Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Axel Jóhann Hallgrímsson 45
Tveir sveitastjórar Skagastrandar með hatta hittast í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð í ágúst 2009. Magnús B. Jónsson til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson til hægri. Lárus var sveitastjóri 1972 -1984 en Magús gegndi því starfi 1990 - 2018.
Axel Jóhann Hallgrímsson 60
Slavko Velemir prúðbúinn í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 716
Myndin var tekin 26. febrúar 2015 af manni að leika sér á brimbretti á brimöldunum fyrir neðan rækjuvinnsluna. Hann lætur kuldan ekki á sig fá enda klæddur í þurrbúning.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 827
Myndin var tekin í byrjun júlí 2008 af vinnufélögunum og vinunum Eðvarð Hallgrímssyni, sem er uppi á bílnum, og Þór Arasyni (d.11.8.2018) sem tekur á móti efniviðnum af bílnum.
Arnar HU 1 - safn 102
Sigurjón Ingólfsson við vinnu um borð í Arnari Hu 1 sem Baader-maður. Slíkir menn sjá um að halda fiskvinnsluvélunum um borð í góðu standi.
Axel Jóhann Hallgrímsson 110
Högni Jensson matsveinn uppi í brú á Örvari HU 21 að spjalla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 495
Sungið um hitaveitu á þorrablóti í Fellsborg 2014. Leikarar eru frá vinstri: Árni Halldór Eðvarðsson, Halldór Gunnar Ólafsson (nær), Hafþór Gylfason (fjær), Ólafur Bernódusson, Hallbjörg Jónsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Þorgerður Þóra Hlynsdóttir (Gigga), Hugrún Sif Hallgrímsdóttir, María Ösp Ómarsdóttir og Sigríður Stefánsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 518
Sævar Hallgrímsson fær gotu í matinn hjá bræðrunum á Dagrúnu Hu 121. Um borð eru Eiríkur Lýðsson til vinstri og Guðni Már Lýðsson til hægri. Maðurinn í pollabuxunum á bryggjunni er Haraldur Árnason starfsmaður fiskmarkaðarins. Myndin var tekin 6. mars 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 803
Myndin var tekin í júlí 2007 utan við Vélaverkstæði Skagastrandar í kaffipásu. Karlarnir þrír til vinstri eru starfsmenn verkstæðisins Jón Ólafur Sigurjónsson til vinstri, Óli Axel Óskarsson í miðið og Sigurjón Ingólfsson til hægri. Á bekknum sitja Gylfi Sigurðsson til vinstri og Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) til hægri.
Arnar HU 1 - safn 100
Grétar Smári Hallbjörnsson um borð í Arnari HU 1 29. september 2002.
Arnar HU 1 - safn 110
Myndin var tekin um borð í Arnari HU 1 á heitum sumardegi. Karlarnir eru búnir að útbúa sér heita potta til að hvíla sig í á frívaktinni. Mennirnir eru frá vinstri: Sævar Berg Ólafsson, Skúli Tómas Hjartarson, Þröstur Árnason, Gunnar Þröstur Ásgeirsson? og Gunnar Helgason. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
larus024
Óþekktur maður færir Hólaneskirkju gjafir í bókaformi líklega í hófi í Fellsborg eftir vígslu kirkjunnar í október 1991. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 807
Séra Fjölnir Ásbjörnsson flytur predikun í Hólaneskirkju 29. apríl 2007.
Óþekktur ljósmyndari407
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Á henni er verið að vinna við grjótnám í Höfðanum en grjótið var sprengt fram og notað til uppfyllingar við hafnargerð á Skagaströnd. Sú hafnargerð hófst 1934 en ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Mennirnir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir ýtumanninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 704
Steinunn Steinþórsdóttir og Sigurður Björnsson spjalla saman 7. maí 2003. Ekki er vitað hvar þau voru en líklega var það í Bjarmanesi þegar endurbætur þar stóðu sem hæst.
Arnar HU 1 - safn 84
Ernst Berndsen vélstjóri í kunnuglegu umhverfi í vélarúminu á Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1020
Adolf Jakob Berndsen (d.27.8.2018) umboðsmaður Olís á Skagaströnd við olíuafgreiðslu um borð í Arnar HU 1 í Skagastrandhöfn 18. apríl 2008.
