Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Konur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Menn
998 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 857
Sigríður Ólína Ásgeirsdóttir í vinnu sinni í leikskólanum Barnaból 17. ágúst 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1290
Guðríður Líneik Daníelsdóttir (d.24.1.2020) í Kántrýbæ 18. september 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1079
Svava Sigurðardóttir spjallar við Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) á blettinum heima hjá sér við Breiðablik 24. maí 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1272
Systurnar Sigríður Ólína Ásgeirsdóttir til vinstri og Ása Ósk Ásgeirsdóttir til hægri í Kjalarlandsrétt 8. september 2012.
Ólafur Bernódusson 798
Steinunn Friðriksdóttir í síðdegissól 10. febrúar 2007.
Ólafur Bernódusson 878
Myndin var tekin í nóvember 1999 þegar haldið var upp á 60 ára afmæli Höfðaskóla. Þá var sett upp sýning á ljósmyndum úr skólastarfi undangenginna ára og á gömlum aflögðum munum úr starfinu. Á myndinni eru tvær reynslumiklar skólakonur að skoða fyrsta fjölritann sem notaður var í skólanum. Konurnar eru Elínborg Jónsdóttir kennari til vinstri og Bergþóra Gísladóttir skólamálastjóri A-Hún til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1400
Systurnar Sigrún Jónsdóttir til vinstri og Hallbjörg Jónsdóttir til hægri á Kántrýhátíð 12. ágúst 2011.
Ólafur Bernódusson 856
Þessi mynd var líklega tekin kringum 1990 af bekkjarsystrunum úr Höfðaskóla og vinkonunum, frá vinstri: Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna), Elísabet Eik Guðmundsdóttir og Soffía Lárusdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 833
Mæðgur að fá sér hressingu í kaffihúsinu í Bjarmanesi 26. júní 2008. Kristín Ásgerður Blöndal kíkir í símann sinn og dóttirin Freyja Sif Blöndal fylgist með.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 992
Elín Rafnsdóttir með dóttur sinni Sunnu Steingrímsdóttur að fylgjast með söngkeppni Höfðaskóla - Garginu - 6. mars 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1410
Myndin var tekin í Kjörbúðinni á Kántrýhátíð 13. ágúst 2011. Konan með hattinn er Monika Jónasdóttir en lengra frá er Guðrún Anna Halldórsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1194
Ingibjörg María Reynisdóttir spilar á blokkflautu á aðventukvöldi í Hólaneskirkju 5. desember 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1277
Myndin var tekin 13. september 2012 af konum í félagsstarfi eldri borgara á Skagaströnd í kjallara Fellsborgar. Konurnar eru frá vinstri: sér í Árný Hjaltadóttur, Sylvía Hrólfsdóttir og óþekkt kona aftan við hana, Guðný Finnsdóttir, Margrét Matthildur Björnsdóttir, Svava Valgerður Kristinsdóttir, Dagný Hannesdóttir og Guðrún Angantýsdóttir. Hjá þeim stendur Guðrún Soffía Pétursdóttir, önnur umsjónarkvenna félagsstarfsins.
Ólafur Bernódusson 741
Hjónin Guðrún Guðbjörnsdóttir og Gylfi Sigurðsson njóta veðurblíðunnar við gamla skólahúsið í Reykjarfirði nyrðri 23. júní 2012 eftir að hafa gengið á hvíta sand á Þaralátursnesi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 888
Helga Ólína Aradóttir sérkennari við vinnu í Höfðaskóla fyrir jólin 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 855
Kenný A. Hentze Hallbjörnsdóttir 17. ágúst 2009.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn106
Hjónin Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) og Anna H. Aspar (d.1.9.1999) á 60 ára afmælisdegi Bernódusar 17. mars 1979.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1464
Konur nokkurra Lionsmanna í samkvæmi á vegum Lionklúbbs Skagastrandar í Fellsborg 26. febrúar 2011. Konurnar eru, frá vinstri: Guðrún Soffía Pétursdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Birna Sveinsdóttir og Ásthildur Gunnlaugsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Skagaströnd - safn478
Péturína L. Jakobsdóttir sat í hreppsnefnd Sveitarfélgsins Skagaströnd 2010 - 2014 og var síðan kjörin aftur í nefndina 2018 - 2022.
