Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Börn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hópmyndir
Konur
Menn
1.425 myndir
Flæði
Reitir
Barnaból - safn583
Nokkrir krakkar í leikskólanum Barnaból á leið út í söngferð á öskudegi 17. febrúar 1999. Krakkarnir eru frá vinstri: Guðjón Páll Hafsteinsson, Telma Dögg Bjarnadóttir, Þorgerður Björk Guðmundsdóttir, Viktor Örn Valdimarsson, Tanja Rán Einarsdóttir, Eva Dís Gunnarsdóttir og ?Ívan Árni Róbertsson?.
Barnaból - safn496
Kristmar Ingi Ragnarsson í leikskólanum Barnaból 1998 - 99.
Barnaból - safn464
Ernst Guðni Hólmgeirsson í leikskólanum Barnaból 1997 - 98.
Barnaból - safn609
Myndin var tekin í febrúar 1990 í leikskólanum Barnaból. Krakkarnir eru frá vinstri: Lilja Nótt Sævarsdóttir, Eydís Sigurjónsdóttir, Anna Sólrún Bates og Stefán Agnar Gunnarsson.
Barnaból - safn543
Sumarið 1998 fengu þessir þrír þrifagarpar að þrífa dráttarvél sem stóð utan við leikskólann Barnaból. Krakkarnir eru Halla Björk Víðisdóttir og Unnar Leví Sigurbjörnsson á jörðinni en strákurinn uppi á vélinni er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1331
Georg Þór Kristjánsson á Kántrýhátíð 17. ágúst 2012.
Barnaból - safn551
Ísdagur í leikskólanum Barnabóli í ágúst 1998. Guðjón Örn Kristjánsson stendur framan við hópinn. Krakkarnir eru frá hægri: Óþekktur, Sigurjón Elí Eiríksson, Alex Már Gunnarsson, Bergrós Helga Hafsteinsdóttir, Eva Dís Gunnarsdóttir, Halla Björk Víðisdóttir, Guðjón Páll Hafsteinsson, Þorgerður Björk Guðmundsdóttir og fimm óþekkt börn.
Ólafur Bernódusson 950
Umf Fram stóð fyrir reiðhjólakeppni um bæinn í nokkur vor undir stjórn Lárusar Ægis Guðmundssonar. Á myndinni, sem tekin var vorið 1981 eða 1982, er Lárus að afhenda sigurvegurum í sínum flokki viðurkenningarskjöl sín. Frá vinstri: Arnar Haukur Ómarsson?, Brynjar Pétursson og Guðmundur Henry Stefánsson.
Ólafur Bernódusson 892
Myndin var tekin á vortónleikum Tónlistarskólans í Hólaneskirkju í maí 1999. Á henni spilar Óðinn Örn Sævarsson lagið sitt á píanó.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn138
Frænkurnar Kristbjörg Una Guðmundsdóttir lengst til vinstri, Halla Björk Víðisdóttir í miðið og systir hennar, Ester Ösp Víðisdóttir, til hægri. Myndin var tekin 4. ágúst 1997 þegar þær voru í heimsókn hjá ömmu sinni Önnu H. Aspar (d.1.9.1999).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1514
16. nóvember er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar og þess vegna Dagur Íslenskrar tungu. Þessi mynd var tekin þann dag 2011 á skemmtun Höfðaskóla í Fellsborg. Skólinn helgar þennan dag minningu Elínborgar Jónsdóttur (d.7.1.2007) kennara. Á myndinni frá 2011 eru nokkrir nemendur að lesa texta sem birtist á tjaldi bak við þau. Nemendurnir eru frá vinstri: Freydís Ósk Kristjánsdóttir, Kristmundur Baldvinsson og Jóhann Almar Reynisson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1672
Þráinn Bessi Gunnarsson með son sinn Bjarna Braga Bessason í kerru 5. júlí 2012.