Óþekktur ljósmyndari417
Kvartett karla syngur á óþekktu sviði. Ef þú þekkir einhvern á myndinni og/eða veist hvar myndin var tekin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 560
Árni Guðbjartsson (d. 20.2.2018) á rölti í september 2014.
Arnar HU 1 - safn 68
Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri á Arnari HU 1 um borð í skipi sínu.
Axel Jóhann Hallgrímsson 36
Finnur Kristinsson á sjómannadaginn 2008 með einn af mörgum verðlaunapeningum sínum fyrir kappróður um hálsinn.
Ólafur Bernódusson 845
Hjónin Gunnlaugur Sigmarsson útibússtjóri landsbankans á Skagaströnd og Steinunn Friðriksdóttir grilla pylsur fyrir gesti þegar fram fór landsbankahlaup 5. maí 2007
Arnar HU 1 - safn 72
Tryggvi Hlynsson og Ingibjörg Skúladóttir um borð í Arnari HU 1.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1129
Kristján Blöndal á Kántrýhátíð 14. ágúst 2010.
Arnar HU 1 - safn 76
Nokkrir skipsfélagar um borð í Arnari HU 1. Frá vinstri: Sveinþór Arason, Magnús Filip Sævarsson, Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson og Róbert Freyr Gunnarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1147
Jón Gunnarsson til vinstri og Reynir Lýðsson slægja á fiskmarkaðnum 17. september 2004.
Arnar HU 1 - safn 78
Myndin var tekin um borð í Arnari HU 1 en ekki er vitað hvenær. Á henni eru, frá vinstri: Gunnar Helgason, Róbert Freyr Gunnarsson, Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson og Hafliði Þorsteinn Brynjólfsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1050
Myndin var tekin eftir að Þórbjörn Jónsson (d.22.11.1996) til vinstri og Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.208) til hægri höfðu skírt björgunarbátinn Þórdísi á sjómannadegi líklega kringum 1990. Báðir voru þessir heiðursmenn lengi virkir í starfi Slysavarnafélagsins og björgunarsveit þess en Þórdís tilheyrði félaginu.
Arnar HU 1 - safn 131
Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri á Arnari HU 1 á kunnuglegum slóðum í brúnni að hífa trollið.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 897
Ágúst Ingi Ágústsson kennari í Höfðaskóla við undirbúning kennslu 11. desember 2007.
Arnar HU 1 - safn 126
Jónas Fanndal Þorvaldsson blæs á dónalegt afmæliskerti um borð í Arnari HU 1 á afmælinu sínu 25. maí. Árið er óþekkt.
Ólafur Bernódusson 799
Sigurjón Ástmarsson 10. febrúar 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 795
Hrólfur Eggert Pétursson lítur upp úr flatningunni á afla sínum í byrjun september 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 553
Nýr viðlegukantur gerður í apríl 2014. Á myndinni er byrjað að klæða dekkið á bryggjunni en eftir á fylla að og malbika. Mennirnir á myndinni eru óþekktir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 711
Myndin var tekin 11. febrúar 2015 af Jóhanni Rögnvaldssyni við að landa úr Sæfara SK 112 sem hann átti með bróður sínum og fleirum.
Óþekktur ljósmyndari416
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Fólkið á myndinni er óþekkt þannig að ef þú veist deili á því vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Myndin var að líkindum tekin kringum 1940.
Arnar HU 1 - safn 97
Vélstjórar í "búrinu" í vélarúminu á Arnari HU 1. Til vinstri er Guðmundur Andersen en Björn Sigmundsson er til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 108
Ísing er einn af verstu óvinum sjómanna. Hún hleðst á skip í ótrúlegu magni og veldur því að skip missa stöðugleika sinn og verða hættuleg. Á þessari óskýru mynd eru menn að berja ísingu af Arnari HU 1 en ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 725
Feðgarnir Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) og Ingibergur Guðmundsson á þorrablóti á hjúkrunarheimilinu Sæborg 24. janúar 2015.
Ólafur Bernódusson 827
Sigurður Sigurðarson, annar bankastjóra Gleðibankans, á stofnfundi bankans í Bjarmanesi 10. desember 2008. Sigurður hélt skemmtilegan fyrirlestur á fundinum um nauðsyn þess að stofna Gleðibanka á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1018
Óli Einar Albertsson vinnur í löndun úr Arnari Hu 1 á Skagaströnd 17. apríl 2008.
