Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Konur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Menn
998 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 720
Dagný Hannesdóttir í Höfðaskóla 17. janúar 2015 við kleinubakstur til styrktar vorferðar unglinga skólans til útlanda að skóla loknum.
Fisk Seafood - safn 245
Gígja Heiðrún Óskarsdóttir á ferðalagi með starfsmönnum Rækjuvinnslunnar hf í heimsón í hausaþurrkun á Laugum og Norðanfisk á Húsavík. Ekki er vitað hvernær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 2000.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 540
Í mars 2014 fór starfsfólk Vinnumálastofnunar til Glasgow í Skotlandi í vinnu- og árshátíðarferð. Starfsfólk greiðslustofunnar á Skagaströnd fór að sjálfsögðu með í ferðina, margir með mökum sínum. Á myndinni, sem tekin var á hóteli í Glasgow, eru hjónin Eygló Kristín Gunnarsdóttir og Guðmundur Ólafsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 647
Systurnar Þórhildur Jakobsdóttir til vinstri og Herdís Jakobsdóttir til hægri. Myndin var tekin af þeim systrum 9. júní 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 727
Karitas Ólafsdóttir til vinstri, Herdís Jakobsdóttir í miðið og Sylvía Hrólfsdóttir til hægri á þorrablóti á hjúkrunarheimilinu Sæborg 24. janúar 2015.
Óþekktur ljósmyndari416
Myndin er úr fórum Ludvigs Kemp (d.30.7.1971). Fólkið á myndinni er óþekkt þannig að ef þú veist deili á því vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Myndin var að líkindum tekin kringum 1940.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 672
María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) á jólastund á hjúkrunarheimilinu Sæborg 29. desember 2014. Þá var María heimilismaður þar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 704
Steinunn Steinþórsdóttir og Sigurður Björnsson spjalla saman 7. maí 2003. Ekki er vitað hvar þau voru en líklega var það í Bjarmanesi þegar endurbætur þar stóðu sem hæst.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1078
Amy Ósk Ómarsdóttir með ungan son sinn á Hnappstaðatúninu 21. maí 2010.
Ólafur Bernódusson 839
Guðrún Guðmundsdóttir og Haraldur Árnason ræða málin á kántrýhátíð 19. ágúst 2006.
Arnar HU 1 - safn 120
Mágkonurnar Þorgerður Þóra Hlynsdóttir til vinstri og Inga Rós Sævarsdóttir til hægri í grillveislu áhafnar Arnars Hu 1 í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 939
Guðbjörg Eyjólfsdóttir kennari til vinstri og Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri Höfðaskóla til hægri skemmta sér vel í vinnunni í skólanum 11. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1085
Þessar ungu konur njóta sumarsins utan við Olís sjoppuna líklega sumarið 2010. Frá vinstri: Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Elva Dröfn Árnadóttir og systir hennar Aðalheiður Sif Árnadóttir með barnavagn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 863
Kristín Kristmundsdóttir hlúir að Mikael Garðari Hólmgeirssyni á leikskólanum Barnaból 17. ágúst 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 611
Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015) sækir ömmustrákinn sinn Alexander Ernir Sævarsson á leikskólann Barnaból haustið 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 987
Elva Dröfn Árnadóttir og Ágúst Ingi Ágústsson kennarar við Höfðaskóla fylgjast með söngkeppni skólans, Garginu, í Fellsborg 6. mars 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1056
Hallbjörg Jónsdóttir með ömmustelpuna sína, Sóley Sif Jónsdóttur, í fanginu á gamlárskvöldi 2009.
Ólafur Bernódusson 816
Hjónin Vignir Sveinsson og Helga Imgimarsdóttir bændur í Höfnum eru með mikið æðarvarp. Þau fullvinna æðardúninn sinn og búa til æðardúnssængur eins og þá sem Helga heldur á á myndinni. Vignir er með visk af þurrkuðum og fullhreinsuðum dún í höndunum. Myndin var tekin 24. október 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1200
Herdís Jakobsdóttir til vinstri og Þorgerður Þóra Hlynsdóttir til hægri á aðventukvöldi í Hólaneskirkju 5. desember 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1359
Kristín Kristmundsdóttir heldur á ömmustelpunni sinni, Sigríði Kristínu Guðmundsdóttur, 17. ágúst 2012.
