Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Axel Jóhann Hallgrímsson 102
Myndin var tekin af Jóni Helgasyni og Fanney Zophoníasdóttur í London í desember 1985. Þá voru starfsmenn Skagstrendings hf á ferð í borginni.
Axel Jóhann Hallgrímsson 76
Óli Albertsson bóndi og löndunarmaður á sviðinu í Fellsborg á árshátíð Skagstrendings hf haustið 1986.
Vaktafélagar
Vaktfélagar um borð í Arnari HU 1 30. júlí 2004. Frá vinstri: Vilhjálmur Jónsson, Tryggvi Hlynsson, Guðni Már Lýðsson, Kristján Karlsson, Jónas Þorvaldsson, Hermann Guðjónsson, Guðlaugur Hjaltason og Grétar Smári Hallbjörnsson.
Rúnar Jósefsson
Rúnar Jósefsson um borð í Arnari HU 1, 18. maí 2013.
Axel Jóhann Hallgrímsson 113
Einar Guðmundsson um borð í Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Axel Jóhann Hallgrímsson 29
Verðlaun afhent fyrir sigur í kappróðri karla á sjómannadegi 2007. Steindór Haraldsson, í gráum jakkafötum, kynnir dagsins afhendir verðlaunapeningana. Mennirnir í sigursveitinni eru frá vinstri: Björn Sigurðsson, Arnar Ólafur Viggósson, Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson, Guðmundur Henry Stefánsson, Jón Örn Stefánsson og Finnur Kristinsson sem er á bak við Steindór.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 521
Þessir þrír menn eru hluti af kirkjukór Hólaneskirkju. Ekki er vitað við hvaða tækifæri myndin var tekin en það var 9. mars 2014. Mennirnir eru frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Trostan Agnarsson og Gylfi Sigurðsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 519
Vinirnir Árni Geir Ingvarsson til vinstri og Jóhannes Sveinsson til hægri tilbúnir fyrir þátttöku í Reykjavíkur maraþoni 23. ágúst 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 12
Myndin var líklega tekin á sjómannadegi 1968. Sjóorrustleikur er í gangi á höfninni. Leikurinn fólst í því að tveir ræðarar reru skektum með einum bardagamanni hvor um borð. Síðan áttu bardagamennirnir að reyna að hrinda hvor öðrum í sjóinn með löngum stöngum. Það hlítur að hafa verið kalt að fara í sjóinn því þetta var hafísár eins og sjá má á ísmolanum sem er í baksýn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 547
Magnús Pálsson myndlistamaður útskýrir verk sitt Sólúr fyrir gestum á Hnappstaðatúni 20. september 2014. Eftir að hafa útskýrt hugmyndina á bak við verkið afhjúpaði hann nafnskjöld á verkinu.
Axel Jóhann Hallgrímsson 68
Hafþór Gylfason til vinstri og Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002) til hægri á árshátíð Skagstrendings hf haustið 1983 í Fellsborg.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 490
Á myndinni reisa þeir Halldór Gunnar Ólafsson til vinstri og Geir Arnarson til hægri, fánastangir fyrir utan rannsóknarstofu BioPol af þekktu tilefni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Fisk Seafood - safn 254
Gylfi Sigurðsson í kynnisferð með starfsfólki Rækjuvinnslunnar hf í hausaþurrkun á Laugum og í Norðanfisk á Húsavík. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 2000.
Fisk Seafood - safn 253
Guðmundur Reynir Kristinsson í skoðunarferð í hausaþurrkun á Laugum ásamt starfsfélögum sínum úr Rækjuvinnslunni hf. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 2000.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 644
Þessi mynd var tekin í Spákonuhofinu á Skagaströnd 3. desember 2014. Á henni eru spákonurnar tvær, Dagný Sigmarsdóttir til vinstri og Sigrún Lárusdóttir til hægri. Hjá þeim situr velunnari hofsins, Lárus Ægir Guðmundsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 692
Félagarnir Slavko Velemir til vinstri og Árni Geir Ingvarsson til hægri í ljósmyndaleiðangri 27. júlí 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 528
Helgi Gunnarsson vara slökkviliðsstjóri á æfingu liðsins 9. september 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 697
Sigurjón Ástmarsson í áhaldahúsi hreppsins 8. september 2005.
