Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Konur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Menn
998 myndir
Flæði
Reitir
Fisk Seafood - safn 251
Linda Kristjánsdóttir til vinstri og Vigdís Ómarsdóttir til hægri í heimsókn á hausaþurrkun á Laugum. Í baksýn sér í Baldvin Hjaltason. Öll voru þau starfsfólk Rækjuvinnslunnar hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 2000.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 502
Systurnar Silfá Sjöfn Árnadóttir til vinstri og Ásdís Birta Árnadóttir til hægri í febúar 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 644
Þessi mynd var tekin í Spákonuhofinu á Skagaströnd 3. desember 2014. Á henni eru spákonurnar tvær, Dagný Sigmarsdóttir til vinstri og Sigrún Lárusdóttir til hægri. Hjá þeim situr velunnari hofsins, Lárus Ægir Guðmundsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 535
Í mars 2014 fór starfsfólk Vinnumálastofnunar til Glasgow í Skotlandi í vinnu- og árshátíðarferð. Starfsfólk greiðslustofunnar á Skagaströnd fór að sjálfsögðu með í ferðina, margir með mökum sínum. Á myndinni, sem tekin var á hóteli í Glasgow, eru frá vinstri: Guðlaug Grétarsdóttir, Kristín Birna Guðmundsdóttir og Jensína Lýðsdóttir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 4
Ingibjörg Axelma Axelsdóttir (d.6.3.2007) frá Læk.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 543
Í mars 2014 fór starfsfólk Vinnumálastofnunar til Glasgow í Skotlandi í vinnu- og árshátíðarferð. Starfsfólk greiðslustofunnar á Skagaströnd fór að sjálfsögðu með í ferðina, margir með mökum sínum. Á myndinni, sem tekin var í Glasgow, eru hjónin Eygló Amelía Valdimarsdóttir og Ingvar Gígjar Sigurðsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 585
Sigurlaug Lára Ingimundardóttir. Myndin var tekin 15. maí 2014.
Fisk Seafood -safn 247
Cristina Silud Yecyec í ferðalagi með starfsfólki Rækjuvinnslunnar hf í heimsókn í hausaþurrkun á Laugum og Norðanfisk á Húsavík. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 2000.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 497
Árný Sesselja Gísladóttir á góðviðrisegi á Skagaströnd í maí 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 538
Í mars 2014 fór starfsfólk Vinnumálastofnunar til Glasgow í Skotlandi í vinnu- og árshátíðarferð. Starfsfólk greiðslustofunnar á Skagaströnd fór að sjálfsögðu með í ferðina, margir með mökum sínum. Á myndinni, sem tekin var á hóteli í Glasgow, eru hjónin Hjalti Viðar Reynisson og Guðlaug Grétarsdóttir.
Fisk Seafood - safn 259
Hluti starfskvenna Rækjuvinnslunnar hf að fá sér að borða á óþekktum matsölustað í kynnisferð m.a. í hausaþurrkun á Laugum og Norðanfisk á Húsavík. Konurnar eru frá vinstri: Juanita Silod Boncales, Linda Kristjánsdóttir, Cornelia Silod Boncales og Cristina Silod Yecyec. Myndin var líklega tekin kringum 2000.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 615
Steindór Haraldsson tekur utan um vinkonu sína Lovísu Vattnes (d.26.3.2018) á sjómannadaginn 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 624
Hjónin Stefán Berndsen og Sólveig Róarsdóttir skoða húsnæði í kjallara gamla kaupfélagsins 28. nóvember 2014 með það í huga að færa saumastofuna Iris á staðinn. Það var síðan gert en við það stækkaði athafnasvæði saumastofunnar um helming.
Fisk Seafood - safn 244
Guðbjörg Vera Kristinsdóttir í ferðalagi með starfsmönnum Rækjuvinnslunnar hf þegar þeir heimsóttu hausaþurrkun á Laugum og Norðanfisk á Húsavík. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 2000.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 636
Myndin var tekin í Fellsborg 1. desember 2014, tilefnið er óþekkt. Hjónin Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) og Hrefna Björnsdóttir (d.8.10.2018) til vinstri spjalla við Lísebet Gestsdóttur til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 607
Hjónin Gylfi Sigurðsson og Guðrún Guðbjörnsdóttir við kirkjuna á sjómannadegi 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 628
Hjónin Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015) og Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) fá sér kaffi á árlegum jólamarkaði kvenfélagsins Heklu í Skagabúð 30. nóvember 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 82
Myndin var tekin í sjómannadagshófi en ekki er vitað hvaða ár það var. Á henni eru Rúnar Jósefsson og Selma Þórarinsdóttir (d.14.9.1990) í Fellsborg.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 723
Hjónin Þorvaldur Skaftason og Erna Sigurbjörnsdóttir skemmta með söng á þorrablóti á hjúkrunarheimilinu Sæborg 24. janúar 2015.
