Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Konur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Menn
998 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 702
Systurnar Guðrún Sigurðardóttir til vinstri og Hjördís Sigurðardóttir til hægri heiðraðar fyrir hálfrar aldar starf í kirkjukór Hólaneskirkju á Kántrýdögum 15. ágúst 2010.
Ólafur Bernódusson 773
Mæðginin Fjóla Jónsdóttir og Ari Jón Þórsson fylgjast með flugeldaskotum í hundslappadrífu á gamlaárskvöldi 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1419
Hjónin Guðrún Guðmundsdóttir og Árni Björn Ingvarsson utan við samkomutjaldið á Kántrýhátíð 13. ágúst 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1148
Gígja Heiðrún Óskarsdóttir 2. nóvember 2003 að fara yfir reikninga í kjallara Fellsborgar.
Guðrún Þórbjarnardóttir049
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er Iris Jónsdóttir sem drukknaði í Skagastrandarhöfn 8. september 1969.
Ólafur Bernódusson 762
Helga Ólína Aradóttir þroskaþjálfi og sérkennari 17. maí 2006.
Barnaból - safn603
Guðbjörg Viggósdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Ásthildur Gunnlaugsdóttir, Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Sesselja Guðmundsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Lilja Nótt Sævarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1156
Helga Berndsen utan við Bjarmanes þegar það var opnað eftir gagngerar endurbætur 19. júní 2004.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1151
Myndin var tekin í eldhúsinu í Fellsborg 8. ágúst 2003. Á henni eru frá vinstri: Erna Högnadóttir Vindhæli, Guðrún Sveinbjörnsdóttir Króksseli og María Kristjánsdóttir (d.27.6.2017) Tjörn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1226
6. júlí 2011 varð það óhapp á hafnarvoginni að kör með fiski ultu á voginni. Hafnarvörðurinn Þórey Jónsdóttir fylgdist með þegar fiskurinn var tíndur í körin aftur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1516
Guðlaug Grétarsdóttir 2. apríl 2011.
Guðrún Guðmundsdóttir 3
Mæðgurnar Harpa Friðjónsdóttir til vinstri og Hulda Árnadóttir (d.14.2.2007) til hægri úr Lækjarhvammi. Myndin var líklega tekin 1984.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1125
Guðbjörg Ólafsdóttir til vinstri og Katrín Sigurjónsdóttir til hægri á Kántrýhátíð 13. ágúst 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 815
Einar Ari Einarsson með ömmu sinni Ragnheiði Lindu Kristjánsdóttur 19. júní 2007 fyrir utan heimili þeirra á Fellsbrautinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1405
Hjónin Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013) og Guðrún Sigurðardóttir á þorrablóti í Sæborg 21. janúar 2011. Í baksýn sér í Herdísi Jakobsdóttur, dökkklædda, og Karitas Laufey Ólafsdóttur (d.15.10.2019).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1149
Myndin var tekin í eldhúsinu í Fellsborg 8. ágúst 2003 af Maríu Kristjánsdóttur (d. 27.6.2017) frá Tjörn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1404
Mæðginin Árni Geir Ingvarsson og Karitas Laufey Ólafsdóttir (d.15.10.2019) sparibúin á leið á þorrablót í Sæborg 12. janúar 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 722
Fjóla Jónsdóttir við vinnu sína í Saumastofunni Íris 21. janúar 2015. Fjóla er annar af eigendum saumastofunnar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 854
Starfsstúlkur Landbankans/Póstsins í vinnunni 17. ágúst 2009. Signý Richter til vinstri og Guðný Sigurðardóttir til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1334
Myndin var tekin 17. ágúst 2012 þegar María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), ekkja Jóns Jónssonar (d.9.7.1991) fyrrverandi formanns Skógræktarfélags Skagatrandar, afhjúpaði skiltið á myndinni. Maríu til aðstoðar var dóttir hennar Fjóla Jónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1102
Kristín Jóna Sigurðardóttir bakar vöfflur ofan í gesti við formlega opnun athafnasvæðis Sorphreinsunar Vilhelms Harðarsonar 27. júlí 2010. Stúlkurnar litlu, sem eru dætur Kristínar, eru Vala Berglind Valsdóttir standandi og Þóra Karen Valsdóttir sem situr.
