Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Óskar Kristinsson - safn 252
Systurnar Rakel Petrea Finnsdóttir til vinstri og Guðný Kristín Finnsdóttir til hægri með föðrubróður sínum, Óskari Kristinssyni, í garðveislu við Hólabraut 4. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1985.
Óskar Kristinsson safn 031
Starfsmenn Skagstrendings hf á einhverju ferðalagi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Vangasvipurinn er af Ómari Jakobssyni en maðurinn sem er að tala við hann er Birgir Þórbjarnarson.
Óþekktur ljósmyndari511
Sambýlisfólkið á Blómsturvöllum í Kálfshamarsvík, Páll Benediktsson (d.6.12.1956) og Kristín Bjarnadóttir (d.30.9.1960). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 031
Þessa mynd tók Guðmundur J. Björnsson um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 vorið 1969. Sjómennirnir sem eru að slægja eru, frá vinstri: Árni Petersen ("Spritti"), óþekktur, Ómar Jakobsson og Magnús B. Jónsson.
Óskar Kristinsson safn 053
Rúnar Loftsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn527
William Sillar var húsvörður í Höfðaskóla rétt fyrir 1990. Á myndinni, sem ekki er vitað hvenær var tekin, er hann við vinnu sína að lagfæra skólastóla.
Ingibergur Guðmundsson 423
Á myndinni, sem er tekin vorið 1987, eru menn að moka upp vírinn í toglyftunni á skíðasvæðinu í Spákonufellinu. Vírinn fennti stundum á kaf og þá var ekki um annað að ræða en að moka hann upp með handafli til að hægt væri að fara á skíði. Oft var þetta mikið verk og þreytandi en skíðadeildarmenn töldu það ekki eftir sér til að geta stundað þetta áhugamál sitt. Mennirnir á myndinni eru: Magnús B. Jónsson til vinstri og Steindór R. Haraldsson til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 440
"Ber er hver að baki nema sér bróður eigi" stendur einhversstaðar. Á myndinni ber Hjörtur Guðmundsson bróður sinn Kristinn Guðmundsson yfir á í Hornstrandaferð um verslunarmannahelgina 1986.
Höfðaskóli - safn531
Kennararnir Ólafur Bernódusson til vinstri og Ingibergur Guðmundsson til hægri við vinnu á kennarastofu Höfðaskóla. Ef marka má dagatalið á veggnum var myndin tekin 1986.
Óþekktur ljósmyndari600
Hjónin í Grafarholti, Stefán Jónsson (d.4.5.1931) og Kristjana Júlíusdóttir (d.1.2.1975). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ingibergur Guðmundsson 343
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin á höfninni en líklega var það kringum 1990. Á henni er Þorlákur Sigurður Sveinsson undir stýri á lyftaranum en Jónas Jónasson (d.24.5.2021) er að segja honum til.
Óskar Kristinsson - safn182
Jóel Kristjánsson, þá rekstarstjóri Rækjuvinnslunnar hf, við stjórnborðið í verkstjórakompunni. Jóel varð síðar framkvæmdastjóri Skagstrendings hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og ljósmyndarinn er óþekktur.
gunnar035
Síld landað úr Húna Hu 1 á Skagaströnd, líklega kringum 1960. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: tveir óþekktir, Björn Haraldsson (d.21.9.1988), ?Sigmar Jóhannesson? (d.20.4.2000) (nær), Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) (fjær) og líklega Gunnar Sveinsson (d. 3.11.2020) lengst til hægri.
Óþekktur ljósmyndari647
Sambýlisfólkið á Óseyri, Bjarni Jóhann Jóhansson (d. 12.9.1971) og Rósa Pálsdóttir (d.1.5.2002). Bjuggu síðar á Bjargi. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
2001056
Gunnar Þór Gunnarsson á sínum stað sem kokkur í eldhúsinu á Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ljósmyndakeppni 2022 72
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Ragnheiður Erla Stefánsdóttir og sendi inn í flokkinn "Heimili".
Árni Geir Ingvarsson - safn 1477
Halldór Árni Sveinsson var um tíma í Nes listamiðstöðinni. Þar hélt hann námskeið fyrir áhugasama í listmálun enda vanur kennari og snjall myndlistarmaður. Þá var Halldór einnig töluvert á ferðinni með kvikmyndatökuvél og filmaði í gríð og erg. Eitt sem hann gerði til gamans var að hann tók við áskorunum um að mála mynd á einum klukkutíma. Þannig skapaði hann hvert listaverkið á fætur öðru. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Guðmundsdóttir 026
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Austurland 25. - 28. júní 1991. Í ferðinni gisti hópurinn á Hótel Edda á Hallormsstað. Á þessari mynd er Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) frá Vík á Skagaströnd. Bjartur var mikill grallari og á myndinni er hann með gjöf frá ferðafélögum sínum. Gjöfin samastóð af hálfri flösku af mjólk og trúðagleraugum með áföstu nefi og skeggi. Allt vakti þetta mikla kæti hjá ferðalöngunum og ekki síst þegar Bjartur setti upp gleraugun alvanur að skemmta fólki.
