Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Konur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Menn
998 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1186
Sambýlisfólkið Heiðar Sigurbjörnsson og Rósa Björg Högnadóttir 27. nóvember 2010.
Guðrún Þórbjarnardóttir018
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Þessi kona er óþekkt. Ef þú veist hver hún er vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1022
Kristín Birna Guðmundsdóttir á skíðasvæðinu í Tindastóli 20. apríl 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1326
Súsanna Þórhallsdóttir 10. ágúst 2011.
Guðrún Þórbjarnardóttir - safn 003
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Þessi kona er óþekkt en ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1509
13. nóvember 2011 var hesturinn á myndinni kominn í vetrarhárin og tilbúinn að mæta kuldum vetrarins. Ásdís Birta Árnadóttir gefur honum af sinni innri hlýju með því að klappa honum og spjalla við þennan vin sinn. Í baksýn er fallegasta fjall á Íslandi, Spákonufell.
Ólafur Bernódusson 993
Saumastofan Viola var stofnuð kringum 1970 og starfaði á efstu hæðinni í gamla kaupfélaginu. Á þessari mynd sem tekin var 1984 eru konurnar að sauma vinsælar peysur úr ullarvoð. Konan lengst til hægri er María Konráðsdóttir (d.9.8.2003) en aðrar á myndinni eru óþekktar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1009
Laufey Lind Ingibergsdóttir heldur um háls móður sinnar Signýjar Richter. Myndin var tekin í Höfðaskóla líklega 2005 eða 2006.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1274
Fjórar konur stytta sér stundir með að spila í kjallara Fellsborgar 13. september 2012. Þar fer fram félagsstarf eldri borgara á Skagaströnd. Konurnar eru frá vinstri: Bára Þorvaldsdóttir, baksvipur Ardísar Ólafar Arelíusdóttur (d.12.9.2018), Jóhanna Jónasdóttir og Hrafnhildur Jóhannsdóttir.
Barnaból - safn601
Vigdís Elva Þorgeirsdóttir með dóttur sína Heklu Guðrúnu Þrastardóttur í 30 ára afmæli leikskólans Barnaból 6. júlí 2007.
Guðrún Þórbjarnardóttir137
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Myndin var líklega tekin í hlaðvarpanum við Réttarholt. Konan og stúlkurnar eru óþekktar en hugsanlega eru þetta Hlín Kristensen (d. 28.4.1984) tengdadóttir Jóns með dætur sínar Örnu og Karen. Ef þú getur staðfest það eða þekkir þær stöllur vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1060
2. febrúar 2010 voru þessar hressu konur í gönguferð um bæinn. Þarna eru þær á Standgötu norðan við stóru mjölskemmuna. Þær eru frá vinstri: Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir, Sesselja Guðmundsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Guðlaug Grétarsdóttir, Þórunn Ævarsdóttir (nær), Ásthildur Guðmundsdóttir (fjær) og Guðbjörg Viggósdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1114
Helga Guðmundsdóttir að kvöldi 21. júní 2009 tilbúin að ganga á Spákonufellið í Jónsmessugöngu til að sjá sólarlagið eða réttara sagt gang sólarinnar á þessum degi sem hún sest alls ekki.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1187
Helga Bergsdóttir leikskólastjóri á Barnabóli með nokkra krakka í rennibrautinni 28. júní 2004. Krakkarnir eru frá vinstri: Sigurður Aron Björnsson, Anita Ósk Ragnarsdóttir, Daði Snær Stefánsson, óþekktur og Guðný Eva Björnsdóttir. Ef þú þekkir óþekkta strákinn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn570
Myndin var tekin í árlegum piparkökubakstri í leikskólanum Barnaból líklega 1985 - 86. Mæðurnar Guðrún Magnúsdóttir til vinstri og Vigdís Viggósdóttir til hægri hjálpa börnum sínum við baksturinn. Hjá Guðrúnu eru börnin hennar: Magnús Líndal Þrastarson til vinstri og Sigrún Líndal Þrastardóttir til hægri. Valrún Eva Vilhelmsdóttir er svo nærri móður sinni Vigdísi við hinn endann.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1369
Þórarinn Brynjar Ingvarsson og Vigdís Ósk Ómarsdóttir á Kántrýhátíð 17. ágúst 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1038
Systur á Kántrýhátíð 19. ágúst 2006. Íris Fjólmundsdóttir vinstra megin og Steinunn Fjólmundsdóttir hægra megin.
Guðrún Þórbjarnardóttir074
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Guðmunda Árnadóttir (d.26.1.2017) til vinstri en hún var tengdadóttir Jóns. Til hægri er Jóninna Pálsdóttir (d.21.3.2018) mágkona Guðmundu, gift Kristófer Árnasyni (d.10.5.2000).
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn144
Myndin var tekin 3. júní 1995. Á henni er Þórunn Bernódusdóttir í miðið, Björg Ólafsdóttir (d.1.3.2007) föðursystir hennar til vinstri og Kristín Halldórsdóttir Aspar (d.21.5.2014) móðursystir hennar til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1515
Lilja Ingólfsdóttir 2. apríl 2011.
