Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Börn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hópmyndir
Konur
Menn
1.425 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1344
Krakkarnir og verkstjórarnir í vinnuskólanum héldu upp á sumarlokin hjá þeim 11. ágúst 2011 með grillveislu sunnan við Fellsborg. Á myndinni eru frá vinstri: Elvar Geir Ágústsson, Indriði Theódór Hjaltason, Aron Snær Fannarsson, Róbert Björn Ingvarsson og Alex Már Gunnarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1110
Krakkarnir á myndinni voru í vinnuskólanum sumar 2010. Þarna eru þau að gera sér glaðan dag með grilli og samveru. Standandi eru Guðmundur Árnason vinstra megin og Elías Gunnar Hafþórsson hægra megin. Stelpurnar við borðið eru frá vinstri: Kristín gerður Óladóttir, Sylvía Hrólfsdóttir, Eva Dís Gunnarsdóttir, Þorgerður Guðmundsdóttir og óþekkt.
Ólafur Bernódusson 914
Myndin var tekin af elstu krökkunum í Höfðaskóla á gönguskíðanámskeiði í febrúar 1999. Röðin er frá hægri: Anna Dúna Rúnarsdóttir, óþekktur, Birkir Rúnar Jóhannsson, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Eva Dögg Bergþórsdóttir og fjórir óþekktir.
Ólafur Bernódusson 1022
Lestarátak Í Höfðaskóla í nóvember 1998. Á myndinni les Leó Kristberg Einarsson, sem situr á borðshorni til hægri, upphátt fyrir nemendur á sal. Vinstra megin á myndinni má þekkja, frá vinstri: Guðjón Ebbi Guðjónsson, Vignir Örn Hafþórsson, Heiða Berglind Fannarsdóttir og Jón Oddur Hjálmtýsson. Næst Leó hægra megin er Guðni Már Lýðsson en hinum megin við Leó stendur Ingibergur Guðmundsson skólastjóri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Barnaból - safn503
Guðjón Örn Kristjánsson í leikskólanum Barnaból 1998 - 99.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 883
Indriði Theódór Hjaltason í jólaföndri í Höfðaskóla rétt fyrir jólin 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1504
Kristmar Ingi Ragnarsson 31. mars 2011.
Ólafur Bernódusson 948
Umf Fram stóð fyrir reiðhjólakeppni um bæinn í nokkur vor undir stjórn Lárusar Ægis Guðmundssonar. Á myndinni, sem tekin var vorið 1981 eða 1982, er Lárus að afhenda sigurvegurum í einum flokknum viðurkenningarskjölin sín. Strákarnir eru frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Stefán Ægir Lárusson og Viggó Magnússon.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1486
Myndin var tekin 18. desember 2012 í íþróttahúsinu. Á henni eru vinirnir Páll Halldórsson til vinstri og Egill Örn Ingibergsson til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðrún Þórbjarnardóttir162
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Guðmundur Ingi Jónatansson (d.4.12.2015) fóstursonur Björgvins Jónssonar (d.4.5.1992) sonar Jón Sölvasonar.
Guðrún Þórbjarnardóttir160
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Sölvason, Þorbjörn Sigurðsson og Árni Kristófersson (d.11.10.1982). Jón og Árni eru langafar Þorbjörns. Myndin var tekin 1966.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1301
Krakkar að leika sér í höfninni 14. ágúst 2012. Þau hoppuðu í sjóinn af Húnabjörginni og syntu spölinn að bryggjustigunum og fóru svo aðra ferð. Krakkarnir eru frá vinstri: óþekkt, Daði Snær Stefánsson, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Páll Halldórsson og Birkir Freyr Gunnarsson.
Barnaból - safn568
Myndin var tekin í árlegum piparkökubakstri í leikaskólanum Barnaból líklega 1985 - 86. Konan á myndinni er Charlotta Traustadóttir en vinstra megin við borðið eru Svava Magnúsdóttir og Sigríður Olga Magnúsdóttir. Elva Dröfn Árnadóttir er við borðsendann. Hægra megin eru, talið inn eftir borðinu: Trausti Magnússon, Halla Kristín Árnadóttir og Aðalheiður Sif Árnadóttir.
