Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 610
Skipstjórarnir og skólabræðurnir Árni Ólafur Sigurðsson til vinstri og Stefán Jósefsson til hægri spjalla saman á sjómannadegi 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 104
Menn fá sér að borða á vaktaskiptum um borð í Örvari HU 21. Frá vinstri: óþekktur, Guðjón Pálsson (d.14.12.1989) og Sigurbjörn Björgvinsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 529
Sigurður Björnsson dælumaður í slökkviliði Skagastrandar á sínum stað við dæluna á slökkvibílnum á æfingu 9. september 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 628
Hjónin Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015) og Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) fá sér kaffi á árlegum jólamarkaði kvenfélagsins Heklu í Skagabúð 30. nóvember 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 118
Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017) skipstjóri talar í talstöðina í brúnni á Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 523
Mikið og gott samstarf er milli Höfðaskóla og Tónlistarskóla Austur Húnavatnssýslu. Á myndinni, sem var tekin 29. ágúst 2014 fyrir utan Höfðaskóla, eru frá vinstri: Guðjón Sigurðsson aðstoðarskólastjóri Höfðaskóla, Kristinn Kristjánsson húsvörður Höfðaskóla og Skarphéðinn Einarsson skólastjóri Tónlistarskólans.
Axel Jóhann Hallgrímsson 82
Myndin var tekin í sjómannadagshófi en ekki er vitað hvaða ár það var. Á henni eru Rúnar Jósefsson og Selma Þórarinsdóttir (d.14.9.1990) í Fellsborg.
Axel Jóhann Hallgrímsson 103
Ragnar Högnason í spilhúsinu á Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1990.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 649
Myndin var tekin 10. ágúst 2014 þegar opnuð var sýning á járnlistaverkum Erlendar Magnússonar í hólunum framan við stjórnsýsluhúsið. Á myndinni er Erlendur til vinstri að hlusta á dóttur sína, Ágústu Evu leik- og söngkonu, lesa ljóð. Bak við Erlend er Adolf H. Berndsen þáverandi oddviti sveitastjórnar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 616
Myndin var tekin 22. nóvember 2014. Á henni eru að smíða, frá vinstri: Páll Halldórsson, Ólafur Bernódusson og Halldór Gunnar Ólafsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 723
Hjónin Þorvaldur Skaftason og Erna Sigurbjörnsdóttir skemmta með söng á þorrablóti á hjúkrunarheimilinu Sæborg 24. janúar 2015.
Axel Jóhann Hallgrímsson 41
Starfsmenn og stjórn Skagstrendings hf fóru saman til Austurríkis og Þýskalands sumarið 1987. Á þessari mynd, sem tekin var í ferðalaginu, eru hjónin Þórarinn Grétarsson og Guðbjörg Kristinsdóttir.
Ólafur Bernódusson 759
Feðgarnir Viggó Brynjólfsson og Fannar Viggósson spila fyrir dansi á barnaballi í Fellsborg 29. desember 2005. Viggó á harmóniku og Fannar á 12 strengja gítar.
Axel Jóhann Hallgrímsson 119
Árni Geir Ingvarsson um borð í Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Axel Jóhann Hallgrímsson 28
Jóhannes Heiðmar Indriðason fær sér bjórglas í Kántrýbæ sumarið 2007.
Axel Jóhann Hallgrímsson 80
Þorsteinn Jakobsson spilar á harmóniku og Jón Helgason á gítar á árshátíð Skagstrendings hf í Fellsborg líklega haustið 1986.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 511
Löndun á bryggjunni á Skagaströnd í febrúar 2014. Frá vinstri: Alex Már Gunnarsson starfsmaður fiskmarkaðarins, Vihjálmur Jónsson sjómaður, Steinn Rögnvaldsson útgerðarmaður og Haraldur Árnason starfsmaður fiskmarkaðarins.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 678
Arnar Ólafur Viggósson á leið að sinna áhugamáli sínu, ljósmyndun 20. júní 2014. Addi hefur gott auga fyrir myndefnum og tekur fallegar ljósmyndir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 58
Hallbjörn Björnsson rafverktaki á hryssingslegum vinnudegi í september 2009.
