Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
2001088
Myndin var tekin um jól en ekki er vitað hvaða ár en það var líklega á tíunda áratugnum. Á henni eru karlar sem fóru í jeppaleiðangur í afar fallegu veðri frá Skagaströnd upp á Langavatn og þaðan að fjallabaki og komu niður Norðurárdal á Þverárfjallsveg. Rennt var fyrir silung í gegnum ís á Langavatni og í Rangártjörnum án mikils árangurs. Á myndinni eru Karl Rósinbergsson að moka snjó af ísnum og Gunnlaugur Sigmarsson bíður með ísborinn.
Ljósmyndakeppni 2022 50
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Dagný Hildur Þorgeirsdóttir og sendi inn í flokkinn "Gamalt".
2001028
Bræðurnir á myndinni eru Sigurður Guðmonsson til vinstri og Árni Guðmonsson til hægri. Báðir fluttu þeir með fjölskyldur sínar af Ströndum til Skagastrandar seint á fimmta átratugnum. Árni fórst í sjóróðri 7. nóvember 1948. Þá fór hann sem afleysingamaður fyrir son sinn á sjó með tveimur öðrum sonum sínum. Um miðja nótt í svarta myrkri hvarf hann af bátnum. Það uppgötvaðist ekki fyrr en eftir dálítinn tíma að hann var horfinn. Mikil leit var gerð að honum en hann fannst því miður aldrei.
Jónas 22
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru eftirfarandi í hlutverkum sínum: Ólafur Bernódusson til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson til hægri.
2001095
Páll Jóhannesson bæjarstarfsmaður og Magnús Ólafsson bæjarverkstjóri (fjær) niður í fjögurra metar djúpum frárennslisskurði ofan við kirkjugarðinn.
2001003
Myndin var tekin einhverntíma á níunda áratugnum þegar veriðð var að landa fullfermi úr frystitogaranum Örvari HU 21 í Skagastrandarhöfn. Maðurinn á myndinni er óþekktur.
Gréta 042
Hallbjörn J. Hjartarson (d.2.9.2022) leikur á orgel og syngur í einhverri óþekktri hljómsveit, líklega á dansleik í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Gréta 071
Jón Jónson (d.9.7.1991) í Asparlundi - Bogabraut 24. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jónas 58
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru, í hlutverkum sínum, Guðmundur Haukur Sigurðsson vinstra megin og Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) til hægri.
Ólafur Bernódusson1100
Í júní 1996 fékk áhöfnin á Örvari Hu 21 afhentan gæðaskjöld Coldwater Seafood. Skjöldinn fékk áhöfnin fyrir bestu framleiðslu og vöruvöndun um borð í frystitogara árið 1995. Á myndinni er Páll Pétursson, gæðastjóri hjá Coldwater, að tala við áhöfn Örvars og fleiri. Við hlið Páls situr Óskar Þórðarson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf sem átti og gerði Örvar út. Lengra til hægri, í dökkum jakka, situr Gylfi Guðjónsson útgerðarstjóri. Aðrir á myndinni eru karlarnir í áhöfn Örvars sem stóðu sig svona vel.
Gréta 108
Aftan á þessari mynd stendur:" Guðmundur Magnússon fyrsti íslenski prófessor við læknaskóla Íslands". Guðmundur (d.23.11.1924) hóf störf sem læknir á Sauðárkróki og síðan prófessor við læknaskólann. Þegar Háskóla Íslands var stofnaður 1911, upp úr læknaskólanum, varð hann prófessor þar. Hann varð svo rektor skólans í eitt ár 1912 - 1913 en prófessor til æviloka. Guðmundur var frá Holti á Ásum en móðir hans, Ingibjörg Guðmundsdóttir (d.21.3.1899), var frá Vindhæli.
