Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Börn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hópmyndir
Konur
Menn
1.425 myndir
Flæði
Reitir
Guðrún Þórbjarnardóttir - safn 008
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á myndina hefur hann skrifað Ása og Sigga Berndsen. Þær voru systur. Margrét Henríetta Ása Berndsen Norberg Carlsdóttir hárgreiðslukona fæddist á Hólanesi 10. apríl 1908 en dó 26. janúar 1999. Sigríður Pálína Berndsen Carlsdóttir fæddist 8. nóvember 1910 en dó 9. september 1978.
Barnaból - safn519
Eva Dís Gunnarsdóttir í leikskólanum Barnaból 1998 - 99.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1581
Strákarnir sem voru að klifra í skógræktinni 9. maí 2011 eru frá vinstri: Jóhann Almar Reynisson, Daði Snær Stefánsson og Ívan Orri Eiríksson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1575
Systkinin Einar Ari Einarsson og Linda Rún Einarsdóttir tylla sér á bekk í göngutúr í snjónum 29. desember 2012.
Barnaból - safn452
Systkinin Sara Rut Fannarsdóttir og Aron Snær Fannarsson á leikskólanum Barnaból 1997 - 98.
Barnaból - safn617
Sigurbjörg Birta Berndsen til vinstri og Anna Dís Ragnarsdóttir til hægri njóta sín við málningavinnu í leikskólanum Barnaból líklega 2000 ðea 2001.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 62
Ólafur Róbert Ingibjörnsson kringum 1970. Í baksýn er Akur (Hólabraut 13), hvítt með þremur gluggum á stafninum. Aftan við Ólaf er Akurgerði (Hólabraut 9), sem hefur verið rifið og nýtt hús byggt á lóðinni. Yfir skúrinn, sem er við Akurgerði, sér í Vinaminni (Hólabraut 16).
Ólafur Bernódusson 1037
Friðvin Ingi Ernstsson Berndsen skoðar hnúfubak sem dregin var til hafnar á Skagaströnd á Benna Ólafs Hu í ágúst 1998. Bægslin á hnúfubak eru mjög stór og gjarnan eru á þeim stórir hrúðurkarlar eins og líka má sjá á trjónu hvalsins.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1676
Systurnar Ester Ösp Víðisdóttir með dúkkuvagninn sinn en Halla Björk Víðisdóttir systir hennar labbar með. Myndin var tekin kringum 1995 á Mánabrautinni.
Óþekktur ljósmyndari534
Fjölskyldan í Króksseli á mynd sem líklega var tekin kringum 1945. Á henni eru hjónin Páll Júlíus Sigurðsson (d.9.11.1953) og Ingibjörg Ólafsdóttir (d.6.3.1991) með börnum sínum Sigríði Guðný (d.1.10.2020), Ólafi (d.26.3.2004) og Sigurði. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn119
Mæðgurnar Anna Sjöfn Jónasdóttir til vinstri og Þórunn Bernódusdóttir til hægri í Tívolí í Kaupmannahöfn. Myndin var líklega tekin kringum 1970.
Guðrún Þórbjarnardóttir157
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Stúlkan á myndinni er sonardóttir Jóns, Arna Ingibjörg Jensdóttir.
Barnaból - safn592
Haldið var upp á 30 ára afmæli leikskólans Barnaból 6. júlí 2007. Þá var þessi mynd tekin af Ívani Orra Eikssyni í fanginu á mömmu sinni, Jóhönnu Sigurjónsdóttur. Líklega hefur Ívani ekki þótt eins gaman í afmælinu og flestum öðrum.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 184
Myndin var tekin á Ránarbraut 21 þegar ný búið var að koma fyrir stigapallinum á milli hæða. Á pallinum pústa augnablik bræðurnir Árni Geir Ingvarsson til vinstri og Ragnar Smári Ingvarsson til hægri, átti íbúðina. Hjá þeim er sonur Ragnars, Jón Ingi í náttfötunum sínum. Myndin var líklega tekin 1986 eða 1987.
Guðrún Þórbjarnardóttir148
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er sonur hans Jens Jónsson (d.7.12.1975) utan við heimili þeirra í Réttarholti.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1693
Karen Líf Sigurbjargardóttir í Kjalarlandsrétt 8. september 2012.
Barnaból - safn645
Brynjar Max Ólafsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1715
Guðný Eva Björnsdóttir á jóla-barnaballi Lions 26. desember 2010 í Fellsborg.