2001052
Risa- karfahol um borð í Arnari HU 1. Á myndinni er verið að reyna að koma karfanum niður í móttökuna. Þar var hann svo tekinn og handteraður og frystur. Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri er kominn á skyrtunni niður á dekk til að fylgjast með. Hinir mennirnir eru líklega Óskar Þór Kristinsson til vinstri og Ingvar Þór Jónsson til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 363
Skráningavinna á kennarastofunni í Höfðaskóla í maí 1988. Ólafur Bernódusson kennari til vinstri og Ingibergur Guðmundsson aðstoðarskólastjóri til hægri.
Óskar Kristinsson - safn197
Magnús B. Jónsson um borð í togaranum Skálafjall FD 373 frá bænum Skála í Færeyjum. Þar var Magnús kominn ásamt fleiri mönnum á vegum Skagstrendings hf til að skoða togarann með hugsanleg kaup í huga. Til hægri er Finnur Kristinsson með rautt bindi og Adolf H. Berndsen í grænum mittisjakka. Aðrir eru óþekktir. Myndin var tekin 29. ágúst 1990.
Óþekktur ljósmyndari625
Hjónin á Karlsskála, Ernst Georg Berndsen (d.21.8.1983) og Guðrún Laufey Helgadóttir (d.15.4.1987). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn547
Hallbjörn J. Hjartarson skemmtir, ásamt hljómsveit, utan við Kántrýbæ á fyrstu Kántrýhátíðinni 1995. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn643
Jón Sveinn Pálsson var skólastjóri Höfðaskóla á árunum 1966 - 1986. Á myndinni er hann klár fyrir útivist með nemendum.
Ólafur Bernódusson063
Myndin var tekin um jólin 1989 þegar fram fór körfuboltamót í íþróttasalnum á Húnvöllum. Myndin var tekin í leik Hvatar á Blönduósi og Fram á Skagaströnd. Fannar Viggósson í Fram hefur skotið á körfuna en óþekktir leikmenn Hvatar bíða eftir hugsanlegu frákasti.
Guðrún Guðmundsdóttir 10
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Norðurland 12. - 15. júní 1990. Í ferðinni gisti hópurinn á Húsavík. Á þessari mynd eru, frá vinstri: Frímann Hilmarsson (d.3.12.2009) Breiðavaði bílstjóri hópsins, Ingvar Jónsson (d.18.1.2003) Sólheimurm og Ottó Valur Finnsson (d.10.11.1998) Blönduósi.
Óþekktur ljósmyndari514
Hjónin á Efri-Harrastöðum, Gunnlaugur Björnsson (d.8.5.1978) og Ósk Þorleifsdóttir (d. 14.7.1967). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Gréta 038
Mennirnir á stillansinum eru, frá vinstri: Jón Kr. Jónsson (d.20.12.2017), Sigmar Hróbjartsson (d.5.11.2014) Þorbjörn Jónsson (d.2.9.1986) og Gunnlaugur Sigmarsson. Ekki er ljóst hvaða hús þeir eru að vinna við en líklega var það Bogabraut 3 eða 5. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1963.
Fisk Seafood - safn 267
Myndin var tekin 7. apríl 1982 í veislu í Fellsborg til að fagna því að frystitogarinn Örvar HU 21 hafði komið í fyrsta sinn til heimahafnar á Skagaströnd þann dag. Mennirnir á myndinni eru Pálmi Jónsson (d.9.10.2017) alþingismaður og ráðherra frá Akri til vinstri og Karl Þórólfur Berndsen (d.12.2.1995) stjórnarformaður Skagstrendings hf sem var eigandi togarans.
Óskar Kristinsson - safn 257
Óskar Þór Kristinsson ferðbúinn á Akureyri á einu af mótorhjólunum sínum. Myndin var tekin 23. júlí 2000.