Barnaból - safn567
Myndin var tekin í árlegum piparkökubakstri í leikskólanum Barnaból líklega 1985 - 86. Nær okkur á myndinni eru bræðurnir Gunnar Guðmundsson vinstra megin og Ólafur Guðmundsson hægra megin. Við hinn enda borðsins er Kristín Björnsdóttir með dætrum sínum Þóru Ágústsdóttur vinstra megin og Birnu Ágústsdóttur til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1403
Feðginin Slavko Velemir og Helena Mara Velemir á brekkusöng Kántrýhátíð 12. ágúst 2011
Guðrún Þórbjarnardóttir019
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Konan á myndinni er Rósa B. Jensdóttir með barn. Ef þú veist eitthvað um Rósu eða barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1470
Jensína Lýðsdóttir til vinstri spjallar við Ólafíu Lárusdóttur í samkvæmi á vegum Lionklúbbs Skagastrandar í Fellsborg 26. febrúar 2011
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn126
Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020) með móðurömmu sinni Kristbjörgu Torfadóttur (d.22.5.1987). Líklega var myndin tekin kringum 1968.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1384
Hjónin Magnús B. Jónsson og Guðbjörg Viggósdóttir á fyrirlestri í Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Skagaströnd 13. október 2012.
Barnaból - safn438
Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri að vinna með nokkrum strákum í Barnabóli í maí 1998. Strákarnir eru frá vinstri: Valþór Óli Vilhelmsson, Alexander Ragnarsson, Guðlaugur Ómar Guðmundsson (nær) og Guðjón Örn Kristjánsson (fjær).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1261
Systurnar frá Árbakka, Þórhildur Jakobsdóttir til vinstri og Herdís Jakobsdóttir til hægri, í Kjalarlandsrétt 8. september 2012. Aðrir í myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1413
Kristín Sigurðardóttir á þorrablóti í Sæborg 21. janúar 2011.
Ólafur Bernódusson 776
Hjónin Magnús B. Jónsson og Guðbjörg Viggósdóttir við áramótabrennu á gamlaárskvöld 2009.
Barnaból - safn559
Mæðurnar Dagný Marín Sigmarsdóttir til vinstri og Sólrún Ólína Sigurðardóttir til hægri með dætur sínar í fanginu í leikskólanum Barnaból 28. nóvember 1998. Dagný er með Sigurbjörgu Birtu Berndsen Sólrún með Sigríði Sól Indriðadóttur.
Ólafur Bernódusson 761
Guðrún Elsa Helgadóttir 17. maí 2006.
Guðrún Þórbjarnardóttir070
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Konurnar á henni eru óþekktar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1103
Svenný Hallbjörnsdóttir og Hörður Ragnarsson spjalla saman við formlega opnun á athafnasvæði Sorphirðu Vilhelms Harsonar 29. júlí 2010.
IMG_3925
Mæðginin Elva Þórisdóttir og Almar Atli Ólafsson mæta á gospel tónleika undir stjórn Óskars Einarssonar í Hólaneskirkju 29. apríl 2007.
Guðrún Þórbjarnardóttir055
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Konan á myndinni er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn598
Myndin var tekin 6. júlí 2007 í leikskólanum Barnaból þegar haldið var upp á 30 ára afmæli skólans. Konurnar á myndinni eru frá vinstri: Jóhanna Guðrún Jónasdóttir leikskólastjóri á Blönduósi; Brynja Barðadóttir leikskólakennari, Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri Barnabóls, Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri Höfðaskóla, Lilja Ingólfsdóttir leikskólakennari, Guðný Björnsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir.
Barnaból - safn606
Hópmynd af krökkunum og starfsliðinu í Lundi, sem er deild innan leikskólans Barnaból. Þessir krakkar voru þar 2006 - 2007. Starfsfólkið er frá vinstri: Lilja Ingólfsdóttir, Herdís Jakobsdóttir, Þorbjörg Bjarnadóttir, Guðlaug Grétarsdóttir (nær), Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d. 15.8.2015)(fær).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1024
Jóhanna Sigurjónsdóttir tekur sér smá pásu á skíðasvæðinu í Tindastóli 20. apríl 2008.
Guðrún Þórbjarnardóttir121
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Kristín Ingibjörg Snæhólm (d.25.1.1996).
