Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Óskar Kristinsson - safn 261
Hjónin frá Skrapatungu, Finnur Guðmundsson (d.10.5.1971) og Ingibjörg Jónsdóttir (d.15.7.1970). Þau fluttu til Blönduóss þegar þau hættu búskap í Skrapatungu og létust þar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari616
Hjónin í Höfðahólum, Guðmundur Rafnsson (d.23.9.1968) og Sigurbjörg Sveinsdóttir (d.15.2.1959). Þau voru leigjendur í Höfðahólum og eignuðust fimm börn saman áður en þau skildu. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari490
Guðjón Einarsson (d.1915) bóndi á Neðri Harrastöðum. Myndin er úr bókinni Föðurtún eftir Pál Kolka.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1517
Vilhelm Þórarinsson nær sér í einhverja bílaparta í bílakirkjugarðinn sem var í gömlu malarkrúsinni ofan við réttina á Skagaströnd. Þar fóru margar gersemirnar fyrir lítið. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1092
Myndin var tekin á Hrafndal í júlí 1996 þegar þar stóðu yfir framkvæmdir við vatnsveitu Skagastrandar. Á henni eru menn að dæla vatni upp úr einni af borholunum sem þar voru boraðar áður en gengið er frá henni til frambúðar. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Einar Karlsson, Gunnar Hafdal ? og Sigurjón Ástmarsson.
Óþekktur ljósmyndari431
Unnið að vörutalningu í verslun Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Dökklæddi maðurinn er Björn Magnússon sem var stjórnarmaður í Kaupfélaginu en ritarinn er óþekktur. Ef þú þekkir hann/hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson - safn191
Myndin var tekin eftir viðskiptafund 25. febrúar 1992 á Nýja Sjálandi. Lengst til hægri er Ingólfur Sveinsson og næstur honum er Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf. Hinir mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Jónas 8
Magnús Bjarni Blöndal (d.7.9.2001) ríður út í fjörunni sunnan við Hólanesið. Myndin var líklega tekin einhverntíma upp úr 1980.
Óskar Kristinsson - safn 217
Það er misjafnt hverju fólk safnar. Óskar Kristinsson safnar mótorhjólum því hann á fimm aflmikil mótorhjól. Á myndinni er hann við eitt þeirra, sem er af Yamaha gerð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 24
Ómar Jakobsson tekur inn slóðann á einni rúllunni um borð í Auðbjörgu HU 6 á færaveiðum líklega kringum 1975.
Óskar Kristinsson safn 085
Myndin var tekin um borð í Stapafellinu SH 15 frá Ólafsvík á netaveiðum. Finnur Gærdbo dregur af spilinu en Árni Ólafur Sigurðsson greiðir úr við netaborðið. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari564
Hjónin í Ásholti, Baldvin Magnús Jóhannesson (d.1.1.1981) og Línbjörg Árnadóttir (d.16.10.1966). Magnús var lausamaður í Ásholti. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari558
Hjónin í Ásbergi, Fritz Hendrik Magnússon (d. 19.10.1965) og Karla Ingibjörg Helgadóttir (d. 23.9.1986) . Ásberg stóð á lóðinni sunnan við Breiðablik á Skagaströnd. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Fisk Seafood - safn 275
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er stjórn Skagstrendings hf og framkvæmdastjóri. Í aftri röð eru, frá vinstri: Þórður Magnússon, Egill Tryggvason, Gunnar Felixsson og Magnús B. Jónsson. Í fremri röð er Adolf H. Berndsen til vinstri og Jóel Kristjánsson framkvæmdastjóri félagsins til hægri.
Óþekktur ljósmyndari446
Ingvar Jónsson (d.18.1.2003), starfsmaður verslunar Kaupfélags Húnvetninga við Einbúastíg (gamla kaupfélagið), búinn að moka frá dyrum verslunarinnar. Niðri var verslað með grófvöru, verkfæri timbur og annað slíkt en á miðhæðinni var matvara og margt fleira. Myndin var líklega tekin á áttunda áratugnum.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 43
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 líklega kringum 1970. Maðurinn í miðið er Ómar Jakobsson og sá til hægri er Magnús Margeirsson en maðurinn til vinstri er óþekktur.
Óskar Kristinsson safn 090
Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 419
Myndin var tekin í Fellsborg 1987 eftir sveitakeppni í bridge á vegum Bridgeklúbbs Skagastrandar. Á henni er verðlaunasveit en hana skipuðu, frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Kristinn Guðmundsson, Vilhelm Jónsson og Sveinn Ingólfsson.
Óþekktur ljósmyndari565
Hjónin í Baldursheimi, Pálmi Sigurðsson (d.21.4.1992) og Hólmfríður Hjartarson (d.15.12.1991). Þau hjón bjuggu síðar lengi í Pálmalundi (Hólabraut 27). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Gréta 013
Á myndinni eru menn líklega að vinna við nýbyggingu á Bogabraut 5. Mennirnir eru talið niður stigann: Sigmar Hróbjartsson (d. 5.11.2014), sonur hans Gunnlaugur Sigmarsson, Þorbjörn Jónsson (d.2.9.1986) og Jón Kr. Jónsson (d.20.12.2017). Myndin var tekin einhverntíma á fyrri hluta sjöunda áratugarins.
