Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Gréta 037
Haukur Gunnlaugsson (d.18.1.2004) sem lengi bjó í Laufási. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001059
Myndin var tekin um borð í Örvari Hu 21 en ekki er vitað hvenær. Þegar mjög mikið fiskaðist, eins og á myndinni, þurfti að blóðga fiskinn niður í móttökuna því það tók töluverðan tíma að vinna hann í frystinguna. Á myndinni eru, frá vinstri: Ólafur Ásgeirsson, Ragnar Högnason með bláa lambhúshettu, Jón Alexandersson, Gunnar Jónsson með bláa húfu, óþekktur, Sigurður Alexandersson, óþekktur, Hjörtur Guðbjartsson bograndi á hnjánum, Quentin Bates og Páll Valgeirsson.
Óþekktur ljósmyndari665
Hjónin á Sæbóli, Indriði Brynjólfsson (d.8.12.1977) og Ingunn Margrét Díana Guðborg Gísladóttir (d.23.10.1951). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ingibergur Guðmundsson 377
Myndin var tekin 1988 þegar fólkið á henni var í vinabæjarheimsókn í Växjö í Svíþjóð. Guðmundur Sigvaldason (d.8.2.2017) þáverandi sveitarstjóri er til vinstri og Hildugunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996) fulltrúi Norræna félagsins á Skagaströnd til hægri.
Ólafur Bernódusson1181
Á myndinni eru Stefán B. Sigurðsson þáverandi rektor Háskólans á Akureyri til vinstri og Adolf H. Berndsen stjórnarformaður BioPol til hægri. Myndin var tekin í febrúar 2014 þegar þeir félagar höfu skrifað undir samstarfssamning BioPol og HA. Við sama tækifæri klipptu þeir svo á borða til að opna formlega rannsóknarstofu BioPol.
Ólafur Bernódusson1094
Myndin var tekin í júlí 1996 þegar fram fóru framkvæmdir við vatnsveitu Skagastrandar í Hrafndal. Á myndinni eru Rolf Árnason (d.3.6.2014) byggingatæknifræðingur til vinstri og Guðmundur J. Björnsson gröfumaður til hægri. Boraðar voru nokkrar holur í dalnum og síðan var vatnið, sem fékkst, leitt í stóran miðlunartank neðst í dalnum. Guðmundur plægði niður vatnsrörið með gröfunni sinni, sem er á myndinni á tvöföldu bæði að framan og aftan. Ekki veitti af því í mýrunum á leiðinni sökk grafan gjarnan á kaf.
Gréta 036
Guðmundur Kristinn Guðnason (d.21.11.1988) póstur og ljómyndari frá Ægissíðu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 278
Ekki er vitað hvenær né hvar þessi mynd var tekin. Á henni er Bergur E. Ágústsson sem var um tíma framkvæmdastjóri Rækjuvinnslunnar hf á Skagaströnd.
Gréta 047
Sigurður Guðmundsson (d.2.12.1984) smiður á hlaðinu heima hjá sér í Laufási með reiðhestinn sinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001099
Myndin var tekin við Hvalá á Ströndum 2003. Þá voru þar á ferð nokkrir Skagstrendingar á jeppunum sínum en ekki er hægt að fara lengra út Strandir á bílum en að Hvalánni. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðmundur J. Björnsson, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, ?Indriði Hauksson?, Eiríkur Lýðsson og Ari Jón Þórsson.
Ólafur Bernódusson1209
Ingibergur Guðmundsson við vinnu í Höfðaskóla sem kennari eða skólastjóri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001012
Sigurður Guðmonsson á sjómannadegi 1965. Ef myndin er skoðuð vel sést íshrafl á víkinni til vinstri við Sigurð. Gatan aftan við hann er ekki lengur til og dökka húsið, sem sér í yfir hægri öxl Sigurðar, er líka horfið. Gatan lá austan við "Bjarnaborg" eins og sést, þar sem nú er rafmagnsverkstæði Neistans ehf.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1520
Ólafur Bernódusson stautar sig fram úr leiðbeiningum á málningardós í dyrunum á útgerðarskúrnum sínum. Til vinstri er skuggi af bátnum hans, Benna Ólafs, sem bíður málningar.
