Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Konur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Menn
998 myndir
Flæði
Reitir
Gréta 008
María Ögmundsdóttir (d.14.5.1945) frá Syðra Hóli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1139
Þessi mynd var tekin í október 1995. Á henni er Jóhanna Harðardóttir starfsmaður skóverksmiðjunnar Skrefið. Verksmiðjan var stofnuð í janúar 1993 og starfaði í nokkur ár á Skagaströnd. Allt að níu manns störfuðu í verksmiðjunni þegar best var. Skórnir á myndinni voru seldir sem Primus heilsuskór og voru mjög vinsælir. Svona skór eru enn framleiddir, á Akureyri í dag, enda mjög þægilegir og sterkir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir159
Myndin var líklega tekin í Bergen 1992. Þá var þar í smíðum frystitogarinn Arnar Hu 1 fyrir Skagstrending hf. Hópur fólks frá Skagaströnd, sem tengdist útgerðinni á einn eða annan hátt, fór til Bergen þegar skipið var afhent. Arnar kom svo í heimahöfn á Skagaströnd í fyrsta sinn 22. desember 1992. Á myndinni eru, frá vinstri: óþekkt, Þórey Jónsdóttir, María Alexandersdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og óþekkt kona.
Gréta 106
Fjóla Sigurðardóttir (d.15.7.1988) fyrir utan heimili sitt að Laufási sumarið 1965.
Guðrún Guðmundsdóttir 084
Félagsstarf aldraðra, undir leiðsögn Guðrúnar Þ. Guðmundsdóttur, hélt sýningu í Höfðaskóla í desember 1987 á munum sem fólkið hafði búið til. Á myndinni eru þrjár konur af sýnendunum sem voru mun fleiri. Konurnar eru, frá vinstri: Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003) og Elísabet G. Kristjánsdóttir (d.21.3.1991).
20250725_143424
25. júlí 2025 afhenti Minningasjóðurinn um hjónin frá Vindhæli og Garði hjúkrunarheimilinu Sæborg lítinn opinn rafmagnsbíl til að hægt væri að fara með heimilisfók rúnt um bæinn á góðviðrissdögum. Á myndinni takast þær í hendur Eydís Inga Sigurjónsdóttir deildarstjóri, sem heldur á gjafabréfinu, og Erla María Lárusdóttir fulltrúi minningarsjóðsins. Í baksýn má sjá, frá vinstri: Hólmfríði Pálsdóttur, Kristbjörgu Ragnheiðardóttur, Þórleifi Sigurðardóttur, Guðbjörgu Eiríksdóttur, Hjördísi Sigurðardóttur, Guðrúnu Sigurðardóttir, Óla Albertsson og Soffíu Jónasdóttur.
Ingibergur Guðmundsson 372
Nanna Tómasdóttir (d.25.7.2013)
Ólafur Bernódusson1104
Myndin var tekin í maí 1996 þegar félagskonur í kvenfélaginu Eining héldu upp á afmæli félagsins. Myndin var tekin á hótel Dagsbrún. Konurnar eru, frá vinstri: Birna Blöndal (d.26.10.2018), tvær óþekktar, Fjóla Ævarsdóttir, Guðrún Magnúsdóttir, Íris Valgeirsdóttir, óþekkt, Kristín Ólafsdóttir með barn í fanginu, Ása Jóhannsdóttir (fjærst), óþekktar (í miðið og næst okkur), Hjördís Sigurðardóttir, óþekkt, Hulda Árnadóttir (d.14.2.2007), Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2010), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003) og þrjár óþekktar konur.
Guðrún Guðbjörnsdóttir143
Ekki er vitað hvert tilefni myndatökunnar var né hvenær myndin var tekin í Fellsborg. Á henni eru Aðalbjörg Hafsteinsdóttir (d.10.3.2022) til vinstri og Hildigunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996) til hægri báðar í íslenskum búningum.
