Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson565
<p>Á þessari mynd, frá 2001, æfa presturinn séra Magnús Magnússon og félagar úr kirkjukór Hólaneskirkju söng til að syngja fyrir söngfélaga sinn úr kórnum, Gylfa Sigurðsson, sem átti 60 ára afmæli nokkrum dögum síðar. Frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson með gítarinn, Einar Haukur Arason, Valdimar Þórðarson, Sigurjón Guðbjartsson, Sigurður Bjarnson, séra Magnús og Ólafur Bernódusson. Ungi aðdáandinn sem situr framan við karlana og hlustar er Páll Halldórsson. </p>
María Magnúsdóttir - safn 195
Á þessari mynd stendur:"Páll Steingrímsson frá Neðstabæ í Norðurárdal A-Hún. Var lengi ritstjóri dagblaðsins Vísir í R.vík".
María Magnúsdóttir - safn 043
Jón Jónsson (d. 9.7.1991) frá Asparlundi (Bogabraut 24).
María Magnúsdóttir - safn 018
Kaffitími í Rækjuvinnslunni hf - veislukaffi. Verkstjórarnir Grétar Haraldsson til vinstri og Kristófer Árnason til hægri fyllast valkvíða við veisluborðið. Myndin var líklega tekin kringum 1980.
María Magnúsdóttir - safn 071
Maðurinn á myndinni er Kristján Fjeldsteð og líklega er barnið Sveinn sonur hans. Kristján var giftur Erlendsínu (Erlu) Erlendsdóttur frá Kambakoti.
María Magnúsdóttir - safn 046
Sveinbjörn Albert Magnússon (Atli) (d. 13.11.1987) frá Syðra Hóli.
María Magnúsdóttir - safn 122
Aftan á þessa mynd er skráð: "Eiríkur Finnsson Ísafirði, maður Jóhönnu Hjálmarsd. frá Fjalli". Eiríkur Brynjólfur Finnsson, f. 10. nóv. 1875 á Kirkjubóli (Dal) í Valþjófsdal, d. 9. nóv. 1956 í Reykjavík. Verslunarmaður á Flateyri til 1902, fluttist þá til Ísafjarðar. Verkstjóri þar og fiskmatsmaður. Riddari af Fálkaorðunni 1944. Var eiginmaður Jóhönnu Hjálmarsdóttur frá Fjalli á Skaga en hún lést af barnsförum 29.4.1905. <br>Eiríkur á fjölda afkomenda en dóttir hans og Jóhönnu Hjálmarsdóttur lést á barnsaldri. <br>
María Magnúsdóttir - safn 120
Magnús R. Snædal
María Magnúsdóttir - safn 047
Jón Jónsson (d. 9.7.1991) frá Asparlundi, Bogabraut 24.
María Magnúsdóttir - safn 153
Á þessari mynd stendur:" Ólafur Björnsson frá Syðra Hóli myndin er tekin í Laugfási". Systir Ólafs, Margrét bjó lengi í Laufási á Skagaströnd.
María Magnúsdóttir - safn 048
Jón Jónsson (d. 9.7.1991) frá Asparlundi (Bogabraut 24).
María Magnúsdóttir - safn 164
Aftan á myndinni stendur:"Lloyd Andersson ingsti sonur Línu Hann er 18 ára".
María Magnúsdóttir - safn 086
Á myndinni eru hreppsnefndarmenn Vindhælishrepps á hlaðinu á Syðra Hóli. Frá vinstri: Þórarinn Þorleifsson (d.24.4.1973) Skúfi , Magnús Daníelsson (d.1.6.1993) Syðri Ey, Magnús Björnsson (d. 20.7.1963) Syðra Hóli, Björn Jónsson (d. 21.4.1992) Ytra Hóli og Ingvar Pálsson (d.18.10.1968) Balaskarði. Myndina tók María Magnúsdóttir en ekki er vitað hvenær.
María Magnúsdóttir - safn 006
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) í ræðustól á sjómannadegi. Honum til aðstoðar er kynnir dagsins Jón Ingi Ingvarsson. Eins og sjá má hefur Pétur verið heiðraður með heiðurspeningi sjómannadagsins. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
María Magnúsdóttir - safn 136
Magnús Björnsson (d. 20.7.1963) frá Syðra Hóli til vinstri og Guðmundur R. Guðlaugsson (d. 8.5.1985) frá Árbakka til hægri.
