Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Konur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Menn
998 myndir
Flæði
Reitir
Guðrún Guðmundsdóttir 050
Í ágúst 1993 bauð Skagstrendingur hf eldri borgurum á Skagaströnd í dagsferð um Vestur Húnavatnssýslu. Á myndinni eru konurnar staddar á byggðasafninu á Reykjum. Þær eru frá vinstri: Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011), Heiðbjört Lilja Halldórsdóttir (d.1.7.2019) frá Eyjakoti og María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) frá Asparlundi á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson1205
Sigrún Jónsdóttir sýnir hér eina af framleiðsluvörum Violu sem var saumastofa starfrækt á efstu hæðinni í gamla kaupfélaginu. Prjónapeysur og prjónavoðir voru aðal framleiðsluvörur fyrirtækisins. Myndin var líklega tekin kringum 1980.
Gréta 094
Jóhanna Eiríksdóttir (d.22.9.1953) frá Saurum á Skaga.
Gréta 066
Konan til vinstri er Fjóla Sigurðardóttir (d.15.7.1988) í Laufási en til hægri er líklega Margrét J. Sveinsdótttir (d.25.2.1988) í Melstað, sem stóð rétt sunnan og austan við Laufás. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1244
Myndin var tekin í skíðaskálanum 14. maí 1993. Þá borðaði starfsfólk Höfðaskóla saman þar ásamt mökum sínum og gerði sér glaðan dag. Konurnar á myndinni eru Líney Jósefsdóttir vinstra megin og Jóney Hrönn Gylfadóttir til hægri.
Guðrún Guðmundsdóttir 038
Eldri borgarar í Austur Húnavatnssýslu fóru í sumarferð 9. - 12. júní 1992. Farið var yfir Kjöl og ýmsir staðir á suðurlandi skoðaðir. Á myndinni eru konurnar líklega á leið í hátíðakvöldverð í ferðinni. Frá vinstri: Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011), Guðrún Þ. Guðmundsdóttir fararstjóri og Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004). Allar komu þær frá Skagaströnd.
2001047
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Á henni eru þrjá systur. Frá vinstri: Hjördís, Aðalbjörg og Guðrún Sigurðardætur. Þær eru dætur Sigurðar Guðmonssonar og Hallbjargar Jónsdóttur frá Þórsmörk á Skagaströnd.
Höfðaskóli - safn519
Inga Matthíasdóttir íþróttakennari til vinstri og Björk Axelsdóttir kennari til hægri við undirbúningsvinnu við kaffiborðið á kennarastofunni í Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það snemma á níunda áratugnum.
2001037
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er af Höllu Júlíusdóttur. Hún var eiginkona Árna Guðmonssonar sem drukknaði í sjóróðri frá Skagaströnd í nóvember 1948. Þau hjón áttu mörg börn sem bjuggu lengi á Skagaströnd.
2001044
Hallbjörg Jónsdóttir eða Halla í Þórsmörk. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1206
Sigríður Einarsdóttir var myndmenntakennari við Höfðaskóla í nokkur ár á tíunda áratugnum. Hún hélt sýningu á verkum sínum á miðhæðinni í gamla kaupfélaginu, sem þá stóð auð. Myndin var tekin við opnunina og sýnir Sigríði við eitt verka sinna.
Óþekktur ljósmyndari553
Hjónin í Víkum, Karl Hinrik Árnason (d.25.12.1995) og Margrét Jónsdóttir (d.21.11.1986). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Gréta 033
Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) á Kárastöðum - Bankastræti 5. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001515
Á myndinni eru börn á leikskólanum Barnaból árið 2003 - 2004. Krakkarnir á henni eru í eldri deildinni, Sæbóli. Konurnar á myndinni eru Helga Bergsdóttir og Herdís Jakobsdóttir á gólfinu til vinstri. Hægra megin eru Lilja Ingólfsdóttir aftar og Guðbjörg Viggósdóttir á gólfinu. Börnin eru, frá vinstri aftast: óþekkt stúlka og Anton Þór Einarsson. Í miðröð, frá vinstri: óþekkt stúlka, Guðmann Einar Magnússon, Brynjar Guðmundsson, Ísak Karl Tryggvason og Birkir Freyr Gunnarsson. Fremst, frá vinstri: ?Sveinn Hallgrímsson?, Sigurjón Elí Eiríksson og ?Birgitta Bjarnadóttir?.