Gréta 099
Mæðgurnar María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) og Fjóla Jónsdóttir úr Asparlundi láta fara vel um sig á blettinum framan við Laufás. Myndin var tekin rétt fyrir 1950.
Gréta 083
Konan til vinstri er Jóhanna Eiríksdóttir (d.22.9.1953) frá Saurum og Margrét Björnsdóttir (d.11.9.1993) í Laufási en áður á Syðra Hóli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Gréta 117
Atan á þessari mynd stendur: "Jóhanna Björnsdóttir 100 ára 25 marz 1991". Þetta mun vera Jóhanna Björnsdóttir (d.28.8.1991) hjúkrunarkona frá Syðra Hóli.
Ingibergur Guðmundsson 364
Tvær efstu í kvennaflokki á fyrsta golfmóti Golfklúbbs Skagastrandar á Háagerðisvelli í september 1985. Guðrún Pálsdóttir á efsta palli og Eygló Gunnarsdóttir númer tvö. Ólafur Bernódusson mótsstjóri afhendir verðlaunin.
Ingibergur Guðmundsson 363
Ólafur Bernódusson mótsstjóri afhendir Guðrúnu Pálsdóttur (konu sinni) fyrstu verðlaun í kvennaflokki á fyrsta golfmóti Golfklúbbs Skagastrandar á Háagerðisvelli í september 1985.
2001512
Myndin var tekin í nýopnaðri kaupfélagsverslun við Bogabraut á Skagaströnd. Búðin var opnuð í núverandi (mars 2026) húsnæði 1975. Síðan þá hefur fyrirkomulagi þar innan dyra verið breytt nokkrum sinnum. Á myndinni er María Magnúsdóttir við búðakassann.
2001065
Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir messi í búrinu í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 558
Myndin var tekin á tjaldsvæðinu líklega sumarið 1989 þegar Höfðahreppur hélt upp á 50 ára afmæli sitt. Á henni leiðir Sólveig Gunnarsdóttir bróðurdóttur sína, Evu Dögg Bergþórsdóttur, eftir jafnvægisþrautinni.
Fisk Seafood - safn 283
Dagný Marín Sigmarsdóttir til vinstri og Sigríður Gestsdóttir til hægri á kaffistofu Skagstrendings hf í Stjórnsýsluhúsinu. Þær sáu um að hafa reiðu á pappírum félagsins ásamt fleirum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
JPG
Ragnar S. Ingvarsson - safn 94
Kristín Jónsdóttir og Guðjón Pálsson (Dúi) (d.14.12.1989) á góðri stundu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn588
Inga Matthíasdóttir íþróttakennari að þrífa í eldhúsinu í Höfðaskóla, líklega kringum 1990.
Guðrún Guðbjörnsdóttir137
Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004) skreiðist upp úr snjónum við heimili sitt við Ægisgrund þar sem allt er á kafi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 575
Myndin var tekin í Rækjuvinnslunni hf en ekki er vitað hvenær. Konurnar vinstra megin við bandið eru, frá vinstri: Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Gígja Óskarsdóttir?, Inga Rós Sævarsdóttir og Guðrún Angantýsdóttir. Konurnar hægra megin við bandið eru óþekktar.
Gréta 086
Konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Aðalheiður Davíðsdóttir Neðri Harrastöðum, Fjóla Sigurðardóttir (d. 15.7.1988) Laufási, Jóhanna Davíðsdóttir Neðri Harrastöðum og Þórey Ólafsdóttir frá Árbakka?. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og hestarnir eru nafnlausir. Ef þú veist hver Þórey er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1212
Fjölda margar konur og stelpur tóku þátt í kvennahlaupinu á Skagaströnd 19. júní 1993. Á myndinni eru konurnar samankomnar á tjaldsvæðinu, búnar að fá merkta boli, og eru að búa sig undir að fara af stað.
