Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Konur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Menn
998 myndir
Flæði
Reitir
Skagaströnd - safn499
Kaffispjall í félagsstarfi aldraðra í Fellsborg. Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) stendur en við borðið eru, frá vinstri; Guðrún Soffía Pétursdóttir, Guðrún Angantýsdóttir, Ásthildur Gunnlaugssdóttir og Guðný Björnsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1582
Myndin var tekin 9. maí 2011 af Margréti Matthildi Björnsdóttur til vinstri og Amy Evu Eymundsdóttur (d.7.3.2012) til hægri þegar þær skreppa úr félagsstarfi eldri borgara suður undir vegg á Fellsborg til að fá sér smók.
Ólafur Bernódusson 1011
Gunnar Sveinsson í hófi í Kántrýbæ að loknu öldungamóti USAH á Skagastrandarvelli 1983. Gunnar var einn af keppendunum á mótinu.
Barnaból - safn545
Myndin var tekin 17. ágúst 1998 í leikskólanum Barnaból. Sesselja Guðmundsdóttir til vinstri og Þórunn Bernódusdóttir til hægri sitja með börnunum í matartíma. Krakkarnir eru frá vinstri: Halla Björk Víðisdóttir (nær), óþekktur (fjær), Sonja Sif Ólafsdóttir, Saga Lind Víðisdóttir, Ólöf Hafþórsdóttir og Kristín Gyða Guðmundsdóttir.
Skagaströnd - safn487
Hjónin Helga G. Guðmundsdóttir og Kristján G. Sigurðsson (d.4.12.2019) frá Höskuldsstöðum 27. maí 2002.
Skagaströnd - safn495
Þetta fólk voru nágrannar í áratugi og síðan bjuggu þau bæði á Sæborg undir það síðasta. Gunnar Helgason (d.19.10.2007) leiðir þessa gömlu grannkonu sína Jónínu Valdimarsdóttur (d.12.3.2020) á leið í félagsstarf aldraðra í Fellsborg.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1589
Guðbjörg Eiríksdóttir flytur ræðu dagsins í Hólaneskirkju á sjómannadegi 2. júní 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1153
Séra Magnús Magnússon og Stella Kristjánsdóttir skólastjóri Höfðaskóla á spjalli utan við íþróttahúsið 19. mars 2003.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 856
Sesselja Guðmundsdóttir í vinnu sinni sem leikskólakennari í Barnabóli 17. ágúst 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1620
María Ösp Ómarsdóttir kennari lætur fara vel um sig á kennarastofunni í Höfðaskóla 1. febrúar 2011.
Skagaströnd - safn531
Ekki er vitað hvar eða hvenær þessi mynd var tekin af þeim Jónu Guðrúnu Vilhjálmsdóttur (d.13.7.2003) til vinstri og Ásthildi Gunnlaugsdóttur til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1409
Systkinin Vala Rós Ingvarsdóttir og Ragnar Smári Ingvarsson í sólskini utan við Bjarmanes 13. ágúst 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1269
Guðrún Sigurðardóttir með barn í vagni á góðum sumardegi 13. júlí 2011.
Guðrún Þórbjarnardóttir091
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Anna Pétursdóttir (d.3.6.1944).
Guðrún Þórbjarnardóttir026
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á myndinni er systir hans Kristín Sölvadóttir (d.16.10.1950) og sonur hennar Eggert Ragnar Kristfinnsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1027
Elva Þórisdóttir aðstoðar Bylgju Ágústsdóttur á skíðunum á skíðasvæði Tindastóls 20. apríl 2008.
Guðrún Þórbjarnardóttir129
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er konan hans, Þorbjörg Halldórsdóttir (d.30.6.1970), að gefa heimiliskúnni Bót eitthvað til að maula. Maðurinn og stúlkurnar í baksýn eru óþekkt.
Barnaból - safn564
Birna Blöndal hjálpar ungum óþekktum dreng við fyrstu skrefin á listabrautinni í leikskólanum Barnaból. Myndin var líklega tekin kringum 1990.
Guðrún Þórbjarnardóttir029
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Hún er greinilega klippt út úr dagblaði og því eru myndgæðin léleg. Líklega eru konurnar á myndinni eitthvað tengdar kvenfélaginu Eining á Skagaströnd. Á henni eru í fremri röð frá vinstri: Helga Berndsen, Soffía Lárusdóttir (d.30.3.2010) og Margrét Konráðsdóttir (d.17.9.1974). Aftari röð frá vinstri: Guðríður Valdimarsdóttir (d.1.4.2018), Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012) og Björk Axelsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1388
Ragnheiður Linda Kristjánsdóttir, starfsmaður BioPol, gefur bróður sínum, Ómari Jakobssyni, að smakka á fiskisúpu í samkomutjaldinu á Hnappstaðatúninu á Kántrýhátíð 12. ágúst 2011
Barnaból - safn566
Guðrún Hrólfsdóttir aðstoðar dóttur sína Guðrúnu Ástu Guðmundsdóttur í árlegum piparkökubakstri í leikskólanum Barnaból. Myndin var líklega tekin 1987 eða 1988.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1366
Systurnar Helga Ólína Aradóttir til vinstri og Anna Aspar Aradóttir til hægri í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð 17. ágúst 2012. Aftan við þær spjallar Sævar Hallgrímsson við Heiðar Sigurbjörnsson sem skartar forláta hatti.