Axel Jóhann Hallgrímsson 79
Myndin var tekin á árshátíð Skagstrendings hf í Fellsborg líklega haustið 1986. Guðjón Pálsson (d.14.12.1989) er vinstra megin en Gylfi Guðjónsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 545
Myndin var tekin 20. september 2014 utan við veitingahúsið Borgin á Skagaströnd. Í húsinu var áður veitingastaðurinn Kántrýbær og Útvarp Kántrýbær. Mennirnir eru bræður en lengst til hægri er Þórarinn Brynjar Ingvarsson sem átti og rak Borgina. Hinir bræðurnir, sem voru að hjálpa Þórarni við ýmsar breytingar á húsæðinu, eru frá vinstri: Rúnar Ingvarsson, Ragnar Smári Ingvarsson og Árni Geir Ingvarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 635
Vinnufélagarnir Einar Gunnarsson til vinstri og Hrólfur Pétursson til hægri fyrir utan trésmíðaverkstæði Helga Gunnarssonar 6. júní 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 116
Eitthvað óvenjulegt í gangi um borð í Örvari HU 21 því bæði skipstjórinn, Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d. 16.7.2017) í blárri peysu og fyrsti stýrimaðurinn Árni Ólafur Sigurðsson, hjálmlaus í köflóttri peysu, eru komnir á dekkið. Eiður Hilmarsson er í rauðri úlpu en aðrir á myndinni eru óþekktir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 609
Jakob Guðmundsson smiður og bóndi á Árbakka aðstoðar Sigurð Jónsson við þakviðgerðir á húsi Sigurðar að Fjallsminni. Sigurður er til vinstri á myndinni, sem var tekin haustið 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 543
Í mars 2014 fór starfsfólk Vinnumálastofnunar til Glasgow í Skotlandi í vinnu- og árshátíðarferð. Starfsfólk greiðslustofunnar á Skagaströnd fór að sjálfsögðu með í ferðina, margir með mökum sínum. Á myndinni, sem tekin var í Glasgow, eru hjónin Eygló Amelía Valdimarsdóttir og Ingvar Gígjar Sigurðsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 480
Stefán Jósefsson undirbýr sig fyir að skera hákarl á bryggjunni á Skagaströnd. Vilhjálmur Skaftason er á krananum. Ekki er við hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 492
Lárus Ægir Guðmundsson veislustjóri á þorrablóti í Fellsborg að fara með gamanmál. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 482
Karl Guðmundsson (d.11.12.2011) við kaffiborðið á áhaldahúsinu en Karl var um árabil starfsmaður sveitarfálagsins. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Hallbjörn Freyr Ómarsson
Hallbjörn Freyr Ómarsson um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 539
Í mars 2014 fór starfsfólk Vinnumálastofnunar til Glasgow í Skotlandi í vinnu- og árshátíðarferð. Starfsfólk greiðslustofunnar á Skagaströnd fór að sjálfsögðu með í ferðina, margir með mökum sínum. Á myndinni, sem tekin var á hóteli í Glasgow, eru frá vinstri: Ingvar Gígjar Sigurðsson og svo hjónin Runólfur Bjarni Gautason og Kolbrún Ósk Eðvarðsdóttir.
Jóhannes Heiðmar Indriðason
Jóhannes Heiðmar Indriðason að störfum um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 496
Magnús B. Jónsson í hlutverki Lárusar Ægis Guðmundssonar til vinstri og Halldór Gunnar Ólafsson í hlutverki Kristjáns Jóhannssonar tenórs til hægri á þorrablóti í febrúar 2014 í Fellsborg.