Gréta 021
Ólafur Björnsson (d.10.10.1972) frá Syðra Hóli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Gréta 044
Myndin var tekin á hlaðinu við Laufás. Kristján Guðmundsson (d.16.4.1979) bóndi i Háagerði er um það bil að stíga á bak. Yfir lendar hestsins sést í Sigurð Guðmundsson (d.2.12.1984) smið í Laufási. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Halldór Gunnar Ólafsson 014
Um borð í Örvari Hu 21 var lítið gufubað. Þessi mynd var tekin af þremur skipsfélögum í baðinu einhverntíma á árunum 1992 eða 93. Mennirnir eru, frá vinstri: Hjalti Hólmar Indriðason (d.17.11.2020), Guðjón Árnason og Gestur Arnarson.
Gréta 113
Kári Sigurbjörn Lárusson frá Ási á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson1225
Lúðvík Kristjánsson (d.10.2.2001) bjó í áratugi í Steinholti (Skagavegi 19) með fjölskyldu sinni. Lúðvík var einstakur snyrtimaður og eftirsóttur verkmaður vegna vandvirkni og snyrtimennsku sinnar.
Gréta 081
Á myndinni er Sigurður Guðmundsson (d.2.12.1984) í Laufási til vinstri en maðurinn til hægri er óþekktur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
2001053
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin um borð í Arnari HU 1. Á henni hressa sig á smá nammi, frá vinstri: Ernst Berndsen, Gunnar Jónsson, Guðmundur Gunnlaugsson, Bjarni Ottósson og Sigurjón Ingólfsson.
Guðrún Guðbjörnsdóttir148
Myndin var tekin í Kerlingarfjöllum 9. ágúst 1996. Þá fóru nokkrir Skagstrendingar þangað í skemmtiferð á nokkrum bílum. Á myndinni eru Gunnar Helgason (d.19.10.2007) til vinstri og Baldvin Hjaltason til hægri að borða nestið sitt. Mjög hentugt að nota hlerann á bíl Gunnars fyrir matarborð.
Ingibergur Guðmundsson 508
Á myndinni eru ritnefndarmennirnir Jóhann Guðmundsson til vinstri og Stefán Jónsson (d.29.6.2009) til hægri að fara yfir prófarkir að Húnavöku. Stefán var ritsjóri Húnavökunnar í áratugi. Myndin var tekin um páska 1985.
2001086
Myndin var tekin um jól en ekki er vitað hvaða ár en það var líklega á tíunda áratugnum. Á henni eru karlar sem fóru í jeppaleiðangur í afar fallegu veðri frá Skagaströnd upp á Langavatn og þaðan að fjallabaki og komu niður Norðurárdal á Þverárfjallsveg. Rennt var fyrir silung í gegnum ís á Langavatni og í Rangártjörnum án mikils árangurs. Á myndinni eru karlarnir að bera saman bækur sínar út á Langavatni.
Ingibergur Guðmundsson 339
Bergþór Gunnarsson í hárlitun. Ekki er vitað hvenær né hvar myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 270
Myndin var tekin 7. apríl 1982 þegar Gunnar Ragnars, framkvæmdastjóri Slippstöðvarinnar á Akureyri, afhendir Sveini S. Ingólfssyni, framkvæmdastjóra Skagstrendings hf, nýsmíðina Örvar HU 21 þegar hann kom í fyrsta sinn í heimahöfn á Skagaströnd. Gunnar er til hægri á myndinni en aðrir á henni eru óþekktir.
2001100
Á myndinni er Magnús B. Jónsson tilbúinn á svið sem sýslumaðurinn í leikritinu "Síldin kemur og síldin fer". Leikritið var sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar.
2001064
Myndin var tekin um borð í Arnari HU 1 en ekki er vitað hvenær. Á henni eru Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri vinstra megin og Guðmundur Gunnlaugsson að gaumgæfa eitthvað.
Halldór Gunnar Ólafsson 010
Myndin var tekin í brúnni á Örvari Hu 21 einhverntíma á árunum 1992 eða 93. Guðjón Guðjónsson (Jonni) skipstjóri situr í stólnum en Þröstur Árnason er að grínast eitthvað í símanum á bak við hann.