Axel Jóhann Hallgrímsson 17
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af Helgu Björg HU 7 í höfninni á Skagaströnd. Það hefur þó verið einhverntíma á árabilinu 1965 - 1971 meðan Útgerðarfélag Höfðakaupstaðar hf átti bátinn. Á þessum tíma voru bátar á Skagaströnd merktir Höfðakaupstað eins og staðurinn hét ennþá þegar myndin var tekin. Til hægri á myndinni grillir í síldarlöndunarkranann sem tilheyrði síldarverksmiðjunni. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Hressir karlar
Hressir karlar um borð í Arnari HU 1. Frá vinstri: Tryggvi Hlynsson, Hafsteinn Auðunn Björnsson, og Róbert Freyr Gunnarsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn475
Jón Ólafur Sigurjónsson sat í hreppsnefnd Sveitarfélagsins Skagaströnd 2010 - 2014. Myndin var líklega tekin 2014.
Ólafur Bernódusson 754
Myndin var tekin 1. nóvember 2013 af Árna Steinari Jóhannssyni (d.1.11.2015) stjórnarformanni RARIK að ræsa hitaveituna á Skagaströnd í fyrsta sinn í stjórn-og dæluhúsinu við Sólarveg.
Gunnar Helgason
Gunnar Helgason um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 86
Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri á Arnari HU 1 út á brúarvængnum að kíkja á borgarísjaka sem er á reki stutt frá.
Arnar HU 1 - safn 114
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af Þresti Árnasyni um borð í Arnari Hu 1.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 673
Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) í jólastund á hjúkrunarheimilinu Sæborg 29. desember 2014. Þá var Guðmundur heimilismaður þar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 491
Forsöngvarar á þorrablóti í Fellsborg. Frá vinstri: Trostan Agnarsson, Árni Ólafur Sigurðsson, Þorvaldur Skaftason, Gylfi Sigurðsson og Sigurjón Guðbjartsson. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 79
Hjónin Elvar Freyr Aðalsteinsson og María Jóna Gunnarsdóttir í grillveislu áhafnar Arnars HU 1 í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 701
Adolf H. Berndsen prófar nýja sláttuvél Golfklúbbs Skagastrandar 9. júní 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 607
Hjónin Gylfi Sigurðsson og Guðrún Guðbjörnsdóttir við kirkjuna á sjómannadegi 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 3
Björgvin Brynjosson (d.28.2.2007) tekur þátt í tunnuboðhlaupi á sjómannadegi einhverntíma á sjöunda áratugnum. Í tunnunni verður hann að sprengja blöðru með því að blása í hana. Strákurinn í peysunni með gleraugu er Jón Hallur Pétursson og til hægri við hann er Guðrún Sigurðardóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 122
Gunnar Jón Jónsson um borð í Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega var það kringum 1990.
Axel Jóhann Hallgrímsson 120
Ásgeir Blöndal um borð í Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndi var tekin en líklega var það einhverntíma kringum 1990.
Axel Jóhann Hallgrímsson 63
Ragnar Högnason til hægri spjallar við óþekktan mann á Kántrýhátíð í ágúst 2009. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Axel Jóhann Hallgrímsson 95
Sumarið 1979 fóru starfsmenn Skagstrendings hf í ferðalag til að skoða Mývatn og umhverfi þess. Þessi mynd var tekin í rútunni á leiðinni og fremst á henni eru hjónin Gylfi Sigurðsson og Guðrún Guðbjörnsdóttir. Í næstu sætaröð fyrir aftan þau er Hlíf Sigurðardóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 695
Adolf H. Berndsen nýtur þess að vera afi og aka barnabarni sínu í vagni 13. júlí 2014 um götur Skagastrandar.
Axel Jóhann Hallgrímsson 124
Slysaæfing um borð í Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega var það kringum 1990. Fremst á börunum er Rögnvaldur Ottósson. Við aftari endann er Rúnar Jósefsson en rauðhærði maðurinn er Ragnar Högnason. Jón Helgason mundar myndavélina aftast en maðurinn með bláu húfuna er Eiður Hilmarsson. Lengst til hægri er Björgvin Karlsson. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 551
Ernst Guðni Hólgeirsson í apríl 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 685
Hjalti Hólmar Indriðason fylgist með hátíðahöldum vegna opnunar göngubrúar yfir Hrafná 23. júní 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 61
Þorvaldur Skaftason í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 579
Jakob Guðmundsson bóndi á Árbakka og Magnús B. Jónsson þáverandi sveitarstjóri á Skagaströnd spjalla saman og dytta að girðingum um miðjan maí 2014.