Barnaból - safn428
Starfskonur Barnabóls fóru í heimsókn til Kragerö í Noregi vorið 2008. Þar heimsóttu þær og skoðuð leikskóla sem var undir stjórn fyrrverandi leikskólastjóra Barnabóls, Láru Bylgju Guðmundsdóttur. Þessi mynd var tekin af hópnum 25. apríl 2008 í Noregi. Frá vinstri: Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015), óþekkt, Herdís Jakobsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri Barnabóls, Ásthildur Gunnlaugsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir, Lilja Ingólfsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Lára Bylgja Guðmundsdóttir leikskólastjóri á Kragerö, Guðlaug Grétarsdóttir, Sesselja Guðmundsdóttir og Ragnheiður Alda Sigurjónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 755
Mæðginin Bergþóra Guðjónsdóttir og Guðjón Dunbar D. Þorsteinsson á jóla-barnaballi í Fellsborg 26. desember 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1425
Myndin var tekin á Kántrýhátíð 19. ágúst 2012 af þeim Fritz Hendrik Berndsen og Kolbúnu Björgu Viggósdóttur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 784
Myndin var tekin 18. ágúst 2006 af mæðgunum Fjólu Jónsdóttur til vinstri og Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1138
Erna Berglind Hreinsdóttir kennari 28. júní 2004.
Ólafur Bernódusson 756
Hjónin Jón Hallur Pétursson og Guðríður Friðriksdóttir á toppi Herðubreiðar 16. ágúst 2003 í hópi með göngufólki á vegum Ferðafélags Akureyrar. Vinstra megin við þau í fjarlægð sér í hvel Vatnajökuls.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1234
Melody Woodnut, fyrrverandi framkvæmdastjóri Nes listamiðsöðvar, brosmild í vinnustofunni 28. nóvember 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1321
Guðný Finnsdóttir á heimleið úr búðinni 16. ágúst 2012.
Ólafur Bernódusson 849
Landsbankahlaupið var haldið á hverju vori í nokkur ár við útibú bankans á Skagaströnd. Þessi mynd var tekin 5. maí 2007 af sigurvegurum í sínum flokki. Frá vinstri: Guðjón Páll Hafsteinsson, Ingimar Guðjónsson, Stefán Velemir og Elías Gunnar Hafþórsson. Konan til hægri er Signý Richter.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1296
Myndin var tekin 3. ágúst 2012 af hjónunum Guðrúnu Pálsdóttur og Ólafi Bernódussyni. Í kerrunni er Ólafur með fullverkaðan hákarl sem hann er að koma í frost til geymslu. Þá hafði verkunin tekið rúma sex mánuði. Fyrst u.þ.b. þrjá mánuði í kæsingu og síðan rúma þrjá mánuði í þurrkun í hjallinum. Áður höfðu þunnu beiturnar - glerhákarlinn - verið teknar inn enda eru þær fljótari að þorna en þykku beiturnar - skyrhákarlinn - sem sést í kerrunni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1526
Trostan Agnarsson kennari og Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri á Elínborgardegi Höfðaskóla í Fellsborg 16. nóvember 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1134
Myndin var tekin 21. febrúar 2003 af hjónunum Birgi Árnasyni (d.2.2.2005) og Ingu Þorvaldsdóttur (d.14.12.2012) í Lödu jeppanum sínum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1407
Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012) á þorrablóti í Sæborg 21. janúar 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1123
Sigríður Stefánsdóttir til vinstri og Helga Ólína Aradóttir til hægri í samkomutjaldinu á Hnappstaðatúninu á Kántrýhátíð 13. ágúst 2010. Maðurinn til vinstri er Einar Þór Ásgeirsson en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 892
Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir við vinnu sína á bókasafni Höfðaskóla 11. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 807
Þórey Jónsdóttir hafnarvörður Skagastrandarhafnar kíkir út um gluggann á vigtarskúrnum í júní 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1084
Ása Ósk Ásgeirsdóttir slær blettinn sinn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 769
Myndin var tekin 11. janúar 2010 þegar fulltrúar úr kvenfélaginu Eining afhentu heilsugæslunni á Skagaströnd nuddbekk og fleiri tæki að gjöf. Á myndinni eru frá vinstri: Sigríður Stefánsdóttir hjúkrunarkona, Gígja Óskarsdóttir frá Einingu, Jóhanna Sigurjónsdóttir frá Einingu, Ingibjörg Kristinsdóttir frá Einingu, Ingunn Björnsdóttir sjúkraþjálfari með barn, óþekkt, Christine Weinert sjúkraþjálfari og Angela Berthold sjúkraþjálfari,
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 790
Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir fær sér kakóbolla í Gunnfríðarstaðarskógi eftir að hafa náð sér í jólatré þar rétt fyrir jólin 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 781
Myndin var tekin 31. maí 2008 við formlega opnun Listamiðstöðvarinnar Nes. Opnunin var hluti af hátíðahöldum sjómannadagsins sem var daginn eftir 1. júní. Á myndinni eru frá vinstri: Guðný Björnsdóttir, Hrafhildur Jóhannsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir. Lengst til vinstri í bakgrunninum sér í Hrafnhildi Sigurðardóttur sem var einn af aðal hvatamönnum að stofnun miðstöðvarinnar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1221
Kristín Björnsdóttir í Skógræktarfélagi Skagastrandar plantar birki á skólalóðinni austan við Oddgötu 4. júlí 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 841
Jónmundur Ólafsson (d.19.4.2017) og Jónína Valdimarsdóttir spjalla saman á einhverri óþekktir samkomu í Fellsborg 1. maí 2008.