Ljósmyndakeppni 2022 61
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Morten Wiborg og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja".
Óþekktur ljósmyndari649
Hjónin í Réttarholti, Jón Jónas Sölvason (d.17.8.1969) og Þorbjörg Halldórsdóttir (d.30.6.1970). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari500
Jakop Jósepsson (d.1907) bóndi á Árbakka. Myndin er úr bókinni Föðurtún eftir Pál Kolka.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 150
Það er greinilega fjör í uppvaskinu á myndinni. Frá vinstri: Jón Helgason (d.1.12.2019), Ragnar Smári Ingvarsson og Guðmundur Jónsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari579
Hjónin í Brúarlandi, Guðmundur Ragnar Árni Magnússon (d. 14.1.2000) og Steinunn Áslaug Jónsdóttir (d.1.2.1975). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari562
Hjónin í Ásgarði, Árni Hallgrímsson (d.4.5.1954) og Halla Guðlaugsdóttir (d.6.6.1924). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1502
Þorvaldur Skaftason við vinnu að byggja Stjórnsýsluhúsið á Skagaströnd. Húsið var tekið í notkun 1986 og hýsti þá skrifstofur Skagstrendings hf og Hólaness hf á efstu hæðinni. Á miðhæðinni var Hótel Dagsbrún og á jarðhæðinni skrifstofa sveitarfélagsins og útibú Búnaðarbanka Íslands.
Óþekktur ljósmyndari454
Hjónin Jón Jónsson (d.9.7.1991) og María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) voru bæði verslunarstjórar í verslun Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd einhverntíma á starfsævinni. Myndin var tekin í hófi í Hótel Dagsbrún þegar María lét af störfum við verslunina enJón var hættur nokkrum árum fyrr. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jónas 6
Sveinn Garðarsson (d.17.2.2019).
Óþekktur ljósmyndari560
Hjónin í Ásgarði, Björn Þorleifsson (d.26.5.1956) og Vilhelmína Andrésdóttir (d.24.8.1977). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari576
Hjónin í Brimnesi, Björn Árnason (d.24.8.1938) og Guðrún Sigurðardóttir (d.9.1.1964). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Gréta 025
Björn Magnússon (d.23.7.1921) Syðra Hóli.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 17
Þeir eru hressir ungu vinirnir á myndinni með gleði í flöskum. Frá vinstri: Ragnar Smári Ingvarsson, Heiðar Elvan Friðriksson og Gylfi Njáll Jóhannsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari621
Myndin var tekin utan við Lund við Strandgötu. Á henni er sambýlisfólkið Ole Omundsen (d. 19.10.1975) og Margrét Jóhannesdóttir (d.25.1.1976) lengst til vinstri. Fyrir miðri mynd situr óþekkt systir Ole en lengst til hægri er Björg Berndsen (d.15.12.1963). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson safn 026
Arnar Hu1 að koma úr túr til hafnar á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var einhverntíma á áttunda áratugnum. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Ástmar Kári Ástmarsson, Ómar Jakobsson, Óskar Þór Kristinsson og Guðjón Guðjónsson. Mennirnir í brúargluggunum eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 1029
Myndin var tekin í mars 1998 þegar íþróttahúsið á Skagaströnd var vígt. Á þessari mynd er Magnús B. Jónsson, þáverandi sveitarstjóri, í ræðustól.
Óþekktur ljósmyndari493
Evald Jakob Hemmert (d.15.7.1943) verslunarmaður á Skagaströnd og Blönduósi. Myndin er úr bókinni Föðurtún eftir Pál Kolka.
Óskar Kristinsson - safn 231
Óvenju stórt hal komið inn á dekkið á Örvari Hu 21. Annað sem er óvenjuleg á myndinni er hve stutt er yfir í Hoffellið SU 80. Ekki er vitað hvers vegna svo er og ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Óskar Kristinsson - safn174
Árni Ólafur Sigurðsson stýrimaður og skipstjóri út á brúarvæng á einum af togurum Skagstrendings hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hver gerði það.
Óskar Kristinsson safn 146
Myndina tók Ómar Jakobsson um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1 (Japans Arnari) en ekki er vitað hvenær. Hárprúðu mennirnir til vinstri og hægri eru óþekktir en á milli þeirra er Sigurður Sigurðsson (Mansi).
Höfðaskóli - safn409
Myndin sýnir Svein S. Ingólfsson, Ragnheiði Söndru Ómarsdóttur og Kolbrúnu ?? klædd á japanska vísu í heimsókn í Höfðaskóla. Myndin var líklega tekin kringum 1990. Ef þú veist hvers dóttir Kolbrún er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 367
Kristján Guðmundsson (d.16.4.1979), bóndi í Háagerði, við heyskap á túninu við bæinn með tvo hesta beitta fyrir. Kristján er búinn að raka heyinu saman í garða og er að láta hestana draga fjöl, sem hann stendur á, til að safna heyinu saman í sátu. Myndin var líklega tekin sumarið 1965.