Ólafur Bernódusson 971
Guðrún Pálsdóttir við vinnu sína á skrifstofu Höfðahrepps sumarið 1984.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 136
Myndin var tekin í einhverju kaffisamsæti í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær né hvert tilefnið var. Á henni eru Ragnar Smári Ingvarsson og Anna Jóna Geirsdóttir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 100
Árni Geir Ingvarsson og Kristín Jónsdóttir mágkona hans í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 068
Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) til vinstri og Ómar Jakobsson til hægri draga inn netið í trollinu um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1. Myndin var líklega tekin einhverntíma 1969 - 1971. Það gat verið mikið strit og sukksamt að draga inn netið ef eitthvað var af veðri með tilheyrandi veltingi.
Barnaból - safn529
Erna Berglind Hreinsdóttir leikskólakennari spjallar við Þórunni Bernódusdóttur leikskólakennara, til hægri, í kaffipásu 1998 - 99.
Barnaból - safn604
Lilja Ingólfsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Guðmunda Sigurbrandsdóttir, Guðlaug Grétarsdóttir, Ásthildur Gunnlaugsdóttir, Ásthildur Gunnlaugsdóttir, Herdís Jakobsdóttir
Ólafur Bernódusson 898
Anna Þrúður Þorkelsdóttir formaður Rauðakrossins á Íslandi flytur ávarp þegar nýtt húsnæði Rauðakross deildarinnar á Skagaströnd var tekið í notkun í apríl 1999.
Guðrún Þórbjarnardóttir145
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á myndinni er Þorbjörg Halldórsdóttir (d.30.6.1970) kona Jóns. Þorbjörg situr uppi í Höfðanum ofan við heimili þeirra í Réttarholti. Lengst til vinstri á sjávarbakkanum sér í Landsendarétt sem lengi var skilarétt Skagstrendinga.
gunnar070
Aftan á myndina er skrifað, ógreinilega, með býanti: Guðríður Una. Hér eru líklega Una Ólafsdóttir (d.22.6.1911) frá Steinnýjarstöðum til vinstri og Guðríður Rafnsdóttir (d.22.3.1932) í Höfðahólum til hægri.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 26
Þessi mynd var tekin af hjónunum Gunnhildi Lindu Vigfúsdóttur (d.30.1.2018) og Heiðari Elvan Friðrikssyni þegar þau voru í tilhugalífinu á áttunda áratugnum.
Skagaströnd - safn502
Myndin af þessum tveimur konum var tekin 31. maí 1999 en ekki er vitað hvar (?Hnitbjörg?). Gerður Hallgrímsdóttir er til vinstri og Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) til hægri.
Barnaból - safn605
Börnin á myndinni eru fædd 2004 og 2005.
Barnaból - safn572
Myndin var tekin í árlegum piparkökubakstri í leikskólanum Barnaból líklega 1985 - 86. Sigþrúður Magnúsdóttir, í dökkri peysu, aðstoðar son sinn Vigni Örn Hafþórsson við baksturinn. Fjær hjálpar Hlíf Sigurðardóttir dætrum sínum, þeim Elvu Dröfn Árnadóttur , Aðalheiði Sif Árnadóttur og Höllu Kristínu Árnadóttur.
Guðrún Þórbjarnardóttir141
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Alda Halldórsdóttir Snæhólm (d.5.10.2002).
Ragnar S. Ingvarsson - safn 132
Kristín Jónsdóttir (Kidda) slakar á við eldhúsborðið. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1169
Þessi mynd var tekin í gamla vigtarskúrnum 5. september 2005. Þórey Jónsdóttir hafnarvörður situr við skrifborðið en Þröstur Líndal Gylfason "starfsmaður á plani" spjallar við hana.
Skagaströnd - safn528
Myndin var tekin 31. maí 1999 á ókunnum stað. Konurnar sem eru að spjalla á myndinni eru, frá vinstri: Sigríður Vilhjálmsdóttir (d.21.1.2012), María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Gerður Hallgrímsdóttir, Anna H. Aspar (d.1.9.1999) og Ingunn Hjaltadóttir.
Ólafur Bernódusson 1095
Hjónin Signý Richter og Ingibergur Guðmundsson 5. júlí 2014 í einhverju óþekktu samsæti í Fellsborg.
Guðrún Þórbjarnardóttir097
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er óþekkt kona í Íslenskum skautbúningi. Þennan búning hannaði Sigurður Guðmundsson málari frá Vindhæli á árunum 1858 - 1860.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn137
Frænkurnar Anna Sjöfn Jónasdóttir til vinstri og Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020) til hægri. Myndin var tekin 3. júní 1995 í tilefni af stúdentsútskrift Lilju frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1517
Konurnar á myndinni eru: Þórunn Ævarsdóttir vinstra megin og Ragna Magnúsdóttir til hægri. Maðurinn lengst til hægri er Arnar Ólafur Viggósson. Myndin var tekin 2. apríl 2011 líklega á Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit.