Ólafur Bernódusson 828
Tónlistarfólkið og hjónin Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og Jón Ólafur Sigurjónsson skemmta með tónlitarflutningi á stofnfundi Gleðibankans í Bjarmanesi 10. desember 2008.
Ólafur Bernódusson 844
Hjónin Björn Hallbjörnsson og Lilja Ingólfsdóttir fylgjast með Landsbankahlaupi 5. maí 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1014
Sigríður Stefánsdóttir og yngri sonur hennar, Ólafur Halldórsson, á heimleið úr búðinni 16. apríl 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1146
Konurnar á myndinni lærðu magadans hjá Helgu Brögu Jónsdóttur, sem liggur framan við hópinn, 6. nóvember 2003 í Fellsborg. Námskeiðið var haldið á vegum hópsins "Líkami og sál", sem nokkrar öflugar konur stóðu fyrir. Hópurinn stundaði leikfimi og alls kyns líkams - og sálrækt og þátttakan var mjög góð eins og sést á þessari mynd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1428
Myndin var tekin á Kántrýhátíð 13. ágúst 2011. Á henni eru samstarfskonurnar Helga Ólína Aradóttir sérkennari til vinstri og Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri til hægri. Báðar stöfuðu þær við Höfðaskóla á þessum tíma.
Barnaból - safn542
Myndin var tekin 9. júlí 1998 í leikskólanum Barnaból. Jóhanna Harðardóttir situr og spjallar við, frá vinstri: Höllu Björk Víðisdóttur, Unnar Leví Sigurbjörnsson og Valþór Óla Vilhelmsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1387
Hallbjörg Jónsdóttir leggur síðustu hönd á skreytingar við húsið sitt á Kántrýhátíð kvöldið 11. ágúst 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 844
Myndin var tekin 11. maí 2008 af hjónunum Gunnari Þór og Gígju Heiðrúnu Óskarsdóttur að reisa Trampolin í garðinum hjá sér.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 766
Hjónin Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) og Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2010) koma í kofabyggð krakka 18. ágúst 2006 en þá var heimsókn þangað eitt af skemmtiatriðunum á þáverandi kántrýhátíð.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1080
Hjónin séra Úrsula Árnadóttir og maður hennar Guðmundur Ágúst Gunnarsson í garðvinnu við prestbústaðinn á Skagaströnd að Hólabraut 30, 24. maí 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1188
Helga Bergsdóttir á skrifstofu sinni í leikskólanum Barnabóli 28. júní 2004.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1120
Helga Guðmundsdóttir og Árni Björn Ingvarsson á Kántrýhátíð 13. ágúst 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1278
Myndin var tekin 13. september 2012 af nokkrum konum í félagsstarfi eldri borgara í kjallara Fellsborgar. Konurnar eru frá vinstri: Hrönn Árnadóttir, Signý Magnúsdóttir (d.7.4.2016), Guðný Björnsdóttir, María Hjaltadóttir, Hjördís Sigurðardóttir og Árný Hjaltadóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1043
Feðginin Sigurður Bjarnason og Inga Lára Sigurðardóttir hlaupa með hundi sínum 26. ágúst 2007. Í baksýn er fólk að snúast í kringum hrossahóp.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 728
Monika Tischleder til vinstri og Guðrún Jóna Björgvinsdóttir til hægri á þorrablóti á hjúkrunarheimilinu Sæborg 24. janúar 2015. Báðar voru þær starfsstúlkur á heimilinu þegar myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1122
Fjórar konur að smakka á súpu í samkomutjaldinu á Hnappstaðatúninu á Kántrýhátíð 13. ágúst 2010. Frá vinstri: Anna Skaftadóttir, Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Sólveig Gunnarsdóttir og Þórunn Bernódusdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1150
Lilja Karlsdóttir frá Víkum til vinstri og Árný Margrét Hjaltadóttir (Dúdú) frá Steinnýjarstöðum til hægri hella upp á kaffi í eldhúsinu í Fellsborg 8. ágúst 2003.
Ólafur Bernódusson 763
Myndin var tekin yfir Skagaströnd frá hringsjánni á Höfðanum 17. júní 2007. Konan á myndinni er Guðrún Pálsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1239
Myndin var tekin 23. mars 2012 á æfingu fyrir árshátíð Höfðaskóla þá um kvöldið. Á myndinni er Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri að tala við nemendurna og leggja línurnar fyrir daginn. Hjá henni er Ólafur Bernódusson námsráðgjafi skólans.
1
…
4
5
6
…
17
Leita í myndasafninu
Leita