Axel Jóhann Hallgrímsson 77
Myndin var tekin á árshátíð Skagstrendings hf í Fellsborg haustið 1986. Frá vinstri: Sigurbjörn Björgvinsson matsveinn, Björgvin Karlsson vélstjóri, Páll Jónsson háseti og Karl Berndsen (d.12.2.1995) stjórnarformaður.
Elvar Freyr Aðalsteinsson
Elvar Freyr Aðalsteinsson býr sig undir að fara frá borði í Arnari HU 1 á gúmmítuðru í júní 2013.
Jón Örn Stefánsson
Jón Örn Stefánssson um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2
Feðgarnir Halldór Gunnar Ólafsson til vinstri og Ólafur Bernódusson til hægri leika í einhverju atriði á þorrablóti í Fellsborg í febrúar 2014.
Guðmundur Þorkelsson
Við þessa mynd stendur að þetta sé Guðmundur Þorkelsson. Líklega er þetta Guðmundur bóndi á Miðgili og víðar í A. - Hún 4.5.1846 - 27.12.1919.
Gunnar Þröstur Ásgeirsson
Gunnar Þröstur Ásgeirsson um borð í Arnari HU 1 í maí 2013.
Fisk Seafood - safn 248
Gylfi Sigurðsson á ferðalagi með starfsfólki Rækjuvinnslunnar hf í heimsókn í hausaþurrkun á Laugum og í Norðanfisk á Húsavík. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 2000.
Axel Jóhann Hallgrímsson 9
Myndin var tekin á sjómannadegi, líklega 1968. Hún sýnir skemmtiatriði sem fólst í því að ræðari og bardagamaður reru út á höfnina og síðan reyndu bardagamennirnir, klæddir björgunarvestum, að hrinda hvor öðrum í sjóinn með löngum stöngum. Sá sigraði að sjálfsögðu sem gat komið hinum í sjóinn. Ef grannt er skoðað má sjá að þetta hefur verið hafísár því það grillir í ísinn lengst til vinstri á myndinni. Mennirnir á bátunum eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 658
Viggó Brynjólfsson spjallar við vin sinn Gunnar Albertsson (d.17.7.2019) þar sem hann er að dytta að bátnum sínum í blíðunni þennan dag.
Fisk Seafood - safn 243
Guðmundur Reynir Kristinsson í ferð með starfsmönnum Rækjuvinnslunnar hf þegar þeir heimsóttu hausaþurrkun að Laugum og einnig Norðanfisk á Húsavík. Ekki er vitað hvenær Myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 2000.
Axel Jóhann Hallgrímsson 27
Hjalti Hólmar Indriðason fær sér bjórglas á veröndinni við Kántrýbæ sumarið 2007.
Axel Jóhann Hallgrímsson 72
Guðmundur Haukur Sigurðsson les upp á árshátíð Skagastrendings hf í Fellsborg haustið 1986.
Axel Jóhann Hallgrímsson 25
Magnús B. Jónsson, þáverandi sveitarstjóri á Skagaströnd, á sjómannadegi 2007.
Axel Jóhann Hallgrímsson 105
Myndin var tekin borð í Örvari HU 21 einhverntíma kringum 1990. Á henni eru Jón Gunnar Jósefsson lengst til vinstri, Sævar Hallgrímsson í hvítu og óþekktur (?Sigurbjörn Björgvinsson?) til hægri.
Axel Jóhann Hallgrímsson 49
Vinirnir Axel Jóhann Hallgrímsson (d. 25.2.2018) og Björk Sveinsdóttir í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð í ágúst 2009. Aftan við þau sér í Merete Rabölle.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 570
Páll Jóhannesson um borð í bátnum sínum í höfninni á Skagaströnd í byrjun október 2014. Maðurinn um borð í Sveinbjörgu Hu 49 er óþekktur.
