Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Börn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hópmyndir
Konur
Menn
1.425 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson 976
Strákarnir eru að stækka mynd eftir fyrirmynd á myndvarpanum. Strákarnir eru frá vinstri: Ólafur Magnússon, Þorlákur Ómar Guðjónsson og Jóhannes Heiðmar Indriðason. Myndin var tekin í Höfðaskóla veturinn 1984.
Barnaból - safn560
Pylsupartý í leikskólanum Barnaból í nóvember 1998. Krakkarnir eru, frá vinstri: ?Sæþór Bragi Ágústsson?, Elías Gunnar Hafþórsson (fjær), ?Kristmar Ingi Ragnarsson ?(nær) og Sonja Sif Ólafsdóttir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 61
Þórarinn Brynjar Ingvarsson kringum 1970.
Barnaból - safn612
Nokkur börn úr leikskólanum Barnaból í sínum vikulega íþróttatíma í íþróttahúsinu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið 2001 eða 2002. Krakkarnir eru frá vinstri: Birta Dögg Bessadóttir, Halldóra Guðmundsdóttir, Ásdís Birta rnadóttir, Rakel Jensína Jónsdóttir, óþekktur og Friðmar Kári Eiríksson. Herdís Jakobsdóttir, til vinstri, fylgist með krökkunum. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1680
Ingvar Karl Sigtryggsson (d.10.7.1988) með barnabarn í fanginu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 1089
Ólafur Halldórsson í grímubúningi sínum á grímuballi Höfðaskóla 5. mars 2014.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 38
Vala Rós Ingvarsdóttir 1968.
Barnaból - safn651
Þorgerður Björk Guðmundsdóttir í leikskólanum Barnaból 1998 - 99.
Barnaból - safn638
Myndin var tekin í leikskólanum Barnaból, líklega öskudaginn 1981. Í aftari röð eru frá vinstri: óþekkt starfsstúlka, Kristján Gunnar Guðmundsson, