Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Ingibergur Guðmundsson 441
Hjörtur Guðmundsson hvílir lúin bein í sæluhúsi einhversstaðar á Hornströndum. Vinahópur frá Skagaströnd fór í gönguferð um Hornstrandir um verslunarmannahelgina 1986 og Hjörtur var einn af hópnum, útitekinn og þreytulegur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1508
Eiríkur Lýðsson hífir upp grásleppuhrogn í tunnum úr Dagrúnu St 12. Á kerrunni tekur bróðir hans, Guðni Már Lýðsson, á móti tunnunum. Síðan fluttu þeir bræður tunnurnar í verkunaraðstöðu sína þar sem hrognin voru sigtuð og söltuð til útflutnings.
Ingibergur Guðmundsson 392
Guðmann Einar Magnússon (d.22.11.2000) bóndi á Vindhæli. Myndin var tekin haustið 1988 í Hallárdalnum sem Manni þekkti betur en flestir aðrir.
Óþekktur ljósmyndari487
Árni Sigurðsson (d.1881) bóndi á Höfnum. Árni var stórbóndi og mikill framkvæmdamaður. myndin er úr bókinni Föðurtún eftir Pál Kolka.
Ólafur Bernódusson 1027
Myndin er frá niðurrifi brunarústa Kántrýbæjar í apríl 1998. Syðri hluti hússins brann illa en norður hlutinn slapp. Hörður Ragnarsson stendur og horfir til vinstri en aðrir á myndinni eru óþekktir. Vörubíllinn, H 34, tilheyrði Gunnari Helgasyni (d.19.10.2007) og líklega er hann að stjórna krananum á myndinni.
Ingibergur Guðmundsson 537
Maðurinn á myndinni er hinn vinsæli íþróttakennari í Höfðaskóla Milan Djurica. Hjá honum eru Vignir Örn Hafþórsson í hvítum bol og Guðjón Hall Sigubjörnsson í blárri peysu. Myndin var tekin í Fellsborg líklega kringum 2002.
Ingibergur Guðmundsson 373
Myndin var líklega tekin 1988. Á henni er Víðir Ólafsson með verðlaunabikar sem hann hlaut á íþróttamóti hjá USAH.
Gréta 055
Aftan á þessari mynd stendur:"Kiddi og Mundi 1973". Ekki er vitað hver Kiddi er en Mundi = Guðmundur Kr. Guðnason (d.21.11.1988) er til hægri. Ef þú veist nánari deili á Kidda vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1093
Einar Karlsson pípari og Sigurjón Ástmarsson vörubílstjóri dæla köldu vatni upp úr einni af borholunum sem boraðar voru á Hrafndalnum í júlí 1996. Þaðan er svo vatnið leitt í stóran miðlunartank sem sér íbúum bæjarins fyrir hreinu og góðu vatni.
Guðrún Guðmundsdóttir 076
Myndin var tekin í desember 1987 á sýningu á munum eldri borgara í Höfðaskóla. Karlarnir á henni eru Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) fá Vík til vinstri og Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) úr Stórholti til hægri. Báðir voru þeir áhugaleikarar og skemmtu fólki oft með list sinni.
Óþekktur ljósmyndari623
Hjónin á Karlsskála, Ernst Carl Frederik Berndsen (d.15.12.1954) og Steinunn Þórdís Siemsen Þorsteinsdóttir Berndsen (d.29.10.1953). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1506
Kristján Helgi Gunnarsson smiður og verktaki á vinnustað. Ekki er vitað hvar né hvenær og maðurinn í bakgrunninum er óþekktur.
Inga Stefánsdóttir 4
Ekki er vitað hvar né hvenær þessi mynd var tekin af félögunum þremur. Þeir eru frá vinstri: Óskar Frímannsson (d.7.2.1950), Kjartan Jóhannsson og Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018).
Jónas 7
Maðurinn á myndinni er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson - safn 239
Trollið tekið. Karlarnir á myndinni eru óþekktir. Þeir eru að passa að höfuðlínan sé klár þ.e. lendi ekki undir keðjunni sem er fest í bobbingana. Bobbingar eru stórar járnkúlur við neðri kantinn á opinu á trollinu. Þeir skrönglast svo eftir botninum þegar veitt er með því. Kúlulínan - höfuðlínan - er aftur á móti efst í opinu á trollinu og heldur því opnu í sjónum með floti sínu. Það er því mikilvæg að bobbingalínan og höfuðlínan flækist ekki saman því þá er trollið lokað í sjónum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 570
Myndin var tekin á sjómannadegi en ekki er vitað hvenær. Á henni er sigursveit í kappróðri fullorðinna karla að taka á móti sigurlaunum sínum. Frá vinstri: Ragnar Smári Ingvarsson stýrimaður sveitarinnar, Víðir Ólafsson, Jón Gunnar Jósefsson, Ragnar Haukur Högnason, Gunnar Þór Gunnarsson, Hafsteinn Pálsson og Hjalti Sævar Hjaltason. Kynnir dagsins, Magnús B. Jónsson, er í ræðupúltinu tilbúinn að afhenda bikarinn.
