. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið kringum 1970.
Óskar Kristinsson - safn187
Myndin var tekin á fisksölufundi 15. október 1992. Ekki er vitað hvar fundurinn fór fram né hver tók myndina. Fundurinn hefur líklega snúist um að selja/kaupa afurðir frá Skagstrendingi hf. Á henni eru, frá vinstri: Magnús Schram sölumaður, Ingólfur Sveinsson frá Skagstrendingi hf og fiskkaupandinn Denis Lumbard frá Bretlandi.
Óskar Kristinsson safn 034
Myndin var tekin á hótelherbergi í einhverri ferð starfsmanna Skagstrendings hf en ekki er vitað hvenær. Ómar Jakobsson er til vinstri og Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004) til hægri.
Óþekktur ljósmyndari524
Halldór Jónsson Guðmundsson (d.3.2.1981) bóndi í Hólma. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga
Óþekktur ljósmyndari637
Hjónin á Lækjarbakka, Jakob Pétur Stefánsson (d.29.6.1962) og Marta Guðmundsdóttir (d.31.5.1957). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson1099
Í júní 1996 fékk áhöfnin á Örvari Hu 21 afhentan gæðaskjöld Coldwater Seafood: Skjöldin fékk áhöfnin fyrir bestu framleiðslu og vöruvöndun um borð í frystitogara árið 1995. Á myndinni af áhöfninni eru, frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Níels Grímsson, Björn Gunnarsson, Gunnar Reynisson, Þráinn Bessi Gunnarsson, Guðmundur E. Guðmundsson, Ágúst Ómarsson, Jóhann Ásgeirsson, Björn Sigurðsson, Gunnar Þröstur Ásgeirsson, Hafþór Smári Gylfason, Grétar Smári Hallbjörnsson, Guðmundur Henry Stefánsson, Ólafur Ásgeirsson og Einar Haukur Arason.
Óþekktur ljósmyndari547
Hjónin á Sviðningi, Friðgeir Ágúst Eiríksson (d.17.5.1985) og Fanney Halldórsdóttir (d. 21.6.2005). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari651
Hjónin í Réttarholti, Anna Sigríður Sölvadóttir (d.19.10.1965) og Páll Pétursson (d.22.10.1963). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson safn122
Myndin var tekin um borð í Örvari Hu 21 þegar vélstjórinn, Björgvin Karlsson, er að rafsjóða í hlera. Ekki er vitað hvenær en myndina tók Vilhelm Þórarinsson. Maðurinn í rauðu peysunni er skipstjórinn, Guðjón Ebbi Sigtyggsson (d.16.7.2017). Brosmildi maðurinn með vettlingana í höndunum er Ásgeir Blöndal og Baksvipur Einars Guðmundssonar í brúnum jakka. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1036
Guðmundur Guðmundsson flytur ræðu kvöldsins á aðventukvöldi í Hólaneskirkju í desember 1997.
Ólafur Bernódusson 1031
Myndin var tekin í mars 1998 við vígslu íþróttahússins á Skagaströnd. Í ræðustólnum er Ingibergur Guðmundsson þáverandi skólastjóri Höfðaskóla sem var ötull baráttumaður fyrir byggingu hússins.
Óskar Kristinsson safn137
Stefán Ægir Lárusson við vinnu um borð í frystitogaranum Arnari Hu 1. Myndina tók Hjörtur Guðbjartsson en ekki er vitað hvenær.
gunnar019
Ekkert er vitað um þessa mynd þannig að ef þú þekkir mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd
Óskar Kristinsson - safn 261
Hjónin frá Skrapatungu, Finnur Guðmundsson (d.10.5.1971) og Ingibjörg Jónsdóttir (d.15.7.1970). Þau fluttu til Blönduóss þegar þau hættu búskap í Skrapatungu og létust þar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Gréta 025
Björn Magnússon (d.23.7.1921) Syðra Hóli.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 17
Þeir eru hressir ungu vinirnir á myndinni með gleði í flöskum. Frá vinstri: Ragnar Smári Ingvarsson, Heiðar Elvan Friðriksson og Gylfi Njáll Jóhannsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 20
Ekki er vitað um tilefni þess að þessir menn lyftu glasi né hvenær myndin var tekin. Á henni eru frá vinstri: Stefán Jósefsson, Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000), Eiður Hilmarsson og Kári Lárusson.
