Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Konur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Menn
998 myndir
Flæði
Reitir
2001012
Þessi mynd er af nokkrum skátaforingjum kringum árið 1963. Fremst fyrir miðju situr Ingólfur Ármannsson félgasforingi Sigurfara á Skagaströnd. Vinstra megin við hann er Tryggvi Þorsteinsson frá Akureyri.Aftan við Tryggva stendur Þórður Jónsson einnig úr Sigurfara og enn aftar er Jón Ísberg (með gleraugu) félagsforingi Bjarma á Blönduósi. Við hlið Þórðar er Gunnhildur Þórmundsdóttir einnig úr Bjarma. Lengst til hægri er svo Jóhannes Torfason úr Bjarma. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu þá athugasemd á
[email protected]
.
Gréta 002
Ásdís Magnúsdóttir frá Syðra Hóli á fermingardaginn sinn 1945.
Óþekktur ljósmyndari542
Hjónin á Skeggjastöðum, Magnús Ólafur Tómasson (d.3.4.1942) og Ingunn Þorvalsdóttir (d.21.7.1971). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1507
Myndin var tekin í Nes listamiðstöðinni á opnu húsi. Þá sýna listamenn það sem þeir hafa verið að sýsla við þann tíma sem þeir hafa dvalið þar. Stúlkan á myndinni var með gjörning þar sem hún hafði stráð fjörusandi á gólfið og staflað bókum og tímaritum kringum sandinn. Sjálf lá hún svo hreyfingarlaus í sandinum klukkutímum saman. Hvað verkið átti að tákna var eftirlátið hverjum sýningargesti fyrir sig. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Gréta 079
Mæðgur frá Neðri Harrastöðum. Anna Gísladóttir (d.22.7.1998) með dætur sínar Jóhönnu Davíðsdóttur vinstra megin og Aðalheiði Davíðsdóttur til hægri.
Gréta 105
Myndin var tekin við Laufás 1964. Stúlkurnar tvær eru Gréta Jónsdóttir í Laufási til vinstri og Aðalheiður Másdóttir í Réttarholti til hægri. Í baksýn er Fjóla Sigurðardóttir (d.15.7.1988) móðir Grétu.
Ólafur Bernódusson1210
Þessar tvær konur voru kennarar einn vetur í Höfðaskóla á níunda áratugnum. ?Ásdís ?? til vinstri og Sigríður Laufey Einarsdóttir til hægri. Ef þú þekkir rétt nafn Ásdísar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari591
Þorbjörg Ragna Pálsdóttir (d.6.6.1956) á Flankastöðum var seinni kona Jóns Frímanns Sigurðssonar (d.26.2.1979). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
2001011
Hallbjörg Jónsdóttir í Þórsmörk. Myndin var tekin þar 1965.
Óþekktur ljósmyndari523
Vilborg Jónsdóttir (d.9.4.1985) frá Hofi. Vilborg bjó lengi á Bergi á Skagaströnd. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Gréta 092
Á þessari haustlegu mynd er Margrét Björnsdóttir (d.11.9.1993) á hlaðinu við heimili sitt í Laufási. Hjá henni er hundurinn hennar, Snati, og hesturinn hennar. Húsið til hægri er Melstaður, sem nú er löngu horfinn. Sama má segja um Ægissíðu, sem grillir í vinstra megin við Margréti.
Gréta 127
Því miður er ekkert vitað um þessa fallegu mynd af prúðbúnu konunum. Myndin er póstkort og aftan á henni stendur: "Fjóla Fjóla Sigurðardóttir Laufási Skagaströnd". Ef þú þekkir einhverja af konunum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Gréta 046
Fjóla Sigurðardóttir (d.15.7.1988) í Laufási er til vinstri á myndinni en konan til hægri er ekki þekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Gréta 082
Konurnar þrjár á myndinni eru, frá vinstri: Aðalheiður Davíðsdóttir frá Neðri Harrastöðum, Fjóla Sigurðardóttir (d.15.7.1988) í Laufási og ?Þórey?. Ef þú veist hver Þórey er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 496
Anna Sjöfn Jónasdóttir athugar gamla saumavél á einum af fyrstu æfingum á leikritinu Saumastofan eftir Kjartan Ragnarsson veturinn 1984 - 85. æfingarnar voru í Höfðaskóla áður en farið var á sviðið í Fellsborg.
