Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Konur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Menn
998 myndir
Flæði
Reitir
Óþekktur ljósmyndari603
Sambýlisfólkið í Haugasundi, Rósant Júlíus Jósefsson (d.8.6.1951) og Sigurlaug Jóhannesdóttir (d.27.7.1952). Haugasund stóð við ströndina (Fjörubraut) ekki langt frá Grund, Garðhúsum og Óseyri. Áður var Rósant Júlíus giftur Ingibjörgu Jónsdóttur (d.6.9.1907). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
gunnar074
Vilborg Jónsdóttir (d.9.4.1985) frá Hofi sem lengi átti heima á Bergi á Skagaströnd.
Óþekktur ljósmyndari539
Hjónin á Neðri-Harrastöðum, Davíð Sigtryggsson (d.3.7.1971) og Anna Gísladóttir (d.22.7.1998). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari613
Sambýlisfólkið í Höfðahólum, Axel Ásgeirsson (d.27.9.1965) og Sveinbjörg Ósk Björnsdóttir (d.12.7.2001). Bjuggu seinna á Litla Felli. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson safn097
Hafdís Þorvaldsdóttir og Ingvi Sveinn Eðvarðsson vinna við fiskpökkun um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn196
Adolf H. Berndsen vaskar upp í eldhúsinu um borð í togaranum Skálafjall FD 373 frá bænum Skála í Færeyjum. Þar var Adolf kominn ásamt fleiri mönnum á vegum Skagstrendings hf til að skoða togarann með hugsanleg kaup í huga. Myndin var tekin 29. ágúst 1990.
Óþekktur ljósmyndari573
Hjónin á Bjargi, Ragnar Þorsteinsson (d.17.9.1999) og Jónína Sigurlaug Stefánsdóttir (d.15.12.2000). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari618
Hjónin á Jaðri, Kristín Pálsdóttir (d.26.2.1948) og Frímann Finnsson (d. 18.3.1937) kennari. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari548
Þuríður Sveinbjörg Eiríksdóttir (d.1.9.1977) "húskona" á Sviðningi. Þuríður var alsystir Friðgeirs bónda á Sviðningi. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson1102
Karitas Pálsdóttir opnaði verslun og heilsurækt í húsi sínu á Fellsbraut 2 í maí 1996. Fyrirtæki sitt nefndi hún Hollt og gott en þar bauð hún upp á nudd, ljósabekk og sauna ásamt því að vera með ýmis konar heilsuvörur til sölu og ráðleggingar um notkun þeirra. Á myndinni er Karitas í huggulegri setustofu þar sem viðskiptavinir gátu sest niður og slakað á.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 40
Hrönn Árnadóttir kringum 1970.
Óskar Kristinsson safn100
Ingibjörg Skúladóttir kokkur í eldhúsinu á Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1147
Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri Höfðaskóla 2005 - 2013 í ræðustól á sviðinu í Fellsborg líklega á Elínborgardegi 15. nóvember 2012.
Höfðaskóli - safn421
Sólrún Ólína Sigurðardóttir skólahjúkrunarkona við Höfðaskóla í nokkur ár. Myndin var tekin í skólanum 9. maí 2000.
Guðrún Guðmundsdóttir 071
Myndin var tekin 1987 eða 1988 í kaffisamsæti á hótel Dagsbrún. Tilefnið var heimsókn eldri borgara frá Hvammstanga til jafnaldra sinna á Skagaströnd. Á myndinni eru frá vinstri: Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012) Straumnesi, Teitný Guðmundsdóttir (d.28.2.2000) Bergi og Soffía Sigurðardóttir (d.24.10.2002) Sæbóli.
Óþekktur ljósmyndari646
Rut Jóhannsdóttir (d.29.3.1965) í Móum. Rut var tvígift. Fyrri maður hennar var Sigurður Vilhjálmur Sigurðsson (d. 31.7.1902) en seinni maður var Sveinn Bjarnason (d.28.7. 1928). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari597
Ingunn Valdís Júlíusdóttir (d.22.4.1998) í Garðhúsum. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson safn098
Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir háseti um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn 261
Hjónin frá Skrapatungu, Finnur Guðmundsson (d.10.5.1971) og Ingibjörg Jónsdóttir (d.15.7.1970). Þau fluttu til Blönduóss þegar þau hættu búskap í Skrapatungu og létust þar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari616
Hjónin í Höfðahólum, Guðmundur Rafnsson (d.23.9.1968) og Sigurbjörg Sveinsdóttir (d.15.2.1959). Þau voru leigjendur í Höfðahólum og eignuðust fimm börn saman áður en þau skildu. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Guðrún Guðmundsdóttir 8
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Austurland 25. - 28. 12. - 15. júní 1991. Í ferðinni gisti hópurinn á Hótel Eddu í Hallormsstað. Á þessari mynd er Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) Skagaströnd með Bingó-vinning sinn.