Barnaból - safn430
Starfskonur Barnabóls fóru í heimsókn til Kragerö í Noregi vorið 2008. Þar heimsóttu þær og skoðuð leikskóla sem var undir stjórn fyrrverandi leikskólastjóra Barnabóls, Láru Bylgju Guðmundsdóttur. Þessi mynd var tekin af hluta hópsins 25. apríl 2008 í Noregi. Konurnar eru, frá vinstri: Herdís Jakobsdóttir, Guðlaug Grétarsdóttir, óþekktur strákur, Ragnheiður Alda Sigurjónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og Ásthildur Gunnlaugsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1254
8. september 2012 bíða Páll Jóhannesson og Signý Magnúsdóttir (d.7.4.2016) eftir að gangnamenn komi með safnið af fjalli til réttar í Kjalarlandsrétt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1263
Leikskólabörn af Barnabóli í Hólaneskirkju ásamt tveimur kennurum sínum 29. mars 2012. Tilefnið er ekki þekkt en á myndinni eru frá vinstri: Guðlaug Grétarsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri, Þórunn Ósk Hólmgeirsdóttir, óþekktur Guðjónsson, Óðinn Örn Gunnarsson, Ásgeir Sigmar Björnsson (fjær) og Sóley Sif Jónsdóttir (nær).
Ólafur Bernódusson 835
Bjarni Ottósson og Guðbjörg Eiríksdóttir bjóða upp á súpu í samkomutjaldinu á Kántrýdögum 15. ágúst 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1322
Hjónin Einar Haukur Arason og Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir að skreyta Fellsbrautina 10. ágúst 2011 fyrir Kántrýhátíð dagana á eftir. Maðurinn til hægri er Eiríkur Lýðsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 783
Myndin var tekin 18. ágúst 2006 af hjónunum Guðmundi Jóhannessyni (d.17.4.2018) og Soffíu Lárusdóttur (d. 31.3.2010).
Guðrún Þórbjarnardóttir164
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni eru hjónin frá Réttarholti Jón Sölvason og Þorbjörg Halldórsdóttir (d.30.6.1970). Myndin var tekin í gullbrúðkaupsveislu þeirra hjóna í Skátaskálanum 1966.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1367
Myndin var tekin á Kántrýhátíð 11. ágúst 2011 á planinu við Fellsborg. Á henni er Monika Jónasdóttir með syni sínum Viktori Má Einarssyni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1406
Myndin var tekin á þorrablóti í Sæborg 21. janúar 2011. Konurnar sem eru að skemmta eru frá vinstri: Guðbjörg Eiríksdóttir, Guðríður Líneik Daníelsdóttir (d. 24.1.2020) og Hrafnhildur Jóhannsdóttir.
Guðrún Þórbjarnardóttir144
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á myndinni eru hjónin í Réttarholti, Jón Sölvason og Þorbjörg Halldórsdóttir (d.30.6.1970).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 810
Jökulrós Grímsdóttir í garðvinnu heima hjá sér á Bogabrautinni í júní 2007.
Guðrún Þórbjarnardóttir119
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Jóhanna. Ekkert er vitað um hana en ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Þórbjarnardóttir041
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni eru óþekkt brúðhjón. Ef þú þekkir fólkið á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1312
Myndin var tekin 10. ágúst 2011 af Eymundi Lórens Grétarssyni á spjalli við ömmu sína Amy Evu Eymundsdóttur (d.7.3.2012) utan við heimili hennar í Brimnesi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1329
Magnea Valdimarsdóttir og Jóhann Berry á Kántrýhátíð 17. ágúst 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1285
Tengdamæðgurnar Steinunn Berndsen til vinstri og Jóhanna Jónasdóttir til hægri huga að blómum í keri utan við Vélaverkstæði Skagastrandar 19. júlí 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1205
Hjónin Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og Jón Ólafur Sigurjónsson spila í Djásn og dúllerí á þorláksmessu 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 799
Myndin var tekin 17. desember 2007. Sigríður Vilhjálmsdóttir (d.21.1.2012) til vinstri og Jónína Valdimarsdóttir til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1336
Myndin var tekin 17. ágúst 2012 af hjónunum Árna Geir Ingvarssyni og Herdísi Jakobsdóttur á ljósmyndasýningu sem Árni hélt á Kántrýhátíð 2012 í íþróttahúsinu.
1
…
5
6
7
…
17
Leita í myndasafninu
Leita