Guðrún Þórbjarnardóttir076
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Jón með tveimur (?afa?) stúlkum. Ef þú þekkir stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1027
Elva Þórisdóttir aðstoðar Bylgju Ágústsdóttur á skíðunum á skíðasvæði Tindastóls 20. apríl 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1455
Félagarnir Elmar Jóhann Grétarsson til vinstri og Róbert Björn Ingvarsson á gangi með nesti 8. október 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 997
Sonja Sif Ólafsdóttir leikur á flautu á Garginu, sem var söngvakeppni Höfðaskóla. Myndin var tekin 6. mars 2008 í Fellsborg.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 167
Feðgarnir Ragnar Smári Ingvarsson og Jón Ingi Ragnarsson hakka efni í slátur/lifrapylsu ? heima í eldhúsi. Myndin var líklega tekin seint á níunda áratugnum.
Barnaból - safn564
Birna Blöndal hjálpar ungum óþekktum dreng við fyrstu skrefin á listabrautinni í leikskólanum Barnaból. Myndin var líklega tekin kringum 1990.
Barnaból - safn643
Krakkarnir í leikskólanum Barnaból að leika sér úti í snjónum undir eftirliti Ernu Berglindar Hreinsdóttur líklega 1988. Heiðar Berglind Fannarsdóttir er lengst til hægri og við hlið hennar, í rauðum galla með hvítan trefil, er Eva Dögg Bergþórsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1503
Myndin var tekin 31. mars 2011 af þessum þremur vinkonum á leið heim úr Höfðaskóla að loknum skóladegi. Frá vinstri: Guðrún Anna Halldórsdóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir og Sigurlaug Máney Sæmundsen.
Guðrún Þórbjarnardóttir101
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni eru Hobbi (Þorbjörn Jensson?) og Karen. Ef þú veist hver börnin eru vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn563
Einhverntíma á árunum kringum 1990 komu krakkar úr öðrum leikskóla (Blönduós?) í heimsókn í leikskólann Barnaból. Á myndinni eru krakkarnir að bíða eftir að borða. Bára Þorvaldsdóttir er í gulri peysu úti í horni. Dökkhærða stúlkan í bleikri peysu við borðsendann er Jenný Lind Sigurjónsdóttir og strákurinn lengst til hægri er Eiður Bjarki Þórarinsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Barnaból - safn508
Garðar Freyr Írisarson í leikskólanum Barnaból 1998 - 99.
Guðrún Þórbjarnardóttir093
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er óþekktur drengur á ljósmynd tekinni af Ara Björnssyni. Ef þú þekkir drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1664
Erna Ósk Björgvinsdóttir í sumarvinnu sinni sem bæjarpóstur 30. júní 2011.
Ólafur Bernódusson 1039
Á ágústkvöldi 1998 drógu félagarnir, Guðmundur J. Björnsson og Ólafur Bernódusson, hnúfubak til lands á bát sínum Benna Ólafs Hu. Myndin var tekin morguninn eftir þegar þeir félagar voru að undirbúa að draga hvalinn upp í fjöru. Guðmundur stendur á lunningunni en hjá honum er dóttir hans Kristbjörg Una Guðmundsdóttir. Eins og sjá má var hvalurinn álíka langur og báturinn.
Barnaból - safn566
Guðrún Hrólfsdóttir aðstoðar dóttur sína Guðrúnu Ástu Guðmundsdóttur í árlegum piparkökubakstri í leikskólanum Barnaból. Myndin var líklega tekin 1987 eða 1988.
Barnaból - safn599
Myndin var tekin 6. júlí 2007 í 30 ára afmæli leikakólans Barnaból. Ingólfur Eðvald Björnsson kann vel að meta skúffukökuna sem var í boði í veislunni.
Halldór Gunnar Ólafsson 4
Myndin var líklega tekin kringum 1980. Á henni eru frá vinstri: Róbert Freyr Gunnarsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Viggó Magnússon, Stefán Sveinsson, Þorsteinn Styrmir Jónsson og Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna).
Barnaból - safn580
Myndin sýnir nokkra krakka að föndra í leikskólanum Barnaból í janúar 1999. Þau eru frá vinstri: Sæþór Bragi Ágústsson, Unnar Leví Sigurbjörnsson, Ellen Lind Sigurjónsdóttir og Kristmar Ingi Ragnarsson.
