Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Konur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Menn
998 myndir
Flæði
Reitir
Óþekktur ljósmyndari590
Hjónin á Flankastöðum, Jón Frímann Sigurðsson (d.26.2.1979) og Júlíana Guðbjartsdóttir (d.2.11.1970). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Skagaströnd - safn527
Guðný Hjartardóttir (d.14.3.2011) prjónar enn einn sokkinn í félagsstarfi aldraðra kjallara Fellsborgar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari628
Sigurbjörg Sigurbjarnardóttir (d.31.12.1965) á Kárastöðum. Hún var gift Kristjáni Kristjánssyni (d.17.3.1922) og saman eignuðust þau 12 börn. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari596
Hjónin í Garðhúsum, Ágúst Jakobsson (d.1.6.1989) og Guðný Einarsína Hjartardóttir (d.14.3.2011). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 87
Kristín Jónsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1627
Sigríður Stefánsdóttir skemmtir á sviði Fellsborgar á þorrablóti 4. febrúar 2012.
Jónas 5
Á myndinni er óþekkt kona með barn. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
gunnar076
Konurnar á þessari mynd eru óþekktar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari467
Steinunn Friðriksdóttir á litlu jólunum í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut þar sem hún var starfsmaður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 974
Björk Axelsdóttir kennari fær sér kaffisopa í langa fríinu á kennarastofunni í Höfðaskóla 1984.
Óþekktur ljósmyndari545
Hjónin á Steinnýjarstöðum, Stefán Sveinsson (d.3.5.1949) og Una Ólafsdóttir (d.4.8.1972). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn420
Unnur Kristjánsdóttir kennari við Höfðaskóla í nokkur ár. Myndin var tekin í skólanum 9. maí 2000.
Óþekktur ljósmyndari585
Hjónin í Draumalandi, Einar Guðjónsson (d.1.2.1961) og Ingibjörg Tómasdóttir (d.26.8.1980). Draumaland var lítið hús sem stóð norðan við Stórholt (Bankastræti 3). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson 1112
10. janúar 2019 var formleg opnun á bókhalds- og rekstrarráðgjafafyrirtækinu Lausnamið. Á myndinni er eigandi fyrirtækisins Erla Jónsdóttir til vinstri og starfsmaður hennar Sigríður Gestsdóttir til hægri. Jóhann Ásgeirsson eiginmaður Erlu situr til vinstri og hlustar á konu sína bjóða gesti velkomna.
Skagaströnd - safn525
María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) vinnur nákvæminsverk þrátt fyrir slæma sjón í félagsstarfi aldraðra í kjallara Fellsborgar. Til vinstri sér í Hrefnu Jóhannesdóttur (d.9.11.2011). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari531
Hjónin á Kálfshamri, Jóhannes Björnsson (d.14.6.1977) bóndi og Dagný Guðmundsdóttir (d.22.4.2004). þau bjuggu síðar í áratugi á Skagaströnd. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari581
Hjónin í Drangey, Jóhanna Benónýsdóttir (d.5.4.1957) og Pétur Andrésson (d.5.11.1973). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 148
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af þeim Hrönn Árnadóttur til vinstri og Díönu Kristjánsdóttur til hægri en það fer greinilega vel á með þeim.
Óþekktur ljósmyndari475
Tvær starfsstúlkur verslunar Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut að borða á Hótel Dagsbrún. Margrét Þorsteinsdóttir til vinstri og Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015) til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari607
Sambýlisfólkið á Hnappsstöðum, Óskar Janúaríus Bergsson Laufdal (d.24.1.1946) og Helga Vilhelmína Sigurðardóttir (d.18.3.1974). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 157
Ardís Ólöf Arelíusdóttir (d.12.9.2018) sminkar tengdason sinn, Magnús B. Jónsson, áður en hann stígur á svið í leikritinu "Síldin kemur og síldin fer", sem Leikklúbbur Skagastrandar sýndi vorið 1987, undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar.
Óþekktur ljósmyndari643
Hjónin á Læk, Jóhann Dalmann Jakobsson (d. 23.3.1987) og Katrín Bryndís Sigurjónsdóttir (Stella) (d.8.12.2003). þau hjón bjuggu síðan lengi í Blálandi á Skagaströnd. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari671
Hjónin í Þórshamri, Bogi Theodór Björnsson (d.29.1.1969) og Sigrún Jónsdóttir (d.4.4.1970). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1705
Myndin var tekin 30. nóvember 2011 þegar kveikt var á jólatrénu á Hnappstaðatúninu. Á henni eru mæðgurnar Kolbrún Ágústa Guðnadóttir með dóttur sinni Þórdísi Kötlu Atladóttur.
Óþekktur ljósmyndari654
Hjónin, Gunnar Hermann Grímsson (d.11.9.2003) og Sigurlaug Helgadóttir (d.21.10.2009) bjuggu í húsinu Skagaströnd en það var líka stundum kallað Verslunarstjórahús og stóð rétt vestan við Gamla kaupfélagið. Gunnar var kaupfélagsstjóri á Skagaströnd. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari583
Hjónin í Drangey, Guðmundur Ari Gíslason Kaldbak (d.2.6.1956) og Sigríður Helga Gísladóttir (d.6.8.1970). Þau hjón eignuðust 14 börn saman áður en þau skildu. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari435
Þórhalla Guðbjartsdóttir vinnur að vörutalningu í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Einbúastíg (gamla kaupfélaginu). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Helgi Gunnarsson 22
Alda Ragnheiður Sigurjónsdóttir kona Helga Gunnarssonar verktaka hugar að veitingum sem þau hjón buðu starfsmönnum sínum upp á í reisugilli íþróttahússins sumarið 1997.
Óþekktur ljósmyndari463
Sólveig Sveinsdóttir starfsmaður verslunar Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari593
Hjónin á Flankastöðum, Kristinn Ágúst Jóhannsson (d. 9.11.2002) og Guðný Sigríður Finnsdóttir. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari460
Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015) starfsmaður verslunar Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut kynnir Sigurjóni Guðbjartssyni SAH bjúgu á kynningu á þeirri afurð í búðinni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1635
Myndin var tekin í Kántrýbæ 11. júní 2011 af Guðmundi J. Björnssyni á spjalli við Eddu Þórarinsdóttur.
Óþekktur ljósmyndari662
Hjónin á Stóra-Bergi, Fritz Hendrik Berndsen (d.31.1.1961) og Regína Henrietta Hansen Berndsen Jörgensdóttir (d.18.1.1947). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari541
Sambýlisfólkið á Saurum í Nesjum, Guðmundur Einarsson (d.24.4.1973) og Margrét Benediktsdóttir (d. 1.1.1973). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga. Saurar eru þekktir fyrir meintan draugagang þar vorið 1964. Blöð og útvarp voru uppfull af sögum um draugaganginn dögum saman. Málið dó svo snarlega út þegar í ljós kom að einn heimilismaður á Saurum stóð fyrir draugaganginum að gamni sínu.
Ólafur Bernódusson 1106
Vinkonurnar, frá vinstri: Sigurlaug Máney Sæmundsen, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Sigurbjörg Birta Berndsen og Heba Líf Jónsdóttir 23. júní 2014 innan við Hrafná þegar opnuð var göngubrú yfir ána. Af þessu tilefni var rusli úr fjörunni safnað saman og brennt eins og sjá má aftan við stúlkurnar.
Óþekktur ljósmyndari556
Hjónin á Örlygsstöðum, Árni Björnsson (d.26.5.2000) og Guðrún Alexandra Hallgrímsdóttir. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari459
Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) smakkar Hong Kong pottrétt hjá konu sinni Guðmundu Sigurbrandsdóttur (d.15.8.2015) þar sem hún var að kynna réttinn í verslun Kaupfélgs Húnvetninga við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 061
Myndin er frá 1983 og á henni er Guðrún Þórbjarnardóttir með ömmustrákinn Hörð Inga í fanginu.
Höfðaskóli - safn431
Myndin var tekin 24. febrúar 2006 á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Á sviðinu eru kennarar og starfsfólk skólans að flytja sitt atriði. Sitjandi til vinstri er Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri og dökklæddi stjórnandinn er Carl Erik Jakobsen. Aðrir eru, talið frá vinstri: Bergþóra Guðjónsdóttir?, Anna Margrét Sigurðardóttir, Vigdís Elva Þorgeirsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Hjördís Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022), Dagbjört Bæringsdóttir, Erna Berglind Hreinsdóttir, Ólafur Bernódusson, Þóra Ágústsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir, óþekktur, Helga Ólína Aradóttir, Einar Arason, Guðrún Elsa Helgadóttir og Dagný Rósa Úlfarsdóttir
Óþekktur ljósmyndari657
Hjónin á Sólbakka, Jón Pálsson (d.18.9.1931) og Margrét Sigurðardóttir (d.22.2.1947). Sólbakki stóð rétt austan við þar sem Spákonuhofið er í dag. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Guðrún Þórbjarnardóttir025
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Þorbjörg Halldórsdóttir (d. 30.6.1970) var eiginkona Jóns.
Óþekktur ljósmyndari546
Jón Hinrik Árnason (d.11.4.1986) bóndi á Steinnýjarstöðum sitjandi til vinstri. Kona hans, Sigurlaug Pálsdóttir (d.18.6.1965), situr til hægri. Milli þeirra er Stefán Ingólfsson (d.21.10.2004) uppeldissonur þeirra. Standandi til vinstri eru dæturnar Una Guðrún Jónsdóttir (d.1.5.2009) og Ingiríður Jónsdóttir (d.21.10.2011) er til hægri. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari676
Hjónin í Ægissíðu, sigurður Finnbogason Júlíusson (d.23.1.1980) og Guðbjörg Guðjónsdóttir (d.5.12.1965). Ægissíða stóð austan við veginn norður með Höfðanum austan við Laufás. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson safn 058
Trollið tekið um borð í síðutogarann Arnar Hu 1 einhverntíma á árunum 1969 - 1971. Mennirnir eru Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) fremst, Björn Haraldsson -Bangsi- (d.21.9.1988) í miðið en maðurinn næst okkur á myndinni er Jón Helgason (d.1.12.2019).
Óskar Kristinsson - safn 254
Systkinin Ingibjörg E. Kristinsdóttir og Óskar Þ. Kristinsson í grillveislu við hús Ingibjargar að Hólabraut 4. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1985.
Óskar Kristinsson safn 032
Hjónin Karl Rósinbergsson (d.29.2004) og Steinunn Steinþórsdóttir á einhverju rútuferðalagi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 053
Myndin var tekin í kaffitíma á Sæborg líklega 1991. Konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Rósa Pálsdóttir (d.1.5.2002) frá Bjargi, Laufey Sigurvinsdóttir (d.21.12.1994) frá Bergi og Auður Ágústsdóttir (d21.1.1997).
Óþekktur ljósmyndari484
Guðrún Elsa Helgadóttir kíkir í blað í kaffipásunni sinni inni á kaffistofunni í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Guðmundsdóttir 083
María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) málar á dúk í félagsstarfi aldraðra í Höfðaskóla veturinn 1987 - 1988.
Óþekktur ljósmyndari440
Myndin var tekin af starfsstúlkum í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Einbúastíg (gamla kaupfélaginu) inni á kaffistofunni. Konurnar eru, frá vinstri: Helga Guðmundsdóttir, Sigrún Lárusdóttir og Steinunn Friðriksdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það einhverntíma á áttunda áratugnum.
Skagaströnd - safn510
Haukur Gunnlaugsson (d.18.1.2004) og Guðrún Soffía Pétursdóttir á jólahlaðborði í Kántrýbæ 4. desember 1999.
Óþekktur ljósmyndari465
Steinunn Friðriksdóttir starfsstúlka í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 1038
Tveir rannsakendur frá Hafrannsóknarstofnun taka sýni úr hnúfubak sem dregin var að landi á Benna Ólafs Hu í áúst 1998. Dýrið reyndist vera karlkyns kálfur um 8 metra langur sem enn hafði verið á spena þegar hann dó. Eftir að þetta fólk hafði lokið störfum sínum dró Benni Ólafs Hu hræið aftur langt út á sjó aftur og sleppt þar sem fæða fyrir fugla og fiska.
Óþekktur ljósmyndari510
Hjónin á Björgum, Jón Andrés Ólafsson (d.2.8.1985) og Sigurbjörg Jónsdóttir (d.22.9.1993). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Guðrún Þórbjarnardóttir039
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er tengdadóttir hans, Hlín Kristensen, kona Jens Jónssonar.
Jóhanna Benediktsdóttir
Jóhanna Benediktsdóttir (d.?) sem bjó í Drangey á Skagaströnd
Óskar Kristinsson safn139
Ingólfur Sveinsson og Ingibjörg Skúladóttir njóta sólarinnar uppi á brúarþaki á Arnari Hu 1 í heimagerðum hengirúmum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það gerði Hjörtur Guðbjartsson.
Höfðaskóli - safn474
Myndin var tekin 1. maí 1997 í Skíðaskálanum þegar þar stóð yfir bekkjarkvöld nemenda Höfðaskóla fæddra 1988. Fólkið á myndinni átti börn í bekknum, þau eru frá vinstri: Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018), Aðalheiður Guðmundsdóttir og Guðbjörg Kristinsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari571
Guðrún Kristmundsdóttir (d.28.12.1947) á Bjargi. Guðrún var sambýliskona Davíðs Guðmundssonar (d. 25.2.1955) á Bjargi. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn521
Kristín Ólafsdóttir aðstoðarskólastjóri við Höfðaskóla á tíunda áratugnum. Á myndinni, sem var tekin 20. febrúar 1996, er hún á grímuballi skólans í Fellsborg.
1
…
10
11
12
…
17
Leita í myndasafninu
Leita