Barnaból - safn470
Gengið kringum jólatré á litlu jólum í leikskólanum Barnaból 18. desember 1997. Strákur í hvítri skyrtu og gráu vesti til vinstri er Guðjón Örn Kristjánsson. Þórir Óskar Björnsson er nær okkur í blárri peysu. Hjá honum í rauðum kjól er Laufey Inga Stefánsdóttir. Alexander Ragnarsson er lengst til hægri í bláu vesti. Gegnum jólatréð má sjá andlit Telmu Daggar Bjarnadóttur. Stúlkan í rauða og svarta kjólnum hægra megin við tréð er Eva Dís Gunnarsdóttir og við hið hennar er Silfá Sjöfn Árnadóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 1086
Myndin var tekin á lokaballi Höfðaskóla 20. maí 2015 í Fellsborg. Á lokaballi borða nemendur í unglingadeild saman veislumat í sínu fínasta pússi. Kennararnir þjóna, uppábúnir, til borðs í þessum samkvæmum, sem enda með diskóteki fram eftir kvöldi. Á myndinni eru unglingar fæddir árið 1999. Þau eru, fremri röð frá vinstri: Linda Rún Einarsdóttir, Sæunn Ósk Steingrímsdóttir og Guðrún Hjaltey Hallgrímsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Páll Halldórsson, Anton Þór Einarsson, Trostan Agnarsson kennar, Birkir Gunnarsson og Eymundur Lórens Grétarsson.
Barnaból - safn491
Sonja Sif Ólafsdóttir í leikskólanum Barnaból 1998 - 99.
Barnaból - safn484
Elísabet Anna Blöndal Einarsdóttir í leikskólanum Barnaból 1998 - 99.
Guðrún Þórbjarnardóttir154
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á myndinni er sonardóttir hans, Ásdís Þórbjarnardóttir, sem ólst upp á Flankastöðum (Bankastræti 7).
Barnaból - safn463
Unnar Leví Sigurbjörnsson í leikskólanum Barnaból 1997 - 98.
Barnaból - safn458
Myndin var tekin í leikskólanum Barnaból 1997 - 98. Stúlkan á myndinni er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn448
Ívan Árni Róbertsson í leikskólanum Barnaból 1997 - 98.
Ólafur Bernódusson 949
Umf Fram stóð fyrir reiðhjólakeppni um bæinn í nokkur vor undir stjórn Lárusar Ægis Guðmundssonar. Á myndinni, sem tekin var vorið 1981 eða 1982, er einn flokkurinn að leggja af stað. Eins og sjá má tíðkaðist ekki að vera með hjálm á höfðinu við hjólreiðar eins og nú er. Börnin eru óþekkt en Lárus er í hvítri úlpu til vinstri.
Ólafur Bernódusson 976
Strákarnir eru að stækka mynd eftir fyrirmynd á myndvarpanum. Strákarnir eru frá vinstri: Ólafur Magnússon, Þorlákur Ómar Guðjónsson og Jóhannes Heiðmar Indriðason. Myndin var tekin í Höfðaskóla veturinn 1984.
Barnaból - safn560
Pylsupartý í leikskólanum Barnaból í nóvember 1998. Krakkarnir eru, frá vinstri: ?Sæþór Bragi Ágústsson?, Elías Gunnar Hafþórsson (fjær), ?Kristmar Ingi Ragnarsson ?(nær) og Sonja Sif Ólafsdóttir.
Barnaból - safn561
Myndin var tekin í leikskólanum Barnaból 26. janúar 1999. Helga Bergsdóttir stendur hjá krökkunum sem eru að borða pyslur. Aftan við hana stendur Sigurbjörg Birta Berndsen en vinstra megin við borðið eru, talið inn eftir borðinu: Guðrún Anna Halldórsdóttir, Anna Dís Ragnarsdóttir, Ólöf Hafþórsdóttir, Unnar Leví Sigurbjörnsson og tveir óþekktir strákar. Við borðsendann situr Elías Gunnar Hafþórsson. Hægra megin við borðið, talið inn eftir því: tvö óþekkt börn, Guðjón Örn Kristjánsson, tvö óþekkt og Sonja Sif Ólafsdóttir.
Ólafur Bernódusson 1001
Myndin var tekin í Höfðaskóla 1985 í viku þegar hefðbundið skólastarf var brotið upp og nemendurnir völdu sér vinnusmiðjur til að vera í. Á þessari mynd er málun og sköpun í gangi. Krakkarnir eru frá vinstri: ?Guðrún Elsa Helgadóttir?, María Gunnarsdóttir (fjærst), óþekkt, Þóra Ágústsdóttir með pensil á lofti. Hægra megin við borðið eru frá vinstri: Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir, Ásta Ósk Ásgeirsdóttir og Sigurbjörg Jónasdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Barnaból - safn502
Sonja Sif Ólafsdóttir í leikskólanum Barnaból vorið 1999.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1174
Sungið í karaoki 16. september 2005 í félagsmiðstöðinni Undirheimum. Á myndinni eru frá vinstri: Sæþór Bragi Ágústsson, óþekktur, Alex Már Gunnarsson og Guðjón Páll Hafsteinsson. Ef þú þekkir óþekkta strákinn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 1073
Kristmundur Baldvinsson og Dagný Dís Bessadóttir kynna næsta atriði á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017.