Höfðaskóli - safn544
Ingibergur Guðmundsson kennari við Höfðaskóla og síðar skólastjóri þar árin 1991 - 2005.
Höfðaskóli - safn608
Kristján Helgi Gunnarsson verktaki við vinnu á höfninni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari476
Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) prúðbúinn á Hótel Dagsbrún. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari667
Fjölskyldan í Viðvík. Sitjandi eru hjónin, Gísli Einarsson (d.27.10.1969) og Guðný Þorvaldsdóttir (d.5.10.1953). Milli þeirra stendur sonur þeirra, Snorri Gíslason (d. 29.5.1994). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1491
Guðmundur J. Björnsson baslar við að taka bát sinn, Benna Ólafs Hu, í land í hríðarhraglanda. Á myndinni er Benni kominn upp í vagninn sem sér grilla í við stefnið. Vagninn með bátnum dró Guðmundur svo upp með gröfunni sinni.
Óskar Kristinsson - safn 252
Systurnar Rakel Petrea Finnsdóttir til vinstri og Guðný Kristín Finnsdóttir til hægri með föðrubróður sínum, Óskari Kristinssyni, í garðveislu við Hólabraut 4. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1985.
Ólafur Bernódusson1052
Myndin var tekin sumarið 1997 þegar bygging íþróttahússins var í fullum gangi. verið er að reisa hluta af límtrés bitunum sem mynda útveggi og þak hússins. Mennirnir á myndinni eru líklega, frá vinstri: Baldvin Hjaltason, Sigurður Björnsson standandi og Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) sitjandi.
Óskar Kristinsson safn126
Mynd tekin um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1. Á henni er gott karfahal á dekkinu en karlarnir eru að skera upp hákarl til að hleypa lifrinni og öðrum innyflum aftur í sjóinn. Fiskurinn sjálfur er síðan geymdur út í síðunni stjórnborðsmegin þ.e. vinstra megin á myndinni, þar sem einn er kominn í geymslu. Áður var þessu öfugt farið þegar lifrin var ákaflega verðmæt en oftar en ekki var fiskunum sjálfum hent í sjóinn aftur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og karlarnir á henni eru óþekktir. Ljósmyndarinn var Vilhelm Þórarinsson.
Óþekktur ljósmyndari507
Hjónin á Bakka á Skaga, Páll Tómasson (d.3.6.1963) og María Ólafsdóttir (d.4.7.1975). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari439
Ingvar Jónsson (d.18.1.2003) frá Sólheimum var starfsmaður Kaupfélags Húnvetninga í versluninni við Einbúastíg á Skagaströnd um árabil. Á myndinni hefur hann tyllt sér niður inni á kaffistofunni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jónas 23
Magnús B. Böndal (d.7.9.2001) með tvo til reiðar. Magnús hafði unun af hestum og átti oft góða hesta. Myndin var líklega tekin einhverntíma kringum 1980.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1478
Skafti Fanndal Jónasson (d.2.9.2006) á spjalli við óþekkta konu í sólskini utan við Bjarmanes. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn 237
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Á henni fylgist Hjörtur Guðbjartsson með Óskari Kristinssyni sem er að leysa frá pokanum á trollinu. Maðurinn sem snýr baki í myndavélina er óþekktur.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 069
Myndin var tekin 19. desember 1992 í eldhúsinu á Bogabraut 27. Á henni eru feðgarnir Halldór Gunnar Ólafsson og Ólafur Bernódusson að vaska upp að afloknum steikingum á laufabrauði til jólanna.
Óþekktur ljósmyndari554
Hjónin á Hofi (áður í Víkum), Hilmar Árnason (d.16.3.1988) og Sólveig Aðalheiður Magnúsdóttir (d.4.4.1996). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson safn111
Myndin var tekin 3. september 1992 þegar verið var að steypa grunnplötu fjölbýlishússins við Túnbraut 11 á vegum Skagstrendings hf. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Jónas Þorvaldsson, Björn Sigurðsson (nær), óþekktur (fjær), óþekktur, Baldur Haraldsson og tveir óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari624
Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) stendur hjá óþekktri konu framan við Karlsskála. Í dökka húsinu vinstra megin var lengi rekin "sjoppa" með olíu- og bensínsölu og tilheyrandi sælgæti og tóbaki. Hvíta húsið til hægri er Jaðar. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Guðrún Guðmundsdóttir 063
Myndin var tekin þegar eldri borgara frá Hvammstanga heimsóttu jafnaldra sína á Skagaströnd 1987 eða 1988. Á henni eru Vilhelm Guðbjartsson bílstjóri Hvammstangahópsins til vinstri og Guðmundur Kr. Guðnason (d.21.11.1988) til hægri í kaffisamsæti á Hótel Dagsbrún.
1
…
25
26
27
…
32
Leita í myndasafninu
Leita