Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Konur
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Menn
998 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1623
Mæðginin Karitas Laufey Ólafsdóttir og Ragnar Smári Ingvarsson á leið í þorrablót í hjúkrunarheimilinu Sæborg þar sem Karitas bjó. Myndin var tekin 3. febrúar 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1491
Myndin var tekin 26. mars 2011 í íþróttahúsinu. Þá var þar í gangi íþróttamaraþon krakkanna í Höfðaskóla. Konurnar á myndinni, Sigríður Stefánsdóttir til vinstri og Helga Ólína Aradóttir til hægri, áttu báðar börn sem tóku þátt í maraþoninu. Þarna eru þær að elda súpu handa krökkunum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1671
Nemendur og kennarar á leikskólanum Barnaból brjóta upp daginn með því að fara í skrúðgöngu um bæinn 5. júlí 2012. Kennararnir eru, frá vinstri: Vigdís Birta Haraldsdóttir, Aldís Embla Björnsdóttir, Lilja Ingólfsdóttir, Þórunn Ævarsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri, Ásthildur Gunnlaugsdóttir og Guðbjörg Viggósdóttir. Börnin eru frá vinstri: Valdimar Viggó Baldursson, óþekkt, óþekktur, Snæbjörn Arnarsson, Birgitta Rún Finnbogadóttir, óþekkt, Sigríður Kristín Guðmundsdóttir, þrjú óþekkt og Aþena Guðbjörg Baldursdóttir.
Skagaströnd - safn505
Þrjár hressar konur á ferðalagi í Hrísey ásamt eldri borgurum úr Húnavatnssýslu. konurnar eru frá vinstri: Guðrún Sigurðardóttir, Bára þorvaldsdóttir og Hjördís Sigurðardóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari453
Halldór Hermannsson afhendir Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) blóm eftir að hann tók við sem verslunarstjóri í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. María hafði gegnt því embætti nokkru áður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en staðurinn er Hótel Dagsbrún sem rekið var á miðhæðinni í Stjórnsýsluhúsinu.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 93
Vala Rós Ingvarsdóttir og Karl Berndsen (d.28.1.2020) í nánu samtali.
Skagaströnd - safn480
Myndin var tekin á góðri stund í Kántrýbæ 4. desember 1998. Á henni eru frá vinstri: óþekkt, Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020), Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007), Sigríður Vilhjálmsdóttir (d.21.12.2012) og Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1571
Þórey Jónsdóttir hafnarvörður á göngu á höfninni með ömmubarn 5. maí 2011.
Skagaströnd - safn522
Hrefna Hákonardóttir (d.1412.2004) biður Kristján Hjartarson um óskalag á jólahlaðborði í Kántrýbæ 4. desember 1999.
Óþekktur ljósmyndari534
Fjölskyldan í Króksseli á mynd sem líklega var tekin kringum 1945. Á henni eru hjónin Páll Júlíus Sigurðsson (d.9.11.1953) og Ingibjörg Ólafsdóttir (d.6.3.1991) með börnum sínum Sigríði Guðný (d.1.10.2020), Ólafi (d.26.3.2004) og Sigurði. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 125
Hjónin Kristín Jónsdóttir og Ragnar Smári Ingvarsson með nýjan fjölskyldumeðlim í maga Kristínar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 999
Haustið 1984 komu skáldin Þórarinn Eldjárn og Olga Guðrún Árnadóttir í heimsókn og lásu úr verkum sínum í kjallara Fellsborgar. Á myndinni hlusta Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) og Olga Guðrún á Þórarinn lesa úr verkum sínum. Elínborg er nær okkur á myndinni.
Ólafur Bernódusson 1030
Ragnheiður Magnúsdóttir aðstoðar mann sinn,Sævar Hallgrímsson, við að landa metafla, sem hann fékk á bát sínum Hafgeiri Hu 121, í september 1998.
