Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1237
Steinn Rögnvaldsson og Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) á bryggjunni á Skagaströnd 22. mars 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1184
Þessar ungu stúlkur fylgdust spenntar með uppsetningu á jóltrénu á Hnappstaðatúninu 24. nóvember 2010. Frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir, Telma Jónasdóttir, Laufey Lind Ingibergsdóttir, Anita Ósk Ragnarsdóttir og Sigurbjörn Björgvinsson sem reisti tréð með kranabíl sínum.
Skagaströnd - safn468
Þessi teikning er eftir listamanninn Sveinbjörn Blöndal (d.7.4.2010) sem lengi bjó á Skagaströnd. Því miður eru engar upplýsingar til um hverjir mennirnir á myndinni eru. Þeir eru örugglega Skagstrendingar að vinna við að spyrða fisk til að hengja upp í skreið. Myndin var gerð 1960 þannig að nú getur fólk, sér til gamans, giskað á hverjir þetta eru.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 738
Vilhelm Björn Harðarson 4. febrúar 2015.
Ólafur Bernódusson 788
Lárus Ægir Guðmundsson íþróttakennari stjórnar teygjum hjá gönguhópi frá Skagaströnd í Hornvík 21. júlí 2010 eftir að hópurinn hafði gengið á Hornbjargið.
Ólafur Bernódusson 816
Hjónin Vignir Sveinsson og Helga Imgimarsdóttir bændur í Höfnum eru með mikið æðarvarp. Þau fullvinna æðardúninn sinn og búa til æðardúnssængur eins og þá sem Helga heldur á á myndinni. Vignir er með visk af þurrkuðum og fullhreinsuðum dún í höndunum. Myndin var tekin 24. október 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 987
Elva Dröfn Árnadóttir og Ágúst Ingi Ágústsson kennarar við Höfðaskóla fylgjast með söngkeppni skólans, Garginu, í Fellsborg 6. mars 2008.
Ólafur Bernódusson 795
Þrír Skagstrendingar á Geirólfsnúpi 24. júlí 2010. Þarna voru þeir ásamt hópi Skagstrendinga sem gengu um Hornstrandir í nokkra daga í júlí 2010. Frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Lárus Ægir Guðmundsson og Steindór Haraldsson. Eins og sjá má var veðrið óaðfinnanlegt þennan dag og útsýnið stórfenglegt.
larus039
Lárus Ægir Guðmundsson formaður byggingarnefndar Hólaneskirkju til hægri þakkar Leifi Breiðfjörð glerlistamanni fyrir vel unnið verk en Leifur gerði listaverkið í baksýn sem prýðir austurglugga kirkjunnar sem altaristafla. Myndin var tekin 1. ágúst 1991.
Ólafur Bernódusson 797
Árni Ólafur Sigurðsson í síðdegissól á bryggjunni 10. febrúar 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 257
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hún er af slökkviliðinu á Skagaströnd við æfingu hjá Rækjuvinnslunni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 984
Óli Axel Óskarsson vinnur hjá Vélaverkstæði Skagastrandar við stýri á óþekktum bát 30. maí 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1083
Hjónin Stefán Sveinsson og Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir að undirbúa opnun hárgreiðslustofunnar VIVA líklega sumarið 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1328
Guðmundur Egill Erlendsson spila á gítar á Kántrýhátíð 17. ágúst 2012. Af augljósum átæðum er hann ekki að syngja með.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1017
Sigurður Ingimarsson hífir upp úr lestinni á Arnari Hu 1 í löndun á Skagaströnd 17. apríl 2008. Sigurður hefur lengi verið traustasti starfsmaður fiskmarkaðarins á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1355
Leo Gillespie spilar og syngur í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð 17. ágúst 2012. Leo er þekktur götuhljóðfæraleikari - "buskari" - og kom á Kántrýhátíð með vini sínum tónlitarmanninum KK.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1185
Frændurnir Jón Örn Stefánsson til vinstri og Hjörtur Guðmundsson til hægri 27. nóvember 2010.
Ólafur Bernódusson 831
Eygló Gunnarsdóttir og Gylfi Sigurðsson spjalla saman á stofnfundi Gleðibankans í Bjarmanesi 10. desember 2008.
larus031
Myndin var tekin í október 1991 í hófi í Fellsborg í tilefni af vígslu Hólaneskirkju. Til vinstri tekur Helgi Gunnarsson smiður og verktaki við blómum og þökkum frá Lárusi Ægi Guðmundssyni, formanni byggingrnefndar kirkjunnar, fyrir vel unnið verk.
