Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 660
Jóhann Hafsteinsson starfsmaður Greiðslustofu Vinnumálastofnunar á Skagaströnd í vorfagnaði starfsfólks í veiðihúsinu á Laxárdal 13. júní 2014.
Ólafur Bernódusson 832
Bankastjórar Gleðibankans, Sigurður Sigurðarson til vinstri og Ingibergur Guðmundsson til hægri, á stofnfundi bankans í Bjarmanesi 10. desember 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 583
Sigurjón Guðbjartsson útgerðarmaður stígur upp á bryggju úr bát sínum, Alda Hu 121, komandi úr línuróðri um miðjan október 2014.
Ólafur Bernódusson 739
Myndin var tekin í Reykjarfirði nyrðri 23. júní 2012 af feðgunum Ólafi Bernódussyni til vinstri og Halldóri Gunnari Ólafssyni til hægri. Á myndinni eru þeir tilbúnir að ganga Geirólfsnúp ásamt fleira fólki.
larus004
Myndin var tekin 1981 í Hólaneskirkju eldri þegar séra Oddur Einarsson til vinstri, tók við embætti sóknarprests af séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) sem er til vinstri. Séra Pétur þjónaði sókninni í 40 ár.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 796
Sigurður Skagfjörð Bjarnason glaðbeittur á hjóli í ágúst 2006.
Ólafur Bernódusson 768
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin á höfninni á Skagaströnd. Nær okkur í bílnum er Búi Birgisson (d.18.9.2009) en undir stýri er Árni Geir Ingvarsson.
larus011
Myndin var tekin 6. október 1991 í Hólaneskirkju eldri af starfsmönnum þar. Frá vinstri: Kristján Hjartarson (d.2..2003) formaður kirkjukórsins og fyrrverandi organisti, séra Egill Hallgrímsson, Steindór Haraldsson meðhjálpari og Julian Hewlett organisti og kórstjóri.
Axel Jóhann Hallgrímsson 54
Hafsteinn Pálsson til vinstri og Hafþór Gylfason til hægri mála Hafrúnu HU 12 í dráttarbrautinni í ágúst 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 617
Bræðurnir Egill Bjarki Gunnarsson og Þráinn Bessi Gunnarsson á sjómannadegi 2014. Bessi heldur á syni sínum Bjarna Braga.
Arnar HU 1 - safn 137
Björn Sigmundsson vélstjóri á Arnari HU 1 á verkstæðinu um borð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Axel Jóhann Hallgrímsson 32
Lýður Hallbertsson á sjómannadaginn 2008. Maðurinn aftan við Lýð er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 260
Hluti starfsmanna Rækjuvinnslunnar hf á óþekktum matsölustað í kynnisferð í hausaþurrkun á Laugum og Norðanfisk á Húsavík. Mennirnir eru frá vinstri: Baldvin Hjaltason, Jón Heiðar Jónsson, Halldór Gunnar Ólafsson, og Magnús Guðmannsson. Standandi í baksýn er Gylfi Sigurðsson og Guðmundur Reynir Kristinsson situr í hvarfi við Magnús. Myndin var líklega tekin kringum 2000.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 761
Myndin var tekin 30. mars 2007 á skóla-íþróttamóti í íþróttahúsinu á Skagaströnd. Maðurinn til vinstri er óþekktur en skeggjaði maðurinn er íþróttakennarinn á Húnavöllum Milan Durica. Áður en hann gerðist kennari á Húnavöllum kenndi hann við Höfðaskóla í nokkur ár.
Ólafur Bernódusson 796
Myndin var tekin í Reykjarfirði nyrðri 24. júlí 2010. Á henni spjallar Steindór Haraldsson til hægri við þjóðsagnapersónuna Ragnar Jakobsson (d.15. 10.2015) í Reykjarfirði til vinstri. Ragnar vann meðal annars sér til frægðar að klífa ókleift Hornbjargið, einn og á gúmmístígvélum. Hann sagðist reyndar hafa verið með snærisspotta í vasanum og eftir að hann lagði af stað upp bjargið hafi hann orðið að klára sig upp því leiðin niður aftur var ófær. Ragnar rak ferðaþjónustu í Reykjarfirði með fjölskyldu sinni á sumrin eftir að hann hætti búskap þar og flutti til Bolungarvíkur. Hann var snjall bátasmiður, refaskytta með afbrigðum en var lítið fyrir að sitja fyrir á myndum eða láta hampa sér á annan hátt.
Arnar HU 1 - safn 133
Guðmundur Henry Stefánsson með unga dóttur sína, Sigríði Kristínu, í fanginu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það 2012.