2001113
Á myndinni sem var tekin einhverntíma upp úr 1990 er verið að sá grasfræi í Spákonufelli fyrir sunnan og neðan skíðaskálann. Á henni er Guðjón ? frá Landgræðslunni að sá með tveimur hjálparmönnum frá Skagaströnd. Þeir eru Jón Örn Stefánsson til hægri og Albert Ingi Haraldsson til vinstri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1481
Steindór R. Haraldsson framan við ljósmynda-bakgrunn á Kántrýhátíð? eða Kántrýdögum?. Neðra andlitið á spjaldinu er Rakel Tryggvadóttir en efra er Eva Dís Gunnarsdóttir.
Skagastrond 1989
Skagaströnd 1989. Í myndinni er m.a. farið í heimsóknir í fyrirtæki á staðnum. Mynd og hljóð eru í góðu lagi. Myndin er 31 mínúta og þulur á henni er Þorbjörn Sigurðsson en myndatöku annaðist Þrándur Thoroddsen.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1482
Eiríkur Lýðson á Dagrúnu Hu 121 hellir grásleppuhrognum úr tunnu í vél sem skilur himnur og slíkt frá áður en þau eru sett á grisjur til að láta síga af þeim yfir nótt áður en þau eru svo söltuð niður í tunnur. Með honum á myndinni er hásetinn Stefán Sveinsson sem tínir úr þarablöð og annað sem ekki á heima með hrognunum.
2001063
Myndin var tekin um borð í Arnari HU 1 á verkstæðinu þar. Ernst Berndsen yfirvélstjóri er til vinstri en hinn vélstjórinn er óþekktur.
Óþekktur ljósmyndari639
Hjónin á Læk (Efri Læk), Björn Sölvason Helgason (d.11.3.1983) og Anna Björnsdóttir (d. 6.12.1948). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Guðrún Guðmundsdóttir 067
Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) í Grund spilar á nikkuna fyrir fólk í kaffisamsæti á hótel Dagsbrún. Það var haldið þegar eldri borgarar frá Hvammstanga heimsóttu jafnaldra sína á Skagaströnd 1987 eða 1988.
Gréta 112
Aftan á myndinni stendur: "Lárus Björnsson (frá Syðra-Hóli) Eiðsvallagötu 18. Akureyri". Lárus (d.30.9.1985) var þekktur sósíalisti á Akureyri og gaf Alþýðubandalaginu húsið sitt þar.
Ólafur Bernódusson1091
Myndin var tekin í júlí 1996 þegar verið var að dæla upp vatni úr einni af borholunum sem boraðar voru í Hrafndalnum til að ná í hreint kalt vatn fyrir bæinn. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Gunnar Hafdal?, Einar Karlsson og Sigurjón Ástmarsson.
Ólafur Bernódusson1140
Skóverksmiðjan Skrefið var stofnuð á Skagaströnd í janúar 1993 og starfaði í nokkur ár. Á þessari mynd, sem tekin var í október 1995, er Þór Arason verksjóri við vinnu sína þar. Verksmiðjan var svo seld úr bænum 1997 en þá hafði Þór starfað þar einn um tíma.
Ólafur Bernódusson1089
Myndin var tekin í Hrafndal í júlí 1996 þegar þar stóðu yfir framkvæmdir við vatnsveitu Skagastrandar. Boraðar voru nokkrar holur og upp úr þeim fékkst heilnæmt og gott kalt vatn sem enn (2022) er notað í bænum. Karlarnir upp við bílana á myndinni eru, frá vinstri: Rolf Árnason (d.3.6.2014) byggingatæknifræðingur, Karl Guðmundsson (d.11.12.2011) verkamaður, Guðmundur Jón Björnsson gröfumaður og Einar Karlsson pípulagninamaður. Mennirnir við borholuna eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 368
Magnús Ólafsson (d.23.7.2012) spilar Bridge í Fellsborg veturinn 1988.
Guðrún Guðbjörnsdóttir125
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin á hótel Dagsbrún. Á henni eru kórfélagarnir Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) og Hildigunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996) í góðu stuði.