Arnar HU 1 - safn 85
Guðmundur Finnbogason í grillveislu áhafnar Arnars HU 1 í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær myndi tekin.
Arnar HU 1 - safn 67
Hjónin Magnús Líndal Þrastarson og Halla María Þórðardóttir.
Ólafur Bernódusson 784
Ólafur Bernódusson til vinstri og Steindór Haraldsson til hægri gera sig klára til að ganga á Hornbjargið eftir að hafa vaðið yfir ána í Hornvík. Steindór er búinn að þurrka á sér tærnar en ekki kominn í skóna, heldur á öðrum vaðskónum sínum. Myndin var tekin í blíðunni 21. júlí 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1288
Hjónin Ólafur Bernódusson og Guðrún Pálsdóttir að vinna við lagningu göngustígs um skógræktina ofan við Hólabergin 28. júlí 2012. Skógræktarfélag Skagastrandar hefur séð um ræktina þarna og stígurinn var nefndur Jónsstígur eftir Jóni Jónssyni (d.9.7.1991), sem lengi var formaður félagsins og ötull skógræktarmaður.
Arnar HU 1 - safn 69
Jónas Fanndal Þorvaldsson við vinnu um borð í Arnari HU 1.
Ólafur Bernódusson 840
Systkinin Elínborg Ingvarsdóttir (d.5.8.2019) og Árni Björn Ingvarsson í sólskini á kántrýhátíð 19. ágúst 2006.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1058
Skúli Magnússon í beitningaskúr Sæfara SK 112 útgerðarinnar 19. janúar 2010. Skúli beitir fyrir Sæfarann auk þess að róa stöku sinnum á eigin bát; Blæ Hu 77.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1046
Þór Arason vinnur hátt uppi að endurbyggingu gamla kaupfélagsins 27. ágúst 2007.
larus002
Myndin var tekin á æfingu "sjómannakórs" fyrir messu í Hólaneskirkju á sjómannadegi. Myndin var tekin í maí 1996 eða 1997. Organleikari og stjórnandi kórsins er Peter Wheelar (d. haustið 1997). Aftast eru frá vinstri: Karl Guðmundsson (d.11.12.2011), Sigurður Bjarnason, Halldór Gunnar Ólafsson, Sigmar Jóhannesson (d.2.4.2000), óþekktur og Gylfi Sigurðsson. Framar frá vinstri: Ingólfur Bjarnason, Sigurjón Guðbjartsson, Árni Ólafur Sigurðsson, Jóel Kristjánsson, Stefán Jósefsson, Ástmar Kári Ástmarsson og Egill Bjarki Gunnarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1097
Helgi Gunnarsson með afastelpunni sinni, Örnu Rún Arnarsdóttur, í kvöldblíðu á bryggjunni 19. júlí 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1393
Ragnheiður Linda Kristjánsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson strafsmenn BioPol tilbúin við súpupottinn með fiskisúpu fyrir fólk að smakka á Kántrýhátíð 12. ágúst 2011.