Arnar HU 1 - safn 91
Bæring Skarphéðinsson glaðbeittur á óþekktum bar. Stúlkan á myndinni er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 819
Hallbjörn Björnsson rafvirkjameistari við störf uppi í mastri á einhverjum bát 28. júlí 2007.
Ómar Ingi Ómarsson
Ómar Ingi Ómarsson um borð í Arnari HU 1, 18. maí 2013.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 682
Vilhjálmur Skaftason til vinstri og Gunnar Sveinsson til hægri fylgjast með hátíðahöldum vegna opnunar göngubrúar yfir Hrafná 23. júní 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 684
Ragnar Már Björnsson til vinstri og Alex Már Gunnarsson til hægri fylgjast með hátíðahöldum vegna opnunar göngubrúar yfir Hrafná 23. júní 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 106
Gunnlaugur Sigmarsson um borð í Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 676
Feðgarnir Hrólfur Eggert Pétursson, undir stýri, og Pétur Eggertsson í góðu skapi 17. júní 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 540
Í mars 2014 fór starfsfólk Vinnumálastofnunar til Glasgow í Skotlandi í vinnu- og árshátíðarferð. Starfsfólk greiðslustofunnar á Skagaströnd fór að sjálfsögðu með í ferðina, margir með mökum sínum. Á myndinni, sem tekin var á hóteli í Glasgow, eru hjónin Eygló Kristín Gunnarsdóttir og Guðmundur Ólafsson.
Arnar HU 1 - safn 136
Ingvar Þór Jónsson fær sér kaffibolla um borð í Arnari HU 1 meðan beðið er eftir að trollið komi upp. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 516
Sveinn Garðarsson (d.17.2.2019) á gangi á bryggjunni í mars 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 110
Högni Jensson matsveinn uppi í brú á Örvari HU 21 að spjalla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 770
Sigurbjörn Berg Sigurðsson skipstjóri heldur á sjaldséðum fiski sem hann fékk á línuna 12. febrúar 2010. Ekki er vitað hvað fiskurinn heitir og enginn sem sáu fiskinn höfðu séð hann áður. Ef þú veist hvaða fiskur þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 698
Mennirnir á myndinni eru í kaffipásu í áhaldahúsi hreppsins 1. júní 2005. Frá vinstri: Gunnar Þór, Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) og Ágúst Bragason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 696
Jóhann Rögnvaldsson bóndi og skólabílstjóri á Hrauni á Skaga. Myndin var tekin 30. janúar 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 96
Hjónin Árni Ólafur Sigurðsson og Hlíf Sigurðardóttir á ferðalagi með starfsfólki Skagstrendings hf til að skoða Mývatn og nágrenni sumarið 1979.
Arnar HU 1 - safn 122
Jón Örn Stefánsson snyrtir hárið á skipsfélaga sínum, Elvari Frey Aðalsteinssyni, um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Axel Jóhann Hallgrímsson 75
Magnús Sigurðsson vélstjóri til vinstri og Birgir Þórbjarnarson skipstjóri til hægri sæmdir "burstaorðunni" á árshátíð Skagstrendings hf í Fellsbg haustið 1986.
Ólafur Bernódusson 858
Myndin var tekin á opnu húsi vefstofunnar Árblik í desember 1999. Þá hafði fyrirtækið nýlega tekið til starfa við að vefa værðarvoðir og teppi í húsnæði gamla frystihúss Hólaness hf. Á myndinni er Fannar Viggósson framkvæmdastjóri Árbliks til vinstri að sýna Lárusi Ægi Guðmundssyni til hægri framleiðslu á værðarvoð.
Axel Jóhann Hallgrímsson 90
Stjórn og starfsmenn Skagstrendings hf, ásamt mökum, fóru saman í ferðalag um suðurland í júní 1992. Oft var mikið fjör á kvöldin á gististöðum hópsins, mikið sungið og spjallað. Á þessari mynd eru Þór Gunnlaugsson til hægri og óþekktur til vinstri. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 549
Þessir tveir menn, Guðmundur Henrý Stefánsson vinstra megin og Guðjón Guðjónsson til hægri eru skipstjórar á frystitogaranum Arnari HU 1 til skiptis. Myndin af þeim félögum var tekin á bryggjunni 22. september 2014.