Óþekktur ljósmyndari431
Unnið að vörutalningu í verslun Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Dökklæddi maðurinn er Björn Magnússon sem var stjórnarmaður í Kaupfélaginu en ritarinn er óþekktur. Ef þú þekkir hann/hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Guðmundsdóttir 025
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Austurland 25. - 28. júní 1991. Í ferðinni gisti hópurinn á Hótel Edda á Hallormsstað. Á þessari mynd er Fanney Halldórsdóttir (d.21.6.2005) Sviðningi að draga út vinning í happdætti á hátíðakvöldverði hjá Kristine E. Jóhannsdóttur Húnfjörð.
Óþekktur ljósmyndari425
Hallbjörg Jónsdóttir í reykpásu inni á kaffistofunni í versluninni við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1980.
Höfðaskóli - safn589
Þessar konur áttu allar börn í Höfðaskóla þegar myndin var tekin, líklega kringum 1990. Á myndinni fá þær sér kaffisopa í kennarastofunni á "opnum degi" í skólanum. Konurnar eru, frá vinstri: Sigríður Ólafsdóttir, Hlíf Björk Sigurðardóttir og Helga Jóhannesdóttir.
Guðrún Guðmundsdóttir 082
Jóhanna Sigurjónsdóttir (d.15.12.1990) málar í félagsstarfi aldraðra veturinn 1987 - 1988 í Höfðaskóla undir leiðsögn Guðrúnar Þ. Guðmundsdóttur.
Óþekktur ljósmyndari558
Hjónin í Ásbergi, Fritz Hendrik Magnússon (d. 19.10.1965) og Karla Ingibjörg Helgadóttir (d. 23.9.1986) . Ásberg stóð á lóðinni sunnan við Breiðablik á Skagaströnd. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Guðrún Guðmundsdóttir 021
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Austurland 25. - 28. júní 1991. Í ferðinni gisti hópurinn á Hótel Edda á Hallormsstað. Á þessari mynd eru Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003) til vinstri og Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020) til hægri í baráttu við mýflugur í nestisstoppi við Mývatn.
Óþekktur ljósmyndari433
Steinunn Friðriksdóttir til vinstri og Ingibjörg Pálsdóttir (d.24.2.2004) (Budda) til hægri vinna við vörutalningu í Kaupfélagi Húnvetninga á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari667
Fjölskyldan í Viðvík. Sitjandi eru hjónin, Gísli Einarsson (d.27.10.1969) og Guðný Þorvaldsdóttir (d.5.10.1953). Milli þeirra stendur sonur þeirra, Snorri Gíslason (d. 29.5.1994). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari672
Hjónin í Þórshamri, Björn Sigurðsson (d.5.10.1999) og Elísabet Sigríður Frímannsdóttir (d.1.9.1990). Þau sér seinna hús á Jaðri og bjuggu þar. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari594
Hjónin í Garðhúsum, Jón Konráð Stefánsson Klemensson (d.18.11.1981) og Ólína Margrét Sigurðardóttir (d.22.5.1962). Myndin er í bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari442
Anna Eygló Fanndal Skaftadóttir við vinnu í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Einbúastíg (gamla kaupfélaginu). Líklega var myndin tekin á áttunda áratugnum.
Óþekktur ljósmyndari501
Björg Jónsdóttir (d.1925) á Árbakka, kona Jakops Jósepssonar bónda þar. Myndin er úr bókinni Föðurtún eftir Pál Kolka.
Óþekktur ljósmyndari422
María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) verslunarstjóri gerir upp kassann í kaupfélagsversluninni við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 170
Myndin var tekin á árlegum piparkökudegi í leikskólanum Barnaból. Þá koma aðstandendur barnanna og hjálpa þeim við að baka og skreyta piparkökur. Á myndinni eru mæðgurnar Tinna Björk Gunnarsdóttir og Bryndís Björk Guðjónsdóttir sem mundar kökukeflið. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari547
Hjónin á Sviðningi, Friðgeir Ágúst Eiríksson (d.17.5.1985) og Fanney Halldórsdóttir (d. 21.6.2005). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1495
Þessar tvær konur voru verkstjórar yfir unglingunum í vinnuskóla Skagastrandar ásamt því að vinna í verkunum fyrir og eftir að skólanum lauk. Á myndinni eru þær að vinna við steinalögnina á bílastæðinu við kirkjuna. Konurnar eru Guðrún Soffía Pétursdóttir til vinstri og Rósa Björg Högnadóttir til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari549
Hjónin á Syðra-Kálfshamri, Guðmundína MARGRÉT Guðmundsdóttir (d.11.10.1971) og Eðvald Júlíusson (d. 21.1.1937). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari566
Guðrún Ólöf Sigurðardóttir (d.8.5.1972) húsmóðir í Barnaskólanum (Bjarmanesi). Var gift Jóni Klemenssyni (d.19.5.1935). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 062
Þessar fimm vinkonur hittust heima hjá einni þeirra í janúar 1992. Konurnar búa hingað og þangað á landinu þannig að þær hittast sjaldan allar í einu. Konurnar eru frá vinstri: Halla Björg Bernódusdóttir, Pálfríður Benjamínsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Guðrún Þórbjarnardóttir og Kristín Lúðvíksdóttir.
Óþekktur ljósmyndari651
Hjónin í Réttarholti, Anna Sigríður Sölvadóttir (d.19.10.1965) og Páll Pétursson (d.22.10.1963). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari637
Hjónin á Lækjarbakka, Jakob Pétur Stefánsson (d.29.6.1962) og Marta Guðmundsdóttir (d.31.5.1957). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari426
Helga Hermannsdóttir drekkur Malt á kaffistofu þáverandi kaupfélagsverlunarinnar við Bogabraut. Myndin var líklega tekin kringum 1980.
Óþekktur ljósmyndari537
Sambýlisfólkið í Króki, Sigurður Gíslason (d.25.7.1921) og Valgerður Sigurðardóttir (d.13.10.1959). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari450
Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015) á kaffistofunni í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn207
Steinunn Grímsdóttir við störf sín sem skrifstofustjóri Skagstrendings hf 29. september 1992.
Höfðaskóli - safn450
Frímínútur í Höfðaskóla einhverntíma kringum 2000. Kennararnir á myndinni eru frá vinstri: Elva Þórisdóttir, Aðalheiður Sif Árnadóttir og Kari ???
Ólafur Bernódusson1087
Myndin var tekin sumarið 1996 í stund milli stríða í Rækjuvinnslunni hf, sem var notuð til að dytta að húsinu. Stúlkurnar á myndinni voru vanari að standa við pillunarbandið og/eða pökkunarbandið inni en að vera í naglhreinsun úti. Stúlkurnar eru frá vinstri: Guðrún Elsa Helgadóttir, óþekkt, Svava Guðrúun Sigurðardóttir, Árný Elfa Helgadóttir, óþekkt, Inga Lára Sigurðardóttir og óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 368
Kristján Guðmundsson (d.16.4.1979), bóndi í Háagerði, í heyskap á nýju Deutz dráttarvélinni sinni. Konan með hrífuna er Fjóla Gísladóttir (d.5.11.1991) kona hans. Ekki er vitað af hverju Fjóla er svona prúðbúin í heyskapnum né hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið seint á sjöunda áratugnum.
Óskar Kristinsson - safn 259
Óskar Kristinsson með óþekktri vinkonu sinni í Thailandi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari621
Myndin var tekin utan við Lund við Strandgötu. Á henni er sambýlisfólkið Ole Omundsen (d. 19.10.1975) og Margrét Jóhannesdóttir (d.25.1.1976) lengst til vinstri. Fyrir miðri mynd situr óþekkt systir Ole en lengst til hægri er Björg Berndsen (d.15.12.1963). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ingibergur Guðmundsson 405
Guðrún Soffía Pétursdóttir í vinnuviku í Höfðaskóla í desember 1987.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1491
Jósef Valur Þorláksson kyssir langömmu sína, Ragnheiði Birnu Hafsteinsdóttur (Bibbu) (d.26.8.2008), fyrir utan Spákonufellsrétt. Mamma Jósefs, Rakel Tryggvadóttir, fylgist með. Myndin var líklega tekin 2006 eða 2007.
Óþekktur ljósmyndari466
Margét Þorsteinsdóttir til vinstri og Steinunn Friðriksdóttir til hægri voru samstarfskonur í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af þeim stöllum.
Óþekktur ljósmyndari564
Hjónin í Ásholti, Baldvin Magnús Jóhannesson (d.1.1.1981) og Línbjörg Árnadóttir (d.16.10.1966). Magnús var lausamaður í Ásholti. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Guðrún Guðmundsdóttir 032
Vorið 1991 fór hópur eldri borgara í heimsókn til jafnaldra sinna á Blönduósi til að hlýða á ferðakynningu Sigurðar Guðmundssonar. Þessar prúðbúnu konur eru, frá vinstri: Anna Halldórsdóttir Aspar (d.1.9.1999) frá Stórholti (Bankastræti 3) á Skagaströnd, Ingibjörg Hjálmarsdóttir Bergmann (d.1.8.2013) frá Öxl og María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) frá Asparlundi (Bogabraut 24) á Skagaströnd.
Guðrún Guðmundsdóttir 056
Myndin er frá félagsstarfi aldraðra á Skagaströnd í mars 1987. Þá var starfið í skólastofu á neðri hæðinni í Höfðaskóla undir stjórn Guðrúnar Þ. Guðmundsdóttur. Á myndinni eru, frá vinstri: Laufey Sigurvinsdóttir (d.21.12.1994) á Bergi, Sigríður Fanney Ásgeirsdóttir (d.11.12.2006) á Lækjarbakka og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003) í Lundi.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1523
Þessi mynd er úr fórum Herberts Ólafssonar (d.25.4.2007). Á henni er móðir hans Þórunn Samsonardóttir (d.11.10.1986) framan við heimili þeirra mæðginanna að Akri eða Hólabraut 13.
Óþekktur ljósmyndari565
Hjónin í Baldursheimi, Pálmi Sigurðsson (d.21.4.1992) og Hólmfríður Hjartarson (d.15.12.1991). Þau hjón bjuggu síðar lengi í Pálmalundi (Hólabraut 27). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
1
…
12
13
14
…
17
Leita í myndasafninu
Leita