Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Konur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Menn
998 myndir
Flæði
Reitir
Ljósmyndakeppni 2022 4
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Svanur Sigurbjörnsson og sendi inn í flokkinn "Andlit". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki.
Óþekktur ljósmyndari507
Hjónin á Bakka á Skaga, Páll Tómasson (d.3.6.1963) og María Ólafsdóttir (d.4.7.1975). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Guðrún Guðmundsdóttir 079
Myndin var tekin í félagsstrafi aldraðra veturinn 1987 - 1988 í Höfðaskóla. Á henni er Soffía Aðalheiður Sigurðardóttir (d.24.10.2002) til vinstri og Guðrún Þ. Guðmundsdóttir leiðbeinandi til hægri.
Óþekktur ljósmyndari624
Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) stendur hjá óþekktri konu framan við Karlsskála. Í dökka húsinu vinstra megin var lengi rekin "sjoppa" með olíu- og bensínsölu og tilheyrandi sælgæti og tóbaki. Hvíta húsið til hægri er Jaðar. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari560
Hjónin í Ásgarði, Björn Þorleifsson (d.26.5.1956) og Vilhelmína Andrésdóttir (d.24.8.1977). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari562
Hjónin í Ásgarði, Árni Hallgrímsson (d.4.5.1954) og Halla Guðlaugsdóttir (d.6.6.1924). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari576
Hjónin í Brimnesi, Björn Árnason (d.24.8.1938) og Guðrún Sigurðardóttir (d.9.1.1964). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1523
Þessi mynd er úr fórum Herberts Ólafssonar (d.25.4.2007). Á henni er móðir hans Þórunn Samsonardóttir (d.11.10.1986) framan við heimili þeirra mæðginanna að Akri eða Hólabraut 13.
Guðrún Guðmundsdóttir 024
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Austurland 25. - 28. júní 1991. Í ferðinni gisti hópurinn á Hótel Edda á Hallormsstað. Á þessari mynd eru þær Elísabet Sigurgeirsdóttir (d.11.11.2015) og Guðrún Þ. Guðmundsdóttir fararstjórar að kveðja Katrínu ? með blómum við brottför. Katrín, sem er á milli þeirra, tók á móti hópnum á Eskifirði og greiddi götu þeirra þar.
Óþekktur ljósmyndari511
Sambýlisfólkið á Blómsturvöllum í Kálfshamarsvík, Páll Benediktsson (d.6.12.1956) og Kristín Bjarnadóttir (d.30.9.1960). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari469
Hjónin Gunnlaugur Sigmarsson og Steinunn Friðriksdóttir á litlu jólum í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Steinunn var starfsstúlka þar í áraraðir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Gréta 059
Ragnheiður Björnsdóttir (d.6.11.1958) frá Syðra Hóli.
Óþekktur ljósmyndari600
Hjónin í Grafarholti, Stefán Jónsson (d.4.5.1931) og Kristjana Júlíusdóttir (d.1.2.1975). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Guðrún Guðmundsdóttir 070
Á myndinni, sem var tekin á hótel Dagsbrún 1987 eða 1988, eru skólasystur úr Kvennaskólanum á Blönduósi. Til vinstri er Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011) frá Ási á Skagaströnd en til hægri situr Ingibjörg Steinþórsdóttir (d.1.5.2012) úr Skólahúsinu í Vatnsdal. Ekki er vitað hvenær þær voru í skólanum.
Óþekktur ljósmyndari630
Hjónin í Laufási, Sigurður Guðmundsson (d.2.12.1984) og Jónína Margrét Björnsdóttir (d.11.9.1993). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari420
Guðbjörg Viggósdóttir við kjötborðið í þáverandi verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin 1976 eða 1977. Eins og sjá má var kjörorðið yfir kjötborðinu: "Kjötborðið í dag kemur skapinu í lag".