Axel Jóhann Hallgrímsson 65
Sigrún Jóndóttir til vinstri spjallar við Guðrúnu Pálsdóttur í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 541
Í mars 2014 fór starfsfólk Vinnumálastofnunar til Glasgow í Skotlandi í vinnu- og árshátíðarferð. Starfsfólk greiðslustofunnar á Skagaströnd fór að sjálfsögðu með í ferðina, margir með mökum sínum. Á myndinni, sem tekin var á hóteli í Glasgow, eru hjónin Árný Sesselja Gísladóttir og Óskar Ársælsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 485
Mæðgurnar Maía Magnúsdóttir (d.2.2.2016) til vinstri og Fjóla Jónsdóttir til hægri. Síðustu æviár sín hafði María misst sjónina og var orðin blind. Ekki er vitað hvenær myndin tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 667
Inga Rós Sævarsdóttir með ömmustrákinn sinn Alexander Sævarsson í fanginu 13. júní 2014.
Fisk Seafood - safn 252
Guðbjörg Vera Kristinsdóttir kynnir sér hausaþurrkun á Laugum. Konan til hægri er óþekkt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 2000.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 721
Sólveig Róarsdóttir við vinnu sína í saumastofunni Íris 21. janúar 2015. Sólveig - Didda - er menntaður klæðskeri og er annar af eigendum saumastofunnar.
Axel Jóhann Hallgrímsson 96
Hjónin Árni Ólafur Sigurðsson og Hlíf Sigurðardóttir á ferðalagi með starfsfólki Skagstrendings hf til að skoða Mývatn og nágrenni sumarið 1979.
Axel Jóhann Hallgrímsson 92
Þórdís Sigurðardóttir í júní 1992.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 654
Monika Jónasdóttir við störf í Samkaupsversluninni á Skagaströnd á jólaföstunni 4. desember 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 73
Systurnar, frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, Þórey Jónsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir að skemmta með söng á árshátíð Skagstrendings hf í Fellsborg haustið 1986.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 671
Karitas Laufey Ólafsdóttir á jólastund í hjúkrunarheimilinu Sæborg, þar sem hún er heimilismaður, 29. desember 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 59
Hjónin Hjalti Skaftason og Jónína Þ. Arndal í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð í ágúst 2009.
Axel Jóhann Hallgrímsson 102
Myndin var tekin af Jóni Helgasyni og Fanney Zophoníasdóttur í London í desember 1985. Þá voru starfsmenn Skagstrendings hf á ferð í borginni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 650
Vigdís Elva Þorgeirsdóttir verslunarstjóri býður fólk velkomið 4. desember 2014 í Samkaup á Skagaströnd á tilboðsdaga og jólauppákomu í versluninni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 626
Árný Hjaltadóttir - Dúdú - á Steinnýjarstöðum á árlegum jólamarkaði kvenfélagsins Heklu í Skagabúð 30. nóvember 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 49
Vinirnir Axel Jóhann Hallgrímsson (d. 25.2.2018) og Björk Sveinsdóttir í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð í ágúst 2009. Aftan við þau sér í Merete Rabölle.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 487
Anna Borkowska til vinstri og Guðrún Jóna Björgvinsdóttir til hægri, starfsstúlkur á Sæborg taka þátt í þorrablóti heimilisfólks og gesta þeirra. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 542
Í mars 2014 fór starfsfólk Vinnumálastofnunar til Glasgow í Skotlandi í vinnu- og árshátíðarferð. Starfsfólk greiðslustofunnar á Skagaströnd fór að sjálfsögðu með í ferðina, margir með mökum sínum. Á myndinni, sem tekin var í ferðinni, er Kristín Birna Guðmundsdóttir að kíkja í símann sinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 498
Óþekktur dansari, sem dvaldi í Nes listamiðstöð í júlí 2014, sýnir dans utan við vinnustofuna á opnu húsi þar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 539
Í mars 2014 fór starfsfólk Vinnumálastofnunar til Glasgow í Skotlandi í vinnu- og árshátíðarferð. Starfsfólk greiðslustofunnar á Skagaströnd fór að sjálfsögðu með í ferðina, margir með mökum sínum. Á myndinni, sem tekin var á hóteli í Glasgow, eru frá vinstri: Ingvar Gígjar Sigurðsson og svo hjónin Runólfur Bjarni Gautason og Kolbrún Ósk Eðvarðsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 630
Sólveig Erla Baldvinsdóttir situr hjá ömmu sinni Maríu Kristjánsdóttur (d.27.6.2017) á Tjörn á árlegum jólamarkaði kvenfélagsins Heklu í Skagabúð 30. nóvember 2014.
Axel Jóhann Hallgrímsson 87
Hjónin Björgvin Karlsson og Bóel Hallgrímsdóttir í sumarferð starfsfólks og stjórnar Skagstrendings hf um suðurland í júní 1992.
Fisk Seafood - safn 257
Kristín Björnsdóttir á ferðalagi með starfsfólki Rækjuvinnslunnar hf þegar þau heimsóttu hausaþurrkun á Laugum og Norðanfisk á Húsavík. Aftan við Krsitínu sér í Sólveigu Eiðsdóttur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 2000.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 603
Hjónin Sonja Dröfn Helgadóttir og Guðmundur Egill Erlendsson á leið til kirkju á sjómannadegi 2014.
