Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Konur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Menn
998 myndir
Flæði
Reitir
Óþekktur ljósmyndari520
Hjónin í Hlíð á Skaga. Sigurbjörn Björnsson (d.11.10.1986) og Gurid Björnson (d.26.4.2007) (Gurid Sandsmark Sveinbjörnsson). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Guðrún Guðmundsdóttir 088
Þessar fjórar konur voru, ásamt hópi eldri borgara frá Skagaströnd, á ferð um Hvammstanga 18. apríl 1991. Þar var þessi mynd tekin af þeim. Frá vinstri: Laufey Sigurvinsdóttir (d.21.12.1994), Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011), Elínborg M. Jónsdóttir (d.7.1.2007) og Guðný Finnsdóttir.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 033
Systurnar Unnur Gunnarsdóttir til vinstri og Eygló Gunnarsdóttir til hægri þvo bíl á þvottaplani sem var staðsett neðan við Læk við Strandgötu. Lækur er húsið í baksýn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það gerði Guðmundur J. Björnsson.
Guðrún Guðmundsdóttir 034
Eldri borgarar í Austur Húnavatnssýslu fóru í sumarferð 9. - 12. júní 1992. Farið var yfir Kjöl og ýmsir staðir á suðurlandi skoðaðir. Á myndinni er Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004) frá Skagaströnd að skoða sig um á byggðasafninu á Skógum.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 174
Kristín Jónsdóttir vinnur við að sparsla í vegg í nýju íbúðinni sinni að Ránarbraut 21.
Höfðaskóli - safn526
Sigríður Einarsdóttir myndmenntakennari við Höfðaskóla í nokkur ár á níunda áratugnum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari593
Hjónin á Flankastöðum, Kristinn Ágúst Jóhannsson (d. 9.11.2002) og Guðný Sigríður Finnsdóttir. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1619
Agnes Sævarsdóttir og Björn Ingi Óskarsson í vinnunni í Höfðaskóla 1. febrúar 2011, hún sem kennari og hann sem tæknimaður.
Guðrún Guðmundsdóttir 060
Þessar konur seldu kaffi og meðlæti í Höfðaskóla vorið 1987, á vegum kvenfélagsins Eining, þegar þar fór fram sýning á verkum eldri borgara úr félagsstarfi aldraðra þann vetur. Konurnar eru, frá vinstri: Birna Jónsdóttir Blöndal (d.26.10.2018), Ása Jóhannsdóttir og Lisebet Gestsdóttir.
Guðrún Guðmundsdóttir 055
Myndin er frá félagsstarfi aldraðra á Skagaströnd 1985 - 1986. Þá var starfið í skólastofu á neðri hæðinni í Höfðaskóla undir stjórn Guðrúnar Þ. Guðmundsdóttur. Á myndinni eru Fjóla Sigurðardóttir (d.15.7.1988) frá Laufási til vinstri og Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011) frá Ási til hægri vinna að hugðarefnum sínum.
Fisk Seafood - safn 279
Á þessari mynd eru Erla Jónsdóttir til vinstri og Dagný Marín Sigmarsdóttir til hægri. Þær voru lengi samstarfskonur hjá Skagstrendingi hf, Erla sem skrifstofustjóri og Dagný bókari. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn475
Myndin var tekin utan við Skíðaskálann 1. maí 1997. Þá fór þar fram bekkjarkvöld nemenda Höfðaskóla fæddra 1988. Gísli Snorrason og Guðbjörg Viggósdóttir áttu bæði syni í bekknum og voru þess vegna á staðnum.
Guðrún Guðmundsdóttir 078
Hluti sýnenda á sýningu eldri borgara í Höfðaskóla í desember 1987. Sýndir voru munir sem fólkið vann í félagsstarfi aldraðra undir leiðsögn Guðrúnar Þ. Guðmundsdóttur. Konurnar á myndinni eru, í aftari röð frá vinstri: Laufey Sigurvinsdóttir (d.21.12.1994), Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003). Sitjandi: Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004) vinstra megin og Sigríður Fanný Ásgeirsdóttir (d.11.12.2006).
Óþekktur ljósmyndari432
Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2010) stendur hjá Steinunni Friðriksdóttur starfsmanni Kaupfélags Húnvetninga inni á skrifstofunni í versluninni við Einbúastíg (gamla kaupfélaginu). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari634
Sambýlisfólkið á Litla-Felli, Þorsteinn Sigurbjörn Guðlaugsson (d.27.5.1982) og Hólmfríður Björg Kristjánsdóttir (d.24.11.1963). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 068
Myndin var tekin í desember 1992 í Sæborg af hluta af heimilisfólkinu þar. Konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012), Lára Kristjánsdóttir (d.6.9.1993), Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004) (fjær), Ásta Bjarnadóttir (d.15.6.2008) (nær), Rósa Pálsdóttir (d.1.5.2002), Málfríður ? og Auður Ágústsdóttir (d.12.1.1997). Barnið á myndinni er Kristbjörg Una Guðmundsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari663
Guðrún Björnsdóttir (d.11.8.1971) í Sæborg. Sæborg stóð u.þ.b. þar sem Ægisgrund kemur inn á Oddagötu. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn449
Unnur Kristjánsdóttir kennari við Höfðaskóla í kennarapartýi eftir skólalok 26. maí 2000.
Guðrún Guðmundsdóttir 053
Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004). Myndin var tekin veturinn 1985 -´86.
Óþekktur ljósmyndari519
Kamma N. Thordarson (d.15.3.1986) seinni kona Jóns Benediktssonar (d.30.12.2003) bónda í Höfnum á Skaga. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 86
Sigurbjörg Baldursdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari574
Hjónin í Brautarholti, Ólafur Jón Guðmundsson (d.6.10.1985) og Lilja Þuríður Jakobsdóttir (d.19.7.1965). Ólafur var blindur síðustu æviár sín. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari642
Hjónin á Læk (Nýja Læk eða Neðri Læk) við Strandgötu, Kristján Axel Jón Helgason (d.27.7.1971) og Jóhanna Helga Lárusdóttir (d.12.12.1980). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ingibergur Guðmundsson 351
Jóhanna Jónsdóttir var kennari við Höfðaskóla í mörg ár. Þar var þessi mynd tekin af henni með barn í fanginu. Barnið er líklega Erla Sif Kristinsdóttir og myndin tekin 1989 eða 1990.
Óþekktur ljósmyndari604
Hjónin í Háagerði, Kristján Sigurðsson (d.3.11.1966) og Unnur Gíslína Björnsdóttir (d.14.12.1990). Þau bjuggu líka lengi í Þórshamri - Skagavegi 15 - á Skagaströnd. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson safn 052
Inga Stefánsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari472
Sæmundur Gunnarsson verslunarstjóri færir Jóhönnu Sigurjónsdóttur jólapakka í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari457
Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015) kynnir Findus pizzur í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. þar var Guðmunda starfsmaður um árabil. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari535
Sambýlisfólkið í Króki, Sveinbjörn Sigvaldason (d.18.7.1981) og Svanlaug Halldórsdóttir (d.26.2.2018). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ingibergur Guðmundsson 366
Myndin var tekin í maí 1988 á kennarastofunni í Höfðaskóla. Á henni eru kennararnir Ólafur Bernódusson og Vilborg Magnúsdóttir.
Höfðaskóli - safn523
Hjördís Þórðardóttir kennari við Höfðaskóla einhvertíma á níunda ártugnum.
Óþekktur ljósmyndari654
Hjónin, Gunnar Hermann Grímsson (d.11.9.2003) og Sigurlaug Helgadóttir (d.21.10.2009) bjuggu í húsinu Skagaströnd en það var líka stundum kallað Verslunarstjórahús og stóð rétt vestan við Gamla kaupfélagið. Gunnar var kaupfélagsstjóri á Skagaströnd. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari583
Hjónin í Drangey, Guðmundur Ari Gíslason Kaldbak (d.2.6.1956) og Sigríður Helga Gísladóttir (d.6.8.1970). Þau hjón eignuðust 14 börn saman áður en þau skildu. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
gunnar082
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn522
Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) var kennari og seinna bókavörður í Höfðaskóla í fimm áratugi. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er Elínborg í essinu sínu við að handleika bækur. Hún var afar bókelsk og skildi eftir sig mikið og fjölbreytt bókasafn þegar hún dó.
Helgi Gunnarsson 22
Alda Ragnheiður Sigurjónsdóttir kona Helga Gunnarssonar verktaka hugar að veitingum sem þau hjón buðu starfsmönnum sínum upp á í reisugilli íþróttahússins sumarið 1997.
Óþekktur ljósmyndari571
Guðrún Kristmundsdóttir (d.28.12.1947) á Bjargi. Guðrún var sambýliskona Davíðs Guðmundssonar (d. 25.2.1955) á Bjargi. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson 1111
Hjónin Magnús B. Jónsson og Guðbjörg Viggósdóttir í svefnstað í Breiðavík á gönguferð hóps Skagstrendinga um Víkurnar við Borgarfjörð eystra 19. júlí 2014.
gunnar081
Þessi kona og barnið eru óþekkt. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari568
Hjónin í Barnaskólanum (Bjarmanesi) með elstu börn sín. Eðvarðsína Kristjánsdóttir (d.27.4.1944) og Einar Ragnar Guðmundsson (d.19.11.1984). Börnin eru Kristján Ragnarsson (d.13.7.2018) og Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011). Sigurlaug var dóttir Eðvarðsínu. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Guðrún Þórbjarnardóttir105
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Guðrún Árnadóttir (d.7.4.2005) með son sinn Örn Berg Guðmundsson (Assa) í fanginu. Guðrún var fyrri kona Björgvins Jónssonar (d.4.5.1992), sonar Jóns Sölvasonar.
Óþekktur ljósmyndari598
Hjónin í Garði, Jóhannes Pálsson (d.9.3.1972) og Helga Þorbergsdóttir (d.30.9.1970). Jóhannes var menntaður skósmiður. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari491
Guðríður Einarsdóttir (d.1907) frá Keldulandi. Myndin er úr bókinni Föðurtún eftir Pál Kolka.
Óþekktur ljósmyndari584
Sambýlisfólkið í Drangey, Þórdís Alexandra Jósefsdóttir Stiesen (d.6.7.1948) og Jakob Guðmundsson (d.18.6.1932). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 043
Myndina tók Guðmundur J. Björnsson í Hólaneskirkju eldri. Þá fór þar fram messa sem fermingarsystkin frá árinu 1963 sóttu. Á myndinni les eitt þeirra, Kolbrún Jónsdóttir, úr ritningunni. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996), sem fermdi hópinn, hlýðir á lesturinn til vinstri.
Höfðaskóli - safn442
Myndin var tekin 13. maí 2000 af heldri borgurum á ferðalagi. Á henni eru konurnar á óþekktum áningarstað. Konurnar eru, frá vinstri: María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Elínborg M. Jónsdóttir (d.7.1.2007) bláklædd, óþekkt Finnsdóttir, Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020), Elísabet Árnadóttir (d.16.3.2017) og Guðný Finnsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari641
Magdalena Soffía Helgadóttir (d.14.4.1954) á Læk (Efri Læk). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari617
Hjónin á Iðavöllum, Hallgrímur Jónsson (d.2.12.1983) og Anna Ragnheiður Fritzdóttir (d.4.3.1992). Hallgrímur var póstmeistari og símstöðvarstjóri. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn448
Kaffitími á kennarastofunni í Höfðaskóla einhverntíma kringum 2000. Fólkið er, frá vinstri: Hjálmfríður Guðjónsdóttir, Helga Ólína Aradóttir (nær), Elva Þórisdóttir (fjær) og Aðalheiður Sif Árnadóttir.
Óskar Kristinsson safn104
Hafþór Gylfason til hægri tekur við viðurkenningu fyrir hönd áhafnarinnar á Örvari Hu 21 fyrir framleiðslu á gæðavöru um borð. Maðurinn til vinstri er Páll Pétursson sölumaður á fiskafurðum í Bandaríkjunum fyrir SH en hann kom til að afhenda viðurkenninguna. Athöfnin fór fram á hótel Dagsbrún. Aðrir á myndinni eru óþekktir en hún var tekin einhverntíma kringum 1990.
Ljósmyndakeppni 2022 60
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Signý Ósk Richter og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja".
Jónas 3
Þessi mynd var tekin einhverntíma kringum 1980. Á henni eru afgreiðslustúlkur í verslun Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd. Stúlkurnar eru, frá vinstri: Helga Guðmundsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir og Steinunn Friðriksdóttir.
Óþekktur ljósmyndari645
Hjónin í Móum, Sigurður Jónasson (d.6.2.1944) og Björg Bjarnadóttir (d.6.7.1959). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari513
Sambýlisfólk á Brandaskarði, Vilhjálmur Benediktsson (d.21.10.1955) og Jensína Hallgrímsdóttir (d.6.2.1963). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Guðrún Guðmundsdóttir 029
20. - 21. ágúst 1991 fór hópur eldri borgara úr Austur Húnavatnssýslu í sumarferð til Stykkishólms og nágrennis. M.a. fór hópurinn í eyjasiglingu um Breiðafjörð en gist var á Hótel Eyjaferðir. Á þessari mynd er fólkið um borð í bát í eyjaferðinni. Frá vinstri: Guðrún Þ. Guðmundsdóttir fararstjóri, óþekkt, Fanney Halldórsdórrir (d.21.6.2005) frá Sviðningi og Jónína Valdimarsdóttir (d. 12.3.2020) frá Kárastöðum á Skagaströnd.
Óþekktur ljósmyndari474
Jóhanna Sigurjónsdóttir starfsstúlka í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut inni á kaffistofunni þar. Myndin var tekin einhverntíma síðsumars 1995.
Guðrún Guðmundsdóttir 077
Eldri borgarar á Skagaströnd héldu sýningu í Höfaðaskóla í desember 1987 á munum sem þeir höfu gert í félagsstarfi aldraðra undir leiðsögn Guðrúnar Þ. Guðmundsdóttur. Á sýningunni seldu konur úr kvenfélaginu Eining kaffi og meðlæti. Á þessari mynd eru þær Katrín Bryndís Sigurjónsdóttir (Stella) (d.8.12.2003) í Blálandi til vinstri og Sylvía Hrólfsdóttir í Vinaminni (Hólabraut 16) til hægri. Í baksýn grillir í hjónin Gunnlaug Sigmarsson og Steinunni Friðríksdóttur með son sinn Friðrik.
Óþekktur ljósmyndari563
Hjónin í Ásholti, Andrés Guðjónsson (d.5.10.1968) og Sigurborg Hallbjarnardóttir (d.3.12.1983). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari543
Hjónin á Skeggjastöðum, Hjalti Árnason (d. 4.7.2010) og Anna Lilja Magnúsdóttir (d.18.8.2000). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari660
Hjónin á Spákonufelli, Jakob Jens Jóhannsson (d.5.6.1935) og Pálína Emma Jónsdóttir (d.29.2.1976). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
1
…
11
12
13
…
17
Leita í myndasafninu
Leita