Óþekktur ljósmyndari615
Hjónin í Höfðahólum, Sigríður Fanný Ásgeirsdóttir (d.11.12.2006) og Jóhann Frímann Pétursson (d.13.1.1999). Þau bjuggu seinna lengi á Lækjarbakka við Strandgötu. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari424
Þessar fjórar starfsstúlkur í þáverandi kaupfélagsverslun við Bogabraut sýna jólagjafir sem voru meðal þeirra sem til voru í búðinni. Konurnar eru, frá vinstri: Edda Pálsdóttir, Vigdís Viggósdóttir, Helga Hermannsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Guðmundsdóttir 080
Myndin var tekin í Höfðaskóla í kaffipásu í félagsstarfi aldraðra veturinn 1987 - 1988. Á henni eru frá vinstri: Laufey Sigurvinsdóttir (d.21.12.1994), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003), Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d.26.8.2008) og Lára Kristjánsdóttir (d.6.9.1993).
Óþekktur ljósmyndari647
Sambýlisfólkið á Óseyri, Bjarni Jóhann Jóhansson (d. 12.9.1971) og Rósa Pálsdóttir (d.1.5.2002). Bjuggu síðar á Bjargi. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
gunnar080
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson safn099
Hafdís Þorvaldsdóttir háseti í klefanum sínum um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1103
Karitas Pálsdóttir opnaði verslun og heilsurækt í húsi sínu á Fellsbraut 2 í maí 1996. Fyrirtæki sitt nefndi hún Hollt og gott en þar bauð hún upp á nudd, ljósabekk og sauna ásamt því að vera með ýmis konar heilsuvörur til sölu og ráðleggingar um notkun þeirra. Á myndinni er Karitas að afgreiða óþekktan viðskiptavin í verslun sinni.
Óþekktur ljósmyndari625
Hjónin á Karlsskála, Ernst Georg Berndsen (d.21.8.1983) og Guðrún Laufey Helgadóttir (d.15.4.1987). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn451
Myndin var tekin á kennarastofunni í Höfðaskóla einhvertíma kringum 2000. Kennarar eru að fá sér kaffi í "langa fríinu". Konurnar eru, frá vinstri: Guðrún Soffía Pétursdóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir og Helga Ólína Aradóttir.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 063
Pálfríður Benjamínsdóttir frá Skálholti (Skagavegi 17). Myndin var tekin í janúar 1992.
Óþekktur ljósmyndari514
Hjónin á Efri-Harrastöðum, Gunnlaugur Björnsson (d.8.5.1978) og Ósk Þorleifsdóttir (d. 14.7.1967). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari570
Hjónin á Bjargi, Davíð Guðmundsson (d.25.2.1955) og Þórdís Hansdóttir (d.13.2.1956). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Gréta 026
Jóhanna Björnsdóttir (d.28.8.1991) frá Syðra Hóli.
Óþekktur ljósmyndari627
Myndin var tekin utan við Kárastaði af Jónínu Valdimarsdóttur (d.12.3.2020) ráðskonu bræðranna Sigurbjörns og Kára Kristjánssona á Kárastöðum (Bankastræti 5). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1498
Árný Margrét Hjaltadóttir (Dúdú) á opnu húsi í Nes listamiðstöðinni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn109
Starfsfólk frystihúss Hólaness hf fundar í kaffistofunni 10. september 1992. Fundarefnið var að ísfisktogarinn Arnar Hu 1 var að hætta að landa afla sínum hjá frystihúsinu. Konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Ingibjörg Skúladóttir, Erna Högnadóttir, Anna Ásgeirsdóttir, Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Þorbjörg Ragna Þórðardóttir (d.15.2.2016) og Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020).