Ólafur Bernódusson 829
Guðrún Pálsdóttir og Gunnar Sveinsson spjalla saman á stofnfundi Gleðibankans í Bjarmanesi 10. desember 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 657
Guðmundur Rúnar Kristjánsson skáld og húsasmiður við vinnu sína 12. júní 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1137
Stefán Kristinsson -Kúti- (d.19.5.2011) í bíl sínum 23. mars 2003.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 756
Ekki er vitað hver af jólasveinunum 13 þetta er en myndin náðist af honum þegar kveikt var á jólatrénu á Hnappstaðatúninu 3. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1026
Halldór Gunnar Ólafsson hjálpar syni sínum Ólafi Halldórssyni fyrstu rennslin á skíðum á skíðasvæði Tindastóls 20. apríl 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1059
Félagarnir Sigurður Skagfjörð Bjarnason til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson til hægri í gönguferð 19. janúar 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 754
Róbert Freyr Gunnarsson með yngsta son sinn, Patrik Mána Róbertsson, í fanginu á jóla-barnaballi í Fellsborg 26. desember 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 813
Ágúst Jónsson í göngutúr í júní 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1011
Hafsteinn Pálsson vinstra megin og Hallgrímur Hjaltason hægra megin spjalla saman í Kjalarlandsrétt 8. september 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 958
Myndin var tekin á Skúffugarðinum 13. júní 2007. Á henni eru Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) til vinstri og Einar Gunnarsson hægri. Þeir eru rykugir upp fyrir haus enda að vinna við trefjaplastviðgerðir í einhverjum bát.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1259
Þröstur Líndal Gylfason, bóndi á Kjalarlandi, að draga kindurnar sínar í dilk í Kjalarlandsrétt 8. september 2012. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1096
Mágarnir Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) til vinstri og Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) til hægri 19. júlí 2010 fyrir utan Vélaverkstæði Skagastrandar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 868
Myndin var tekin í ágúst 2009. Hjalti Reynisson rafvirki er til vinstri með yfirmanni sínum Hallbirni Björnssyni rafverktaka hjá Neistanum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 659
Sigurjón Elí Eiríksson glaðbeittur við vinnu sína á höfninni 8. desember 2014.
Arnar HU 1 - safn 135
Sigurður Svavarsson vélstjóri um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 757
Myndin var tekin 24. júní 2012 um borð í Öldunni HU 112 af þeim Sigurjóni Guðbjartssyni skipstjóra og eiganda Öldunnar til vinstri og Gylfa Sigurðssyni til hægri. Hér eru þeir á leið í Reykjarförð nyrðri í afmæli ásamt fleira fólki.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1036
Karlar á spjalli á Hnappstaðatúninu á Kántrýhátíð 19. ágúst 2006. Frá vinstri: Sævar Rafn Hallgrímsson, Hjörtur Guðbjartsson, Jóhannes Sveinsson, Sigurbjörn Björgvinsson og Gísli Snorrason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1232
Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) um borð í bát sínum, Boggu í Vík Hu 6 19. mars 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 700
Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson á bryggjunni við hlið Hafrúnar HU 12 í snjómuggu 28. janúar 2015.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn116
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) ungur maður á Skagaströnd. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1945.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1128
Hjónin Magnús Líndal Þrastarson og Halla Margrét Þórðardóttir á Kántrýhátíð 14. ágúst 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 531
Slökkviliðsmenn á æfingu 9. september 2014. Frá vinstri: Helgi Gunnarsson vara slökkviliðsstjóri, Jón Ólafur Sigurjónsson og Sigurjón Ingólfsson slökkviliðsmenn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1075
Eiríkur Lýðsson til vinstri og Stefán Sveinsson til hægri að skoða færi og annan búnað sem til þarf við grásleppuveiðar. Eiríkur gerir út bátinn Dagrún HU 121 og Stefán var háseti hjá honum þessa vertíð. Myndin var tekin í norðaustan kalda 19. mars 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1201
Gylfi Sigurðsson á sínum daglega göngutúr á Þorláksmessu 2010.
Axel Jóhann Hallgrímsson 22
Árið 1969 voru þessir tveir menn heiðraðir með merki sjómannadagsins. Guðmundur Pétursson (d.30.6.1986) frá Höfðakoti til vinstri og Ingvar Jónsson (d.29.7.1978) hreppstjóri frá Brúarlandi til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1106
Hjalti Hólmar Indriðason málar grindverkið við húsið sitt að Hólabraut 10 í góðviðrinu 1. ágúst 2010.
larus027
Karl Sígurgeirsson flytur kveðju frá Hvammstanga í hófi í Fellsborg af tilefni vígslu Hólaneskirkju í október 1991. Lárus Ægir Guðmundsson formaður byggingarnefndar kirkjunnar er í baksýn.
Arnar HU 1 - safn 82
Trollið tekið um borð í Arnari HU 1 en ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Karlarnir á henni eru frá vinstri: Þröstur Árnason, óþekktur, Óskar Þór Kristinsson og óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1033
Feðginin Einar Karlsson og Elísabet Anna Blöndal Einarsdóttir utan við Fellsbraut 2 18. ágúst 2006.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1028
Hjónin Jón Indriðason og Margrét Magnúsdóttir á skíðasvæði Tindastóls 20. apríl 2008.
1
…
8
9
10
…
32
Leita í myndasafninu
Leita