Ljósmyndakeppni 2022 49
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Morten Wiborg og sendi inn í flokkinn "Gamalt".
Fisk Seafood - safn 280
Erla Jónsdóttir var um tíma skrifstofustjóri og fjármálastjóri Skagstrendings hf. Á myndinni er hún á skrifstofu sinni en ekki er vitað hvenær hún var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 436
Sigríður Gestsdóttir úr umf Fram kastar kúlu á héraðsmóti USAH sumarið 1986 á íþróttavellinum á Blönduósi.
Óþekktur ljósmyndari665
Hjónin á Sæbóli, Indriði Brynjólfsson (d.8.12.1977) og Ingunn Margrét Díana Guðborg Gísladóttir (d.23.10.1951). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ingibergur Guðmundsson 362
Myndin var tekin í maí 1988 á kennarastofunni í Höfðaskóla. Á henni eru kennararnir Torfhildur Stefánsdóttir og Magnús Ólafsson (d.23.7.2012).
Ólafur Bernódusson1222
Á myndinni eru vinningshafar í kvennaflokki á meistaramóti Golfklúbbs Skagastrandar 1986 með verðlaun sín. Frá vinstri: Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) og Guðrún Pálsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 377
Myndin var tekin 1988 þegar fólkið á henni var í vinabæjarheimsókn í Växjö í Svíþjóð. Guðmundur Sigvaldason (d.8.2.2017) þáverandi sveitarstjóri er til vinstri og Hildugunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996) fulltrúi Norræna félagsins á Skagaströnd til hægri.
Skagaströnd - safn544
Óþekkt kona í peysufötum. Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin. Á vefsíðunni: annríki.is/thjodbuningar/peysufot/ segir eftirfarandi um peysuföt: "Peysuföt er kvenbúningur sem konur báru hversdagslega og til spari. Hann hefur þróast í gegnum aldirnar eða allt frá 15.-16. öld. Búningurinn dregur nafn sitt af efri hlutanum sem var upprunalega prjónuð peysa. Búningurinn samanstendur af peysu, pilsi, svuntu, slifsi, brjósti og húfu. Á fyrri hluta 19. aldar þróaðist peysan í að vera saumuð flík. Eftir 1870 var ekki algegnt að prjóna þær enda mikil vinna að gera slíkt. Á 19. öld voru peysufötin gjarnan blá en eftir miðbik aldarinnir urðu þau svört og eru það enn í dag. Þannig þróaðist peysan eftir tísku og framboði á efnum og tillegi hverju sinni. Ullarband í peysurnar var auðvelt að ná í. Það var unnið heima á bæjum. Einnig var flutt inn ullarband sem hæglega gæti hafa verið notað í útsaum og fínni prjónaskap. Eitt af aðaleinkennum peysunnar er lítill felldur listi á baki hennar sem kallast stakkur. Hefur peysan stundum verið nefnd stakkpeysa eftir honum. Einnig hafa peysuföt verið nefnd húfubúningur eftir prjónuðu húfunni sem konur bera við hann".
Guðrún Guðmundsdóttir 058
Myndin var tekin 9. apríl 1987 þegar eldri borgarar á Skagaströnd skruppu í heimsókn til jafnaldra sinna á Blönduósi. Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) er til vinstri við borðið og Dagný Guðmundsdóttir (d.22.4.2004) til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1107
Myndin var tekin í maí 1996 þegar félagskonur í kvenfélaginu Eining héldu upp á afmæli félagsins. Myndin var tekin á hótel Dagsbrún. Á henni flytur Birna Blöndal (d.26.10.2018) ræðu og er að heiðra þær Jónu Guðrúnu Vilhjálmsdóttur (d.13.7.2003) vinstra megin og Soffíu Lárusdóttur (d.31.3.2010) til hægri. Sitjandi til hægri er Steinunn Grímsdóttir en aðrar á myndinni eru óþekktar.