Gréta 090
Hólmfríður Magnúsdóttir (d.6.7.2013) frá Syðra Hóli með börn sín og Rósabergs G. Snædal (d.9.1.1983). Börnin eru, frá vinstri: Hólmsteinn Snædal (d.31.12.2015), Gígja Snædal og Húnn Snædal. Myndin var líklega tekin einhverntíma upp úr 1950.
Gréta 087
Jóhanna Davíðsdóttir frá Neðri Harrastöðum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Gréta 029
Konurnar á myndinni eru óþekktar nema sú í miðjunni er líklega Ragnheiður Björnsdóttir (d. 6.11.1958) frá Syðra Hóli. Börnin eru líka óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Guðbjörnsdóttir158
Myndin var tekin 1992 í setustofunni á Arnari Hu 1 sem þá var nýsmíðaður fyrir Skagstrending hf. Konurnar eru, frá vinstri: Charlotta Traustadóttir, Helga Jóhannesdóttir, óþekkt og Sigrún Jónsdóttir.
Gréta 101
Guðrún Guðmundsdóttir með nýfædda dóttur sína 1986. Litla stúlkan fékk nafnið Elínborg Ásdís Árnadóttir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir155
Á myndinni býr Helga Jóhannesdóttir sig undir að gefa nýsmíðuðum togara Skagstrendings hf nafnið Arnar Hu 1, þar sem hann var smíðaður í Bergen 1992. Arnar var á þessum tíma stærsta fiskiskip Íslendinga. Hann kom svo til heimahafnar í fyrsta sinn 22. desember 1992. Eftir mikinn kvótaniðurskurð var hann svo seldur úr landi 1995.
Gréta 088
Konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Þórey Ólafsdóttir frá Árbakka?, Aðalheiður Davíðsdóttir Neðri Harrastöðum og Fjóla Sigurðardóttir (d.15.7.1988) í Laufási. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og ef þú getur staðfest að þetta sé Þóry Ólafsdóttir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
2001514
Myndin var tekin í nýopnaðri kaupfélagsverslun við Bogabraut á Skagaströnd. Búðin var opnuð í núverandi (mars 2026) húsnæði 1975. Síðan þá hefur fyrirkomulagi þar innan dyra verið breytt nokkrum sinnum. Á myndinni sést að hér var um dæmigerða kaupfélagsverslun þar sem hægt var að fá vefnaðarvörur, garn og stígvél auk matvöru og leikfanga. Konan á myndinni er óþekkt.
Ingibergur Guðmundsson 571
Glatt á hjalla á kennarstofu Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru, frá vinstri: Hjálmfríður Guðjónsdóttir, Helga Ólína Aradóttir og Elva Þórisdóttir.
Gréta 080
Ágiskun er að þetta sé Guðrún Gísladóttir með Jóhönnu Sveinsdóttur í fanginu. Ekki er vitað hvenær né hvar myndin var tekin og maðurinn í baksýn er óþekktur. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 560
Þrjár kennslukonur Höfðaskóla slaka á milli kennslustunda á kennarastofunni. Frá vinstri: Margrét Harðardóttir,Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) og Sigríður Einarsdóttir. Myndin var líklega tekin snemma á tíunda áratugnum.
Gréta 065
Konan hægra megin á myndinni er Sigurlaug Jónsdóttir (d. 15.8.2011) í Ási en sú til vinstri er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 497
Myndin var tekin á æfingu á leikritinu Saumastofan veturinn 1984 - 85. Myndin var tekin í Höfðaskóla þar sem fyrstu æfingar á verkinu fóru fram áður en farið var með það á svið í Fellsborg. Á myndinni eru leikkonurnar, frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir.
Óskar Kristinsson - safn210
Sigrún Jónsdóttir skrifstofukona hjá Skagstrendingi hf á vinnustað sínum í stjórnsýsluhúsinu. Myndin var tekin 29. september 1992.
1
…
13
14
15
16
17
Leita í myndasafninu
Leita