Barnaból - safn608
Myndin var tekin í febrúar/mars 1990 í snjónum vestan undir leikskólanum Barnaból. Krakkarnir eru frá hægri: Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, Jón Ingi Ragnarsson, Ragnar Stefán Rögnvaldsson, Hermann Guðjónsson, Eyþór Kári Egilsson, Leifur Ingi Vilhelmsson, Árni Halldór Eðvarðsson, Óðinn Guðmundsson, Sindri Njáll Hafþórsson, Eva Dögg Bergþórsdóttir, óþekktur strákur, Albert Ingi Haraldsson og Hákon Þórarinsson
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 786
Myndin var tekin á kántrýhátíð 18. ágúst 2006. Á henni er Einar Ari Einarsson fyrir utan heimili sitt tilbúinn í leiguakstur með frumlegan "rickshaw" en þeir eru algengir á Indlandi og víðar.
Ólafur Bernódusson 908
Börn á grímuballi Höfðaskóla í Fellsborg í febrúar 1999. Börnin eru óþekkt.
Barnaból - safn507
Ásdís Rán Kristjánsdóttir í leikskólanum Barnaból 1998 - 99.
Barnaból - safn511
Óþekktur strákur gerði tilraunir með að borða brauð með nefinu í leikskólanum Barnaból 1998 - 99. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn593
Haldið var upp á 30 ára afmæli leikskólans Barnaból 6. júlí 2007. Myndin af Sigurði Aron Björnssyni var tekin í afmælisveislunni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1720
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1975. Á henni eru frá vinstri: Þórarinn Brynjar Ingvarsson, Árni Geir Ingvarsson og Vala Rós Ingvarsdóttir. Myndin var tekin um borð í óþekktum bát.
Barnaból - safn605
Börnin á myndinni eru fædd 2004 og 2005.
Barnaból - safn572
Myndin var tekin í árlegum piparkökubakstri í leikskólanum Barnaból líklega 1985 - 86. Sigþrúður Magnúsdóttir, í dökkri peysu, aðstoðar son sinn Vigni Örn Hafþórsson við baksturinn. Fjær hjálpar Hlíf Sigurðardóttir dætrum sínum, þeim Elvu Dröfn Árnadóttur , Aðalheiði Sif Árnadóttur og Höllu Kristínu Árnadóttur.
Barnaból - safn545
Myndin var tekin 17. ágúst 1998 í leikskólanum Barnaból. Sesselja Guðmundsdóttir til vinstri og Þórunn Bernódusdóttir til hægri sitja með börnunum í matartíma. Krakkarnir eru frá vinstri: Halla Björk Víðisdóttir (nær), óþekktur (fjær), Sonja Sif Ólafsdóttir, Saga Lind Víðisdóttir, Ólöf Hafþórsdóttir og Kristín Gyða Guðmundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1077
25. maí 2010 voru þessir krakkar að leika sér í byssuleik kringum skólann. Krakkarnir eru frá vinstri: Daði Snær Stefánsson, Jóhann Almar Reynisson, Dagur Freyr Róbertsson, Karen Elvarsdóttir, Anita Ósk Ragnarsdóttir og Birgitta Rut Bjarnadóttir.
Barnaból - safn653
Hópmynd tekin í leikskólanum Barnaból, líklega árið 2000. Fremsta röð frá vinstri: Ísak Karl Tryggvason, Jón Margeir Vilhjálmsson, Egill Örn Ingibergsson, Aldís Embla Björnsdóttir, Birta Dögg Bessadóttir, Elmar Jóhann Grétarsson, Ólafur Þór Víðisson, Ásdís Rán Kristjánsdóttir og Halldóra Ósk Guðmundsdóttir. Önnur röð frá vinstri: Guðmann Einar Magnússon, Ástrós Anna Gestsdóttir, Einar Ari Einarsson, Anna Dís Ragnarsdóttir, Ásdís Birta Árnadóttir, Freyja Sif Einarsdóttir, Friðmar Kári Eiríksson, Sigurbjörg Birta Berndsen, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Guðrún Helga Magnúsdóttir, Eik Guðmundsdóttir og Kristný Huld Einarsdóttir. Þriðja röð frá vinstri: Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015), Elvar Geir Ágústsson, Aron Breki Hjartarson, Róbert Björn Ingvarsson, Aron Snær Fannarsson, Ægir Jónas Jensson, Bergrós Helga Hafsteinsdóttir, Valgerður Sif Indriðadóttir, Ívan Árni Róbertsson, Saga Lind Víðisdóttir, Rakel Jensína Jónsdóttir og Ragnheiður Sigurjónsdóttir sem heldur á Rakel. Aftasta röð frá vinstri: Valrún Eva Vilhelmsdóttir, Sylvía Ósk Hrólfsdóttir, Kristmar Ingi Ragnarsson, Lilja Ingólfsdóttir, Ingunn Embla Kristínardóttir, Erna Berglind Hreinsdóttir, Indriði Theódór Hjaltason, Heba Líf Jónsdóttir, Sæþór Bragi Ágústsson, Sesselja Guðmundsdóttir, Ásdís Erla Steingrímsdóttir, Fjóla Ævarsdóttir, Linda Rós Ómarsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Sigurjón Elí Eiríksson, Ernst Guðni Hólmgeirsson, Úlfur Guðmundsson, Magnús Jens Magnússon og Helga Bergsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 800
Óskar Björnsson hjálpar til á bókasafninu í desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1142
Ester Ösp Víðisdóttir og Sindri Jóelsson tilbúin í rafting á Austari- og Vestari Jökulsá í Skagafirði 18. ágúst 2004.