Guðrún Þórbjarnardóttir095
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er Hildigunnur Eggertsdóttir (d.24.3.2015). Á úrklippunni segir frá námi hennar í Kanada. Hildigunnur rak vélritunar- og hraðritunarskóla í Reykjavík eftir heimkomuna þaðan eins og auglýsing í Morgunblaðinu 2. október 1973 ber vitni um.
Guðrún Þórbjarnardóttir017
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Konan á myndinni er María Berndsen. Ef þú hefur einhverjar upplýsingar um hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn432
Starfskonur Barnabóls fóru í heimsókn til Kragerö í Noregi vorið 2008. Þar heimsóttu þær og skoðuð leikskóla sem var undir stjórn fyrrverandi leikskólastjóra Barnabóls, Láru Bylgju Guðmundsdóttur. Þessi mynd var tekin af þeim Guðbjörgu Viggósdóttur nær okkur og Kristínu Kristmundsdóttur fjær, í ferðinni.
Skagaströnd - safn524
Sigríður Vilhjálmsdóttir (d.21.1.2012) við vinnu sína í félagsstarfi aldraðra í kjallara Fellsborgar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
gunnar085
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Þórbjarnardóttir044
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni eru Þóra Jónsdóttir (d. 1966) skáldkona frá Kirkjubæ í Norðurárdal. Maður hennar er til hægri á myndinni en nafn hans er óþekkt. 1972 voru ljóð Þóru gefin út í bókinni: Ljóð Þóru frá Kirkjubæ.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn131
Anna Halldórsdóttir Aspar (d.1.9.1999). Myndin var líklega tekin kringum 1945.
gunnar065
Á þessari mynd stendur: Stefán og Una Steinnýjarst. Líklega eru þetta Una Ólafsdóttir (d.22.6.1911) og Stefán Sveinsson (d.3.5.1949) maður hennar, sem lengi bjuggu á Steinnýjarstöðum. .
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1679
Björg Ólafsdóttir (d.1.3.2007) með tvö óþekkt ömmubörn. Ekki er vitað hveær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn489
Myndin var tekin 27. maí 2002 þegar eldri borgarar úr Húnavatnssýslu voru á ferð til Dalvíkur í heimsókn. Á myndinni eru, frá vinstri: Elín Sigurtryggvadóttir, Arndís Þorvaldsdóttir, Filippía Helgadóttir og Guðný Hjartardóttir (d.14.3.2011)
Óþekktur ljósmyndari503
Þórdís Ebenezersdóttir (d.15.4.1890) bóndi á Vindhæli. Af henni er mikil og ævintýraleg saga í bókinni Svipir og sagnir eftir Magnús Björnsson frá Syðra Hóli. Þessi myndin er úr bókinni Föðurtún eftir Pál Kolka.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 066
Myndin var tekin á Sæborg 7. desember 1992. Konurnar á henni eru, frá vinstri: Rósa Pálsdóttir (d.1.5.2002), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003), Ingunn Valdís Júlíusdóttir (d.22.4.1998), Kristjana Jóhannsdóttir og Auður Ágústsdóttir (d.21.1.1997). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1692
Hjónin Björk Axelsdóttir og Jón S. Pálsson í kaffidrykkju í Fellsborg 23. október 2011. Maðurinn til vinstri er Óli Aandegaard .