María Magnúsdóttir - safn 035
Til hægri á myndinni er Björn Magnússon (d.13.11.2010) bóndi á Syðra Hóli en maðurinn vinstra megin er Árni M. Jónsson (d. 18.11.2009) kenndur við Skriðu á Sauðárkróki - Árni í Skriðu. Myndin var líklega tekin á hlaðinu á Syðra Hóli.
María Magnúsdóttir - safn 183
Aftan á þessa mynd, sem framleidd var hjá: GOODALL PHOTO SUPPLY WINNIPEG, er skrifað:"Clifford og jag að slá. Kesm. (eða Korm.) með Bindara".
María Magnúsdóttir - safn 057
Baldur Magnússon. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
María Magnúsdóttir - safn 067
Þessi maður er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 147
Aftan á þessari skemmtilegu mynd stendur: "Jeg sjalfur, Elmur og Clifford við sláttuvél. John Hillmann & sons 1940. Evarts Alberta Canada". Einnig er myndin stimpluð: GOODALL PHOTO SUPPLY WINNEPEG.
María Magnúsdóttir - safn 050
Björn Magnússon (d. 13.11.2010) bóndi á Syðra Hóli.
María Magnúsdóttir - safn 123
Páll Jónsson frá Höskuldstöðum
María Magnúsdóttir - safn 140
Aftan á myndina er skrifað: "X er Manni frændi (Hermann Hillmann) og vinur hans".
María Magnúsdóttir - safn 157
Á þessa mynd hefur verið ritað: "Jón Kr. Jónsson Laufási maður Fjólu Sig.".
María Magnúsdóttir - safn 106
Aftan á þessari mynd stendur:"Guðmar Pálsson Njálsstöðum".
Skúli Tómas Hjartarson
Skúli Tómas Hjartarson prúðbúinn með óþekktri stúlku. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en ef þú þekkir stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 598
Adolf J. Berndsen (d. 27.8.2018) flaggar við heimili sitt 31. maí 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 112
Myndin var tekin um borð í Örvari HU 21 en ekki er vitað hvenær. Á henni veifa skipverjar þremur stærðum af þorski úr síðasta hali. Ragnar Högnason er með bláa lambhúshettu, Gylfi Guðjónsson er í blárri peysu og Kristján Alexandersson? lyftir stórum þorski. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 2
Jón Ólafur Ívarsson -Daddi (d.29.12.2013), skipstjóri á Helgu Björg Hu 7, lyftir bikarnum sem veittur var fyrir besta tíma í kappróðri á sjómannadegi. Hjá honum er einn úr róðrarsveitinni, Bjarni Loftsson (d.8.11.1990). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það einhverntíma á sjöunda áratugnum.
Axel Jóhann Hallgrímsson 59
Hjónin Hjalti Skaftason og Jónína Þ. Arndal í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 530
Hafsteinn Pálsson slökkviliðsstjóri skolar úr síu eftir slökkviæfingu 9. september 2014.
María Magnúsdóttir - safn 032
Heyskapur við Syðra Hól. Á myndinni sést glöggt sú tækni sem notuð var við heyskap á sínum tíma þegar hesturinn var enn þarfasti þjónninn í sveitum landsins. Svona vélar, eins og sú á myndinni, gjörbreyttu heyskap til sveita sem fram að því hafði nánast eingöngu notast við orf, ljá og hrífur. Maðurinn á myndinni er líklega Sveinbjörn Albert Magnússon (Atli)(d. 13.11.1987) frá Syðra Hóli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
María Magnúsdóttir - safn 115
Helgi Jónsson (d. 23.2.1985) frá Engihlíð.
María Magnúsdóttir - safn 053
Lárus Björnsson (d.1985) frá Syðra Hóli. Lárus var smiður og iðnrekandi á Akureyri ókvæntur og barnlaus. Hann var sósíalisti alla æfi og arfleiddi Alþýðubandalagið að húsi sínu að Eiðsvallagötu 18 árið 1970 og er það síðan kallað Lárusarhús.
María Magnúsdóttir - safn 121
Magnús Björnsson (d. 20.7.1963) bóndi og fræðimaður frá Syðra Hóli.
María Magnúsdóttir - safn 188
Ólafur Björnsson frá Syðra Hóli.
María Magnúsdóttir - safn 038
Sveinbjörn Albert Magnússon (Atli) (d.13.11.1987) frá Syðra Hóli.
María Magnúsdóttir - safn 109
Aftan á þessari mynd stendur: "Pétur Hillmann 1920 ?".