Barnaból - safn457
Viktor Örn Valdimarsson í leikskólanum Barnaból 1997 - 98.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1480
Myndin var tekin 9. mars 2011 á öskudegi. Stúlkurnar í búningunum eru, frá vinstri: Hekla Guðrún Þrastardóttir, Freyja Dís Jóhannsdóttir, Bylgja Hrund Ágústsdóttir og Arna Rún Arnarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1380
11. ágúst 2011, í byrjun Kántrýhátíðar, fengu krakkar að leika sér í vatnsrennibraut sem komið var fyrir í brekkunni við íþróttavöllinn. Vatnið var tekið úr brunahana og þess vegna ískalt en veðrið var mjög gott, sól og hlýindi. Krökkunum á myndinni er þó greinilega skítkalt eftir að hafa farið salibunu í brautinni. Krakkarnir eru Ólafur Halldórsson og Hekla Guðrún Þrastardóttir.
Ólafur Bernódusson 1042
Unnar Leví Sigurbjörnsson að æfa golfsveifluna í ágúst 1998.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1451
Myndin var tekin 18. febrúar 2011. Krakkarnir á myndinni eru tilbúin á furðufataball í félagsmiðstöðinni Undirheimar. Krakkarnir eru frá vinstri: Aldís Embla Björnsdóttir, Aron Breki Hjartarson og Rakel Jensína Jónsdóttir.
Barnaból - safn513
Tanja Rán Einarsdóttir í leikskólanum Barnaból 1998 - 99.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1257
Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir heldur á dóttur sinni Emelíu Marey Einarsdóttur í fanginu í Kjalarlandsrétt 8. september 2012 þegar réttarstörf stóðu sem hæst.
Barnaból - safn552
Myndin var tekin í leikskólanum Barnaból 30. nóvember 1998. Krakkarnir eru frá vinstri: Kristmar Ingi Ragnarsson, Sylvía Ósk Hrólfsdóttir, Kristbjörg Drífa Ragnheiðardóttir, Sigurbjörg Birta Berndsen og Ernst Guðni Hólmgeirsson. Framan við þau stendur Garðar Freyr Írisarson.