Axel Jóhann Hallgrímsson 93
Sumarið 1979 fóru starfsmenn Skagstrendings hf saman í ferðalag til að skoða Mývatn og umhverfi þess. Á myndinni eru Ólafur Ingibjörnsson til vinstri og Vilhelm Þórarinsson til hægri í nestispásu í ferðinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 499
Magnús B. Jónsson til vinstri og Guðni Már Lýðson til hægri leika á þorrablóti í Fellsborg í febrúar 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 109
Myndin var tekin um borð í Örvari HU 21 en ekki er vitað hvenær. Greinilegt er að einhver snúningur er á trollinu enda er skipstjórinn Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017) kominn á dekkið, í ljósri peysu, til að segja til um lausn vandans. Maðurinn í dökku úlpunni er Ragnar Högnason og lengst til vinstri er Hjörtur Guðbjartsson. Maðurinn til hægri er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari414
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Á henni er maður að vinna á Caterpillar jarðýtu við hafnargerðina á Skagaströnd. Hugsanlega er verið að vinna við byggingu Skúffugarðsins en það var kringum 1948. Maðurinn á ýtunni er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Axel Jóhann Hallgrímsson 52
Félagarnir Björn Hallbjörnsson til vinstri og Jóhannes Sveinsson til hægri fylgjast með dorgveiðikeppni á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 580
Þrír Skagstrendingar á spjalli utan við sjoppuna 14. maí 2014. Frá vinstri: Adolf H. Berndsen, Steindór R. Haraldsson og Vilhelm Björn Harðarson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 489
Myndin var tekin á árlegu þorrablóti heimilisfólks á Sæborg og gesta þeirra. Eiríkur Lýðsson er til vinstri en Sigurjón Ástmarsson til hægri. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari411
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Á henni er maður að vinna við grjótnám í Höfðanum. Bak við manninn sér í Caterpillar jarðýtu sem notuð var við verkið. Maðurinn er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Myndin var líklega tekin kringum 1940.
Axel Jóhann Hallgrímsson 111
Myndin var tekin um borð í Örvari HU 21 en ekki er vitað hvenær. Á henni eru frá vinstri: Rögnvaldur Ottósson, Axel Gígjar Ásgeirsson, Siglfirðingurinn Hilmar J. Stefánsson og Ragnar Högnason. Þeir eru allir með guðlax í fanginu. Guðlax er mjög sérkennilegur fiskur sem þykir herramanns matur. Hann er mjög feitur fiskur með mildu bragði og getur orðið mjög stór, allt að 185 cm og 70 kg. Hann er sjaldgæfur flækingur á Íslandsmiðum og þykir mjög fallegur. Það sérkennilegasta við hann er þó það að hann er eini fiskurinn sem vitað er um að er með heitt blóð. (Heimild: Wikipedia). Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Axel Jóhann Hallgrímsson 67
Guðjón Pálsson (d.14.12.1989) á árshátíð Skagstrendings hf í Fellsborg haustið 1983.
Axel Jóhann Hallgrímsson 1
Í október 1967 björguðu strákarnir á myndinni fjórum börnum frá drukknun af heimasmíðuðum fleka sem þau voru á. Börnin fjögur voru öll komin í sjóinn þegar þeir komu til þeirra á bát og náðu þeim um borð. Þá voru þrjú barnanna orðin meðvitundarlaus en þau voru öll lífguð við þegar í land var komið og náðu sér að fullu. Strákarnir tveir, Rúnar Kristjánsson til vinstri og Frits Bjarnason til hægri voru síðan heiðraðir á sjómannadeginum 1968 fyrir þetta afrek sitt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 595
Vinirnir Viggó Brynjólfsson jarðýtu-goðsögn til vinstri og Árni Ólafur Sigurðsson togaraskipstjóri til hægri 4. nóvember 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 669
Jakob Guðmundsson bóndi og húsasmiður á Árbakka til vinstri og Björn Hallbjörnsson rafvirki til hægri spjalla saman á jóladag 2014. Ekki er vitað hvar myndin var tekin.
1
2
3
4
5
…
32
Leita í myndasafninu
Leita