Óskar Kristinsson safn112
Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf skoðar einhvers konar fiskvinnslu- eða pökkunarvél, líklega í Grimsby í september 1992.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1517
Vilhelm Þórarinsson nær sér í einhverja bílaparta í bílakirkjugarðinn sem var í gömlu malarkrúsinni ofan við réttina á Skagaströnd. Þar fóru margar gersemirnar fyrir lítið. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn 243
Óskar Kristinsson leggur sig í sófanum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn 211
Sveinn S. Ingólfsson, framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, flytur ræðu á einhverjum fundi á Hótel Dagsbrún. Með honum á myndinni er Denis Lumbard fiskkaupmaður frá Bretlandi til hægri og óþekktur maður til vinstri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jónas 62
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru leikararnir Árni Björn Ingvarsson (baksvipur) og Magnús B. Jónsson í hlutverkum sínum.
Óskar Kristinsson safn 008
Magnús B. Jónsson stendur á ísuðum hvalbak síðutogarans Arnars Hu 1, líklega vorið 1969.
Óþekktur ljósmyndari543
Hjónin á Skeggjastöðum, Hjalti Árnason (d. 4.7.2010) og Anna Lilja Magnúsdóttir (d.18.8.2000). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari513
Sambýlisfólk á Brandaskarði, Vilhjálmur Benediktsson (d.21.10.1955) og Jensína Hallgrímsdóttir (d.6.2.1963). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari472
Sæmundur Gunnarsson verslunarstjóri færir Jóhönnu Sigurjónsdóttur jólapakka í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ljósmyndakeppni 2022 45
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Þórey Jónsdóttir og sendi inn í flokkinn "Gamalt".
Óþekktur ljósmyndari673
Kristján Björn Jónasson (d.19.1.1983) í Þórshamri. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ingibergur Guðmundsson 366
Myndin var tekin í maí 1988 á kennarastofunni í Höfðaskóla. Á henni eru kennararnir Ólafur Bernódusson og Vilborg Magnúsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari549
Hjónin á Syðra-Kálfshamri, Guðmundína MARGRÉT Guðmundsdóttir (d.11.10.1971) og Eðvald Júlíusson (d. 21.1.1937). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson - safn 216
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af Óskari Kristinssyni við fornbílinn sinn. Bíllinn, sem er Ford Thunderbird árgerð 1966 ?, flutti Óskar inn frá Bandaríkjunum.
Halldór Gunnar Ólafsson 012
Þröstur Árnason á kassabindivélinni um borð í Örvari Hu 21 einhverntíma á árunum 1992 eða 93. Hann tekur þátt í gríni félaga sinna og leyfir þeim að binda sig með kassaböndum. Vinstra megin er Brynjar Pétursson en Gestur Arnarsson er til hægri.
Óþekktur ljósmyndari613
Sambýlisfólkið í Höfðahólum, Axel Ásgeirsson (d.27.9.1965) og Sveinbjörg Ósk Björnsdóttir (d.12.7.2001). Bjuggu seinna á Litla Felli. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson safn097
Hafdís Þorvaldsdóttir og Ingvi Sveinn Eðvarðsson vinna við fiskpökkun um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Gréta 093
Sigurður Guðmundsson (d.2.12.1984) í Laufási að leika við hundinn sinn Snata á hlaðinu við Laufás. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari573
Hjónin á Bjargi, Ragnar Þorsteinsson (d.17.9.1999) og Jónína Sigurlaug Stefánsdóttir (d.15.12.2000). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn644
Páll Leó Jónsson var skólastjóri Höfðaskóla á árunum 1986 - 1991 er hann gerðist skólastjóri í grunnskólanaum á Blönduósi. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en það var að sjálfsögðu einhverntíma á ofangreindu tímabili.