Gréta 024
Fjóla Sigurðardóttir (d.15.7.1988) frá Laufási til vinstri en óþekkt kona til hægri. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
2001035
Hrefna Þorbjörnsdóttir frá Akurgerði. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari567
María Jóhannesdóttir (d.23.6.1946) húsmóðir í Barnaskólanum (Bjarmanesi). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson1105
Myndin var tekin í maí 1996 á hótel Dagsbrún þegar konur í kvenfélaginu Eining héldu upp á afmæli félagsins. Á henni er Birna Blöndal (d.16.10.2018), vinstra megin, að afhenda Huldu Árnadóttur (d.14.2.2007) einhverja viðurkenningu. Framan við þær situr Steinunn Grímsdóttir og Guðrún Magnúsdóttir er lengst til hægri. Aðrar konur á myndinni eru óþekktar.
Guðrún Guðbjörnsdóttir123
Guðrún Sigurðardóttir leyfir Julian Hewlett að þefa af blóminu sínu. Julian stjórnaði kirkjukór Hólaneskirkju frá haustinu 1989 fram á mitt sumar 1994 og Guðrún söng þar altrödd. Myndin hefur verið tekin einhverntíma á því tímabili.
Ólafur Bernódusson1118
Myndin var tekin í afmælishófi í Fellsborg þegar félagar í Leikklúbbi Skagastrandar, ásamt mökum, héldu upp á 20 ára afmæli klúbbsins í desember 1995 með kaffi- og skemmtikvöldi. Fyrir kvöldið var búið að skipta félögunum í hópa sem allir áttu að koma með eitt frumsamið skemmtiatriði. Einnig þurftu allir að mæta með einhvers konar höfuðfat. Á þessari mynd er einn hópurinn að flytja sitt atriði. Frá vinstri: Vigdís Ómarsdóttir, Jennsína Lýðsdóttir, Birna Blöndal (d.26.10.2018) og Elín Njálsdóttir.
Gréta 020
Konan til hægri á myndinni er Margrét Björnsdóttir (d.11.9.1993) frá Syðra Hóli en seinna í Laufási á Skagaströnd. Konan til vinstri er Sigríður Ingimundardóttir (d.12.5.2017).
Árni Geir Ingvarsson - safn 1517
Þessar tvær konur voru verkstjórar í vinnuskólanum nokkur sumur. Rósa Björg Högnadóttir vinstra megin og Guðrún Soffía pétursdóttir til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Gréta 063
Fjóla Sigurðardóttir (d.15.7.1988) í Laufási. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Guðmundsdóttir 048
Í ágúst 1993 bauð Skagstrendingur hf eldri borgurum á Skagaströnd í dagsferð um Vestur Húnavatnssýslu. Á myndinni eru konurnar að skoða sig um á byggðasafninu að Reykjum. Frá vinstri: Elínborg M. Jósdóttir (d.7.1.2007) frá Másstöðum í Vatnsdal og seinna Röðulfelli á Skagaströnd, Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) frá Kárastöðum á Skagaströnd, Heiðbjört Lilja Halldórsdóttir (d.1.7.2019) frá Eyjakoti og María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) frá Asparlundi á Skagaströnd.