Óþekktur ljósmyndari589
Starfsstúlkur í frystihúsi á Skagaströnd 1943 eða 1944. Samkvæmt texta myndarinnar eru þetta, frá vinstri: Guðrún Björnsdóttir (d.11.8.1971), Elísabet Kristjánsdóttir (d.6.3.1991), Matthildur Jóhannsdóttir (d.12.2.1953), Sigríður Helgadóttir (d.?), Helga Þorbergsdóttir (d.30.9.1970), Stella Lárusdóttir (d.?) situr framan við Helgu, Árný Magnúsdóttir (d.12.5.1996), Helga Sigurðardóttir (d.?), Sigríður Guðlaugsdóttir (d.25.3.1996), Ingunn Júlíusdóttir (d.22.4.1998), Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011) og Lára Kristjánsdóttir (d.6.9.1993). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Skagaströnd - safn508
Vinkonurnar María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) til vinstri og Guðný Finnsdóttir til hægri á jólahlaðborði í Kántrýbæ 4. desember 1998.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 161
Guðbjörg Viggósdóttir grínast meðan Helga Hermannsdóttir greiðir henni fyrir sýningu á "Síldin kemur og síldin fer" sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp vorið 1987. Aftan við Helgu er dóttir hennar, Þórhildur Jakobsdóttir sem einnig tók þátt í sýningunni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1610
Myndin var tekin 21. janúar 2012 af hjónunum Steindóri R. Haraldssyni og Ingibjörgu Björgvinsdóttur (d.14.2.2018) í hófi kirkjukórs Hólaneskirkju en Ingibjörg söng með kórnum um árabil. Steindór þjónaði aftur á móti sem meðhjálpari í áratugi.
Ólafur Bernódusson 1055
Vígsla nýja Kántrýbæjar fór fram 27. júní 1998. Eitt af skemmtiatriðunum við það tækifæri var að nokkrar konur úr kántrýdansaflokki á Skagaströnd sungu fyrir gesti. Drífa Kristjánsdóttir spilar á gítarinn en standandi eru frá vinstri: Linda Björk Ævarsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Vigdís Viggósdóttir og Kristín Blöndal Sigurðardóttir.
gunnar070
Aftan á myndina er skrifað, ógreinilega, með býanti: Guðríður Una. Hér eru líklega Una Ólafsdóttir (d.22.6.1911) frá Steinnýjarstöðum til vinstri og Guðríður Rafnsdóttir (d.22.3.1932) í Höfðahólum til hægri.
Barnaból - safn541
Myndin var tekin í nóvember 1998 í kaffihorninu í leikskólanum Barnaból. Það liggur greinilega vel á starfsstúlkunum Fjólu Ævarsdóttur í grænni peysu og Jóhönnu Sigurjónsdóttur sem situr við borðið. Í baksýn er Erna Berglind Hreinsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1618
Myndin var tekin 1. febrúar 2012 af Báru Þorvaldsdóttur við vinnu sína sem bókavörður í Höfðaskóla.
Ólafur Bernódusson 1064
Karin Zech líffræðingur hjá BioPol veifar stjörnuljósi á gamlaárskvöldi 2013.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn119
Mæðgurnar Anna Sjöfn Jónasdóttir til vinstri og Þórunn Bernódusdóttir til hægri í Tívolí í Kaupmannahöfn. Myndin var líklega tekin kringum 1970.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 37
Vinkonurnar, frá vinstri: Sigríður Birna Björnsdóttir, Hrönn Árnadóttir og Guðbjörg Kristinsdóttir. Líklega var myndin tekin kringum 1970.
Óþekktur ljósmyndari449
Vigdís Viggósdóttir, starfsmaður í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut, afgreiðir ? Jökulrós Grímsdóttur ? Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1681
Sambúðarfólkið Sturla Pétursson (d.?) og Björg Ólafsdóttir (d.1.3.2007). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari518
Hjónin í Höfnum á Skaga, Jón Benediktsson (d.30.12.2003) og Elínborg Teitný Björnsdóttir (2.5.1971). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1439
Guðríður Líneik Daníelsdóttir á Kántrýhátíð 19. ágúst 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1633
Kristín Jónsdóttir 11. júní 2011.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 109
Hjónin Kristín Jónsdóttir og Ragnar Smári Ingvarsson við jólaborðið. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 143
Þessar ungu konur í Fellsborg eru Hallbjörg Jónsdóttir til vinstri og Bryndís Guðjónsdóttir til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1649
Péturína Laufey Jakobsdóttir 23. júní 2011.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 114
Erna Magnúsdóttir og Rögnvaldur Ottósson voru lengi par og áttu saman einn son. Síðar skildi leiðir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn518
Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) og Jón S. Pálsson skólastjóri slaka á milli kennslustunda á kennarastofunni í Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það einhverntíma snemma á níunda áratugnum.