2001066
Jón Hilmar Indriðason með gleraugu og Brynjar Pétursson að horfa á sjónvarpið um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001070
Myndin var tekin 1969 um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1, sem var fyrsta skip Skagstrendings hf. Á henni eru menn að slægja fisk áður en hann er ísaður í lestinni. Árni Petersen er lengst til vinstri, Ómar Jakobsson er sá með húfuna en hinir tveir eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 363
Ólafur Bernódusson mótsstjóri afhendir Guðrúnu Pálsdóttur (konu sinni) fyrstu verðlaun í kvennaflokki á fyrsta golfmóti Golfklúbbs Skagastrandar á Háagerðisvelli í september 1985.
Ingibergur Guðmundsson 370
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en fólkið í sjóferðinni er, frá vinstri: óþekkt, Lára Guðmundsdóttir og Gunnar Svanlaugsson maður hennar.
Ingibergur Guðmundsson 425
Myndin var tekin í október 1987 þegar sundlaugin á Skagaströnd var tekin aftur í gagnið eftir gagngerar endubætur á lauginni sjálfri og búningsaðstöðunni. Fremst á myndinni eru Guðmundur Sigvaldason (d.8.2.2017) til vinstri, þá nýbyrjaður sem sveitarstjóri og Sigfús Jónsson fráfarandi sveitarstjóri. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Í baksýn gnæfa gömlu olíu-og lýsistankarnir sem stóðu þarna í skjóli við Höfðann.
Gréta 040
Guðmundur Kristinn Guðnason (d.21.11.1988) frá Ægissíðu póstur og ljósmyndari.
Gréta 057
Ágiskun er að maðurinn á myndinni sé Hjörtur Hjartarson sem fórst með Skíði Hu 8 í nóvember 1961. Myndin var líklega tekin við heimili hans í Vík en ekki er vitað hvenær. Ekki eru allir sammála um að þetta sé Hjörtur þannig að ef þú veist hver þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 494
Myndin var tekin á einnota myndavél 1984 og því eru gæði hennar eftir því. Á henni eru Björn Sigurbjörnsson, þáverandi formaður USAH, standandi og Ingibergur Guðmundsson sitjandi. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir166
Sigurður Guðmonsson (d.5.8.1981) var gjarnan kenndur við heimili sitt og kallaður Siggi í Þórsmörk. Á myndinni er hann í Fellsborg að bragða á Appelsínulímonaði. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 512
Eitt af því sem skíðadeildarfólk gerði til að fjármagna byggingu skíðaskálans var að bera út jólapóstinn fyrir fólk á Skagaströnd. Á myndinni eru nokkrir þeirra að leggja af stað í útburð sem jólasveinar. Hjálparmaður þeirra, Eðvarð Hallgrímsson, ók þeim um bæinn því hreindýrin voru lasin. Jólasveinarnir eru, frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Ólafur Bernódusson, óþekktur og Guðmundur Haukur Sigurðsson.
Ingibergur Guðmundsson 503
Kristján Sveinbjörnsson Blöndal æfir sig á flygilinn í Fellsborg í pásu á æfingu á Saumastofunni í nóvember 1984. Kristján lék undir í lögunum í sýningunni.
Guðrún Guðbjörnsdóttir 119
Myndin er tekin úr sýningaskrá og þess vegna dálítið sjúskuð. Hún sýnir Sveinbjörn H. Blöndal (d.7.4.2010) við eitt af verkum sínum á forsíðu sýningarskrár vegna yfirlitssýningar á verkum hans í íþróttahúsinu á Skagaströnd 23. júlí til 14. ágúst 2011. Sveinbjörn hélt nokkrar einkasýningar og tók þátt í samsýningum bæði hérlendis og erlendis. Þrátt fyrir það sinnti hann list sinni alltaf í hjáverkum með fullri vinnu.
