Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson1208
Um árabil rak Hallbjörn J. Hjartarson - Kúreki norðursins - (d. 2.9.2022) Kántrýútvarpið á efri hæðinni í Kántrýbæ. Þar spilaði hann kántrý- og gospeltónlist allan sólarhringinn. Á myndinni er Hallbjörn í útsendingu.
Guðrún Guðmundsdóttir 089
Birgir Árnason (d.2.2.2005) spilar á harmónikuna sína á hótel Dagsbrún fyrir eldri borgara á Skagaströnd og Blönduósi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það 1991 eða 1992.
Ingibergur Guðmundsson 553
Gylfi Sigurðsson til vinstri og Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998) til hægri landa afla úr bát sínum Helgu Björgu Hu 7 í Skagastrandarhöfn. Meðeigandi þeirra tveggja var Jón Ólafur Ívarsson (Daddi) (d.29.12.2013). Helgu Björgina gerðu þeir félagar út í áratugi.
Ingibergur Guðmundsson 438
Kristinn Guðmundsson veður yfir jökulána í Reykjarfirði nyrðri í Hornstrandaferð nokkurra vina frá Skagaströnd um verslunarmannahelgina 1986.
2001032
Félagarnir Árni Ólafur Sigurðsson frá Þórsmörk til vinstri og Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka til hægri. Báðir voru sjómenn og sóttu eiginkonur sínar til Ólafsvíkur. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega hefur það verið kringum 1970.
Höfðaskóli - safn610
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin af þessum hressu körlum. Þeir eru, frá vinstri: Birgir Árnason (d.2.2.2005) hafnarvörður, Snorri Gíslason (d.29.5.1994) sjómaður og Stefán Jósefsson skipstjóri og útgerðarmaður.
Ólafur Bernódusson 1032
Myndin var tekin í mars 1998 við vígslu íþróttahússins á Skagaströnd. Í ræðustólnum er Jón Sveinn Pálsson sem var skólastjóri Höfðaskóla á árunum 1966 - 1986.
Ingibergur Guðmundsson 556
Mennirnir á myndinni eru að steypa gangbraut yfir Fellsbraut við gatnamótin við Oddagötu. Maðurinn til vinstri er Helgi Gunnarsson en á móti honum er Hrólfur Pétursson. Maðurinn í bláa gallanum er Hjalti Magnússon.
Ljósmyndakeppni 2022 40
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Þórey Jónsdóttir og sendi inn í flokkinn "Andlit".
Jónas 67
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Magnús B. Jónsson til vinstri og Árni Björn Ingvarsson til hægri í hlutverkum sínum.
Ingibergur Guðmundsson 365
Ólafur Bernódusson, mótsstjóri á fyrsta golfmóti Golfklúbbs Skagastrandar á Háagerðisvelli í september 1985, afhendir Oliver Oliverssyni verðlaun fyrir að fara næst holu á braut 7 í upphafshöggi.
Fisk Seafood - safn 265
Séra Oddur Einarsson blessar Örvar Hu 21 og áhöfn hans þegar skipið kom í fyrsta sinn í heimahöfn á Skagaströnd 7. apríl 1982. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Gréta 001
Myndin er af Lárusi Valdimarssyni sem bjó í Grund á Skagaströnd með fjölskyldu sinni. Lárus var framkvæmdastjóri Höfðakletts hf sem átti og gerði út 40 tonna bátinn Skallarif Hu 15 á árunum 1957 - 1960. Lárus gerðist síðar fasteignasali í Reykjavík.
Guðrún Guðmundsdóttir 14
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Austurland 25. - 28. júní 1991. Í ferðinni gisti hópurinn á Hótel Edda á Hallormsstað. Á þessari mynd er Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) Vík á Skagaströnd að skoða Bingó -vinning sinn eftir að hafa grínast eitthvað með trúðagleraugu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1476
Lárus Ægir Guðmundsson til vinstri og Jónmundur Ólafsson (d.19.4.2017) til hægri skemmta sér í Kjalarlandsrétt einhverntíma kringum 2010.
2001130
Leikárið 1980 - 1981 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Stalin er ekki hér, undir leikstjórn Sögu Jónsdóttur. Á myndinni eru Ólafur Bernódusson til vinstri og Magnús B. Jónsson til hægri í hlutverkum sínum í verkinu.
2001090
Veturinn 1995 var óvenju snjóþungur þannig að bílar snjóuðu í kaf, skaflar í íbúðagötum voru troðnir og bílar óku svo ofan á þeim i jafnvel tveggja metar hæð frá götunni. Þegar veður gaf færi á var bílum bjargað undan fönninni til þess að þeir skemmdust ekki. Á myndinni hefur Kristmundur Stefánsson, sem bjó efst á Ránarbrautinni, fengið gröfu til að moka frá bílnum sínum. Takið eftir að grafan stendur á skaflinum hátt ofan við bílinn.