Guðrún Þórbjarnardóttir149
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á myndinni er Réttarholt og til hægri sést Ásholt. Konan og börnin á myndinni eru óþekkt.
Guðrún Þórbjarnardóttir112
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á myndinni er afastelpa Jóns, Ingibjörg Jensdóttir.
Barnaból - safn517
Sigurjón Elí Eiríksson í leikskólanum Barnaból 1998 - 99.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1500
Þessir þrír ungu menn eru með skólatöskurnar sínar á bakinu 30. mars 2011 þegar þessi mynd var tekin. Töffararnir á myndinni eru, frá vinstri: Ingólfur Eðvald Björnsson, Magnús Sólberg Baldursson og Sindri Freyr Björnsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1699
Þessir krakkar, nemendur Höfðaskóla, voru að undirbúa sundlaugarpartý þegar myndin var tekin 3. september 2010. Krakkarnir eru frá vinstri: Alma Vignisdóttir, Ívan Árni Róbertsson, Sigurlaug Máney Sæmundsen og Erna Ósk Björgvinsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1364
Myndin var tekin í íþróttahúsinu 12. október 2012 á danssýningu nemenda í Höfðaskóla undir stjórn Köru Arngrímsdóttur danskennara. Börnin í fremstu röðinni eru frá vinstri: Þórunn Sif Hólmgeirsdóttir, Arnrún Hildur Hrólfsdóttir, Gunnar Andri Elvarsson, Óðinn Örn Gunnarsson og Ísabella Líf Tryggvadóttir.
Ólafur Bernódusson 967
Myndin var líklega tekin 1983 af þeim Halldóri Gunnari Ólafssyni til vinstri og Friðrik Birgissyni til hægri að spila tölvuleik á tölvu af fyrstu kynslóð þeirra tækja.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1484
Krakkarnir í Höfðaskóla héldu íþróttamaraþon til fjáröflunar 25.mars 2011. Þá stunduðu krakkarnir hinar ýmsu íþróttir stanslaust í heilan sólarhring. Á myndinni hvílast nokkrir krakkar milli leikja. Standandi er Páll Halldórsson en í sófanum eru frá vinstri: Lilja Svandís Hallgrímsdóttir, Rakel Jensína Jónmsdóttir, Anita Ósk Ragnarsdóttir, Aron Breki Hjartarson, Bergrós Helga Hafsteinsdóttir, Eva Dögg Björgvinsdóttir og Ásdís Birta Árnadóttir
Inga Stefánsdóttir 2
Börnin á myndinni eru óþekkt nema Karl Guðmundsson sem er barnið með hvítu húfuna. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hún var líklega tekin nálægt staðnum þar sem kirkjan er í dag. Ef þú þekkir einhvert barnanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Til gamans koma hér nokkrar ágiskanir: Aftast með hettu: Ása Jóhannsdóttir ??, vinstra megin við hana: ?? Bertelsdóttir ??, til hægri við Karl: Helga Guðmundsdóttir systir hans ??, Strákurinn sem er fjórði frá vinstri (fjær okkur): Sigurður Bjarnasaon ?? og þriðja frá hægri er: ?? Sigurðardóttir frá Hólanesi ??. Getur þú staðfest þessar ágiskanir ?
Ólafur Bernódusson 962
Myndin var tekin á fyrstu Kántrýhátíðinni sem haldin var 1984. Þá hafði verið komið fyrir tvöfaldri "svifbraut" milli bergjanna við tjaldsvæðið. Svifbrautin naut mikilla vinsælda meðal krakkanna.
Barnaból - safn501
Brynjar Max Ólafsson í leikskólanum Barnaból 1998 - 99.
Guðrún Þórbjarnardóttir161
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Elínborg Ingvarsdóttir (d.5.8.2019).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1316
Sumarleikur 15. ágúst 2012. Stúlkurnar eru frá vinstri: Anita Ósk Ragnarsdóttir, Dagný Dís Bessadóttir og Guðný Eva Björnsdóttir.
Ólafur Bernódusson 911
Í febrúar 1999 var haldið gönguskíðanámskeið fyrir elstu nemendur Höfðaskóla. Námskeiðið fór fram á snævi þöktum íþróttavellinum. Á myndinni eru nokkrir krakkar að stíga sín fyrstu skref á gönguskíðunum. Krakkarnir eru óþekkt.