Óþekktur ljósmyndari623
Hjónin á Karlsskála, Ernst Carl Frederik Berndsen (d.15.12.1954) og Steinunn Þórdís Siemsen Þorsteinsdóttir Berndsen (d.29.10.1953). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari527
Hjónin á Hróarsstöðum, Bjarni Andrés Þórðarson (d.4.2.1980) og fyrri kona hans Lilja Kristbjörg Jóhannsdóttir (d.10.7.1977). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari540
Sambýlisfólkið á Ósi í Nesjum, Jóhann Jósefsson (d.29.4.1980) og Rebekka Guðmundsdóttir (d.30.9.1959). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn553
Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla bíður komu Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands í heimsókn í skólann í október 2002. Frá vinstri: Björk Hlöðversdóttir, tvær óþekktar, Sólrún Ólína Sigurðardóttir, Sigríður Sól Indriðadóttir, Arnór Snorri Gíslason (fjær), óþekkt (nær), Valgerður Guðmundsdóttir, óþekkt, Friðvin Ingi Ernstsson Berndsen, Sindri Njáll Hafþórsson, óþekktur, Albert Ingi Haraldsson, Eyþór Kári Egilsson, Sindri Jóelsson og óþekktur.
Guðrún Guðbjörnsdóttir128
Myndin var tekin 1. nóvember 1997 af konum á námskeiði í gerð grænmetisrétta. Myndin var tekin framan við kennslueldhúsið í Höfðaskóla en krjúpandi lengst til vinstri er Sólveig Eiríksdóttir sem var leiðbeinandi á námskeiðinu. Hinar konurnar eru, krjúpandi frá vinstri: Dagný Marín Sigmarsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir, Steinunn Berndsen og Guðrún Guðbjörnsdóttir. Standandi frá vinstri: óþekkt, Sigríður Lárusdóttir (d.18.11.2015), Þórunn Bernódusdóttir, Íris Valgeirsdóttir, Díana Kristjánsdóttir, Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2010) og Hjördís Sigurðardóttir.
Óþekktur ljósmyndari587
Hjónin á Finnsstöðum, Hafsteinn Sigurbjarnarson (d. 18.5.1974) og Laufey Jónsdóttir (d. 25.12.1969). Þau hjón bjuggu í áratugi í Reykholti á Skagaströnd. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ingibergur Guðmundsson 572
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin á kennarastofunni í Höfðaskóla en líklega var það kringum 1995. Þórunn Bernódusdóttir er til vinstri og Hjördís Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022) til hægri. Til gamans má geta þess að báðar þessar konur áttu sinn tíma sem leikskólastjórar á leikskólanum Barnaból.
Skagaströnd - safn545
Konan á myndinni er í skautbúningi en litla stúlka í upphlut. Skautbúninginn hannaði Sigurður Guðmundsson málari á árunum 1858 - 1860 sem breytingu á faldbúningnum sem var eldri hátíðabúningur kvenna og hann var óánægðu með.
Óþekktur ljósmyndari532
Hjónin á Keldulandi, Albert Erlendsson (d. 2.3.1984) og Sigulína Lárusdóttir (d. 10.7.1986). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Guðrún Guðbjörnsdóttir130
Myndin var tekin 1. nóvember 1997 í Höfðaskóla. Þann dag voru konurnar á myndinni á námskeiði í gerð grænmetisrétta undir leiðsögn Sóveigar Eiríksdóttur. Á myndinni eru konurnar að smakka á réttunum sem þær höfðu matreitt. Konurnar eru, frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir, fjórar óþekktar konur, Díana Kristjánsdóttir, Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2010), óþekkt kona og Hjördís Sigurðardóttir.
Gréta 017
Ragnheiður Björnsdóttir (d.6.11.1958) frá Syðra Hóli.
Ólafur Bernódusson1197
Ragnhildur Steingrímsdóttir (d.25.6.2009) við störf í Fellsborg sem leikstjóri hjá Leikklúbbi Skagastrandar. Þar leikstýrði hún leikritunum: Hart í bak 1978 - ´79, Gísl 1979-´80 og Ólympíuhlauparinn 1981-´82.