Ingibergur Guðmundsson 415
Myndin var tekin 1987 í heimsókn tveggja fulltrúa Norræna félagsins á Skagaströnd í vinabænum Hönefoss í Noregi. Á myndinni er Ólafur Bernódusson, þáverandi formaður Norræna félagsina á Skagaströnd, lengst til vinstri. Hinir mennirnir tveir eru óþekktir Norðmenn sem báðir tóku þátt í norsku andspyrnuhreyfingunni á stríðsárunum. Myndin var tekin í Akerhus virkinu í Ósló í herbergi sem helgað er þessum gömlu andspyrnumönnum sem hættu lífi sínu í baráttunni við þýska hersetuliðið. Þess má geta að á ákveðnum stað í virkinu voru a.m.k. 42 andspyrnumenn líflátnir af Þjóðverjum.
2001072
Þessi mynd, sem tekin var sumarið 1969 um borð í síðutogaranum Arnari HU 1, sýnir vel vinnuaðstöðuna á dekkinu. Trollpokinn með aflanum var hífður um borð og fiskurinn látinn gossa í stíur á dekkinu. Þar þurftu menn að beygja sig eftir hverjum fiski, blóðga og slægja. Síðan var honum hent upp í pontuna sem sést á lestarlúgunni en hún var með sírennsli af sjó þannig að fiskurinn skolaðist vel þar. Hann var síðan látinn renna niður í lestina gegnum lúgugatið sem er fremst á lestarlúgunni. Þar niðri var hann svo ísaður í stíur. Maðurinn á myndinni er óþekkktur.
Ólafur Bernódusson1101
Í júní 1996 fékk áhöfnin á Örvari Hu 21 afhentan gæðaskjöld Coldwater Seafood. Skjöldinn fékk áhöfnin fyrir bestu framleiðslu og vöruvöndun um borð í frystitogara árið 1995. Á myndinni er Páll Pétursson, gæðastjóri Coldwater, að afhenda Hafþóri Smára Gylfasyni, skipstjóra Örvars, gæðaskjöldinn. Maðurinn til vinstri er Einar Haukur Arason úr áhöfn Örvars en maðurinn til hægri er óþekktur.
Guðrún Guðbjörnsdóttir154
Nokkrir af forystumönnum Skagstrendings hf staddir í Noregi, líklega í Bergen, en þá var þar verið að smíða frystitogara fyrir fyrirtækið. Þetta var sumarið 1992 því togarinn - Arnar Hu 1 - kom í fyrsta sinn til heimahafnar 22. desember 1992. Hann var þá stærsta fiskiskip Íslendinga. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Adolf H. Berndsen, óþekktur, Guðjón Guðjónsson, óþekktur, Sveinn S. Ingólfsson og Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002). Arnar er í baksýn, ókláraður.
Gréta 123
Aftan á þessari mynd stendur: "Til: Fjólu, Frá Villa" Líklega hefur myndin verið send Fjólu Sigurðardóttur (d.15.7.1988) í Laufási en ekki er vitað hver Villi er. Sennilega er þetta mynd af honum þannig að ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Gréta 122
Hallgrímur V. Húnfjörð Kristmundsson (d.9.10.1998) vélstjóri. Ekki er vitað hvenær né hvar myndin var tekin.
20240928_221411
28. september 2024 héldu meðlimir hljómsveitarinnar Janus tónleika í Bjarmanesi fyrir fullu húsi. Janus er langlíf hljómsveit sem kemur saman með nokkurra ára millibili til að skemmta sér og öðrum. Meðlimir sveitarinnar eru, frá vinstri: Fannar Viggósson, Þórarinn Grétarsson, Hjörtur Guðbjartsson, Þorvaldur Skaftason og Guðmundur Jónsson. Lengst til hægri sér í Magnús B. Jónsson einn af gestunum á tónleikunum.
Ingibergur Guðmundsson 362
Myndin var tekin í maí 1988 á kennarastofunni í Höfðaskóla. Á henni eru kennararnir Torfhildur Stefánsdóttir og Magnús Ólafsson (d.23.7.2012).
Óþekktur ljósmyndari557
Hjónin á Örlygsstöðum með tvo af sonum sínum. Frá vinstri: Sigurlaug Björnsdóttir (d.7.9.1982), Björn Haraldsson (d.21.9.1988), Haraldur William Sigurjónsson (d.13.5.1986) og Grétar Jón Haraldsson. Hjónin Haraldur og Sigurlaug bjuggu mjög lengi á Iðavöllum á Skagaströnd.