Barnaból - safn441
Aron Snær Fannarsson í leikskólanum Barnaból 1997-98.
Ólafur Bernódusson 977
Frænkurnar Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna) til vinstri og Anna Aspar Aradóttir til hægri í snjónum veturinn 1984.
Barnaból - safn523
Þessi óþekkti strákur var í leikskólanum Barnaból 1998 - 99. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1370
Vinkonurnar Guðrún Anna Halldórsdóttir til vinstri og Sigurlaug Máney Sæmundsen til hægri 17. ágúst 2012.
Barnaból - safn620
Málað með stráum melgresisins í leikskólanum Barnaból 29. september 1999. Frá vinstri: Guðjón Páll Hafsteinsson, Eva Dís Gunnarsdóttir og Telma Dögg Bjarnadóttir.
Barnaból - safn631
Myndin var tekin í leikskólanum Barnaból líklega 1998 eða 99. Frá vinstri: Indriði Theódór Hjaltason, Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015) starfsstúlka, Ásdís Erla Steingrímsdóttir, óþekktur Óskarsson og Linda Rós Hentze Ómarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 912
Lilja Dögg Hjaltadóttir í Höfðaskóla 6. desember 2007.
Barnaból - safn574
Krakkarnir í leikskólanum Barnaból að skera rabbarbara 10. september 1998. Krakkarnir eru frá vinstri: Sara Rut Fannarsdóttir, Einar Ari Einarsson, Sonja Sif Ólafsdóttir og Guðjón örn Kristjánsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Barnaból - safn557
Piparkökubakstur í leikskólanum Barnaból 28. nóvember 1998. Við borðið eru hjónin séra Guðmundur Karl Brynjarsson og Kamilla Hildur Gísladóttir að aðstoða börnin sín Kristínu Gyðu og Felix Arnkel við baksturinn. Til vinstri sér í Helgu Ólínu Aradóttur.
Barnaból - safn637
Myndin var tekin á öskudeginum 1982 af krökkum úr leikskólanum Barnaból í verslun kaupfélagins. Af augljósum ástæðum eru börnin óþekkt en starfsstúlkurnar eru frá vinstri: Kristín Sigurðardóttir, Erna Berglind Hreinsdóttir og Bára Þorvaldsdóttir. Myndina tók Jón Jónsson (d.9.7.1991) sem þá var verslunarstjóri í kaupfélaginu.
Ólafur Bernódusson 933
Þessi tvö voru hluti af hópi leikskólabarna sem komu í kirkjuna með jólagjafir handa fátækum í söfnunina " Brostu" í desember 1998. Indriði Theódór Hjaltason til vinstri og Eva Dís Gunnarsdóttir til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1613
Stúlkurnar sitja á litla klettinum austanvert við Einbúann. Aldís Embla Björnsdóttir til vinstri og Sigurbjörg Birta Berndsen til hægri.
Barnaból - safn553
Myndin var tekin í leikskólanum Barnaból 1. desember 1998. Krakkarnir eru, frá vinstri: Sigurbjörg Birta Berndsen, Hanna Dís Gestsdóttir og Aron Snær Fannarsson.
Barnaból - safn579
Myndin var tekin á þorrablóti í leikskólanum Barnaból 28. janúar 1999. Vinstra megin við borðið, talið inn eftir því: Anna Dís Ragnarsdóttir, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Ólöf Hafþórsdóttir og óþekkt börn. Hægra megin eru, talið inn eftir borði: óþekkt, Saga Lind Víðisdóttir, Felix Arnkell Guðmundsson, tvö óþekkt börn, Tanja Rán Einarsdóttir og þrjú óþekkt börn. Stúlkan í gráu peysunni við borðsendann er Sara Rut Fannarsdóttir en aðrir eru óþekktir.
Barnaból - safn614
Börn að leik í leikskólanum Barnaból 10. október 1997. Börnin erá vinstri: Bryndís Brá Guðmundsdóttir, Tanja Rán Einarsdóttir og Guðjón Páll Hafsteinsson.
1
…
11
12
13
…
24
Leita í myndasafninu
Leita