Jónas Fanndal Þorvaldsson
Jónas Fanndal Þorvaldsson um borð í Arnari HU 1 18. maí 2013.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 625
Stefán Hólm (d.22.7.2018) til vinstri ræðir við Björn Sigurbjörnsson á árlegum jólamarkaði kvenfélagsins Heklu í Skagabúð 30. nóvember 2014.
Ólafur Bernódusson 802
Nokkrir sjómenn á bryggjunni að fylgjast með þegar Húnabjörg kom með bilaðan bát í drætti til hafnar 10. febrúar 2007. Frá vinstri: Sigurjón Guðbjartsson, Lýður Hallbertsson, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson og Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018).
Skagaströnd - safn474
Magnús B. Jónsson var sveitastjórnarmaður á Skagaströnd í áratugi. Fyrst sem kjörinn fulltrúi í hreppsnefnd og var síðan í allmörg ár ráðinn sem sveitarstjóri. Magnús lét af störfum 2018 en myndin var líklega tekin 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 71
Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf á árshátíð félagsins í Fellsborg haustið 1983.
Jón Örn Stefánsson
Jón Örn Stefánsson tilbúinn að fara frá borði í Arnari HU 1 á gúmmítuðrunni í júní 2013.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 623
Skarphéðinn Einarsson skólastjóri Tónlistarskóla Austur Húnavatnssýslu 25. nóvember 2014 á einhverri tónlistaræfingu í Hólaneskirkju.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 486
Ari Jón Þórsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 541
Í mars 2014 fór starfsfólk Vinnumálastofnunar til Glasgow í Skotlandi í vinnu- og árshátíðarferð. Starfsfólk greiðslustofunnar á Skagaströnd fór að sjálfsögðu með í ferðina, margir með mökum sínum. Á myndinni, sem tekin var á hóteli í Glasgow, eru hjónin Árný Sesselja Gísladóttir og Óskar Ársælsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 680
Myndin var tekin þegar göngubrú var opnuð yfir Hrafnána 23. júní 2014. Á myndinni lýsir Adolf H. Berndsen oddviti á Skagaströnd smíði brúarinnar. Eftir tölu Adolfs opnaði Jakob Guðmundsson, til hægri, brúna formlega með því að klippa á bandið sem lokar henni. Jakob er eigandi landsins sunnan við brúna sem bóndi á Árbakka. Brúin tengir saman sveitarfélögin Skagaströnd og Skagabyggð og er vinsæl meðal göngufólks.
Ólafur Bernódusson 793
Sigurður Siguarson um borð í báti á siglingu undir Hornbjargi 23. júlí 2010 á leið úr Hornvík inn í Reykjarfjörð nyrðri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 550
Kristján Karlsson til vinstri og Stefán Þór Árnason til hægri á spjalli 1. apríl 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 640
Báturinn Helga Guðrún Hu 30 er líklega elsti báturinn á Skagaströnd. Hann var smíðaður af Nóa bátasmið á Akureyri 1955 fyrir Ernst Berndsen (d.21.8.1983). Vél bátsina er af Sabb gerð. Eigendur bátsins í dag eru sonarsynir Ernst: Adolf H. Berndsen, Hendrik Berndsen og Ernst Berndsen. Þeir hafa gert vel við Helguna og haldið henni við. Þessi mynd var tekin 31. maí 2014 eftir gagngert viðhald sem Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) skipasmiður sá um. Í reynslusiglingunni á myndinni er Fritz Hendrik Berndsen við stýrið, Ólafur Guðmundsson er miðskips og fremst er Ernst Berndsen.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 634
Kátir félagar á árlegum Jólamarkaði kvenfélagsins Heklu í Skagabúð 30. nóvember 2014. frá vinstri: Árni Geir Ingvarsson, Sigurður Bjarnason og Halldór Gunnar Ólafsson.
Axel Jóhann Hallgrímsson 57
Árni Geir Ingvarsson til vinstri og Fannar Viggósson til hægri á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 558
Ólafur Bernódusson vinstra megin og Finnur Kristinsson til hægri spjalla í heimkeyrslunni við heimili Ólafs 3. apríl 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 48
Hans Birgir Högnason glaðbeittur á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
Axel Jóhann Hallgrímsson 115
Sævar Hallgrímsson fylgist með hífingu úr spilhúsinu á Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
1
…
5
6
7
…
32
Leita í myndasafninu
Leita