Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Konur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Menn
998 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1512
Þorgerður Þóra Hlynsdóttir 2. apríl 2011 skólaskemmtun í Fellsborg.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 175
Kristín Jónsdóttir málar kringum glugga í nýrri íbúð sinni á Ránarnbraut 21.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 113
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af notalegheitum hjá konunum á henni. Þær eru, frá vinstri: Anna Jóna Geirsdóttir, Ágústa Friðriksdóttir og Erna Berglind Hreinsdóttir.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 067
Jóníns Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) kíkir í eldhúsið í Sæborg til Sigríðar Ólafsdóttur sem var þar eldabuska í rúm 30 ár. Myndin var tekin í desember 1992.
Guðrún Þórbjarnardóttir032
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Hún er af þeim hjónum Jóni og Þorbjörgu Halldórsdóttur (d.30.6.1970) þegar þau héldu upp á gullbrúðkaupsdaginn sinn með veislu í Skátaskálanum 1967.
Óþekktur ljósmyndari492
Jóhanna Arnljótsdóttir Hemmert (d.27.1.1965) kaupmannsfrú á Skagaströnd. Myndin er úr bókinni Föðurtún eftir Pál Kolka.
gunnar083
Margrét Jónasdóttir (d.?) frá Hróarsstöðum á Skaga.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 90
Stúkurnar á myndinni eru í notalegheitum heima í stofu á Suðurveginum. Þær eru frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, tvær óþekktar og Anna Sjöfn Jónasdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari517
Guðrún Stefánsdóttir (d.6.1.1992) bóndakona í Höfnum á Skaga með dóttur sína Sigríði Sigurðardóttur (d.17.6.1995). Guðrún var sambýliskona Sigurðar Árnasonar (d.10.6.1959) bónda í Höfnum. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Guðrún Þórbjarnardóttir058
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Ekki er vitað hvaða fólk þetta er en ef þú veist það vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn520
Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) spilar á harmoniku fyrir dansi þeirra Ásthildar Gunnlaugsdóttur til vinstri og Jóhönnu Thorarensen (d.6.3.2004) til hægri. Myndin var tekin í Kántrýbæ eftir jólahlaðborð eldri borgarar í desember 1998 eða 1999.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 186
Systkinin Kristín Jónsdóttir og Guðmundur Jónsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 162
Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir situr í stólnum meðan Ardís Ólöf Arelíusdóttierir hana klára til að fara á svið í "Síldin kemur og síldin fer", sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp vorið 1987.
Skagaströnd - safn483
Guðný Finnsdóttir til vinstri og María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) til hægri í Kántrýbæ 4. desember 1998 þegar eldri borgara á Skagaströnd gerðu sér glaðan dag þar.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 107
Systkinin Kristín Jónsdóttir og Guðmundur Jónsson við jólamatborð heima á Fellsbraut, líklega snemma á áttunda áratugnum.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 064
Vinkonurnar Halla Björg Bernódusdóttir til vinstri og Guðrún Þórbjarnardóttir til hægri. Myndin var tekin í janúar 1992.
Óþekktur ljósmyndari655
Hjónin í Skagaströnd, Helgi Þórðarson (d.11.12.1951) og seinni kona hans Ingibjörg Skarphéðinsdóttir (d.11.3.1965). Húsið Skagaströnd var líka kallað Verslunarstjórahúsið og stóð rétt vestan við Gamla kaupfélagið. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari509
Hjónin á Björgum, Kristján Sigurðsson (d.30.5.1996) og Svava Sigmundsdóttir (d.30.5.2011). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson safn 110
Starfsfólk frystihúss Hólaness hf fundar í kaffistofunni 10. september 1992 um þær fréttir að ísfisktogarinn Arnar Hu 1 sé að hætta að landa afla sínum hjá frystihúsinu. Sá afli hafði verið uppistaðan í þeim afla sem unninn var í frystihúsinu. Konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012), Gígja Óskarsdóttir, Ása Ásgeirsdóttir, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir og Hafdís Þorvaldsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari536
Hjónin í Hróarsstöðum, Ingimar Sigvaldason (d.4.5.1991) og Auður Lundfríður Sigurðardóttir (d.6.4.2009). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 160
Bóel Hallgrímsdóttir spilar á gítar í frumsýningarpartýi eftir frumsýningu Leikklúbbs Skagastrandar á "Síldin kemur og síldin fer" 7. mars 1987.
Óþekktur ljósmyndari473
Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016), starfsstúlka í verslun Kaupfélag Húnvetninga við Bogabraut, í hófi á Hótel Dagsbrún. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin
Óþekktur ljósmyndari528
Margrét Jónsdóttir (d.12.9.1952) Hróarsstöðum seinni kona Andrésar Þórðarsonar (d.4.2.1986) bónda þar. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Guðrún Þórbjarnardóttir - safn 004
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Jónína Jónsdóttir (d. 8.10.1931) var seinni kona Fritz H. Berndsen (d.20.6.1927) kaupmanns á Hólanesi.