Guðrún Guðmundsdóttir 033
Vorið 1991 fór hópur eldri borgara í heimsókn til jafnaldra sinna á Blönduósi til að hlýða á ferðakynningu Sigurðar Guðmundssonar. Þá var þessi mynd tekin af Ástu Bjarnadóttur (d.15.6.2008) frá Hornafirði en seinna á Sæborg á Skagaströnd til vinstri og Guðnýju Finnsdóttur frá Skrapatungu, seinna Skagaströnd, til hægri að dansa.
Guðrún Guðmundsdóttir 13
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Norðurland 12. - 15. júní 1990. Í ferðinni gisti hópurinn á Húsavík. Á þessari mynd eru systurnar Sigurlaug Valdimarsdóttir (d.26.9.2000) Blönduósi til vinstri og Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) Kárastöðum til hægri.
Óþekktur ljósmyndari609
Þórey Jónsdóttir (d.29.12.1966) í Holti. Þórey bjó seinna lengi í Norður Skála við Skagaveg með bróður sínum Ingvari Jónssyni (d.27.7.1978). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Jónas 4
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 282
Sigríður Gestsdóttir við vinnu sína sem skrifstofustúlka hjá Skagstrendingi hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Guðmundsdóttir 035
Eldri borgarar í Austur Húnavatnssýslu fóru í sumarferð 9. - 12. júní 1992. Farið var yfir Kjöl og ýmsir staðir á suðurlandi skoðaðir. Á myndinni er Fanney Halldórsdóttir (d.21.6.2005) frá Sviðningi. Ekki er vitað hvar myndin var tekin.
20230117_153506
Myndin var tekin 17. janúar 2023. Á henni er Sandra Ómarsdóttir sem er ötull og vinsæll bókavörður í Bókasafni Skagstrandar. Á myndinni er hún við vinnu í safninu sem er staðsett á jarðhæðinni í Fellsborg.
Ingibergur Guðmundsson 545
Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) til vinstri og Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir til hægri við færibandið í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn645
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin á efri hæðinni í Höfðaskóla en líklega var það einhverntíma snemma á níunda áratugnum. Á henni eru kennararnir Jóhanna Jónsdóttir til hægri og óþekkt til vinstri. Í baksýn er annar óþekktur kennari að hengja upp myndir. Ef þú veist hvað óþekktu kennararnir heita vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 370
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en fólkið í sjóferðinni er, frá vinstri: óþekkt, Lára Guðmundsdóttir og Gunnar Svanlaugsson maður hennar.
Guðrún Guðbjörnsdóttir134
Þórhildur Jakobsdóttir úr umf Fram kemur í mark sem sigurvegari í einhverju hlaupi á íþróttamóti á Skagastrandarvelli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og aðrir á henni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 394
Systurnar þórey Jónsdóttir til vinstri og Sigrún Jónsdóttir til hægri á hafnarsvæðinu á sjómannadegi árið 1987. Við hlið Sigrúnar er sonur hennar Hermann Freyr Guðjónsson. Fyrir aftan hann má sjá Slavko Velemir en á milli þeirra systra grillir í Hrólf Jakobsson (d.22.12.1996). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
2001043
Á myndinni er Hallbjörg Jónsdóttir með sonardætur sínar. Í fanginu á Hallbjörgu er Elva Dröfn, þá kemur Halla Kristín og sú lengst til hægri er Aðalheiður Sif allar dætur Árna Ólafs Sigurðssonar. Myndin var líklega tekin kringum 1984.
Ingibergur Guðmundsson 453
"Fimman" var íþróttamót fimm íþróttafélaga af Norðvestur- og vesturlandi sem haldin var nokkrum sinnum. Þessi mynd var tekin við verðlaunaafhendingu á slíku móti árið 1985. Lengst til hægri á veðlaunapalli er Sigríður Gestsdóttir úr umf Fram.
Gréta 120
Líklega er þetta hópur kvenna sem voru saman í Kvennaskólanum á Blönduósi sennilega veturinn 1939 - 1940. Aftan á myndinni stendur: "Tekin í júlí 1943 á Hólum í Hjaltadal". Konan lengst til vinstri í öftustu röð er líklega ?Guðmunda Árnadóttir? (d.26.1.2017) sem lengi átti heima á Flankastöðum á Skagaströnd. Önnur frá vinstri í sömu röð gæti verið ?Jóninna Pálsdóttir? (d.21.3.2018) Sem lengi bjó í Sunnuhvoli á Skagaströnd og síðar á Blönduósi. Í fremstu röð lengst til hægri gæti verið ?Guðfinna Pálsdóttir? (d.27.4.2015) úr Breiðabliki á Skagaströnd, hjúkrunarkona á Blönduósi. Nöfn kvennanna er ágiskun þannig að ef þú getur staðfest nöfnin eða þekkir einhverja af konunum á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd t.d. í netfangið:
[email protected]
.