Óþekktur ljósmyndari649
Hjónin í Réttarholti, Jón Jónas Sölvason (d.17.8.1969) og Þorbjörg Halldórsdóttir (d.30.6.1970). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari454
Hjónin Jón Jónsson (d.9.7.1991) og María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) voru bæði verslunarstjórar í verslun Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd einhverntíma á starfsævinni. Myndin var tekin í hófi í Hótel Dagsbrún þegar María lét af störfum við verslunina enJón var hættur nokkrum árum fyrr. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari579
Hjónin í Brúarlandi, Guðmundur Ragnar Árni Magnússon (d. 14.1.2000) og Steinunn Áslaug Jónsdóttir (d.1.2.1975). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Guðrún Guðmundsdóttir 081
Myndin er frá félagsstarfi aldraðra í Höfðaskóla veturinn 1987 - 1988. Konurnar á myndinni eru frá vinstri: Sigurlaug Jónsdóttir (d. 15.8.2011), Elísabet G. Kristjánsdóttir (d.21.3.1991), Laufey Sigurvinsdóttir (d.21.12.1994) og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003).
Óþekktur ljósmyndari554
Hjónin á Hofi (áður í Víkum), Hilmar Árnason (d.16.3.1988) og Sólveig Aðalheiður Magnúsdóttir (d.4.4.1996). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn520
Jóhanna Ólafsdóttir kennari við Höfðaskóla í nokkur ár á síðustu árum níunda áratugarins.
Gréta 049
Konurnar á myndinni eru óþekktar en bak við þær er Melstaður nær og Ægissíða fjær. Bæði þessi hús eru nú (2023) löngu horfin. Í Melstað bjuggu lengi Björgvin Guðmundsson (d.29.12.1995) frá Saurum og Margrét Jóhanna Sveiinsdóttir (d.25.2.1988). Þau fluttu til Sandgerðis og luku æfinni þar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1217
Þessi mynd var tekin í maí 1993. Á henni er Hrönn Árnadóttir með syni sínum Guðmundi Inga Ólafssyni (d.3.11.2006) að benda á lífshættu sem sköpuð var á róluvelli á staðnum. Rólan sjálf hafði slitnað niður en annar kaðallinn hékk áfram og einhver hafði búið til lykkju á hann svo hægt væri að róla sér með því að hafa annan fótinn í lykkjunni. Sá hinn sami hafði ekki áttað sig á að lítil börn gátu óvart hengt sig í lykkjunni. Eins og sést á myndinni var kaðallinn fjarlægður strax og þetta uppgötvaðist.
Óþekktur ljósmyndari521
Hjónin frá Hofi, Páll Jónsson (d.19.7.1979) og Sigríður Guðnadóttir (d.4.3.1964). Bjuggu lengi í Breiðabliki á Skagaströnd en Páll starfaði sem skólastjóri við Höfðaskóla í áratugi. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson safn108
Starfsfólk frystihúss Hólaness hf á fundi í kaffistofunni 10. september 1992. Á fundinum var fólkinu tilkynnt að til stæði að ísfiskstogarinn Arnar Hu 1 mundi hætta að leggja upp afla í frystihúsið. Þetta voru alvarleg tíðindi fyrir starfsfólkið því uppistaðan í þeim afla sem unnin var í frystihúsinu kom frá Arnari. Konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Anna Ásgeirsdóttir, Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Þorbjörg Ragna Þórðardóttir (d.15.2.2016), Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020), Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012), Bergljót Óskarsdóttir (d.22.2.2004), Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012).
Óþekktur ljósmyndari608
Arnbjörg Þorsteinsdóttir (d.13.11.1963) á Hnappsstöðum. Arnbjörg bjó þar með manni sínum Guðlaugi Guðmundssyni (d.6.2.1951). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari674
Hjónin í Þórsmörk, Guðrún Oddný Guðjónsdóttir (d.22.4.1951) og Jóhannes Jóhannesson (d.17.7.1937). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Gréta 126
Konan lengst til hægri á myndinni er Margrét Björnsdóttir (d.11.9.1993) frá Syðra Hóli sem lengi bjó í Laufási á Skagaströnd. Hinar konurnar tvær eru óþekktar en ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jónas 9
Elín Njálsdóttir á sviðinu í Fellsborg í hlutverki sínu í leikritinu Gísl eftir Brendan Behan í þýðingu Jónasar Árnasonar. Leikritið var sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar leikárið 1979 - 1980 undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur.