Skagaströnd - safn484
Eldri borgarar á Skagaströnd gerðu sér glaðan dag í Kántrýbæ 4. desember 1998. Þar var þessi mynd tekin. Á henni eru, frá vinstri: Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020), Elínborg M. Jónsdóttir (d.7.1.2007), Sigríður Vilhjámsdóttir (d.21.1.2012), Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004), Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012) og Anna H. Aspar (d.1.9.1999).
Ólafur Bernódusson 1014
Myndin er tekin á frumsýningu á Saumstofunni eftir Kjartan Ragnarsson 1985. Þá var verkið sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar í leikstjórn Halldórs Einarssonar Laxness. Á myndinni eru frá vinstri leikkonurnar: Hallbjörg Jónsdóttir, Elín Njálsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Guðbjörg Gylfadóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1611
Guðrún Guðbjörnsdóttir til vinstri er tengdamóðir Sigþrúðar Magnúsdóttur sem er til hægri. Myndin af þeim var tekin í hófi kirkjukórs Hólaneskirkju í Kántrýbæ 21. janúar 2012.
Barnaból - safn607
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af krökkunum í leikskólanum Barnaból en líklega hefur það verið einhverntíima á árunum 1978 - 1980. Í fremstu röð frá vinstri: Bryndís Gunnarsdóttir, Svava Magnúsdóttir, Atli Þór Þórsson, Guðmundur Henry Stefánsson, Baldur Magnússon, óþekktur, Aðalheiður Sif Árnadóttir, Björn Sigurðsson og Friðrik Gunnlaugsson. Önnur röð frá vinstri: óþekktur, Margrét Jóhannsdóttir, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, óþekkt, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir, Elísabet Eik Guðmundsdóttir og Brynjar Pétursson. Aftasta röð frá vinstri: Hugrún Pálsdóttir, Þorsteinn Styrmir Jónsson, Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Stefán Sveinsson, Viggó Magnússon, Dagbjört Jóhannsdóttir og Friðrik Jón Birgisson. Aftast eru frá vinstri: Guðrún Hrólfsdóttir starfsstúlka, Bára Þorvaldsdóttir starfsstúlka og Lára Bylgja Guðmundsdóttir leikskólastjóri með Soffíu Lárusdóttur í fanginu. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari447
Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016) starfsmaður verslunar Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd vinnur við útimarkað á planinu framan við verslun Kaupfélagsins á Blönduósi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en í baksýn er verið að byggja íþróttahúsið á Blönduósi þannig að líklega hefur það verið á níunda áratugnum.
Óþekktur ljósmyndari575
Elísabet Karólína Ferdínandsdóttir (d.11.12.1958) í Brautarholti. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1585
Silfá Sjöfn Árnadóttir á gamlaársdag 2011.
Óþekktur ljósmyndari669
Hjónin í Vík, Hjörtur Jónas Klemensson (d.6.2.1965) og Ásta Þórunn Sveinsdóttir (d.2.11.1947). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari652
Hjónin í Sigurðarhúsi, Sigurður Jónsson (d.17.4.1956) og seinni kona hans, Steinunn Trine Friðrikka Hansen (d.21.10.1958). Byggt hefur verið við Sigurðarhús og í dag gengur það undir nafninu Miðnes. Myndin er úr bókinni Ættir Austur H'unvetninga.
Óþekktur ljósmyndari658
Hjónin í Sólheimum (eldri), Guðmundur Þórarinn Jónsson (d.14.6.1963) og Steinunn Carla Berndsen Fritzdóttir (d.13.9.2002). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga
Skagaströnd - safn521
Ragnhildur Jónsdóttir (d.19.1.2005) til vinstri og Haukur Gunnlaugsson (d.18.1.2004) til hægri skemmta sér á jólahlaðborði í Kántrýbæ 4. desember 1999.
Guðrún Guðmundsdóttir 052
Myndin er frá félagsstarfi aldraðra á Skagaströnd 1985 - 1986. Þá var starfið í skólastofu á neðri hæðinni í Höfðaskóla undir stjórn Guðrúnar Þ. Guðmundsdóttur. Á myndinni eru konurnar að dunda sér við ýmislegt sem í boði var upp á í félgasstarfinu. Konurnar eru frá vinstri: María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) Asparlundi, Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) frá Kárastöðum, Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004) og Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011) frá Ási.
Ólafur Bernódusson 955
Þessar fjórar konur tróðu upp með söng í hófi sem haldið var í tilefni af að nýbyggingu verslunar Kaupfélagsins á Skagaströnd líklega 1983. Konurnar eru frá vinstri: Helga Guðmundsdóttir, Anna Skaftadóttir, Helga Hermannsdóttir og Sigrún Lárusdóttir. Allar störfuðu þær um lengri eða skemmri tíma við verslunarstörf hjá kaupfélaginu.