Axel Jóhann Hallgrímsson 114
Jón Helgason um borð í Örvari HU 21. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 724
Myndin var tekin 28. september 2010 þegar ný rannsóknarstofa BioPol var tekin í gagnið. Mennirnir á myndinni voru starfsmenn fyrirtækisins á þeim tíma. Frá vinstri Jakob Kasper líffræðingur, Halldór Gunnar Ólafsson framkvæmdastjóri BioPol og Sigurður Baldursson líffræðingur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1071
Feðgarnir Stefán Jósefsson, uppi á bryggjunn, og Jón Örn Stefánsson um borð binda Ólaf Magnússon HU 54 við Skúffugarðinn 2. mars 2010.
Ólafur Bernódusson 830
Hjónin Halldór Gunnar Ólafsson og Sigríður Stefánsdóttir á stofnfundi Gleðibankans í Bjarmanesi 10. desember 2008.
Arnar HU 1 - safn 127
Magnús Filip Sævarsson í tölvuleik um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 765
Halldór Gunnar Ólafsson skoðar GPS tækið sitt á toppnum á Geirólfsnúpi 24. júlí 2010. Lengst til hægri í baksýn rís Hornbjarg úr sæ.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 777
Ekki er vitað hvað þessir menn voru að gera í eldhúsinu í Fellsborg 15. mars 2008 þegar myndin var tekin. Líklega var það þó tengt Lionklúbbnum á einhvern hátt því þeir eru allir félagar í klúbbbnum. Mennnirnir eru frá vinstri: Sigurbjörn Björgvinsson, Jón Sveinsson og Slavko Velemir.
Ólafur Bernódusson 853
Lárus Ægir Guðmundsson færir Hólaneskirkju flygil að gjöf 9. nóvember 2013 til minningar um móður sína Soffíu Lárusdóttur (d.31.3.2010).
Arnar HU 1 - safn 92
Risahol komið á dekkið á Arnari HU 1 þriðja ágúst 2003. Mörg handtök eftir við vinnslu aflans og að frysta hann og pakka. Karlarnir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 824
Halldór Gunnar Ólafsson leggur hendina um herðar athafnamannsins Lárusar Ægis Guðmundssonar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin á höfninni en á þeim tíma átti Lárus fiskmarkað Örva á Skagaströnd og Halldór átti oft erindi niður á höfn vegna starfa sinna sem framkvæmdastjóri BioPol.
Arnar HU 1 - safn 123
Mynd frá því um 1970 tekin um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 sem var fyrsta skipið sem Skagstrendingur hf eignaðist. Myndin var tekin aftur á bátadekki. Á henni eru, frá vinstri: Óskar Þór Kristinsson,óþekktur, Ómar Jakobsson, óþekktur og Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017).
Ólafur Bernódusson 839
Guðrún Guðmundsdóttir og Haraldur Árnason ræða málin á kántrýhátíð 19. ágúst 2006.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1006
Lárus Ægir Guðmundsson á gönguskíðum 17. mars 2008.
Arnar HU 1 - safn 109
Viðgerðarvinna á vinnsludekkinu í Arnari HU 1 6. maí 2002. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Slavko Velemir, Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004), óþekktur, Ernst Berndsen, og Guðmundur Andersen.
Arnar HU 1 - safn 75
Jónas Fanndal Þorvaldsson til vinstri og Einar Þór Ásgeirsson til hægri við störf um borð í Arnari HU 1.
Ólafur Bernódusson 775
Jónmundur Ólafsson (d.19.4.2017) hvílir lúin bein í hægindum í versluninni Djásn og dúllerí 15. júlí 2010. Djásn og dúllerí var handverksverslun sem rekin var nokkur sumur í kjallaranum í gamla kaupfélaginu á Skagaströnd.
larus003
Prestar í Hólaneskirkju eldri. Myndin var líklega tekin 1981 þegar séra Oddur Einarsson, sem er lengst til hægri, tók við sókninni af séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) sem hafði þá þjónað í 40 ár. Pétur er annar frá vinstri á myndinni. Milli þeirra Péturs og Odds er séra Róbert Jack (d.11.2.1990). Presturinn lengst til vinstri er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1023
Ingibergur Guðmundsson á skíðum á skíðasvæðinu í Tindastóli 20. apríl 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 832
Spjallað á tröppunum á Karlsskála í sólskini 12. júní 2008. Hallbjörn Björnsson rafvirki til vinstri og Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) til hægri.
1
…
7
8
9
…
32
Leita í myndasafninu
Leita