Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Ingibergur Guðmundsson 463
Reiptog er eitt af vinsælum atriðum á sjómannadegi. Þá reyna gjarnan með sér áhafnir tveggja skipa eða fyrirtækja. Á myndinni frá sjómannadegi 1985 er lið, sennilega af Örvari HU 21, að takast á við óþekkt lið. Mennirni við kaðalinn eru, frá vinstri: óþekktur, Ernst Berndsen?, ?? Alexandersson, Björgvin Karlsson, Rúnar Jósefsson og Guðjón Pálsson (d.14.12.1989).
2001055
Ingvar Þór Jónsson fylgist með Ernst Berndsen vélstjóra við vinnu á verkstæðinu um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Guðbjörnsdóttir144
Ekkert er vitað hvar eða hvenær þessi mynd var tekin. Á henni er Magnús B. Jónsson til vinstri og Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002) til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1241
Myndin var tekin uppi á Jörundarfelli í Vatnsdal. Þyrla frá ameríska flughernum er að lenda eftir að hafa flutt þangað endurvarpa sem björgunarsveitamenn af norðurlandi vestra komu fyrir og gengu frá. Þyrlan lenti og beið eftir mönnunum sem voru síðan fluttir niður á Blönduós aftur. Maðurinn í hægra horninu er Helgi Gunnarsson björgunarsveitamaður frá Skagaströnd.
2001017
Myndin var tekin 1965 af ungum mönnum að njóta vorblíðu og hlusta á tónlist. Strákarnir eru, frá vinstri: Ómar Þorbjörnsson Akurgerði, Guðmundur Rúnar Kristjánsson Grund, Ómar Jakobsson Grund og óþekktur (?Sigurjón Ástmarsson?).
2001061
Myndin var tekin um borð í Arnari HU 1 en ekki er vitað hvenær. Á myndinni er smá pása hjá körlunum sem nota tækifærið og fá sér smók. Á henni eru, frá vinstri: Guðmundur Finnbogason, Jón Indriðason og Gunnar Jónsson.
Ingibergur Guðmundsson 547
Ingibergur Guðmundsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni er Ingibergur líklega staddur einhversstaðar á Hornströndum.
2001022
Myndin var tekin um borð í Auðbjörgu Hu 6 sumarið 1968. Auðbjörg var þá á færum og á myndinni eru þrír hásetar að gantast eitthvað. Frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson, Stefán Jósefsson og Kristófer Árnason.
Ólafur Bernódusson1194
Myndin var tekin seint í desember 2007. Á henni bendir Árni Ólafur Sigurðsson, skipstjóri á Arnari HU 1, á hluta af lunningu sem kom upp í trollinu út af Þistilfirði. Klussið á myndinni er óvenjulegt svo þegar myndin birtist í Morgunblaðinu kannaðist Halldór B. Nellett, yfirmaður hjá Landhelgisgæslunni, strax við hvaðan lunningarbúturinn var kominn. Í viðtali við Morgunblaðið sagði Halldór m.a.: "Ég var uppvaskari og messagutti hjá Guðmundi Kjærnested skipherra um borð í varðskipinu Ægi,“ sagði Halldór. „Ég var nýbyrjaður til sjós og mátulega sjóveikur. Við vorum að reyna klippingu á Þistilfjarðargrunninu eða þar nálægt þegar breski togarinn Aldershot keyrði á stjórnborðssíðuna hjá okkur og hreinsaði alla lunninguna af.“ Þetta, sem Halldór lýsir, gerðist að morgni 18. október 1972 í miðju þorskastríði vegna útfærslu landhelginnar í 50 mílur. Lunningin hafði því legið í 35 ár í sjónum þegar Arnar dró það af hafsbotninum. (heimild: Morgunblaðið 4.janúar 2008)
2001126
Magnús B. Jónsson í hlutverki sínu sem sýslumaðurinn í leikritinu Síldin kemur og síldin fer. Leikklúbbur Skagastrandar setti verkið upp leikárið 1986 - 1987 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar við miklar vinsældir.
2001101
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Á henni eru menn að leggja af stað í róðraræfingu fyrir sjómannadag. Á bryggjunni stendur Indriði Hauksson í ljósum buxum. Þráinn Bessi Gunnarsson er um borð í bátnum, Sindri P. Bjarnason, Gunnar Þór Halldórsson, Rúnar Jósefsson og óþekktur standa á flotbryggjunni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1532
Skúli Tómas Hjartarson fylgist með Guðjóni Árnasyni spila biljarð í Skátabragganum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var einhverntíma kringum 1990.
Ingibergur Guðmundsson 538
Kristinn Guðmundsson til vinstri afhendir Milan Djurica blómvönd í Fellsborg. Tilefnið er óþekkt og ekki er heldur vitað hvenær myndin var tekin.
2001076
Eikarbáturinn Ásdís HU 10 var fyrsti báturinn sem smíðaður var í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. Á myndinni er verið að Sjósetja hana árið 1971. Mennirnir á myndinni eru Björn Sigurðsson til vinstri og Ólafur Guðmundsson skipasmiður til hægri. Krakkahópur fylgist með þessum merkis atburði í sögu Skagastrandar.
2001506
Guðni Sveinsson (d.15.11.1971) frá Ægissíðu tekur þátt í Norrænu skíðagöngukeppninni 1964. Keppnin fór fram um öll Norðurlöndin og átti fólk að ganga á skíðum ákveðna útmælda vegalengd eins oft og það kaus. Haldin var skrá yfir hverjir gengu og hve oft. Síðan var vegalengdin lögð saman þ.e. hvað fólk hverrar þjóðar gekk langt samtals og síðan var fundið út hvaða land hafði sigrað miðað við höfðatölu. Þátttakendur fengu síðan afhent barmmerki gull, silfur og brons að uppfylltum ákveðnum fjölda ferða. Guðni tók þátt í keppninni fram á gamals aldur og hafði gaman af. Hjá Guðna stendur Jón Jónsson í Asparlundi (Bogabraut 24).
2001083
Á myndinni er verið að vinna við vatnsveituna í Hrafndal. Rolf Árnason stendur við tunnurnar en baksvipinn á Karl Guðmundsson. Líklega var myndin tekin á tíunda áratugnum.
JPG
Ragnar S. Ingvarsson - safn 94
Kristín Jónsdóttir og Guðjón Pálsson (Dúi) (d.14.12.1989) á góðri stundu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
1
…
28
29
30
31
32
Leita í myndasafninu
Leita