Óþekktur ljósmyndari626
Sigurbjörn Kristjánsson (d.10.9.1989) á Kárastöðum (Bankastræti 5). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson - safn192
Sveinn S. Ingólfsson heilsar lítilli stúlku á Nýja Sjálandi að sið heimamanna með því að nudda saman nefjum. Myndin var tekin 25. febrúar 1992 þegar Sveinn var í landinu í viðakiptaerindum fyrir Skagstrending hf, þar sem hann var framkvæmdastjóri.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 158
Steindór R. Haraldsson í sminkun fyrir hlutverk sitt í leikritinu "Síldin kemur og síldin fer" sem Leikklúbbur Skagastrandar setti á svið vorið 1987. Það var Helga Hermannsdóttir sem sá um sminkunina á Steindóri.
Ingibergur Guðmundsson 445
Koddaslagur á sjómannadegi 1986. Maðurinn í hvítu skyrtunni er Ágúst Ómarsson en keppinautur hans er óþekktur eins og aðrir á myndinni.
Óþekktur ljósmyndari621
Myndin var tekin utan við Lund við Strandgötu. Á henni er sambýlisfólkið Ole Omundsen (d. 19.10.1975) og Margrét Jóhannesdóttir (d.25.1.1976) lengst til vinstri. Fyrir miðri mynd situr óþekkt systir Ole en lengst til hægri er Björg Berndsen (d.15.12.1963). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson - safn 259
Óskar Kristinsson með óþekktri vinkonu sinni í Thailandi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari616
Hjónin í Höfðahólum, Guðmundur Rafnsson (d.23.9.1968) og Sigurbjörg Sveinsdóttir (d.15.2.1959). Þau voru leigjendur í Höfðahólum og eignuðust fimm börn saman áður en þau skildu. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari490
Guðjón Einarsson (d.1915) bóndi á Neðri Harrastöðum. Myndin er úr bókinni Föðurtún eftir Pál Kolka.
Óskar Kristinsson - safn 219
Jóel Kristjánsson rekstrarstjóri Rækjuvinnslunnar býr sig undir að klippa á borða um nýtt stjórnborð vinnslunnar inni í verkstjóraherberginu. Jóel varð seinna síðasti framkvæmdastjóri Skagstrendings hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Kálfshamarsvík 1999
Mynd tekin í Kálfshamarsvík sumarið 1999. Yfirlitsmyndir og Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002) frá Ósi og Sveinn Sveinsson bóndi á Tjörn segja sögur af fólki sem bjó í Kálfshamarsvík. hljóð og mynd í góðu lagi: Lengd 30 mínútur. Myndataka: líklega Sigursteinn Guðmundsson.
Óskar Kristinsson safn 026
Arnar Hu1 að koma úr túr til hafnar á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var einhverntíma á áttunda áratugnum. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Ástmar Kári Ástmarsson, Ómar Jakobsson, Óskar Þór Kristinsson og Guðjón Guðjónsson. Mennirnir í brúargluggunum eru óþekktir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 30
Hér skála á sjómannadegi, fyrir góðri vertíð, Jón Stefánsson (d.3.8.1991) vinstra megin og Árni Björn Ingvarsson hægra megin. Saman áttu þeir, ásamt fleirum, Auðbjörgu hf. sem gerði út bátinn Auðbjörg HU 6. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1975.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1515
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni eru nokkrir sjómenn að prófa flot-björgunarbúninga í höfninni á Skagaströnd. Mennirnir eru, frá vinstri: Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018), Ragnar Högnason, Þorvaldur Skaftason og óþekktur.
Guðrún Guðmundsdóttir 066
Hér heilsast þeir með virktum Guðjón Jóhannesson (d.11.2.2010) frá Garði á Skagaströnd til vinstri og Guðmundur Guðjónsson (d.?) frá Garði á Hvammstanga. Myndin var tekin í kaffisamsæti á hótel Dagsbrún 1987 eða 1988 þegar eldri borgara frá Hvammstanga komu í heimsókn til jafnaldra sinna á Skagaströnd.
1
…
24
25
26
…
32
Leita í myndasafninu
Leita