Ingibergur Guðmundsson 369
Kristján Guðmundsson (d.16.4.1979), bóndi í Háagerði, slær túnið sitt með hestasláttuvél með tveimur hestum beittum fyrir. Myndin var líklega tekin kringum 1965.
Ólafur Bernódusson1079
Myndin var tekin á Kántrýhátíð í ágúst 1996. Á henni brunar Gunnar Hafdal á vélsleða sínum á sjónum í höfninni. Hann lagði upp í fjörunni neðan við rækjuvinnsluna og ók á fullri ferð upp í fjöruna, sem þá var sunnan við fiskmarkaðinn, um eins kílómetra leið. Hér var sýningaratriði að ræða, sem var töluvert áhættuatriði. Gunnar var óhræddur við að taka áhættu varð t.d. eitt sumarið Íslandsmeistari í jeppatorfæru.
Halldór Gunnar Ólafsson 013
Myndin var tekin um borð í Örvari Hu 21 einhverntíma á árunum 1992 eða 93. Guðjón Guðjónsson (Jonni) skipstjóri stendur á Þresti Árnasyni uppi í brú. Ekki er vitað hvort Jonni er að sýna Þresti hver ræður um borð eða bara að leyfa honum að finna að hann er alls ekki svo þungur.
Ingibergur Guðmundsson 370
Verðlaunahafar í innanfélagsmóti Bridgeklúbbs Skagastrandar veturinn 1988 í Fellsborg. Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) til vinstri og Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020).
Árni Geir Ingvarsson - safn 1518
Stefán Kristinsson (d.19.5.2011) staddur einhversstaðar í hrauni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1516
Myndin var tekin á einhverri Kántrýhátíð eða Kántrýdögum í samkomutjaldinu þar sem karlakór syngur fyrir gesti. Frá vinstri: Skarphéðinn Einarsson með gítar, Hafór Smári Gylfason, Þórarinn Grétarsson, Gylfi Sigurðsson, Magnús Líndal Þrastarson, óþekktur, Sigurður Bjarnason (d.16.5.2022), Halldór Gunnar Ólafsson, Ólafur Bernódusson, Árni Ólafur Sigurðsson, Sigurjón Guðbjartsson og Stefán Jósefsson. Við píanóið er Benedikt Blöndal.
Ólafur Bernódusson1192
Baldvin Hjaltason glaðbeittur í heimsókn á verkstæðið hjá vini sínum Jóhanni Birni Þórarinssyni -Badda-í apríl 2007.
Ingibergur Guðmundsson 507
Björn Bergmann (d.30.5.1985) kennari og ljósmyndari. Björn var ötull ljósmyndari og starfaði mikið með ritnefnd Húnavökunnar meðan hann lifði. Þar birtust margar mynda hans. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af Birni.
Jónas 57
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022) sitjandi og Guðmundur Haukur Sigurðsson í hlutverkum sínum.
Ingibergur Guðmundsson 342
Mikill rækjuiðnaður var á Skagaströnd í áratugi eða allt fram að því að veiðar á rækju dóu nánast út á Íslandsmiðum. Á þessari mynd er verið að landa úthafsrækju í plastkössum úr óþekktum rækjubát á Skagaströnd. Rauðu og bláu númerin á kössunum sögðu til um hvaða dag veiðiferðarinnar rækjan í honum var veidd. Strákarnir á myndinni eru óþekktir.
Guðrún Guðmundsdóttir 095
Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) les upp á kvöldvöku í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp á öldrunarmóti þar 16.- 20. ágúst 1988. Mótið sótti hópur eldri borgara úr Húnavatnssýslu.
2001021
Myndin var tekin 1968 um borð í Auðbjörgu HU 6, sem þá var á færaveiðum. Á henni heldur Kristófer Árnason á vænum þorski sem hann er nýbúinn að innbyrða.
Gréta 041
Hjörtur Guðbjartsson leikur á trommurnar og Þorvaldur Skaftason á gítar í einhverri óþekktri hljómsveit á dansleik, líklega í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 416
Guðmundur J. Björnsson gerir klárt til að leggja gráleppunet vorið 1987 á skektunni sinni. Jónas Jónasson (d. 24.5.2021) fylgist með.
Ljósmyndakeppni 2022 76
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Katiy Heath og sendi inn í flokkinn "Náttúra".