IMG_3916
Angela Maria Basombrio bíður í kirkjunni eftir að röðin komi að henni til að syngja einsöng á gospel tónleikum með kirkjukór Hólaneskirkju undir stjórn Óskars Einarssonar 29. apríl 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 662
Kolbrún Ágústa Guðnadóttir situr með dóttur sína Írisi Atladóttur í fanginu í veiðihúsinu í Laxárdal 13. júní 2014. Þar var þá vorfagnaður starfsmanna Greiðslustofu vinnumálastofnunar.
Arnar HU 1 - safn 67
Hjónin Magnús Líndal Þrastarson og Halla María Þórðardóttir.
Ólafur Bernódusson 751
Guðrún Elsa Helgadóttir kennari fylgist með nemendum sínum flytja atriði á Elínborgardegi Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Hljóðmaðurinn Ásdís Birta Árnadóttir er til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1157
Karitas Ólafsdóttir (d.15.10.2019) með tveimur ömmustelpum á ferð um Strandir. Nær Kaju er Silfá Sjöfn Árnadóttir en við hlið hennar er systir hennar Ásdís Birta Árnadóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líllega var það 2004 eða 2005.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 973
Sigurbjörn Björgvinsson hjálpar konunni sinni Þórey Jónsdóttur hafnarverði með rafmagnið á höfninni 3. júlí 2008.
IMG_3927
Guðbjörg Ólafsdóttir kemur til Hólaneskirkju til að taka þátt, með kirkjukórnum, að syngja á gospel tónleikum undir stjórn Óskars Einarssonar 29. apríl 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 816
Mágkonurnar Þórunn Bernódusdóttir til vinstri og Guðrún Pálsdóttir til hægri ræðast við á bryggjunni 24. júní 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 836
Systurnar Björk og Birna Sveinsdætur spjalla saman í Bjarmanesi á einhverri uppákomu þar 26. júní 2008. Björk er til vinstri og Birna til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1028
Hjónin Jón Indriðason og Margrét Magnúsdóttir á skíðasvæði Tindastóls 20. apríl 2008.
Arnar HU 1 - safn 91
Bæring Skarphéðinsson glaðbeittur á óþekktum bar. Stúlkan á myndinni er óþekkt.
Ólafur Bernódusson 752
Halla Karen Gunnarsdóttir kennari fylgist með nemendum sínum á sviðinu í Fellsborg á Elínborgardegi Höfðaskóla 15. nóvember 2012
Ólafur Bernódusson 848
Á hverju vori í nokkur ár var haldið Landbankahlaup við útibú bankans á Skagaströnd. Á myndinni, sem var tekin 5. maí 2007, er Signý Richter, starfskona bankans, að mála barn með andlitsmálningu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 693
23. janúar 2014 stóð Gleðibankinn fyrir samkomu í Bjarmanesi þar sem María Markovic hélt fyrirlestur og sagði frá dvöl sinni á Salomonseyjum í Suður-Kyrrahafi. María sýndi skemmtilegar myndir frá dvöl sinni þar og var fyrirlestur hennar bæði skemmtilegur og fræðandi. Á myndinni er Maía til hægri en á tjaldinu er mynd af innfæddum karlmanni sem leiðir son sinn. Sigurður Ingimarsson fylgist með fyrir miðri mynd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 688
Halla Björk Víðisdóttir kíkir í símann þegar hún var að fylgjast með hátíðahöldum vegna opnunar göngubrúar yfir Hrafná 23. júní 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 629
Sigurlaug Kristjánsdóttir á Tjörn til vinstri og Elísabet Árnadóttir -Bebbý-(d.16.3.2017) til hægri að selja hannyrðir sínar á árlegum jólamarkaði kvenfélagsins Heklu í Skagabúð 30. nóvember 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 686
Sonja Dröfn Helgadóttir fylgist með hátíðahöldum vegna opnunar göngubrúar yfir Hrafná 23. júní 2014.
Ólafur Bernódusson 830
Hjónin Halldór Gunnar Ólafsson og Sigríður Stefánsdóttir á stofnfundi Gleðibankans í Bjarmanesi 10. desember 2008.
Ólafur Bernódusson 845
Hjónin Gunnlaugur Sigmarsson útibússtjóri landsbankans á Skagaströnd og Steinunn Friðriksdóttir grilla pylsur fyrir gesti þegar fram fór landsbankahlaup 5. maí 2007
Arnar HU 1 - safn 72
Tryggvi Hlynsson og Ingibjörg Skúladóttir um borð í Arnari HU 1.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 743
Vinkonurnar Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý) til vinstri og Guðrún Sigurðardóttir til hægri á björtum degi 11. ágúst 2011.