Skagaströnd -safn533
Skafti Fanndal Jónasson (d.2.9.2006) í fullum "sjóara"- skrúða. Stakkur og sjóhattur voru mikil þarfaþing þangað til sjógallar = buxur og jakki, komu til sögunnar. Til fóta var nauðsynlegt að vera í bússum = klofháum stígvélum, undir stakknum. Skafti kom víða við á æfinni vann verkamannastörf og var trillusjómaður, jafnlyndur og vinsæll maður sem þótti vænt um pípuna sína. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af Skafta en á henni er hann staddur á gömlu smábátabryggjunni.
Óþekktur ljósmyndari521
Hjónin frá Hofi, Páll Jónsson (d.19.7.1979) og Sigríður Guðnadóttir (d.4.3.1964). Bjuggu lengi í Breiðabliki á Skagaströnd en Páll starfaði sem skólastjóri við Höfðaskóla í áratugi. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 038
Mennirnir tveir eru að vinna í skurði nálægt sundlauginni. Eins og sjá má er mikið af köplum og lögnum sem þvera skurðinn og því þurfa þeir félagar að vera ofan í skurðinum til að moka frá svo grafan geti tekið við að moka þegar lagnirnar eru fundnar. Maðurinn til vinstri er Sveinn Kristjánsson en hægra megin er Karl Guðmundsson (d.11.12.2011). Myndina tók Guðmundur J. Björnsson gröfumaður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 020
Myndin var tekin í Bergen í Noregi 1992 þegar stjórn Skagstrendings hf og yfirmenn á Arnari Hu 1 voru þar að skoða teikningar af nýjum frystitogara, sem þar var byggður fyrir félagið. Á myndinni er Magnús Sigurðsson útgerðarstjóri Skagstrendings hf á þessum tíma.
Óþekktur ljósmyndari469
Hjónin Gunnlaugur Sigmarsson og Steinunn Friðriksdóttir á litlu jólum í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Steinunn var starfsstúlka þar í áraraðir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1490
Bjarmanes var byggt 1912 en endurbyggt 2004. Það var vígt þá um sumarið og þá var þessi mynd tekin á stéttinni framan við húsið. Á henni spjalla saman: Jónmundur Ólafsson (d.19.4.2017) til vinstri og Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) til hægri.
Höfðaskóli - safn529
Magnús B. Jónsson fer yfir nemendaverkefni í Höfðaskóla á áttunda áratugnum þar sem hann kenndi í nokkur ár. Í baksýn er Ólafur Bernódusson að undirbúa náttúrufræðikennslu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1493
Slakað á á bekk framan við Vélaverkstæði Skagastrandar í sólskininu. Mennirnir eru, frá vinstri: Hjörtur Guðbjartsson, Gylfi Sigurðsson, Jón Ólafur Sigurjónsson og Sigurjón Ingólfsson faðir hans. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari674
Hjónin í Þórsmörk, Guðrún Oddný Guðjónsdóttir (d.22.4.1951) og Jóhannes Jóhannesson (d.17.7.1937). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson safn 044
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin né hvar en á henni eru skipsfélagarnir: Karl Rósinbergsson (d. 29.3.2004) sitjandi til vinstri, Finnur Kristinsson standandi og Ómar Jaokobsson til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 340
Magnús B. Jónsson fer yfir nemendaverkefni í Höfðaskóla en þar kenndi Magnús í nokkur ár á áttunda áratugnum.
Óþekktur ljósmyndari630
Hjónin í Laufási, Sigurður Guðmundsson (d.2.12.1984) og Jónína Margrét Björnsdóttir (d.11.9.1993). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari615
Hjónin í Höfðahólum, Sigríður Fanný Ásgeirsdóttir (d.11.12.2006) og Jóhann Frímann Pétursson (d.13.1.1999). Þau bjuggu seinna lengi á Lækjarbakka við Strandgötu. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 056
Myndin var tekin í jólaboði heima hjá Guðmundi J. Björnsyni, sem er lengst til hægri á myndinni. Við hlið hans situr Björn Sigurðsson (d.5.10.1999), faðir hans og lengst til vinstri er Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996), tengdafaðir Guðmundar. Myndin var líklega tekin 1991.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 185
Líklega var þessi mynd tekin 1986 eða 1987. Á henni er Ægir Thorberg Jónsson vinstra megin og Karitas Laufey Ólafsdóttir (d.15.10.2019) til hægri. Tilefni myndatökunnar er ekki þekkt.
Guðrún Guðmundsdóttir 096
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) rifjar upp skólaminningar sínar úr Reykjanesskóla við Ísafjarðardjúp á kvöldvöku þar á öldrunarmóti 16.- 20. ágúst 1988. Mótið sótti hópur eldri borgara úr Húnavatnssýslu.