Guðrún Guðbjörnsdóttir129
Myndin var tekin 1. nóvember 1997 af konum í kennslueldhúsinu í Höfðaskóla. Þarna eru þær í óða önn að matreiða grænmetisrétti því þær voru á námskeiði í slíkri matargerð. Frá vinstri á myndinni: Dagný Marín Sigmarsdóttir, Sólveig Eiríksdóttir leiðbeinandi, Íris Valgeirsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2011) og Þórunn Bernódusdóttir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir120
Myndin er tekin úr sýningaskrá og þess vegna dálítið sjúskuð. Hún sýnir Sveinbjörn H. Blöndal (d.7.4.2010) og konu hans Birnu Jónsdóttur Blöndal (d.26.10.2018). Sýningarskráin var gefin út vegna yfirlitssýningar á verkum Sveinbjörns í íþróttahúsinu á Skagaströnd 23. júlí til 14. ágúst 2011. Hann hélt nokkrar einkasýningar og tók þátt í samsýningum bæði hérlendis og erlendis. Þrátt fyrir það sinnti hann list sinni alltaf í hjáverkum með fullri vinnu. Birna var öflugur liðsmaður í leiklist á Skagaströnd enda hafði hún stundað balletnám á yngri árum.
Guðrún Guðmundsdóttir 046
Farin var sumarferð aldraðra í A-Húnavatnssýslu um Norðausturland dagana 21. - 24. júní 1993. Gist var á Hótel Tanga í Vopnafirði. Á myndinni er Fanney Halldórsdóttir (d.21.6.2005) frá Sviðningi að tylla sér á rúmbríkina í einu herberginu í gamla bænum að Burstafelli í Vopnafirði. Undir rúminu eru hin bráðnauðsynlegu emaleruðu næturgögn.
Ingibergur Guðmundsson 584
Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012) við færibandið í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari557
Hjónin á Örlygsstöðum með tvo af sonum sínum. Frá vinstri: Sigurlaug Björnsdóttir (d.7.9.1982), Björn Haraldsson (d.21.9.1988), Haraldur William Sigurjónsson (d.13.5.1986) og Grétar Jón Haraldsson. Hjónin Haraldur og Sigurlaug bjuggu mjög lengi á Iðavöllum á Skagaströnd.
Ingibergur Guðmundsson 365
Jóhanna Jónsdóttir kennari á kennarastofunni í Höfðaskóla í maí 1988.
Jónas 25
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru þær Bjarney Valdimarsdóttir til vinstri og Lilja Kristinsdóttir til hægri í hlutverkum sínum.
Gréta 010
Á myndinni eru, frá vinstri, systurnar Jóhanna Björnsdóttir (d.28.8.1991), Margrét Björnsdóttir (d.11.9.1993) og Ragnheiður Björnsdóttir (d.6.11.1958) frá Syðra Hóli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Guðmundsdóttir 086
Soffía Aðalheiður Sigurðardóttir (d.24.10.2002) til vinstri og Guðný Finnsdóttir til hægri á sýningu muna eldri borgara í Höfðaskóla á desember 1987. Báðar áttu þær verk á sýningunni.
Óþekktur ljósmyndari483
Myndin var líklega tekin á níunda áratugnum á fatamarkaði þegar verslun Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd seldi fatnað í Fellsborg. Konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011), Jóhanna Sigurjónsdóttir (d.15.12.1990), óþekkt og Ingibjörg Harpa Sævarsdóttir. Barnið er óþekkt.
Ingibergur Guðmundsson 504
Á myndinni stendur yfir fundur ritnefndar fyrir leikskrá vegna sýningar á Saumastofunni í nóvember/desember 1984. Myndin var tekin í kennarastofunni í Höfðaskóla. Á henni eru, frá vinstri: Birna Blöndal (d.26.10.2018), Kristín Björnsdóttir og Guðný Sigurðardóttir.
Skagastrond 1989
Skagaströnd 1989. Í myndinni er m.a. farið í heimsóknir í fyrirtæki á staðnum. Mynd og hljóð eru í góðu lagi. Myndin er 31 mínúta og þulur á henni er Þorbjörn Sigurðsson en myndatöku annaðist Þrándur Thoroddsen.
Óþekktur ljósmyndari639
Hjónin á Læk (Efri Læk), Björn Sölvason Helgason (d.11.3.1983) og Anna Björnsdóttir (d. 6.12.1948). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
1
…
13
14
15
16
17
Leita í myndasafninu
Leita