Barnaból - safn540
Tanja Rán Einarsdóttir þriggja ára afmælisbarn í leikskólanum Barnaból 30. september 1997.
Barnaból - safn477
Alæex Már Gunnarsson í leikskólanum Barnaból 1998 - 99.
Guðrún Þórbjarnardóttir130
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni eru Kristín Eva ?? og hundurinn Kobbi (Kóbbi). Ef þú veist hver Kristín Eva er vinsamlega sendu okkur þá athugsemd.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn127
Myndin var tekin sumarið 1964 af þeim Lilju Bernódusdóttur (d.9.2.2020) til vinstri og Ástmar Kára Ástmarssyni til hægri. Bæði voru þau á nýju þríhjólunum sínum utan við heimili Kára í Héðinshöfða. Í baksýn sér í Þórsmörk, Þórshamar og Steinholt vinstra megin við Skagaveginn. Til hægri eru Sólheimar (eldri). Héðinshöfði, Þórsmörk og Sólheimar eru nú horfin.
Barnaból - safn504
Kristbjörg Drífa Ragnheiðardóttir í leikskólanum Barnaból 1998 - 99.
Guðrún Þórbjarnardóttir084
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Örn Berg Guðmundsson sonarsonur Jóns. Örn Berg gekk undir gælunafninu Assi á uppvaxtarárum sínum.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 67
Bræðurnir Árni Geir og Þórarinn Brynjar Ingvarssynir að leika sér heima á Bogabraut 16. Þórarinn er sá með hvítu húfuna. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin það var einhverntíma snemma á áttunda áratugnum.
Guðrún Þórbjarnardóttir114
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Þórbjörn Sigurðsson 6 mánaða gamall en hann er langafabarn Jóns.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 104
Leifur Þór Ragnarsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur verið kringum 1985.
Barnaból - safn467
Myndin var tekin 18. desember 1997 á litlu jólum í Barnabóli. Sitjandi frá vinstri: Alex Már Gunnarsson, óþekkt, Guðjón Páll Hafsteinsson, tvö óþekkt börn, Telma Dögg Bjarnadóttir, tvær óþekktar stúlkur, Tanja Rán Einarsdóttir og Silfá Sjöfn Árnadóttir. Standandi frá vinstri: óþekktur, Indriði Theódór Hjaltason, Þórir Óskar Björnsson, óþekktur, Kristbjörg Ragnheiðardóttir, Sara Rut Fannarsdóttir, Guðjón Örn Kristjánsson, sex óþekkt börn, Alexander Ragnarsson og Brynjar Max Ólafsson. Ef þú þekkir einhvert af óþekktu börnunum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1576
Magnús Sólberg Baldursson faðmar systkini sín Aþenu Guðbjörgu Baldursdóttur og Valdimar Viggó Baldursson og sýnir með því væntumþykju sína 7. maí 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1578
Algengt ráð til að fjármagna skólaferðalög er að ganga í hús og bjóða ýmsar vörur til sölu t.d. lakkrís, harðfisk og klósettpappír. Krakkarnir á myndinni voru í þeim erindagjörðum þegar myndin var tekin 8. maí 2011. Á henni eru frá vinstri: Daði Snær Stefánsson, Ólafur Halldórsson, Harpa Hlín Ólafsdóttir og Páll Halldórsson.
Ólafur Bernódusson 1063
Myndin var tekin 5. júní 2013 af Páli Halldórssyni 14 ára þar sem hann er í slægingarvinnu hjá fiskmarkaðnum á Skagaströnd. Nokkur ár var langstærsti hluti þess afla sem fór í gegnum markaðinn slægður þar vegna reglna um fiskflutninga.
Ólafur Bernódusson 1075
Freydís Kristjánsdóttir og Daði Snær Stefánsson kynna næsta atriði á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017.
Halldór Gunnar Ólafsson 2
Myndin var tekin á öskudegi líklega 1983 eða 84. Á henni eru Anna Þóra Birgisdóttir til vinstri og Eva Jónasdóttir til hægri
Barnaból - safn634
Myndin ver tekin í leikskólanum Barnaból 14. október 1997. Í gangi er afmælisveisla Guðjóns Páls Hafsteinsson sem situr við enda borðsins. Hægra megin við borðið eru, talið inn eftir því: Alex Már Gunnarsson, Tanja Rán Einarsdóttir, Hallgrímur Egilsson, Telma Dögg Bjarnadóttir en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 1023
Myndin var tekin í Höfðaskóla í nóvember 1998 þegar þar stóð yfir lestrarátak. Nemendur komu sér þá vel fyrir þar sem þeir vildu og lásu sér til skemmtunar í hálftíma á hverjum morgni. Á myndinni eru, talið frá hægri: Lilja Nótt Sævarsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Tinna Björk Gunnarsdóttir og Eva Dögg Bergþórsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 105
Bræðurnir Ægir Thorberg Jónsson til vinstri og Guðmundur Jónsson til hægri heima á Fellsbrautinni.