Barnaból - safn569
Myndin var tekin í árlegum piparkökubakstri í leikskólanum Barnabóli líklega 1985 - 86. Við enda borðsins aðstoðar Helga Guðmundsdóttir dóttur sína Kolbrúnu Ósk Eðvarðsdóttur við piparkökugerðina. Nær okkur við borðið eru systurnar Erla María Lárusdóttir vinstra megin og Soffía Lárusdóttir sem snýr baki í okkur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1100
Vinirnir Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) og Guðrún Guðmundsdóttir fyrir utan heimili Gunnars að Oddagötu 5. Bæði voru/eru þau áhugafólk um söfnun gamalla muna og að halda sögunni til haga. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Þórbjarnardóttir033
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni dansar Jón við konu sína Þorbjörgu Halldórsdóttur (d.30.6.1970) í tilefni af gullbrúðkaupi þeirra. Dansinn fór fram í veislu sem haldin var í Skátaskálanum 1967.
Guðrún Þórbjarnardóttir023
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Konan á henni er óþekkt. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1913 - 1918 meðan Ólafur Oddsson rak ljósmyndastofu sína. Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1706
Þessi mynd var tekin einhverntíma kringum 1970. Á henni er Bjarnhildur Sigurðardóttir (Bonný) (d. 22.4.2016) að hjálpa til við smíði á húsinu sínu að Bogabraut 15. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 750
Hjónin Helga Berndsen og Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016) (Bíbí og Laugi) í Karlsskála hjálpast að við að hengja út þvottinn. Myndin var tekin haustið 2011.
Skagaströnd - safn491
Myndin var tekin í kaffisamsæti á Dalvík 27. maí 2002 þegar eldri borgarar úr Húnavatnssýslu komu þangað í heimsókn. Á henni eru mæðgurnar Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020) og Guðrún Angantýsdóttir. Konan í baksýn er óþekkt.
Guðrún Þórbjarnardóttir062
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er Jón að dansa við tengdadóttur sína Hlín Kristensen (d.28.4.1984). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Guðmundsdóttir 1
Teitný Guðmundsdóttir (d.28.2.2000) á Bergi til vinstri og Hulda Árnadóttir (d.14.2.2007) í Lækjarhvammi til hægri. Myndin var tekin við gróðurskála við Hólabraut 22, líklega snemmsumars 1984.
Guðrún Þórbjarnardóttir106
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á myndinni er Guðmunda Árnadóttir (d.26.1.2017), tengdadóttir Jóns, með dóttur sína Ásdísi Þórbjarnardóttur í fanginu.
Barnaból - safn433
Starfskonur Barnabóls fóru í heimsókn til Kragerö í Noregi vorið 2008. Þar heimsóttu þær og skoðuð leikskóla sem var undir stjórn fyrrverandi leikskólastjóra Barnabóls, Láru Bylgju Guðmundsdóttur. Þessi mynd var tekin af Guðmundu Sigurbrandsdóttur (d.15.8.2015) í ferðinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1430
Þessar prúðbúnu konur leiða fjöldasöng á þorrablóti í Fellsborg 5. febrúar 2011. Konurnar eru frá vinstri: Sigríður Stefánsdóttir, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir, Erna Berglind Hreinsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir og Guðbjörg Viggósdóttir.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn109
Hjónin Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) og Anna H. Aspar (d.1.9.1999) dansa í gömlu Tunnunni, líklega á þorrablóti í febrúar 1966. Milli þeirra sést Ingvar Jónsson (d.18.1.2003) frá Sólheimum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1363
Halla Kristín Árnadóttir með dóttur sína Birgittu Björgu Birgisdóttur á Kántrýhátíð 11. ágúst 2011.
Guðrún Þórbjarnardóttir096
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Alda Halldórsdóttir Snæhólm (d.5.10.2002). Hún var bróðurdóttir Þorbjargar Halldórsdóttur (d.30.5.1970) konu Jóns Sölvasonar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1416
Myndin var tekin í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð 13. ágúst 2011. Konurnar á myndinni eru frá vinstri: Ardís Ólöf Arelíusdóttir (d.12.9.2018), óþekkt og Steinunn Berndsen. Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1045
Guðrún Pálsdóttir hjólar heim úr vinnunni 29. ágúst 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1300
Svilkonurnar Herdís Jakobsdóttir, með sólgleraugu, og Kristín Jónsdóttir á fallegum degi við Mývatn 6. október 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1622
Hjónin Árni Ólafur Sigurðsson og Hlíf Sigurðardóttir setja niður kartöflur 2. júní 2011 í garðinn sunnan við íþróttavöllinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1299
Vinkonurnar Hugrún Sif Hallgrímsdóttir, með buff um hárið, og Sigríður Stefánsdóttir að skokka í blíðviðri í grennd við Mývatn 6. október 2012.