Ingibergur Guðmundsson 510
Kári Kristjánsson (d.11.12.1990) heima á Kárstöðum á 70 ára afmælisdaginn sinn 5. desember 1984.
Ingibergur Guðmundsson 367
Sævar Rafn Hallgrímsson spilar Bridge í Fellsborg veturinn 1988.
2001081
Páll Jóhannesson bæjarstarfsmaður fylgist með dælingu af vatni upp úr leitarholu í Hrafndal. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það á tíunda áratugnum.
2001102
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 1968 eða 1969. Þá var kvótakerfið ekki komið þannig að menn máttu veiða eins og þeir gátu. Á myndinni er nýbúið að taka trollið og fiskur er fljótandi um allt dekk og aðgerð í gangi, Karlarnir þurftu að beygja sig eftir hverjum fiski, blóðga og gera að honum áður en honum var hent upp í þvottapontuna. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Árni Petersen, ?Finnur Kristinsson?(nær), ?Sigurjón Haraldsson? og óþekktur.
Ólafur Bernódusson1083
Myndin var tekin í ágúst 1996 á hafnarsvæðinu á Skagaströnd. Á henni eru slysavarnamenn úr Káraborg á Hvammstanga að æfa sig í meðferð fluglínutækja. Þriðji maður frá vinstri er Guðmundur Jóhannesson og hægra megin við hann er Gunnlaugur Sigmarsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ljósmyndakeppni 2022 11
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Kristinn Rúnar Kristjánsson og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki.
Halldór Gunnar Ólafsson 011
Myndin ver tekin um borð í Örvari Hu 21 einhverntíma á árunum, 1992 eða 93. Grínið er að Þröstur Árnason hefur verið lagður á kassabindivélina og rígbundinn þannig að hann getur ekki hreyft sig. Gestur Arnarson til vinstri og Hafsteinn Pálsson til hægri passa upp á að Þröstur detti ekki á nefið.
Gréta 119
Ekkert er vitað um þessa mynd nema að aftan á henni stendur "Jonni". Miðað við umhverfið gæti hún hafa verið tekin einhversstaðar erlendis. Ef þú veist eihhvað um "Jonna" eða hvar myndin var tekin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari553
Hjónin í Víkum, Karl Hinrik Árnason (d.25.12.1995) og Margrét Jónsdóttir (d.21.11.1986). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson1097
Arnar Hu 1 í heimahöfn í fyrsta sinn í lok mars 1996. Arnar keypti Skagstrendingur hf af rússneskum aðilum þar sem skipið var gert út til veiða við strendur Kóreu. Þaðan var honum siglt til Vigo á Spáni þar sem gerðar voru miklar breytingar á skipinu. Arnar hefur alla tíð reynst hið mesta happaskip og er enn gert út en nú undir merkjum Fisk Seafood á Sauðárkróki. Á myndinni blessar séra Egill Hallgrímsson (d.9.6.2021) skipið við heimkomuna.
Skagaströnd - safn541
Myndin var tekin 1947 þegar starfsmenn vélsmiðjunnar Héðins hf stilltu sér upp í tröppunum upp á olíu/lýsistankinn sem þeir höfðu þá lokið við að smíða. Tankurinn stóð syðst undir Höfðanum ásamt öðrum af sama tagi. Starfsmennirnir héldu til í tjöldum við Höfðann meðan á smíðunum stóð. Mennirnir eru óþekktir. Myndin er úr bókinn: "Héðinn í 100 ár svipmyndir 1922 til 2022", en ljósmyndarinn er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1500
Halldór Sveinsson kennari, listmálari, kvikmyndagerðarmaður og lífskúnstner í Nes listamiðstöðinni með nokkrum af verkum sínum. Þar daldi hann um tíma og hélt m.a. fjölsótt námskeið fyrir byrjendur í listmálun. Halldór er ákaflega frjór og snjall listmálari. Hann tók áskorunum fólks að gamni sínu og málaði flottar vel gerðar myndir á 60 mínútum. Konan á myndinni er óþekkt.
Gréta 018
Myndin er af Lárusi Valdimarssyni sem bjó í Grund á Skagaströnd með fjölskyldu sinni. Lárus var framkvæmdastjóri Höfðakletts hf sem átti og gerði út 40 tonna bátinn Skallarif Hu 15 á árunum 1957 - 1960. Lárus gerðist síðar fasteignasali í Reykjavík.
Ingibergur Guðmundsson 574
Myndin var tekin 1987 eða 1998 þar sem menn eru að vinna við smíði íþróttahússins. Mennirnir á henni eru, frá vinstri: Helgi Gunnarsson verktaki við bygginguna, Baldvin Hjaltason og Sigurður Björnsson sem unnu hjá Helga.