Ólafur Bernódusson 1080
Hópur bekkjarfélaga í framkalli eftir að hafa sýnt skemmtiatriði sitt á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017. Frá vinstri: Freydís Kristjánsdóttir, Dagur Freyr Róbertsson, Daði Snær Stefánsson, Dagný Dís Bessadóttir, Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir, Jóhann Almar Reynisson, Kristmundur Baldvinsson, Haraldur Guðjónsson og Pascal Gruenberger.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1381
11. ágúst 2011, í byrjun Kántrýhátíðar, var komið fyrir vatnsrennibraut í brekkunni við íþróttavöllinn. Vatnið var tekið úr brunahana og var því ískalt. krakkarnir nutu sín þó sannarlega og skemmtu sér vel. Á myndinni eru nokkur þeirra eftir að hafa farið nokkrar salibunnur. Frá vinstri: Dagur Freyr Róbertsson, Viktor Már Einarsson, Birkir Freyr Gunnarsson, Anton Þór Einarsson og Valgerður Guðný Ingvarsdóttir.
Barnaból - safn478
Sigurjón Elí Eiríksson í leikskólanum Barnaból 1998 - 99.
Ólafur Bernódusson 1072
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla 30. nóvember 2017 í Fellsborg. Á henni syngja nemendur úr tveimur bekkjum saman. Aftari röð frá vinstri: Gabríel Goði Tryggvason, Hlynur Árnason, Anna Marie Gruenberger og Karen Líf Sigurbjargardóttir. Í fremri röð frá vinstri: Bjarni Bragi Bessason, Sigurjón Ýmir Alexson, Arnar Gísli Birkisson, óþekktur, Lárey Mara Sigurðardóttir, Birgitta Finnbogadóttir, óþekktur og Gunndís Katla Þrastardóttir.
Ólafur Bernódusson 876
Myndin var tekin í nóvember 1999 þegar haldið var upp á 60 ára afmæli Höfðaskóla. Þá voru nemendur með ýmiskonar viðburði í stofunum. Hver sýning var sýnd nokkrum sinnum yfir daginn þannig að allir sem vildu gátu séð þær allar þó 2-3 væru í gangi hverju sinni. Á myndinni eru krakkarnir að syngja fyrir fólk og leika það sem sungið er um. Krakkarnir eru frá vinstri: Ómar Ísak Hjartartarson, Patrik Snær Bjarnason, tvö óþekkt, Rósa Björg Einarsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir ? (fjær), óþekkt (nær), Lilja Nótt Sævarsdóttir, óþekktur, Arnrún Bára Finnsdóttir (nær), Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir (fjær), Sara Rut Fannarsdóttir, Hörður Aðils Vilhelmsson og óþekkt. Lengst til hægri stendur Aðalheiður Sif Árnadóttir. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 1082
Myndin var tekin á lokaballi Höfðaskóla 30. maí 2016 í Fellsborg. Á lokaballi borða nemendur í unglingadeild saman veislumat í sínu fínasta pússi. Kennararnir þjóna, uppábúnir, til borðs í þessum samkvæmum, sem enda með diskóteki fram eftir kvöldi. Á myndinni eru unglingar fæddir árið 2000. Þau eru, frá vinstri: Sonja Albertsdóttir, Arnrún Ösp Guðjónsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Georg Kristjánsson, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Jóna Margrét Sigurðardóttir, Lilja Dögg Hjaltadóttir, Rebekka Róbertsdóttir, Sigurður Aron Björnsson, Viktor Már Einarsson og Jóhannes Sigurpálsson.
Barnaból - safn554
4. desember 1998 var þessi mynd tekin í leikskólanum Barnaból. Guðrún Sigurðardóttir spjallar við krakkana sem eru að leira við borðið. Krakkarnir eru, frá vinstri: Kristmar Ingi Ragnarsson (nær), Halla Björk Víðisdóttir (fjær), milli þeirra eru þrjú óþekkt börn, Kristbjörg Drífa Ragnheiðardóttir, Sylvía Ósk Hrólfsdóttir, Saga Lind Víðisdóttir (fjær), Anna Dís Ragnarsdóttir (nær) og Ívan Árni Róbertsson.
Barnaból - safn442
Þorgerður Björk Guðmundsdóttir á leikskólanum Barnaból 1997 - 98.
1
…
13
14
15
…
24
Leita í myndasafninu
Leita