Óþekktur ljósmyndari488
Jónína Jónsdóttir (d. ?) bóndi á Höfnum eftir mann sinn Árna Sigurðsson (d.1881). Myndin er úr bókinni Föðurtún eftir Pál Kolka.
Guðríður Rafnsdóttir
Aftan á þessari mynd stendur nafnið: Guðríður Rafnsd.. Líklega er þetta Guðríður Rafnsdóttir (d.22.3.1932) sem bjó í Höfðahólum og var gift Ásgeiri Klemenssyni. Þau hjón áttu þrjú börn: Sigríði (d.11.1206), Ólaf (d.27.12.1995) og Axel (d.21.9.1965) Fyrir átti Guðríður soninn Árna Sigurðsson (d.?).
Ragnar S. Ingvarsson - safn 185
Líklega var þessi mynd tekin 1986 eða 1987. Á henni er Ægir Thorberg Jónsson vinstra megin og Karitas Laufey Ólafsdóttir (d.15.10.2019) til hægri. Tilefni myndatökunnar er ekki þekkt.
Ingibergur Guðmundsson 349
Mæðgurnar Vilborg Magnúsdóttir til vinstri og Bára Kristinsdóttir til hægri í Höfðaskóla. Vilborg kenndi þar í nokkur ár. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1990.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 059
Myndin var tekin á pallinum við Suðurveg 3 líklega sumarið 1990. Á henni eru vinkonurnar og frænkurnar Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020) og Anna Sjöfn Jónasdóttir, sem situr með systur sína Kristbjörgu Unu Guðmundsdóttur.
Höfðaskóli - safn530
Vilborg Magnúsdóttir var kennari yngri barna við Höfðaskóla í nokkur ár á níunda áratugnum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1191
Sólveig Róarsdóttir - Didda - klæðskeri í kunnuglegum stellingum við vinnu sína á saumastofunni Íris 19. apríl 2007.
Óþekktur ljósmyndari635
Sambýlisfólkið á Litla-Felli, Guðmundur Júlíusson (d.1.1.1961) og Elísabet Kristjánsdóttir (d.6.3.1991). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari586
Hjónin í Dvergasteini með syni sína. Matthildur Jóhannsdóttir (d.12.2.1953) og Björn Benediktsson Fossdal (d.23.10.1969). Synirnir eru: Snorri Sverrir Fossdal (d.7.10.1997) til vinstri og Auðunn Hafsteinn Fossdal (d.23.2.1962) til hægri. Dvergasteinn var lágreist hús sem stóð við Bankastræti rétt vestan við Skálholt (við Skagaveg). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn594
Sigríður Ólafsdóttir sýnir Særúnu Níelsdóttur hvernig á að bera sig að við saumaskap í Höfðaskóla einhverntíma kringum 1988.
Óþekktur ljósmyndari505
Steinunn Sveinsdóttir (d.10.10.1974) bóndkona í Ásbúðum á Skaga. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn469
Bekkjarkvöld nemenda Höfðaskóla fædd 1988 með foreldrum í Skíðaskálanum 1. maí 1997. Á myndinni eru, frá vinstri: Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Helga Bergsdóttir, Guðrún Soffía Pétursdóttir, Sindri Jóelsson, Sigurgeir Snævar Árnason og Guðbjörg Kristinsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari499
Þuríður Magnúsdóttir (d.?) Spákonufelli eiginkona Jóseps Jóelssonar bónda og hreppstjóra þar. Myndin er úr bókinni Föðurtún eftir Pál Kolka.
Guðrún Guðmundsdóttir 045
Farin var sumarferð aldraðra í A-Húnavatnssýslu um Norðausturland dagana 21. - 24. júní 1993. Gist var á Hótel Tanga í Vopnafirði. Á myndinni tyllir Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) frá Kárstöðum á Skagaströnd sér á hægindi í gamla bænum að Burstafelli í Vopnafirði.
1
…
13
14
15
16
17
Leita í myndasafninu
Leita