Fisk Seafood - safn 266
Björn Pálsson (d.11.4.1996) frá Ytri Löngumýri. Björn var kaupfélagsstjóri á Skagaströnd, útgerðarmaður og seinna alþingismaður fyrir Framsóknarflokkinn en líka bóndi á Ytri Löngumýri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það í apríl 1982.
2001082
Á þessari mynd er verið að vinna við vatnsveituna í Hrafndal. Á henni eru, frá vinstri: Sigurjón Ástmarsson bílstjóri, Rolf Árnason Buggingafræðingur, Páll Jóhannesson bæjarstarfsmaður og Karl Guðmundsson bæjarstarfsmaður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það á tíunda áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1501
Ekki er vitað hverju þeir eru að fylgjast með, Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) til vinstri og Jónmundur Ólafsson (d.19.4.2017) til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Gréta 027
Á myndinni eru frændurnir Ólafur Björnsson (d.10.10.1972) frá Syðra Hóli til vinstri og Ögmundur Magnússon (d.9.3.1968) söðlasmiður á Sauðárkróki til hægri.
Ólafur Bernódusson1088
Þetta gamla anker, sem Vilhjálmur Skaftason þáverandi hafnarvörður stendur við, var dregið upp á legunni framan við höfnina í júlí 1996. Ekki er vitað hvaða skipi það tilheyrði en ekki var óalgengt að skip töpuðu ankerum á legunni í gamla daga og slitnuðu upp. Þess vegna hafði staðurinn orð á sér fyrir að vera erfið lega vegna veðra og strauma. Ankerið má enn skoða þar sem því var komið fyrir nærri hafnarviktinni.
Óþekktur ljósmyndari635
Sambýlisfólkið á Litla-Felli, Guðmundur Júlíusson (d.1.1.1961) og Elísabet Kristjánsdóttir (d.6.3.1991). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1487
Árni Guðbjartssson (d.20.2.2018) til vinstri og Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson til hægri um borð í Hafrúnu Hu 12. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1505
Þorvaldur Skaftason til vinstri og Fritz Hendrik Berndsen vinna við byggingu Stjórnsýsluhússins. Það var tekið í notkun 1986 svo myndin var líklega tekiin 1985 eða 86.
Óþekktur ljósmyndari586
Hjónin í Dvergasteini með syni sína. Matthildur Jóhannsdóttir (d.12.2.1953) og Björn Benediktsson Fossdal (d.23.10.1969). Synirnir eru: Snorri Sverrir Fossdal (d.7.10.1997) til vinstri og Auðunn Hafsteinn Fossdal (d.23.2.1962) til hægri. Dvergasteinn var lágreist hús sem stóð við Bankastræti rétt vestan við Skálholt (við Skagaveg). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson - safn 246
Óli Einar Albertsson. Óli er gjarnan kenndur við Kelduland þar sem hann var bóndi í áratugi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn537
Myndin er frá 1946-47. Á henni eru menn að leggja rafstreng í síldarverksmiðjuna sem þá var í byggingu. Strengurinn var viðkvæmur og því dreginn út af mönnunum á myndinni sem röðuðu sér á strenginn svo hann drægist ekki í jörðina og skaddaðist. Keflið er uppi á brekkunni neðan við Kaupfélagshúsið (Verslunarstjórahúsið). Einbúinn og hluti verksmiðjubygginganna eru til hægri. Mennirnir eru óþekktir, flestir starfsmenn vélsmiðjunnar Héðins hf sem sá um allan vélbúnað verksmiðjunnar. Myndin er úr bókinn: "Héðinn í 100 ár svipmyndir 1922 til 2022", en ljósmyndarinn er óþekktur.
Óþekktur ljósmyndari570
Hjónin á Bjargi, Davíð Guðmundsson (d.25.2.1955) og Þórdís Hansdóttir (d.13.2.1956). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1468
Bræðurnir Sigurjón Guðbjartsson til vinstri og Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) til hægri ráku saman útgerðina Vík ehf í áratugi. Á þessari mynd eru þeir um borð í Öldu HU 112 sem þeir létu smíða fyrir sig í Hafnarfirði 2003. Alda var einn af fjölmörgum bátum sem þeir bræður áttu og gerðu út gegnum tíðina.
Skagastrond 2000
Skagaströnd árið 2000. Mikið frá höfninni og m.a. farið á skak með bræðrunum Árna og Sigurjóni Guðbjartssonum frá Vík. Hljóð og mynd í góðu lagi, tími 43 mínútur. Myndataka: Sigursteinn Guðmundsson
1
…
26
27
28
…
32
Leita í myndasafninu
Leita