Ingibergur Guðmundsson 345
Óhapp varð í dráttarbrautinni haustið 1989 þegar búkki undir síðunni á Arnarborginni Hu 11 gaf sig þegar verið var að sjósetja bátinn. Nokkur sjór komst í bátinn við óhappið og á myndinni er verið að dæla úr lestinni. Enginn slasaðist við óhappið og vel gekk að koma bátnum á flot aftur - á réttum kili. Arnarborgin endaði svo ævi sína á áramótabrennu á Skagaströnd 1993. Maðurinn í gulu jullunni er Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) skipasmiður en aðrir í myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 483
Mynd tekin í kennarastofu Höfðaskóla í maí 1985. Kennararnir á myndinni eru Guðmundur Haukur Sigurðsson til vinstri og Magnús B. Jónsson til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 409
Myndin var tekin sumarið 1987 af hluta hóps Skagstrendinga í gönguferð um Hornstrandir. Á myndinni er hópurinn í nestisstoppi líklega efst á Skálakambi við Hlöðuvík. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Hjörtur Guðmundsson, Hafsteinn Pálsson og Kristinn Guðmundsson.
Ólafur Bernódusson1085
Myndin var tekin í ágúst 1996 á hafnarsvæðinu á Skagaströnd. Á henni eru slysavarnamenn úr Káraborg á Hvammstanga að æfa sig í meðferð fluglínutækja. Verið er að gera tildráttarlínuna klára og til vinstri eru menn að festa "stólinn" við línuna. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari540
Sambýlisfólkið á Ósi í Nesjum, Jóhann Jósefsson (d.29.4.1980) og Rebekka Guðmundsdóttir (d.30.9.1959). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
2001025
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega var það á sjöunda áratugnum. Á henni er Gylfi Sigurðsson á dekkinu með lúðu í hendinni. Í brúarglugganum brosir Þórhallur Árnason skipstjóri. Báturinn var líklega Aðalbjörg HU 7
Ingibergur Guðmundsson 477
Myndin var tekin á stofnfundi Norræna félags deildar á Skagaströnd í október 1985 í Fellsborg. Á henni eru séra Árni Sigurðsson (d.26.10.2020) sókarprestur á Blönduósi, fulltrúi Norræna félagsins, til vinstri og Sigfús Jónsson þáverandi sveitarstjóri á Skagaströnd til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 362
Tveir efstu í karlaflokki á fyrsta golfmóti Golfklúbbs Skagastrandar á Hágerðisvelli í september 1985. Magnús B. Blöndal (d.7.9.2001) í efstu tröppu og Jón Ingi Ingvarsson í annarri. Ólafur Bernódusson mótsstjóri afhendir verðlaunin.
Óskar Kristinsson safn 063
Maðurinn uppi í mastri síðutogarans Arnars Hu 1 er óþekktur. Myndin var líklega tekin 1969 á hafísvori og maðurinn var þarna til að leiðbeina skipstjóranum um vakir í ísnum á leið á eða af miðunum.
Ingibergur Guðmundsson 587
Hjörtur Guðbjartsson snyrtir limgerðið við heimili sitt að Bogabraut 11. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn539
Myndin var tekin 1946-47 þegar síldarverksmiðjan var í byggingu. Á myndinni eru óþekktir starfsmenn vélsmiðjunnar Héðins hf, sem sáu um allan vélbúnað í verksmiðjunni. Hér eru þeir að bregða á leik í brekkunni hjá Einbúanum, sem er kletturinn til hægri. Myndin er úr bókinn: "Héðinn í 100 ár svipmyndir 1922 til 2022", en ljósmyndarinn er óþekktur.
2001058
Á myndinni eru strákarnir á Örvari HU 21 að taka tuga tonna hal af þorski.Eins og sjá má er ekki langt í næsta skip þar sem fylgst er vel með hvernig gengur um borð í Örvari. Karlarnir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1503
Ekki er vitað hvenær né hvar þessi mynd var tekin. Á henni eru tveir heiðursmenn sem settu svip sinn á Skagaströnd á sínum tíma: Björn Sigurðsson (d.5.10.1999) frá Jaðri með kústinn og Skafti Fanndal Jónasson (d.29.2006), oft kenndur við Dagsbrún, með fæiskófluna.