Barnaból - safn547
Guðrún Hrólfsdóttir spilar við nokkra krakka í leikskólanum Barnaból 1998 - 99. Krakkarnir eru frá vinstri: Freyja Sif Blöndal Einarsdóttir, Telma Dögg Bjarnadóttir, óþekktur og Guðjón Páll Hafsteinsson. Ef þú þekkir óþekkta drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1373
Vatnsrennibraut í brekkunni við íþróttavöllinn 11. ágúst 2011. Tilefnið var að vinnuskólinn var að ljúka störfum þetta sumarið. Dagana á eftir fór fram Kántrýhátíð á Skagaströnd með tilheyrandi skreytingum gatna og almennri gleði. Krakkarnir í brautinni eru frá vinstri: Auðunn Árni Þrastarson, Ingólfur Eðvald Björnsson, Benóný Bergmann Sæmundsen, Ólafur Halldórsson, Rakel Elvarsdóttir, Karen Elvarsdóttir, Pétur Atli Árnason og Birgitta Rut Bjarnadóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1253
Áhugasamir áhorfendur á aðalæfingu á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 23. mars 2012. Í aftari röðinni eru frá vinstri: Auðunn Árni Þrastarson, Elín Ósk Björnsdóttir, Arnrún Ösp Guðjónsdóttir, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Jóna Margrét Sigurðardóttir og óþekkt. Fremri röð frá vinstri: Birgitta Rut Bjarnadóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Anita Ósk Ragnarsdóttir, Sunna Steingrímsdóttir, Guðný Eva Björnsdóttir, Benóný Bergmann Sæmundsen og Laufey Lind Ingibergsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 937
Þessi þrjú börn fylgdu foreldrum sínum í afmælishóf í kaffistofu Hólaness hf í febrúar 1992 í tilefni af 90 ára afmælis SH - Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna. Í miðjunni er Leifur Vilhelmsson en stúlkurnar eru óþekktar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Þórbjarnardóttir159
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni eru sonardóttir Jóns, Ásdís Þórbjarnardóttir til vinstri og systursonur hennar, Þorbjörn Sigurðsson, til hægri, sem er þá langafabarn Jóns. Myndin var líklega tekin 1966.
Ólafur Bernódusson 1074
Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir og Haraldur Guðjónsson kynna næsta atriði á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017.
Barnaból - safn505
Anna Dís Ragnarsdóttir í leikskólanum Barnaból 1998 - 99.
Barnaból - safn455
Brynjar Max Ólafsson til vinstri og Alex Már Gunnarsson til hægri í leikskólanum Barnaból 1997 - 98.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1063
Daði Snær Stefánsson leikur sér í uppblásnum gúmmíbát veturinn 2010
Barnaból - safn582
Starfsfólk Barnabóls í gönguferð með krakkana á Hnappstaðatúni veturinn 1999. Konurnar á myndinni eru frá vinstri: Lilja Ingólfsdóttir, Erna Berglind Hreinsdóttir, Fjóla Ævarsdóttir og Sesselja Guðmundsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 1085
Myndin var tekin á lokaballi Höfðaskóla 20. maí 2015 í Fellsborg. Á lokaballi borða nemendur í unglingadeild saman veislumat í sínu fínasta pússi. Kennararnir þjóna, uppábúnir, til borðs í þessum samkvæmum, sem enda með diskóteki fram eftir kvöldi. Á myndinni eru unglingar fæddir árið 2000. Þau eru, frá vinstri: Sigurður Hreiðarr Björgvinsson kennari, Viktor Már Einarsson, Rebekka Róbertsdóttir, Lilja Dögg Hjaltadóttir, Sonja Albertsdóttir, Arnrún Ösp Guðjónsdóttir, Georg Kristjánsson, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Victoría Sif Hólmgeirsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir og Jóna Margrét Sigurðardóttir
Barnaból - safn590
Haldið var upp á 30 ára afmæli leikskólans Barnabóls 6. júlí 2007. Krakkarnir á myndinni eru frá vinstri: Sigurjón Elí Eiríksson, Ísak Karl Tryggvason, Anton Þór Einarsson, Páll Halldórsson, Bergrós Helga Hafsteinsdóttir, óþekkt og Anna Dís Ragnarsdóttir.
Barnaból - safn618
Mynar tekin á öskudegi 17. febrúar 1999 í leikskólanum Barnaból af "Rækjuhópnum" tilbúnum í að fara í söngferð um bæinn. Frá vinstri: Guðjón Páll Hafsteinsson, Telma Dögg Bjarnadóttir, Þorgerður Björk Guðmundsdóttir, Viktor Örn Valdimarsson, Tanja Rán Einarsdóttir, Eva Dís Gunnarsdóttir og Einar Kristberg Einarsson.
Barnaból - safn585
Krakkarnir í leikskólanum Barnaból í útivist í Hólabergjunum veturinn 1999 ásamt starfsfólki. Börnin eru óþekkt en starfsstúlkurnar, Fjóla Ævarsdóttir til vinstri og Lilja Ingólfsdóttir til hægri, hugsa vel um hópinn.
Guðrún Þórbjarnardóttir056
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Drengurinn á henni er óþekktur en ef þú þekkir hann vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1202
Arnrún Hildur Hrólfsdóttir horfir dáleidd í kertaljósið sitt á aðventukvöldi í Hólaneskirkju 5. desember 2010.