Halldór Gunnar Ólafsson 006
Örvar Hu 21 leggur af stað í túr því strákarnir á myndinni eru nýbúnir að sleppa. þeir eru frá vinstri: Þráinn Bessi Gunnarsson, Guðjón Árnason, Hólmgeir Kristmundsson, óþekktur, Björn Sigurðsson og Þröstur Árnason. Myndin var tekin 1992 eða 1993.
Guðrún Guðbjörnsdóttir165
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Mennirnir á henni eru staddir í Fellsborg. Þeir eru séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) sóknarprestur á Skagaströnd í 40 ár til vinstri og Magnús B. Jónsson sveitarstjóri á Skagaströnd til hægri.
Óþekktur ljósmyndari606
Hjónin í Herðubreið, Lárus Guðmundur Guðmundsson (d.21.9.1981) og Lára Kristjánsdóttir (d.6.9.1993). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ingibergur Guðmundsson 422
Á myndinni, sem er tekin vorið 1987, eru menn að moka upp vírinn í toglyftunni á skíðasvæðinu í Spákonufellinu. Vírinn fennti stundum á kaf og þá var ekki um annað að ræða en að moka hann upp með handafli til að hægt væri að fara á skíði. Oft var þetta mikið verk og þreytandi en skíðadeildarmenn töldu það ekki eftir sér til að geta stundað þetta áhugamál sitt. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Magnús B. Jónsson og Steindór R. Haraldsson.
Jónas 14
Guðmundur Viðar Guðmundsson ríður út í fjörunni sunnan við Hólanesið. Myndin var líklega tekin einhverntíma kringum 1980.
Gréta 005
Jón Jónson (d.9.7.1991) í Asparlundi á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Guðmundsdóttir 069
Myndin var tekin 1987 eða 1988 af þáverandi oddvita á Skagaströnd, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018). Á henni er Adolf í kaffisamsæti á hótel Dagsbrún sem haldið var í tilefni af heimsókn eldri borgara frá Hvammstanga til jafnaldra sinna á Skagaströnd.
Ingibergur Guðmundsson 599
Ingibergur Guðmundsson skólastjóri bíður gesti velkomna og rifjar upp 60 ára sögu Höfðaskóla í afmælishátíð í skólanum 7. nóvember 1999. Á veggnum aftan við Ingiberg er veggspjald með stiklum úr sögu skólans.
Ingibergur Guðmundsson 509
Á myndinni, sem tekin var 1984, eru þeir Guðmundur Haukur Sigurðsson til vinstri og Kári Lárusson til hægri í eldhúsinu á Kárastöðum (Bankastræti 5) í tilefni af 70 ára afmæli Kára Kristjánssonar (d.11.12.1990).
2001067
Guðfinnur Bjarni Ottósson klár í slaginn um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 550
Vetrarmynd úr Bankastrætinu. Menn eru að grafa upp bílana sína úr snjónum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en til hægri eru Kárastaðir (grænir) sem voru rifnir nokkru síðar. Lengst frá okkur, til vinstri, sér í Höfðaberg með grænt þak sem líka er löngu horfið. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1240
Myndin var tekin uppi á Jörundarfelli í Vatnsdal þegar þyrla frá ameríska flughernum var að koma með endurvarpa sem var komið þar fyrir. Björgunarsveitamenn af norðurlandi vestra sáu um að koma honum fyrir á sínum stað sem þeir höfðu undirbúið viku áður. Karlarnir voru síðan fluttir í þyrlunni niður af fjallinu eftir að vinnu við endurvarpann lauk.
Óþekktur ljósmyndari632
Hjónin á Litla - Bergi, Hinrik Nikulás Haraldsson (d.5.7.1981) og Guðrún Jónsdóttir (d.8.1.1964). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Skagaströnd - safn536
Þessa mynd tók Geir G. Zöega (d.4.1.1959) vegamálstjóri 1918 - 1956. Myndin sýnir byggingu brúar sem byggð var yfir Laxá í Refasveit 1924 - 1927, ca 100 metrum neðan við þá sem nú er notuð (2022). Nú er verið að byggja enn nýja brú á nýjum Skagastrandarvegi töluvert neðar en þessi brú stendur. Eins og sjá má var þessi brú byggð með handafli því vélar voru ekki mikið komnar til sögunnar þegar það var gert. Staðsetning hennar var valin með það í huga að hafið yfir ána væri sem styst.
1
…
28
29
30
31
32
Leita í myndasafninu
Leita