Guðrún Þórbjarnardóttir077
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni eru þau hjónin Jón og Þorbjörg Halldórsdóttir (d.30.6.1970) konan hans.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1062
Hjónin Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir á gangi á Oddagötu í síðdegissól 6. febrúar 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1395
Hjónin Sævar Bjarnason og Eygló Guðbjartsdóttir á Kántrýhátíð 12. ágúst 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1557
Guðríður Líneik Daníelsdóttir (24.1.2020) undirbýr veitingar á jólaballi Lionklúbbs Skagastrandar 26. desember 2011 í Fellsborg. Guðjón Guðjónsson Lionfélagi fylgist með og hjálpar til.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1276
Myndin var tekin 13. september 2012 í kjallara Fellsborgar þar sem fram fer félagsstarf eldri borgara á Skagaströnd. Á myndinni eru umsjónarmenn félagsstarfsins þær Guðrún Soffía Pétursdóttir vinstra megin og Ásthildur Gunnlaugsdóttir til hægri að undirbúa kaffitímann.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1562
Mæðgurnar Elva Þórisdóttir til vinstri og Ásdís Adda Ólafsdóttir til hægri á jóla-barnaballi í Fellsborg á annan í jólum 2011.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 11
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Á henni sitja á húddinu á kagganum Sigríður Birna Björnsdóttir til vinstri og Guðbjörg Kristinsdóttir til hægri. Húsið í baksýn til vinstri hét Drangey.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1065
Vinkonurnar Helga Ólína Aradóttir til vinstri og Sigríður Stefánsdóttir til hægri á göngu með hundinn hennar Helgu 22. apríl 2010.
Guðrún Þórbjarnardóttir122
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á hana hefur hann skrifað, Ingibjörg Aðalsteinsson, en nefnir ekki manninn. Ef þú veist einhver deili á þessu fólki vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn507
Mæðgurnar Guðrún Ágústsdóttir til vinstri og Guðný Hjartardóttir (d.14.3.2011) til hægri á jólahlaðborði í Kántrýbæ 4. desember 1998. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1055
Hjónin Ólafur Bernódusson og Guðrún Pálsdóttir nýta stutta dagsbirtu 27. desember 2009 til að ganga á skíðum.
Ólafur Bernódusson 1058
Hjónin Hallbjörn J. Hjartarson og Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012). Myndin af þeim var tekin þegar Kántrýbær var vígður eftir endurbyggingu 27. júní 1998. Þau hjón voru eigendur Kántrýbæjar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1325
Myndin var tekin 10. ágúst 2011 þegar þessar konur voru að skreyta Fellsbrautina fyrir Kántrýhátíð næstu daga á eftir. Konurnar á myndinni eru frá vinstri: Súsanna Þórhallsdóttir, Sara Gunnarsdóttir og Lilja Ingólfsdóttir. Allar bjuggu þær við Fellsbrautina á þessum tíma.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1257
Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir heldur á dóttur sinni Emelíu Marey Einarsdóttur í fanginu í Kjalarlandsrétt 8. september 2012 þegar réttarstörf stóðu sem hæst.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1621
Hjónin Magnús B. Jónsson og Guðbjörg Viggósdóttir setja niður kartöflur 2. júní 2011 í garðinum sunnan við íþróttavöllinn.
Barnaból - safn547
Guðrún Hrólfsdóttir spilar við nokkra krakka í leikskólanum Barnaból 1998 - 99. Krakkarnir eru frá vinstri: Freyja Sif Blöndal Einarsdóttir, Telma Dögg Bjarnadóttir, óþekktur og Guðjón Páll Hafsteinsson. Ef þú þekkir óþekkta drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1489
Andrea Kasper bjó á Skagaströnd um árabil. Hún var lærður dansari og samdi dans sem hún sýndi 19. október 2011 í kjallaranum í gamla kaupfélaginu, sem þá stóð auður. Þrjár ungar stúlkur dönsuðu með Andreu en þeim var öllum vel fagnað af áhorfendum að honum loknum. Á myndinni sjást þrír dansarar. Andrea sem er næst okkur, Guðrún Anna Halldórsdóttir hægra megin og Sigurlaug Máney Sæmundsen til vinstri. Auk þeirra dansaði Sigubjörg Katla Valdimarsdóttir en hún sést ekki á myndinni
Ragnar S. Ingvarsson - safn 149
Myndin var tekin á kvennasalerninu í Fellsborg en ekki er vitað hvenær. Konurnar á myndinni eru, frá vinstri: María Alexandersdóttir, Vigdís Viggósdóttir, Linda Kristjánsdóttir og Sigrún Jónsdóttir.
Helgi Gunnarsson 35
Hjónin Helgi Gunnarsson verktaki og Alda Ragnheiður Sigurjónsdóttir á góðum degi, 15. mars 1998, þegar íþróttahúsið var vígt. Helgi sá um byggingu hússins.
Skagaströnd - safn485
Hjónin Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003) og Skafti Fanndal Jónasson (d.2.9.2006) í Kántrýbæ 4. desember 1998 þegar eldri borgarar á Skagaströnd gerðu sér glaðan dag þar.
1
…
6
7
8
…
17
Leita í myndasafninu
Leita