Ólafur Bernódusson 889
Myndin var tekin á vortónleikum Tónlistarskólans í Hólaneskirkju í maí 1999. Á henni spilar Sunna Gylfadóttir á fiðlu við píanóundirleik kennara síns Michael Jones.
Barnaból - safn628
Á þessari hópmynd úr leikskólanum Barnaból eru, í aftari röð frá vinstri: Eva Dís Gunnarsdóttir, Birna Blöndal starfsstúlka, Þorgerður Björk Guðmundsdóttir, Telma Dögg Bjarnadóttir, Ólína Selma Þórarinsdóttir, Guðrún Hrólfsdóttir starfsstúlka og Silfá Sjöfn Árnadóttir. Fremri röð frá vinstri: Bryndís Brá Guðmundsdóttir, Guðjón Páll Hafsteinsson, Indriði Theódór Hjaltason og óþekktur strákur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1506
Einar Ari Einarsson ekur barnavagni 11. nóvember 2011 og spjallar við tvær vinkonur sínar, sem eru að labba með hunda. Rakel Jensína Jónsdóttir er vinstra megin og Bergrós Helga Hafsteinsdóttir hægra megin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1520
16. nóvember er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar og þess vegna Dagur Íslenskrar tungu. Þessi mynd var tekin þann dag 2011 á skemmtun Höfðaskóla í Fellsborg. Skólinn helgar þennan dag minningu Elínborgar Jónsdóttur (d.7.1.2007) kennara. Á myndinni eru nokkrir nemendur að spila og syngja atriði síns bekkjar. Frá vinstri: Elín Ósk Björnsdóttir, Lilja Dögg Hjaltadóttir, Rebekka Heiða Róbertsdóttir, Viktor Már Einarsson, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Sigurður Aron Björnsson, Jóhannes Hólmar Sigurpálsson, óþekkt og Victoría Sif Hólmgeirsdóttir
Barnaból - safn577
Þorrablót í leikskólanum Barnaból 28. janúar 1999. börnin þrjú við borðsendann eru, frá vinstri: Sæþór Bragi Ágústsson, Sara Rut Fannarsdóttir og Hanna Dís Gestsdóttir. Vinstra megin við borðið, talið inn eftir því: Sigurbjörg Birta Berndsen, Einar Ari Einarsson, Tanja Rán Einarsdóttir og Ívan Árni Róbertsson. Hægra megin við borðið eru, talið inn eftir borðinu: Kristmar Ingi Ragnarsson, Unnar Leví Sigurbjörnsson, óþekktur, Guðjón Örn Kristjánsson og ?Kristín Gyða Guðmundsdóttir?.
Barnaból - safn636
Mynd tekin 24. ágúst 1998 í leikskólanum Barnaból. Á henni eru frá vinstri: Anna Dís Ragnarsdóttir, Ívan Árni Róbertsson og Sesselja Guðmundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1661
Selpur í leik á skólalóðinni 14. mars 2012. Frá vinstri: Guðrún Björgvinsdóttir, Elísa Bríet Björnsdóttir, Thelma Sif Jónasdóttir og Ástríður Magnúsdóttir.
Barnaból - safn602
María Gret Gunnarsdóttir í 30 ára afmæli leikskólans Barnaból 6. júlí 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1219
Tombóla utan við búðina 1. júlí 2011. Krakkarnir á myndinni hafa lagt á sig að ganga í hús og biðja fólk um að gefa sér hluti á tombólu. Gjarnan fær svo Rauði krossinn ágóðan af slíkum fyrirtækjum. Á myndinni eru frá vinstri: bræðurnir Sindri Freyr Björnsson og Sigurður Aron Björnsson, óþekktur, Ingólfur Eðvald Björnsson og standandi er Stefanía Stefánsdóttir. Ef þú þekkir óþekkta strákinn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn649
Myndin var tekin í ágúst 1982 í leikskólanum Barnaból. Á henni, í sandkassanum, eru frá vinstri: Ólafur Magnússon Elínarson, Viktor Pétursson og Hildur Inga Rúnarsdóttir.
1
…
10
11
12
…
24
Leita í myndasafninu
Leita