Ingibergur Guðmundsson 421
Vilhjálmur Skaftason hleypur með friðarkyndilinn í fyrsta Friðarhlaupinu sumarið 1987. Hópur fólks úr umf Fram á Skagaströnd skiptist á um að hlaupa með kyndilinn niður Langadalinn þar til félagar úr umf Hvöt á Blönduósi tóku við honum ofan við Blönduós. Í Friðarhlaupinu var hlaupið með friðarkyndilinn hringinn kringum Ísland en það endaði síðan með lokaathöfn í Reykjavík.
Jónas 26
Högni Jensson (d.24.5.2018).
2001012
Þessi mynd er af nokkrum skátaforingjum kringum árið 1963. Fremst fyrir miðju situr Ingólfur Ármannsson félgasforingi Sigurfara á Skagaströnd. Vinstra megin við hann er Tryggvi Þorsteinsson frá Akureyri.Aftan við Tryggva stendur Þórður Jónsson einnig úr Sigurfara og enn aftar er Jón Ísberg (með gleraugu) félagsforingi Bjarma á Blönduósi. Við hlið Þórðar er Gunnhildur Þórmundsdóttir einnig úr Bjarma. Lengst til hægri er svo Jóhannes Torfason úr Bjarma. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu þá athugasemd á
[email protected]
.
Ólafur Bernódusson1054
Myndin var tekin sumarið 1997. Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) til vinstri og Sigurður Björnsson til hægri ganga frá festinu á límtrésbita sem er hluti af útvegg og þaki hússins.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1512
Myndin var tekin um borð í Ólafi Magnússyni Hu 54 af þeim Ragnari Ingvarssyni (fjær) og Hirti Guðmundssyni (nær). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn199
Myndin var tekin á Nýfundnalandi 19. mars 1991. Á henni eru Hallbjörn Björnsson stjórnarmaður í stjórn Skagstrendings hf til vinstri og Magnús Sigurðsson útgerðarstjóri til hægri í viðskiptaferð á vegum fyrirtækisins.
Óþekktur ljósmyndari542
Hjónin á Skeggjastöðum, Magnús Ólafur Tómasson (d.3.4.1942) og Ingunn Þorvalsdóttir (d.21.7.1971). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari544
Kjartan Óskar Sveinsson (d.25.9.1949) í Skúr á Kálfshamarsnesi. Kjartan bjó síðar í Valhöll á Skagaströnd en það hús stóð áður á Kálfshamasnesi. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1501
Dagrún St 12 kemur úr róðri í fallegu vorveðri. Í baksýn er báturinn Hafteinn í skemmtisiglingu. Um borð í Dagrúnu er Eiríkur Lýðsson fremst en hinn maðurinn er óþekktur. Fólkið um borð í Hafsteini er óþekkt. Dagrún ber nú einkennisstafina HU 121 en er gerð út af sömu aðilum og fyrr.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1483
Á litlum stað eins og Skagaströnd þekkjast menn jafnvel aftanfrá. Þessir mætu menn, sem virða fyrir sér togarann Arnar Hu 1, eru Steindór Haraldsson til vinstri og Þröstur Líndal til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1053
Myndin var tekin sumarið 1997 þegar verið var að reisa límtrésbitana sem mynda útveggi og þak íþróttahússins. Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) krýpur, Baldvin Hjaltason í rauðum samfestingi fylgist með og Sigurður Björnsson borgar yfir kúbeini til að stýra sperrunni rétt á festingarnar. Til hægri athugar Helgi Gunnarsson eitthvað við síðustu sperru.
Ólafur Bernódusson1230
Á myndinni er verið að steypa sökkulfætur undir raðhúsin á Ránarbraut 17 - 23 á Skagaströnd. Það, sem er verið að steypa á myndinni, voru 40 sm breiðir sökklar en síðan voru hinir eiginlegu sökklar steypir ofan á þessa "fætur". Eðvarð Hallgrímsson, skeggjaður í hvíta bolnum, byggði húsin að mestu upp á eigin reikning en seldi þau síðan á ýmsum byggingarstigum. Maðurinn í peysunni með ljósa kragann er Einar Þór Ásgeirsson og sá sem er lengst til hægri er líklega Þorsteinn Styrmir Jónsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndin var tekin sumarið 1987.
Gréta 035
Frímann Lúðvíksson frá Steinholti - Skagavegi 19.
Fisk Seafood - safn 271
Myndin var tekin 7. apríl 1982 í hófi í Fellsborg til að fagna komu frystitogarans Örvars HU 21 í fyrsta sinn til Skagastrandar. Mennirnir á myndinni, með myndir af Örvari, eru, frá vinstri: Jón Helgason (d.1.12.2019) vélstjóri, Lárus Ægir Guðmundsson sveitarstjóri Höfðahrepps (nú Sveitarfélagsins Skagstrandar), Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.6.7.2017) skipstjóri og Magnús Sigurðsson vélstjóri og útgerðarstjóri. Skagstrendingur hf lét smíða Örvar sem frystitogara hjá Slippstöðinni á Akureyri en togarinn var frumkvöðull sem frystitogari á Íslandi.