Óskar Kristinsson safn131
Óskar Kristinsson vinnur við að koma fiskinum í kassa og ísa í lestinni á ísfisktogaranum Arnari Hu 1. Fiskurinn streymdi niður í lestina frá aðgerðarkörlunum á millidekkinu. Þar tók lestarmaðurinn við og raðaði í kassa og ísaði eftir kúnstarinnar reglum. Kössunum var raðað í stæður eins og sjá má og oft þurfti lestarmaðurinn að hafa hraðar hendur til að fiskurinn safnaðist ekki fyrir. Myndina tók Vilhelm Þórarinsson en ekki er vitað hvenær.
2001079
Á myndinni er verið að koma fyrir styrktarstaur í miðju "millimastursins" í skíðatoglyftunni sem var í suðurhlíð Spákonufellsins. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1995. Gröfumaður var Guðmundur Björnsson og til að komsat þarna upp brekkuna, án þess að valda miklum skemmdum á henni, var grafan á tvöföldu bæði að aftan og framan. Maðurinn sem sést á myndinni er líklega Ólafur Bernódusson.
Óþekktur ljósmyndari438
Sveinn Þórarinsson ók verslunarvörum milli Blönduóss og Skagastrandar fyrir Kaupfélag Húnvetninga um árabil. Eins og sést á myndinni var ekki alltaf sól og blíða í þessum ferðum Sveins þó hann brosti breitt alla daga. Á myndinni er hann að afgreiða vörur í verslunina við Einbúastíg (gamla kaupfélagið). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 585
Sigurður Bjarnason (d.16.5.2022) fylgist með rækjuskiljunni. Þarna var skelinni náð af rækjunni eftir að hún kom úr suðunni. Keflin á myndinni snerust fram og til baka og nudduðu þannig skelinni af rækjunni. Rækjan hélt síðan áfram inn á færiband þar sem starfsmenn hreinsuðu síðust skelleifarnar af henni. Þaðan fór hún síðan í pökkun og endaði í frystiklefa Rækjuvinnslunnar hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 520
Gunnlaugur Sigmarsson við rennibekkinn sinn í bílskúrnum hjá sér. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1226
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) bjó í áratugi í Stórholti (Bankastræti 3) með fjölskyldu sinni. Seinna á Mánsbraut 5, eftir að börn hans voru farin að heiman. Bernódus var mikill félagsmálamaður og sat meðal annars sem oddviti hreppsnefndar Höfðahrepps (nú Sveitarfélagið Skagaströnd) 1974 - 1978.
2001508
Myndin var tekin á fyrstu Kántrýhátíðinni 1984. Þá fór hátíðin að mestu fram á tjaldsvæðinu og þar var sett upp sviðið á myndinni. Á henni er frumkvöðullinn Hallbjörn J. Hjartarson að syngja fyrir gesti við undirleik óþekktra hljóðfæraleikara.
2001029
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega var það einhverntíma kringum 1965. Á henni eru að skemmta sér: Árni Ólafur Sigurðsson í horninu til vinstri, Þórarinn Björnsson í miðjunni og Örn Berg Guðmundsson til hægri. Í baksýn er svo fólk í keleríi.
Gréta 022
Lárus Björnsson (d.30.9.1985) trésmiður frá Syðra Hóli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1199
Sigursveit unglinga í kappróðri á sjómannadegi hefur tekið við verðlaunapeningum sínum um borð í Örvari HU 21 á sjómannadegi. Í sveitinni voru, frá vinstri: Gestur Arnarsson stýrimaður, Skúli Tómas Hjartarson, Helga Kristmundsdóttir (d.20.7.2021), Halldór Gunnar Ólafsson, Atli Þór Þórsson, Sigvaldi Guðmundsson og Róbert Freyr Gunnarsson. Lengst til vinstri er Ólafur Bernódusson kynnir dagsins. Líklega var myndin tekin 1988:
2001087
Baldvin Hjaltason til vinstri og Hafsteinn Pálsson til hægri búa sig undir að renna fyrir silung í gegnum ís á Langavatni. Myndin var tekin í jeppaleiðangri á tíu jeppum um jól en ekki er vitað hvaða ár.