Ólafur Bernódusson 732
Myndin var tekin á bókasafni Halldórs Bjarnasonar í Gamla kaupfélagshúsinu 31.október 2013 þegar þar fór fram skáldakynning. Á myndinni eru Adolf H. Berndsen og Dr. Lára Magnúsardóttir þáverandi forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands Norðurlandi vestra á Skagaströnd. Í baksýn er skáldið Jón Kalman Stefánsson að skoða bókakost safnsins.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 509
Guðrún Pálsdóttir að mála grindverkið kringum garðinn við heimili sitt í ágúst 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 663
13. júní 2013 hittist starfsfólk Greiðslustofu Vinnumálastofnunar ásamt mökum í veiðihúsi á Laxárdal. Fólkið grillaði saman og spjallaði fram eftir degi. Á myndinni eru Baldur Magnússon og Sonja Dröfn Helgadóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 596
Sonja Dröfn Helgadóttir viðrar hundana sína við kirkjuna á góðum degi í byrjun nóvember 2014
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 537
Í mars 2014 fór starfsfólk Vinnumálastofnunar til Glasgow í Skotlandi í vinnu- og árshátíðarferð. Starfsfólk greiðslustofunnar á Skagaströnd fór að sjálfsögðu með í ferðina, margir með mökum sínum. Á myndinni, sem tekin var í Glasgow, eru hjónin Guðfinnur Bjarni Ottósson og Jensína Lýðsdóttir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 74
Sungið fyrir gesti á árshátíð Skagstrendings hf í Fellsborg haustið 1986. Frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Vigdís Viggósdóttir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 95
Sumarið 1979 fóru starfsmenn Skagstrendings hf í ferðalag til að skoða Mývatn og umhverfi þess. Þessi mynd var tekin í rútunni á leiðinni og fremst á henni eru hjónin Gylfi Sigurðsson og Guðrún Guðbjörnsdóttir. Í næstu sætaröð fyrir aftan þau er Hlíf Sigurðardóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 649
Myndin var tekin 10. ágúst 2014 þegar opnuð var sýning á járnlistaverkum Erlendar Magnússonar í hólunum framan við stjórnsýsluhúsið. Á myndinni er Erlendur til vinstri að hlusta á dóttur sína, Ágústu Evu leik- og söngkonu, lesa ljóð. Bak við Erlend er Adolf H. Berndsen þáverandi oddviti sveitastjórnar.
Axel Jóhann Hallgrímsson 41
Starfsmenn og stjórn Skagstrendings hf fóru saman til Austurríkis og Þýskalands sumarið 1987. Á þessari mynd, sem tekin var í ferðalaginu, eru hjónin Þórarinn Grétarsson og Guðbjörg Kristinsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 633
Rakel Eyfjörð Tryggvadóttir við sölubás sinn á árlegum jólamarkaði kvenfélagsins Heklu í Skagabúð 30. nóvember 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 631
Kvenfélagið Hekla í Skagabyggð heldur árlega jólamarkað í Skagabúð. Þar er, ásamt ýmsu öðru, boðið upp á kaffihlaðborð. Þessar konur voru í eldhúsinu þegar markaðurinn var haldinn 30. nóvember 2014, frá vinstri: Lilja Karlsdóttir Víkum, Svava Kristinsdóttir Skagaströnd og Dagný Rósa Úlfarsdóttir Ytra-Hóli.
Ólafur Bernódusson 745
Þorgerður Þóra Hlynsdóttir (Gigga) kennari á Elínborgardegi Höfðaskóla 15. nóvember 2012 í Fellsborg.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 643
Myndin var tekin 23. júní 2014 við formlega opnun á göngubrú yfir Hrafná. Á henni eru mæðginin Jenný Lind Sigurjónsdóttir og Sigurjón Ýmir Alexson að fylgjast með gjörningi spákvennanna úr Spákonuhofinu, sem þær sýndu við þetta tækifæri.
Arnar HU 1 - safn 79
Hjónin Elvar Freyr Aðalsteinsson og María Jóna Gunnarsdóttir í grillveislu áhafnar Arnars HU 1 í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 513
Þessi hópur kvenna hefur gengið saman um bæinn einu sinni í viku í mörg ár. Myndin var tekin af þeim í mars 2014. Frá vinstri: Sigríður Ólafsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Guðný Sigurðardóttir og Þórunn Bernódusdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 687
Mæðginin Sigríður Stefánsdóttir og Ólafur Halldórsson fylgjast með hátíðahöldum vegna opnunar göngubrúar yfir Hrafná 23. júní 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 753
Þessar kátu konur voru á ferð með félögum sínum í starfsmannafélagi Höfðahrepps í Mývatnssveit í apríl 2011. Frá vinstri: Þórunn Ævarsdóttir, Herdís Jakobsdóttir, Lilja Ingólfsdóttir og Ragna Magnúsdóttir.
1
2
3
4
5
…
17
Leita í myndasafninu
Leita