Gréta 003
Ögmundur Björnsson (d.9.8.1970) frá Syðra Hóli. Hann var bróðir Magnúsar Björnssonar (d.20.7.1963) fræðimanns og bónda þar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin á ljósmyndastofu Jóns J. Dahlmann í Reykjavík en Jón dó 1949 þannig að myndin er eldri en það.
Halldór Gunnar Ólafsson 009
Hafþór Smári Gylfason stýrimaður í brúardyrunum á Örvari Hu 21. Myndin var tekin 1992 eða 93.
Skagaströnd - safn538
Myndin er frá 1946-47. Á henni eru menn að leggja rafstreng í síldarverksmiðjuna sem þá var í byggingu. Strengurinn var viðkvæmur og því dreginn út af mönnunum á myndinni sem röðuðu sér á strenginn svo hann drægist ekki í jörðina og skaddaðist. Á myndinni er komið að því að leggja strenginn varlega niður í skurðinn. Mennirnir eru óþekktir, flestir starfsmenn vélsmiðjunnar Héðins hf sem sá um allan vélbúnað verksmiðjunnar. Myndin er úr bókinn: "Héðinn í 100 ár svipmyndir 1922 til 2022", en ljósmyndarinn er óþekktur.
2001074
Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi) hlúir að vélinni í bílnum sínum fyrir utan þáverandi heimili sitt að Bankastæti 9. Myndin var líklega tekin 1969.
Gréta 110
Þessi maður er óþekktur. Ef þú veist hver hann er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
2001002
Þessi mynd var tekin af Árna Ólafi Sigurðssyni skipstjóra við skipshlið á Örvar HU 21 einhverntíma á níunda áratugnum. Tilefni myndarinnar var að Árni var að koma í land eftir mettúr með fulla lest af frosnum afurðum.
Halldór Gunnar Ólafsson 007
Myndin var tekin um borð í Örvari Hu 21 1992 eða 93. Karlarnir á henni eru að beinhreinsa flök fyrir erlendan markað. Þeir eru, frá vinstri: Níels Grímsson, Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004) og Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018).
Guðrún Guðbjörnsdóttir170
Myndin var tekin í Hólaneskirkju eldri á sjómannadegi. Á sjómannadögum á Skagaströnd er hefð fyrir að kórinn sé eingöngu skipaður karlmönnum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) situr við orgelið en í fremstu röðinni eru, frá vinstri: Þorvaldur Skaftason, Björgvin Karlsson, Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011) og Gylfi Sigurðsson. Yfir lampann sér í Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og út við gluggann er Guðmundur Kr. Guðnason (d.21.11.1988). Milli þorvaldar og Björgvins sér í Árna Ólaf Sigurðsson en aftast til vinstri er Friðjón Guðmundsson (d.7.1.2001) og til hægri við hann sér í Sigurð Bjarnason (d.16.5.2022).
2001085
Helgi Gunnarssoní appelsínugulum galla og Magnús Hjaltason í bláum galla að vinna við að brjóta klöpp þegar verið var að grafa fyrir íþróttahúsinu 1996 eða 1997. Myndina tók Guðmundur Björnsson úr gröfunni sinni.
Ingibergur Guðmundsson 366
Kristján Guðmundsson (d.16.4.1979), bóndi í Háagerði, brýnir ljá á hverfisteini sumarið 1965. Kristinn Guðmundsson (d.1.2.1986) fylgist með til vinstri og Jóhannes Pálsson (d.23.11.1986) dáist að handbrögðum Kristjáns á steininum.
2001036
Myndin er af Árna Guðmonssyni sem flutti af Ströndum til Skagastrandar kringum 1946. Árni fórst í sjóróðri 7. nóvember 1948. Þá fór hann sem afleysingamaður fyrir son sinn á sjó með tveimur öðrum sonum sínum. Um miðja nótt í svarta myrkri hvarf hann af bátnum. Það uppgötvaðist ekki fyrr en eftir dálítinn tíma að hann var horfinn. Mikil leit var gerð að honum en hann fannst því miður aldrei.
Ingibergur Guðmundsson 518
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin af Guðmundi Hauk Sigurðssyni, líklega 1985.