María Magnúsdóttir - safn 040
Gunnar Jón Jónsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
María Magnúsdóttir - safn 042
Sveinbjörn Albert Magnússon (Atli) (d.13.11.1987) frá Syðra Hóli.
María Magnúsdóttir - safn 061
Aftan á þessari mynd stendur: "Sveinbjörn Albertsson með Björn Magnússon Syðra-Hóli". Sveinbjörn var bróðir Jóhönnu Albertsdóttur móður Björns. Myndin var að öllum líkindum tekin í klettafjörunni neðan við Syðra Hól.
María Magnúsdóttir - safn 193
Samkvæmt því sem stendur aftan á myndinni er þetta Sigurður Helgi Sigurðsson. Meira er ekki vitað um þennan mann.
María Magnúsdóttir - safn 138
Aftan á þessari mynd stendur:"Lárus Hillmann bróðir minn".
María Magnúsdóttir - safn 001
Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991) í hátíðaskapi á bryggjunni á sjómannadegi. Maðurinn til vinstri er Ottó Finnsson (d.10.11.1998)en á milli þeirra í baksýn sjást hjónin Árni Ólafur Sigurðsson og Hlíf Sigurðardóttir.
María Magnúsdóttir - safn 161
Á þessa mynd er ritað: "Sigurður "stóri" Jóhannsson".
María Magnúsdóttir - safn 011
Sigursveit í kappróðri karla á sjómannadegi tekur við verðlaunum sínum úr höndum Lárusar Ægis Guðmundssonar kynnis dagsins. Sveitin reri fyrir hönd frystihúss Hólaness hf en einn ræðarann vantar á myndina. Frá vinstri: Lárus, Haraldur Árnason, Gunnar Stefánsson, Guðmundur Kristinsson, Jens Jónsson, Magnús Guðmannsson og Gylfi Sigurðsson stýrimaður.
María Magnúsdóttir - safn 189
Magnús Björnsson (d.20.7.1963) bóndi og fræðimaður á Syðra Hóli.
María Magnúsdóttir - safn 119
Lárus Björnsson (d.1985) frá Syðra Hóli. Lárus var smiður og iðnrekandi á Akureyri ókvæntur og barnlaus. Hann var sósíalisti alla æfi og arfleiddi Alþýðubandalagið að húsi sínu að Eiðsvallagötu 18 árið 1970 og er það síðan kallað Lárusarhús.
María Magnúsdóttir - safn 107
Lárus Björnsson (d. 1985) frá Syðra Hóli.
María Magnúsdóttir - safn 070
Ólafur Björnsson frá Syðra-Hóli
María Magnúsdóttir - safn 080
Aftan á Þessari mynd stendur: "Bjössi" . Ef þú veist deili á Bjössa vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 167
Á þessa mynd hefur verið skrifað:"John Davidson Canada Jónatan fyrri maður Ólínu Hillmann". Myndin var tekin hjá: Stanton Photo Novelty Co. Springfield Ohio.
María Magnúsdóttir - safn 159
Þormóður Pálsson (d.18.8.2007) frá Njálsstöðum
Ólafur Bernódusson 670
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á þessari mynd eru þeir á spjalli Gunnlaugur Sigmarsson frá Landsbankanum til vinstri og Helgi Gunnarsson trésmiður til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 500
Þröstur Líndal Gylfason til vinstri og Ómar Ingi Ómarsson til hægri fyrir utan gömlu Tunnuna í júlí 2004 en þá var Tunnan notuð sem áhaldahús sveitarfélagsins. Þar er nú Spákonuhofið til húsa. Þegar myndin var tekin voru þeir félagar starfsmenn Höfðahrepps.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 569
Óli Axel Óskarsson á mótorhjólinu sínu í maí 2014.
Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson
Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin tekin.
Sævar og Guðmundur
Þessi mynd var tekin um borð í Arnari Hu 1 23. mars 2013 af þeim félögum Sævari Berg Ólasyni til vinstri og Guðmundi Finnbogasyni til hægri.
Fisk Seafood - safn 249
Halldór Gunnar Ólafsson á feðalagi með starfsfólki Rækjuvinnslunnar hf í heimsókn í hausaþurrkun á Laugum og í Norðanfisk á Húsavík. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 2000.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 588
Stefán Jósefsson fellir grásleppunet í skemmunni sinni í maí 2014.
1
2
3
4
5
…
32
Leita í myndasafninu
Leita