Arnar HU 1 - safn 93
Ágúst Ómarsson í stólnum í brúnni á Arnari HU 1. Myndin var tekin 24. júní 2004
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 566
Hjalti Hólmar Indriðason á bryggjunni 29. apríl 2014 að leggja upp í túr með Arnari Hu 1.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 503
Myndin var tekin í febrúar 2014 þegar Aldan HU 112 var nýkomin úr línuróðri. Á myndinni eru Karl Olsen til vinstri og Hafþór Gylfason til hægri að undirbúa að hífa balana í land.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 778
Myndin var tekin 31. maí 2008 í listamiðstöðinni Nes. Þarna skemmta með tónlistarflutningi, frá vinstri: Fannar Viggósson með bassa, Jón Ólafur Sigurjónsson með gítar og Þórarinn Grétarsson með þverflautu. Tilefnið var formleg opnun listamiðstöðvarinnar en það var hluti af hátíðahöldum sjómannadagsins sem var daginn eftir, 1. júní.
Ólafur Bernódusson 800
Guðjón Guðjónsson (Jonni Ebba) á bryggjunni í vetrarsól 10. febrúar 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 584
Sigurjón Guðbjartsson til vinstri og Adolf J. Berndsen (d. 27.8.2018) kryfja málin til mergjar um miðjan maí 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 726
Adolf H. Berndsen til vinstri , Stefán Stefánsson í miðið og Kári Lárusson til hægri spjalla saman yfir kaffibolla á þorrablóti á hjúkrunarheimilinu Sæborg 24. janúar 2015.
Axel Jóhann Hallgrímsson 38
Myndin var tekin sumarið 2008 við hlið Arnars HU 1 í höfninni. Mennirnir eru Axel Gígjar Ásgeirsson til vinstri og Heiðar Sigurbjörnsson til hægri.
Ólafur Bernódusson 801
Valdimar Björnsson vélstjóri um borð í Húnabjörginni að koma úr björgunarleiðangri með bát í eftirdragi 10. febrúar 2007.
Arnar HU 1 - safn 103
Þórarinn Grétarsson fær sér kaffisopa milli stríða í vinnslunni um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 73
Baldur Magnússon með eitt fjögurra barna sinna. Ekki er vitað hvert þeirra þetta er.
Axel Jóhann Hallgrímsson 83
Finnur Kristinsson í ræðustól á Fellsborg í einhveju samkvæmi á vegum Skagstrendings hf.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 668
Guðmundur Ólafsson til vinstri ræðir við starfsmenn Höfðahrepps - Sveitarfélgsins Skagastrandar í dag - þá Þröst Líndal með húfu og Magnús Ólafsson (d.23.7.2012) bæjarverkstjóra þar sem þeir voru að útbúa port við áhaldahúsið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 501
Áhöf Hafrúnar HU 12 í höfninni á Skagaströnd. Frá vinstri: Jóhann Guðbjartur Sigurjónson, Karl Olsen, Sigurjón Guðbartsson eigandi og útgerðarmaður Hafrúnar og Hafþór Gylfason.
Arnar HU 1 - safn 113
Guðpni Már Lýðsson. Ekki er vitað hvar eða hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 788
Bræðurnir Sigurjón Ástmarsson til vinstri og Ástmar Kári Ástmarsson til hægri kíkja í samkomutjaldið á kántrýhátíð um miðjan ágúst 2006.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 554
Mælingar með nýjustu tækni utan við Karlsskála 9. apríl 2014. Frá vinstri: Vilhelm Björn Harðarson, Árni Geir Ingvarsson og Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 693
23. janúar 2014 stóð Gleðibankinn fyrir samkomu í Bjarmanesi þar sem María Markovic hélt fyrirlestur og sagði frá dvöl sinni á Salomonseyjum í Suður-Kyrrahafi. María sýndi skemmtilegar myndir frá dvöl sinni þar og var fyrirlestur hennar bæði skemmtilegur og fræðandi. Á myndinni er Maía til hægri en á tjaldinu er mynd af innfæddum karlmanni sem leiðir son sinn. Sigurður Ingimarsson fylgist með fyrir miðri mynd.
Axel Jóhann Hallgrímsson 123
Magnús Sigurðsson vélstjóri um borð í Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilaga var það kringum 1990.
Ólafur Bernódusson 758
Þessi smáhvalur - hnýðingur - kom í veiðarfæri Önguls ÍS 115 11. apríl 2007. Á myndinni er verið að landa hvalnum í höfninni á Skagaströnd en maðurinn á myndinni er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 514
Vinirnir Jóhannes Sveinsson til vinstri og Árni Geir Ingvarsson til hægri að grilla saman í ágúst 2014.
Arnar HU 1 - safn 130
Björn Sigurðsson kíkir í tölvuna sína um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 111
Svanur Árnason um borð í Arnari HU 1 2. september 2002.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 604
Einar Gunnarsson við vinnu hjá Höfðaskóla haustið 2014.
1
…
6
7
8
…
32
Leita í myndasafninu
Leita