Gréta 068
Mæðgur frá Syðra Hóli. Ragnheiður Björnsdóttir (d.6.11.1958) til vinstri og móðir hennar María Ögmundsdóttir (d.14.5.1945) til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1474
Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir - Bibba - (d.26.8.2008) að snúast kringum kindurnar sínar við Spákonufellsrétt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Guðmundsdóttir 054
Myndin er frá félagsstarfi aldraðra á Skagaströnd 1985 - 1986. Þá var starfið í skólastofu á neðri hæðinni í Höfðaskóla undir stjórn Guðrúnar Þ. Guðmundsdóttur. Á myndinni eru nokkrar konur að fást við ýmislegt sem í boði var í félagsstarfinu. Konurnar eru frá vinstri: Laufey Sigurvinsdóttir (d.21.12.1994) á Bergi, Sigríður Fanney Ásgeirsdóttir (d.11.12.2006) á Lækjarbakka, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003) í Lundi og Teitný Guðmundsdóttir (d.28.2.2000) á Bergi.
Guðrún Guðmundsdóttir 031
Vorið 1991 fór hópur eldri borgara í heimsókn til jafnaldra sinna á Blönduósi til að hlýða á ferðakynningu Sigurðar Guðmundssonar. Þá var þessi mynd tekin af þessum prúðbúnu konum. Þær eru, frá vinstri: Guðný Finnsdóttir frá Skrapatungu en seinna Skagaströnd, Soffía Sigurðardóttir (d.24.10.2002) frá Njálsstöðum seinna Skagaströnd, Ásta Bjarnadóttir (d.15.6.2008) frá Hornafirði seinna Sæborg á Skagaströnd, Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) frá Kárastöðum á Skagaströnd og Þorbjörg Helga Magnúsdóttir (d.4.1.2002) frá Sveinsstöðum.
Guðrún Guðbjörnsdóttir125
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin á hótel Dagsbrún. Á henni eru kórfélagarnir Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) og Hildigunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996) í góðu stuði.
2001125
Á leikárinu 1981-1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á myndinni er Raghildur að fylgjast með æfingu.
Guðrún Guðmundsdóttir 020
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Austurland 25. - 28. júní 1991. Í ferðinni gisti hópurinn á Hótel Edda á Hallormsstað. Á þessari mynd eru Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004) til vinstri og Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) til hægri staddar við Mývatn.
Guðrún Guðmundsdóttir 051
Myndin er frá félagsstarfi aldraðra á Skagaströnd 1985 - 1986. Þá var starfið í skólastofu á neðri hæðinni í Höfðaskóla undir stjórn Guðrúnar Þ. Guðmundsdóttur. Konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003) Lundi, Anna Halldórsdóttir Aspar (d.1.9.1999) Stórholti, Guðný Finnsdóttir Hólabraut 7 og Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) Hólabraut 25.
Höfðaskóli - safn565
Elstu nemendur Höfðaskóla fóru í skólaferðalag til Danmerkur einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Þá var þessi mynd tekin af þeim Óðni Erni Sævarssyni og Elvu Þórisdóttur kennara.
Gréta 125
Stúlkan á myndinni er líklega Sigrún Jósteinsdóttir sem var í Sólvangi á Skagaströnd. Ekki er vitað hvert barnið er.
Guðrún Guðbjörnsdóttir131
Myndin var tekin 1. nóvember 1997 í Höfðaskóla. Þann dag voru konurnar á myndinni á námskeiði í gerð grænmetisrétta undir leiðsögn Sóveigar Eiríksdóttur. Á myndinni eru, frá vinstri: Sólveig Eiríksdóttir, tvær óþekktar konur, Steinunn Berndsen, Íris Valgeirsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir og Soffía Lárusdóttir (31.3.2010).
Gréta 048
Á myndinni er Margrét Björnsdóttir (d.11.9.1993) í Laufási með hundinn sinn, Snata. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Gréta 118
Dóra Hallgrímsdóttir (d.17.10.2004) sem lengi bjó í Hólanesi ásamt Sigurði Magnússyni (d.2.8.2002) manni sínum og börnum þeirra.
Fisk Seafood - safn 281
Guðrún Pálsdóttir var lengi launafulltrúi hjá Hólanesi hf og seinna Skagstrendingi hf. Á myndinni er hún á kaffistofu félaganna á efstu hæðinni í Stjórnsýsluhúsinu. Ekki er vtað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 364
Heiða Ósk Stefánsdóttir kennari í Höfðaskóla á kennarastofunni í maí 1988.