2001103
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 1968 eða 1969. Þá var kvótakerfið ekki komið þannig að menn máttu veiða eins og þeir gátu. Á myndinni er nýbúið að taka trollið og fiskur er fljótandi um allt dekk og aðgerð í gangi, Karlarnir þurftu að beygja sig eftir hverjum fiski, blóðga og gera að honum áður en honum var hent upp í þvottapontuna. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari527
Hjónin á Hróarsstöðum, Bjarni Andrés Þórðarson (d.4.2.1980) og fyrri kona hans Lilja Kristbjörg Jóhannsdóttir (d.10.7.1977). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Gréta 104
Lúðvík Kristjánsson (d.10.2.2001) í Steinholti. Myndin var tekin 1972.
Jónas 15
Guðmundur Viðar Guðmundsson ríður út í fjörunni sunnan við Hólanesið. Myndin var líklega tekin einhverntíma kringum 1980.
Óþekktur ljósmyndari587
Hjónin á Finnsstöðum, Hafsteinn Sigurbjarnarson (d. 18.5.1974) og Laufey Jónsdóttir (d. 25.12.1969). Þau hjón bjuggu í áratugi í Reykholti á Skagaströnd. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari532
Hjónin á Keldulandi, Albert Erlendsson (d. 2.3.1984) og Sigulína Lárusdóttir (d. 10.7.1986). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson - safn188
Páll Þorfinnsson (d.1.9.1993) rafverktaki rennir fyrir lax í Laxá í Refasveit. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og ljósmyndarinn er óþekktur.
Ingibergur Guðmundsson 462
Myndin var tekin á sjómannadegi 1985. Tunnuboðhlaup var árvisst og vinsælt atriði á sjómannadegi. Fólk var látið hlaupa ákveðna vegalengd og skríða gegnum tunnu á miðri leið og leysa einhverja þraut þar. Við endamarkið beið svo gjarnan einhver önnur þraut áður en hlaupið var til baka og næsti maður í liðinu tók við. Á þessari mynd eru Eðvarð Hallgrímsson nær okkur og Magnús Ólafsson (d.23.7.2012) fjær, í tunnunum, að blása í blöðrur þangað til þær springa.
Fisk Seafood - safn 274
Myndin var tekin 7. apríl 1982 þegar Örvar Hu 21 kom í fyrsta sinn til heimahafnar á Skagaströnd nýr frá Akureyri. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, Gylfi Sigurðsson stjórnarmaður í félaginu, Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) stjórnarmaður, Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002) stjórnarmaður, Gunnar Ragnars framkvæmdastjóri Slippstöðvarinnar á Akureyri og Stefán Reykjalín stjórnarformaður Slippstöðvarinnar.
Ingibergur Guðmundsson 412
Páll Leó Jónsson var skólastjóri Höfðaskóla árin 1986 - 1991. Á myndinni er hann við skrifborðið sitt í maí 1987.
2001078
Bæjarstarfsmennirnir Sveinn Kristjánsson til vinstri og Karl Guðmundsson til hægri við vinnu niður í skurði. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ljósmyndakeppni 2022 49
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Morten Wiborg og sendi inn í flokkinn "Gamalt".
Gréta 037
Haukur Gunnlaugsson (d.18.1.2004) sem lengi bjó í Laufási. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Guðmundsdóttir 068
Gunnar Helgason (d.19.10.2007). Myndin var tekin 1987 eða 1988.
Halldór Gunnar Ólafsson 008
Brynjar Pétursson talar í símann um borð í Örvari Hu 21 einhverntíma á árunum 1992 eða 1993.
Guðrún Guðbjörnsdóttir120
Myndin er tekin úr sýningaskrá og þess vegna dálítið sjúskuð. Hún sýnir Sveinbjörn H. Blöndal (d.7.4.2010) og konu hans Birnu Jónsdóttur Blöndal (d.26.10.2018). Sýningarskráin var gefin út vegna yfirlitssýningar á verkum Sveinbjörns í íþróttahúsinu á Skagaströnd 23. júlí til 14. ágúst 2011. Hann hélt nokkrar einkasýningar og tók þátt í samsýningum bæði hérlendis og erlendis. Þrátt fyrir það sinnti hann list sinni alltaf í hjáverkum með fullri vinnu. Birna var öflugur liðsmaður í leiklist á Skagaströnd enda hafði hún stundað balletnám á yngri árum.
Ingibergur Guðmundsson 362
Myndin var tekin í maí 1988 á kennarastofunni í Höfðaskóla. Á henni eru kennararnir Torfhildur Stefánsdóttir og Magnús Ólafsson (d.23.7.2012).
1
…
27
28
29
…
32
Leita í myndasafninu
Leita