Barnaból - safn594
Myndin var tekin 6. júlí 2007 þegar leikskólinn Barnaból hélt upp á 30 ára afmæli sitt. Nær okkur á myndinni er Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010) en við hlið hennar er mágkona hennar, Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari468
Litlu jól starfsfólks verslunar Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016) er lengst til hægri en hin konan er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Þórbjarnardóttir136
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Réttarholt, heimili Jóns í áratugi. Ekki er vitað hvað fólk er á myndinni.
Höfðaskóli - safn441
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin 19. maí 2000. Á henni eru, frá vinstri: Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020), Guðný Finnsdóttir og Birna Blöndal Jónsdóttir (d.26.10.2018).
Óþekktur ljósmyndari445
Anna Eygló Fanndal Skaftadóttir afgreiðir málningu í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Einbúastíg (gamla kaupfélaginu). Myndin var líklega tekin á áttunda áratugnum.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 36
Harpa Friðjónsdóttir með Bergþóru Huld Birgisdóttur, dóttur sína, í fanginu. Myndin var tekin 1968.
Óskar Kristinsson - safn 255
Mæðgurnar Ingibjörg E. Kristinsdóttir til vinstri og Guðný Finnsdóttir til hægri staddar á ?Trafalgar torgi? í London. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn488
Konurnar tvær á myndinni eru Ingibjörg Pálsdóttir (d.24.2.2004) sitjandi og Elínborg M. Jónsdóttir (d. 7.1.2007) í hvítri peysu. Myndin var tekin 27. maí 2002.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 112
Hjónin Ragnar Smári Ingvarsson og Kristín Jónsdóttir heima á Suðurveginum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari494
Valgerður Narfadóttir (d.1892) var kona Ólafs Jónssonar veitingamanns í Viðvík á Skagaströnd. Myndin er úr bókinni Föðurtún eftir Pál Kolka.
Óþekktur ljósmyndari602
Hjónin í Grund, Guðjón Ingólfsson (d.22.10.1993) og Aðalheiður Guðbjörg Frímannsdóttir (d.30.4.2008). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari458
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Á henni kynnir Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015) Hong Kong pottrétt fyrir Bóel Hallgrímsdóttur sem er til vinstri á myndinni.
Óþekktur ljósmyndari529
Sambýlisfólkið í Hvammkoti á Skaga, Kristján Guðmundsson (d.14.2.1979) og Guðríður Jónasdóttir (d.20.4.1982). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 70
Þórunn Samsonardóttir (d.11.10.1986) situr með dótturdóttur sína, Völu Rós Ingvarsdóttur, í fanginu. Myndin var tekin um jól eða áramót 1966-1967.
Skagaströnd - safn523
Myndin var tekin í félagsstarfi aldraðra í kjallara Fellsborgar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en konurnar á henni eru einbeittar í vinnu sinni, líklega við að gera jólagjafir. Konurnar eru, frá vinstri: María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Guðný Finnsdóttir og Guðun Angantýsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari515
Sambýlisfólkið í Garðshorni í Kálfshamarsvík, Lárus Guðmundsson (d.29.9.1970) og Þórey Una Frímannsdóttir (d.17.4.1976). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 177
Kristín Jónsdóttir innan um hluta af dótinu sínu þegar hún var að flytja af Suðurveginum og í nýbyggða íbúð sína á Ránarbraut 21. Hjá Kiddu á kerrunni grillir í son hennar Jón Inga Ragnarsson.
Óþekktur ljósmyndari486
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið á öskudegi. Á henni eru, frá vinstri: Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d.25.9.2006), Þórey Jónsdóttir, Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir. Myndin var tekin í verlsun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 121
Fjölgunar var von hjá konunum á myndinni þegar hún var tekin vorið eða sumarið 1984. Konurnar eru frá vinstri: Ágústa Friðriksdóttir, Erna Berglind Fannarsdóttir og Kristín Jónsdóttir. Allar fæddu konurnar heilbrigð og falleg börn síðar á árinu, tvo stráka og eina stúlku.
Guðrún Þórbjarnardóttir138
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Myndin var tekin utan við Réttarholt og á henni eru Kristín og Pétur P.S., eins og stendur á henni. Annað er ekki vitað um fólkið en ef þú þekkir það vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1584
Herdís Jakobsdóttir á gamlaársdag 2011.
Skagaströnd - safn497
María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) til vinstri og Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) til hægri í félagsstarfi aldraðra í kjallara Fellsborgar.
Óþekktur ljósmyndari612
Ragnheiður Árnadóttir (d.14.4.1935) á Hólanesi. Ragnheiður var fyrri kona Sigurðar Sölvasonar (d.24.9.1968) kaupmanns í versluninni Borg. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
1
…
9
10
11
…
17
Leita í myndasafninu
Leita