Barnaból - safn568
Myndin var tekin í árlegum piparkökubakstri í leikaskólanum Barnaból líklega 1985 - 86. Konan á myndinni er Charlotta Traustadóttir en vinstra megin við borðið eru Svava Magnúsdóttir og Sigríður Olga Magnúsdóttir. Elva Dröfn Árnadóttir er við borðsendann. Hægra megin eru, talið inn eftir borðinu: Trausti Magnússon, Halla Kristín Árnadóttir og Aðalheiður Sif Árnadóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1632
Vala Rós Ingvarsdóttir í eldhúsinu á Fellsbraut 15 11. júní 2011. Eins og sjá má eru veitingarnar ekki af verri endanum.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 41
Vinirnir Ragnar Smári Ingvarsson og Sigríður Birna Björnsdóttir kringum 1970. Í bragganum, í baksýn til hægri, var rekið vélaverkstæði og seinna slökkvistöð Skagastrandar.
gunnar084
Þessi kona óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd
Barnaból - safn431
Starfskonur Barnabóls fóru í heimsókn til Kragerö í Noregi vorið 2008. Þar heimsóttu þær og skoðuð leikskóla sem var undir stjórn fyrrverandi leikskólastjóra Barnabóls, Láru Bylgju Guðmundsdóttur. Þessi mynd var tekin af hópnum 26. apríl 2008 í Noregi. Frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri Barnabóls, Ragnheiður Alda Sigurjónsdóttir, Guðlaug Grétarsdóttir, Lilja Ingólfsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir, Ásthildur Gunnlaugsdóttir og Guðbjörg Viggósdóttir.
Guðrún Þórbjarnardóttir149
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á myndinni er Réttarholt og til hægri sést Ásholt. Konan og börnin á myndinni eru óþekkt.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 165
Anna Jóna Geirsdóttir heldur á ungri dóttur sinni í útilegu á ókunnum stað. Dóttirin er annað hvort Aðalbjörg Birna Jónsdóttir fædd 1983 eða Laufey Jónsdóttir fædd 1987.
Sigurður Bjarnason - safn 054
Myndin var tekin í 90 ára afmæli Rósu Pálsdóttur (d. 1.5.2002) sem haldin var í Kántrýbæ 1. september 2001. Á henni eru systurnar, frá vinstri: Rósa Pálsdóttir, Hulda Pálsdóttir (d.29.9.2011) og Þorbjörg Jóninna Pálsdóttir (d. 21.3.2018)
Skagaströnd - safn498
Kaffisopi í félagsstarfi aldraðra í Fellsborg. Frá vinstri: Guðrún Angantýsdóttir, Ásthildur Gunnlaugsdóttir og Guðný Björnsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1021
Myndin var tekin á skíðasvæðinu í Tindastóli 20. apríl 2008. Konurnar á myndinni eru frá vinstri: Jóhanna Karlsdóttir, Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir, Herdís Jakobsdóttir og Kristín Blöndal.
Barnaból - safn429
Starfskonur Barnabóls fóru í heimsókn til Kragerö í Noregi vorið 2008. Þar heimsóttu þær og skoðuð leikskóla sem var undir stjórn fyrrverandi leikskólastjóra Barnabóls, Láru Bylgju Guðmundsdóttur. Þessi mynd var tekin af hluta hópsins 25. apríl 2008 í kaffistoppi á óþekktum stað. Frá vinstri: óþekkt, Þórunn Bernódusdóttir, Sesselja Guðmundsdóttir, Lára Bylgja Guðmundsdóttir leikskólastjóri í Kragerö og Ragnheiður Alda Sigurjónsdóttir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 179
Hjónin Aðalheiður Guðmundsdóttir (d.24.9.2011) og Jón Helgason (d.1.12.2019) á góðri stundu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn132
Anna Halldórsdóttir Aspar (d.1.9.1999). Myndin var líklega tekin kringum 1940.
Guðrún Þórbjarnardóttir - safn 007
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Karla Ingibjörg Helgadóttir (d.25.9.1986) bjó lengi með manni sínum Frirz Hendrik Magnússyni (d.19.10.1965) í Ásbergi sem stóð sunnan við Breiðablik á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1675
Kristín Jónsdóttir með dóttur sína Aðalheiði Ragnarsdóttur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin
Ragnar S. Ingvarsson - safn 161
Guðbjörg Viggósdóttir grínast meðan Helga Hermannsdóttir greiðir henni fyrir sýningu á "Síldin kemur og síldin fer" sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp vorið 1987. Aftan við Helgu er dóttir hennar, Þórhildur Jakobsdóttir sem einnig tók þátt í sýningunni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1610
Myndin var tekin 21. janúar 2012 af hjónunum Steindóri R. Haraldssyni og Ingibjörgu Björgvinsdóttur (d.14.2.2018) í hófi kirkjukórs Hólaneskirkju en Ingibjörg söng með kórnum um árabil. Steindór þjónaði aftur á móti sem meðhjálpari í áratugi.
1
…
7
8
9
…
17
Leita í myndasafninu
Leita