Gréta 058
Líklega er þetta Birgir Árnason (d.2.2.2005) í Straumnesi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Til vinstri er gamla Tunnan sem nú hýsir Spákonuhofið en austan við hana eru Sólvellir. Til hægri er gamla Hólaneskirkjan og Stóra Berg.
2001071
Ómar Jakobsson dregur af koppnum á spilinu um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 sumarið 1969. Arnar var fyrsta skip Skagstrendings hf.
2001051
Risahol af karfa tekið um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en í trollinu eru tugir tonna af karfa. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
2001057
Grétar Smári Hallbjörnsson háseti um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001110
Á myndinni sem tekin var í Bergen 1992 af stjórnarmönnum í Skagstrendingi hf ásamt nokkrum starfsmönnum félagsins og fleiri. Erindið til Bergen var að fylgjast með smíðinni á frystitogaranum Arnari Hu 1, sem er í bakgrunninum. Hann var smíðaður hjá Stocznia Remontowa NAUTA S/A í Póllandi (skrokkurinn) en skipið klárað hjá Mjellem & Karlsen Verft A/S í Bergen Noregi. Hann kom fyrst til heimahafnar á Skagaströnd í desember 1992. Skipið var síðan selt 16. október 1995 til Grænlands en í maí 2019 eignaðist Þorbjörn hf í Grindavík skipið og þá fékk það nafnið Tómas Þorvaldsson GK 10. Á myndinni eru, frá vinstri: Adolf H. Berndsen, Magnús Pétursson, Magnús Sigurðsson, Guðjón Guðjónsson, óþekktur og Sveinn Ingólfsson.
Ingibergur Guðmundsson 364
Tvær efstu í kvennaflokki á fyrsta golfmóti Golfklúbbs Skagastrandar á Háagerðisvelli í september 1985. Guðrún Pálsdóttir á efsta palli og Eygló Gunnarsdóttir númer tvö. Ólafur Bernódusson mótsstjóri afhendir verðlaunin.
Guðrún Guðbjörnsdóttir156
Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf flytur ávarp við skírn Arnars HU 1. Arnar var smíðaður í Bergen fyrir fyrirtækið 1992 og kom fyrst í heimahöfn á Skagaströnd 22. desember 1992. Þá var hann stærsta fiskiskip Íslendinga. Skipið var svo selt úr landi 1995 eftir að rekstrarforsendur þess voru brostnar vegni mikils kvótaniðurskurðar.
2001060
Myndin var tekin um borð í Örvari HU 21 en ekki er vitað hvenær. Á henni eru menn að greiða úr böndunum í flottrollinu. Mennirnir eru, frá vinstri: Jóhannes Símonsen, Gunnar Jónsson, óþekktur, Bjarni Ottósson og Ingvar Þór Jónsson.
2001111
Á myndinni sem tekin var í Bergen 1992 af mönnum á vegum Skagstrendings hf. Erindið til Bergen var að fylgjast með smíðinni á frystitogaranum Arnari Hu 1. Hann var smíðaður hjá Stocznia Remontowa NAUTA S/A í Póllandi (skrokkurinn) en skipið klárað hjá Mjellem & Karlsen Verft A/S í Bergen Noregi. Hann kom fyrst til heimahafnar á Skagaströnd í desember 1992. Skipið var síðan selt 16. október 1995 til Grænlands en í maí 2019 eignaðist Þorbjörn hf í Grindavík skipið og þá fékk það nafnið Tómas Þorvaldsson GK 10. Á myndinni eru, frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Sveinn Ingólfsson, Magnús Pétursson, Guðjón Guðjónsson og Adolf H. Berndsen.
2001005
Báturinn á myndinni er Húni Hu 1 í höfn á óþekktum stað með yfirbreidda síld á dekkinu. Maðurinn á bryggjunni er Jón Hannesson og sá um borð er Jónatan Pálsson. Báðir voru þeir í áhöfn Húna.
1
…
28
29
30
31
32
Leita í myndasafninu
Leita