2001106
Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin en það var gert á sjómannadegi. Á henni keppa tveir menn í stakkasundi í höfninni. Maðurinn fjær okkur er Sigurður Björnsson en hinn er óþekktur.
Óþekktur ljósmyndari670
Halldór Jón Hörður Ásgeirsson (d.23.10.1982) í þórshamri. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Guðrún Guðbjörnsdóttir123
Guðrún Sigurðardóttir leyfir Julian Hewlett að þefa af blóminu sínu. Julian stjórnaði kirkjukór Hólaneskirkju frá haustinu 1989 fram á mitt sumar 1994 og Guðrún söng þar altrödd. Myndin hefur verið tekin einhverntíma á því tímabili.
Ólafur Bernódusson 1030
Myndin var tekin í mars 1998 við vígslu íþróttahússins á Skagaströnd. Í ræðustólnum er Helgi Gunnarsson verktaki sem sá um byggingu hússins.
Gréta 091
Sveinbjörn Albert Magnússon (Atli) (d.13.11.1987) frá Syðra Hóli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 505
Magnús Blöndal (d.7.9.2001) í kaffipásu á æfingu á Saumastofunni í nóvember 1984. Á myndinni heldur Magnús uppi auglýsingaplakati um kvikmyndina Kúrekar Norðursins sem Friðrik Þór Friðriksson gerði um fyrstu Kántrýhátíðina í ágúst 1984. Myndin var tekin í eldhúsinu í Fellsborg.
Guðrún Guðbjörnsdóttir157
Fjórir af forystumönnum Skagstrendings hf spjalla saman í Bergen þar sem frystitogarinn Arnar HU 1 var smíðaður fyrir fyrirtækið 1992. Á myndinni eru, frá vinstri: Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri, Magnús Sigurðsson (d.17.1.2023) útgerðarstjóri, Finnur Kristinsson yfirvélstjóri og eftirlitsmaður með smíðinni og Guðjón Guðjónsson skipstjóri.
Óþekktur ljósmyndari496
Frederik Hillebrandt (d.8.9.1885) verslunarmaður á Skagaströnd og Blönduósi. Giftist Þórdísi Ebenezersdóttur (d.1890) bónda á Vindhæli til fjár. Hún var þá 72 ára en hann 36 ára. Myndin er úr bókinni Föðurtún eftir Pál Kolka.
Ingibergur Guðmundsson 424
Á myndinni, sem er tekin vorið 1987, eru menn að moka upp vírinn í toglyftunni á skíðasvæðinu í Spákonufellinu. Vírinn fennti stundum á kaf og þá var ekki um annað að ræða en að moka hann upp með handafli til að hægt væri að fara á skíði. Oft var þetta mikið verk og þreytandi en skíðadeildarmenn töldu það ekki eftir sér til að geta stundað þetta áhugamál sitt. Á myndinni eru að moka þeir Vilhelm Þórarinsson til vinstri og Ólafur Bernódusson til hægri.
2001112
Gylfi Sigurðsson til vinstri og Magnús Pétursson slaka á milli funda í Bergen 1992. Þá voru þeir þar ásamt fleiri frá Skagstrendingi hf til að fylgjast með framkvæmdum við nýsmíðina á frystitogaranum Arnari HU 1 fyrir félagið. Gylfi var stjórnarmaður en Magnús umboðsmaður fyrir vélbúnað skipsins.
Ljósmyndakeppni 2022 57
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Valgerður Guðný Ingvarsdóttir og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja".
Ingibergur Guðmundsson 460
Myndin var tekin 1985 af þessum félögum sem unnu þá hjá Vélaverkstæði Karls Berndsen. Karlarnir eru, frá vinstri: Guðjón Árnason, Valdimar Viggósson, Jóhannes Sveinsson, Gísli Snorrason, Sigurjón Ingólfsson og Bergþór Gunnarsson.
Ingibergur Guðmundsson 393
Þórbjörn Jónsson (d.22.1.1996) og Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) voru sæmdir heiðurorðu sjómannadagsins á sjómannadaginn 1987. Þeir félagar voru lengi samferða gegnum lífið og unnu þétt saman að ýmsu. Á myndinni er Þórbjörn til vinstri.
Ljósmyndakeppni 2022 76
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Katiy Heath og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
1
…
28
29
30
31
32
Leita í myndasafninu
Leita