Ólafur Bernódusson 829
Guðrún Pálsdóttir og Gunnar Sveinsson spjalla saman á stofnfundi Gleðibankans í Bjarmanesi 10. desember 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1279
Guðrún Sigurðardóttir niðursokkin í verkefni sitt í félagsstarfi eldri borgara 13. september 2012 í Fellsborg.
Óþekktur ljósmyndari418
Kvennakvartett syngur á óþekktu sviði. Ef þú þekkir einhverja kvennanna og/eða veist hvar myndin var tekin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1168
Hluti kennara og starfsfólks Höfðaskóla slakar á eftir litlu jólin 19. desember 2003. Frá vinstri: Elva Dröfn Árnadóttir, Dagbjört Bæringsdóttir, Berglind Guðmundsdóttir, Jensína Lýðsdóttir og Sigrún Guðmundsdóttir.
Skagaströnd - safn476
Jensína Lýðsdóttir sat í hreppsnefnd Sveitarfélagsins Skagaströnd 2002 - 2006 og síðan aftur 2010 - 2014. Myndin var líklega tekin 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 970
Karitas Laufey Ólafsdóttir (d.15.10.2019) að kaupa sér Cheerios og fleira í Bónusverslun. Tengdadóttir hennar, Herdís Jakobsdóttir, er að gera upp á kassanum í baksýn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1288
Hjónin Ólafur Bernódusson og Guðrún Pálsdóttir að vinna við lagningu göngustígs um skógræktina ofan við Hólabergin 28. júlí 2012. Skógræktarfélag Skagastrandar hefur séð um ræktina þarna og stígurinn var nefndur Jónsstígur eftir Jóni Jónssyni (d.9.7.1991), sem lengi var formaður félagsins og ötull skógræktarmaður.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1083
Hjónin Stefán Sveinsson og Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir að undirbúa opnun hárgreiðslustofunnar VIVA líklega sumarið 2010.
Ólafur Bernódusson 831
Eygló Gunnarsdóttir og Gylfi Sigurðsson spjalla saman á stofnfundi Gleðibankans í Bjarmanesi 10. desember 2008.
Ólafur Bernódusson 780
Á myndinni er Áslaug Sif Gunnarsdóttir að koma með grillmat og meðlæti að heiman á sameiginlegt grill við hátíðatjaldið á Kántrýhátíð 19. ágúst 2006.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 822
Mæðgurnar Guðbjörg Viggósdóttir vinstra megin og Ólöf Ardís Arelíusdóttir til hægri á einhverri samkomu í Bjarmanesi í júní 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1128
Hjónin Magnús Líndal Þrastarson og Halla Margrét Þórðardóttir á Kántrýhátíð 14. ágúst 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1222
Myndin var tekin 4. júlí 2011 af þeim Guðrúnu Soffíu Pétursdóttur vinstra megin og Guðrúnu Pálsdóttur hægra megin báðar í Skógræktarfélagi Skagastrandar þegar þær voru að gróðusetja birki og aspir á skólalóðinni norðan við íþróttahúsið og við vesturhorn þess.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1374
Myndin var tekin 12. október 2012 af óþekktri listakonu úr Nes listamiðstöðinni. Myndefnið er aftur á móti vel þekkt og afar vinsælt.
Ólafur Bernódusson 840
Systkinin Elínborg Ingvarsdóttir (d.5.8.2019) og Árni Björn Ingvarsson í sólskini á kántrýhátíð 19. ágúst 2006.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 919
Ásdís Adda Ólafsdóttir við vinnu sína sem kennari í Höfðaskóla 10. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1393
Ragnheiður Linda Kristjánsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson strafsmenn BioPol tilbúin við súpupottinn með fiskisúpu fyrir fólk að smakka á Kántrýhátíð 12. ágúst 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 995
Mæðgurnar Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri vinstra megin og dóttir hennar Magnea Valdimarsdóttir til hægri í Fellsborg. Myndin var tekin 6. mars 2008 þegar þar fór fram söngvakeppni Höfðaskóla, Gargið. Í hléi var boðið upp á kaffi og kökur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 664
Hjónin Guðjón Sigurðsson aðstoðarskólastjóri og Vera Ósk Valgarðsdóttir skólastjóri í kaffistofunni í Höfðaskóla. Saman stýrðu þau skólanum 2014 til 2019.
1
2
3
4
5
…
17
Leita í myndasafninu
Leita