Ólafur Bernódusson 995
Saumastofan Viola var stofnuð kringum 1970 og starfaði á efstu hæðinni í gamla kaupfélaginu. Á þessari mynd, sem tekin var 1984, eru þrjár starfskonur Violu að sýna ullarteppi sem þar voru framleidd. Konurnar eru frá vinstri: Birna Jónsdóttir Blöndal (d.26.10.2018), María Konráðsdóttir (d.9.8.2003) og Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015).
Óþekktur ljósmyndari464
Margrét Þorsteinsdóttir starfsstúlka verslunar Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn514
Hjónin Sveinbjörn Blöndal (d.7.4.2010) og Birna Jónsdóttir Blöndal (d.26.10.2018) á jólahlaðborði í Kántrýbæ 4. desember 1998.
Óþekktur ljósmyndari423
Myndin var tekin af nokkrum starfsstúlkum í kaffistofunni í þáverandi kaupfélagsverslun við Bogabraut. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á þeim tíma voru reykingar greinilega ekkert tiltökumál. Konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Guðbjörg Viggósdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Edda Pálsdóttir og Helga Hermannsdóttir.
Skagaströnd - safn496
Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) í félagsstarfi aldraðra í Fellsborg.
Guðrún Þórbjarnardóttir060
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni eru tengdadætur hans þrjár. Frá vinstri: Hlín H. Kristensen (d.28.4.1984), kona Jens Jónssonar, Guðmunda Árnadóttir (d.26.1.2017) kona Þórbjörns Jónssonar og Þorgerður Guðmundsdóttir (d.24.4.2008) kona Björgvins Jónssonar. Myndin var tekin í garðinum við Flankastaði, heimili Guðmundu og Þórbjörns, sumarið 1963.
Guðrún Þórbjarnardóttir090
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Alda ? með Eirík ? í fanginu. Ef þú veist eitthvað um þetta fólk vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari482
Myndin var tekin í Fellsborg af þeim Eddu Pálsdóttur (d.8.4.2016) og Halldóri Hermannssyni á fatamarkaði verslunar Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin á níunda áratugnum.
Óþekktur ljósmyndari572
Hjónin Bjarni Jóhannsson (d.12.9.1971) og Rósa Pálsdóttir (d.1.5.2002) áttu lengi heimili á Bjargi. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn410
Myndin var tekin á tröppum Hólaneskirkju eldri. Ekki er vitað hvert tilefni myndatökunnar var né hvenær myndin var tekin. Presturinn lengst til hægri er séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996). Í aftari röðinni eru, frá vinstri: Helga Berndsen, Hrefna Björnsdóttir (d.8.10.2018), óþekkt, Ólína Marta Steingrímsdóttir (d.4.2.1994), óþekkt, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Anna Steingrímsdóttir og óþekkt. Í fremri röð, frá vinstri: Guðrún Björnsdóttir, Stella Magnúsdóttir (d.14.12011), þorgerður Laxdal (d.27.6.2013), Sigurlaug Magnúsdóttir, Anný Jóhannsdóttir, þrjú óþekkt og séra Pétur. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1349
Laufey Inga Stefánsdóttir útskrifuð stúdent 25. maí 2012.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn128
Þórunn Samsonardóttir (d.11.10.1986) sem lengi bjó á Akri (Hólabraut 13).
Ólafur Bernódusson 1088
Á öskudegi 5. mars 2014 gerði starfsfólk greiðslustofu Vinnumálastofnunar sér dagamun og mætti í skrautlegum búningum í vinnuna. Á þessari mynd eru þær Eygló Amelía Valdimarsdóttir til vinstri og Hallbjörg Jónsdóttir til hægri múnderíngum sínum.
1
…
8
9
10
…
17
Leita í myndasafninu
Leita