Óþekktur ljósmyndari606
Hjónin í Herðubreið, Lárus Guðmundur Guðmundsson (d.21.9.1981) og Lára Kristjánsdóttir (d.6.9.1993). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Gréta 039
Fjóla Sigurðardóttir (d.15.7.1988) frá Laufási. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Gréta 015
Konan hægra megin er óþekkt en sú til vinstri er María Magnúsdóttir (d.2.2.2016). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá arhugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 576
Myndin var tekin af konum að vinna við færibandið í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru, hægra megin við bandið, frá vinstri: Díana Kristjánsdóttir, Þórdís Skúladóttir og Ingibjörg Dúna Skúladóttir (d.30.7.2023). Konurnar vinstra megin við bandið eru óþekktar.
Gréta 043
Ekki er víst hver er á myndinni en ágiskun er að það sé Guðrún Þórbjarnardóttir frá Flankastöðum - Bankastræti 7. Ef þú þekkir stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari632
Hjónin á Litla - Bergi, Hinrik Nikulás Haraldsson (d.5.7.1981) og Guðrún Jónsdóttir (d.8.1.1964). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson1086
Myndin var tekin sumarið 1996 í stund milli stríða í Rækjuvinnslunni hf, sem var notuð til að dytta að húsinu. Stúlkurnar á myndinni voru vanari að standa við pillunarbandið og/eða pökkunarbandið inni en að vera í naglhreinsun úti. Stúlkurnar eru frá vinstri: Guðrún Elsa Helgadóttir (baksvipur), Svava Guðrún Sigurðardóttir, óþekkt, Árný Elfa Helgadóttir, Inga Lára Sigurðardóttir og þrjár óþekktar. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1106
Myndin var tekin í maí 1996 þegar félagskonur í kvenfélaginu Eining héldu upp á afmæli félagsins. Myndin var tekin á hótel Dagsbrún. Á henni er Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2010) að halda ræðu. Aðrar kvenfélagskonur á myndinni eru, frá vinstri: Íris Valgeirsdóttir, Guðrún Magnúsdóttir, Kristín Ólafsdóttir með barn í fanginu, Ása Jóhannsdóttir (fjær), tvær óþekktar konur og Hjördís Sigurðardóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1494
Stúlkurnar á myndinni njóta kvöldblíðunnar við Víkina á Skagaströnd. Birta Dögg Bessadóttir breiðir út faðminn en hinar stúlkurnar eru óþekktar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 414
Myndin var tekin 1987 þegar Jane Sillar er að kenna Önnu Dröfn Guðjónsdóttur að spila á píanó í Höfðaskóla.
Gréta 004
Á myndinni eru Systurnar, frá vinstri: Margrét Björnsdóttir (d.11.9.1993), Jóhanna Björnsdóttir (d.28.8.1991) og Ragnheiður Björnsdóttir (d.6.11.1958). Framan við þær er stúlkan Gréta Jónsdóttir. Systurnar voru frá Syðra Hóli.
Gréta 034
Kristín Sigurðardóttir ólst upp á Kárastöðum - Bankastræti 5. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Gréta 078
Anna Gísladóttir (d.22.7.1998) frá Neðri Harrastöðum klappar dráttarklár á hlaðinu við Laufás. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Gréta 085
Konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Aðalheiður Davíðsdóttir Neðri Harrastöðum, Fjóla Sigurðardóttir (d.15.7.188) Laufási og Jóhanna Davíðsdóttir Neðri Harrastöðum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1213
Carl Erik Lehman Jakobsen kennir sund í litlu sundlauginni á Skagaströnd kringum 1995. Calle snýr baki í myndavélina en nemendur hans eru, frá vinstri: Sigurgeir Snævar Árnason, Arnór Snorri Gíslason, Ívar Gylfason, Kristján Pétur Guðjónsson, Rebekka Maren Þórarinsdóttir, ?Ragnheiður Erla Stefánsdóttir?, Guðmundur Björn Sigurgeirsson, ?Eydís Ósk Einarsdóttir? og Íris Ósk Jóhannesdóttir.
Ólafur Bernódusson1176
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg annað hvort 2014 eða 2016. Á henni eru Helga Gunnarsdóttir kennari og Georg Þór Kristjánsson nemandi að kynna næsta atriði dagskráinnar.
1
…
13
14
15
16
17
Leita í myndasafninu
Leita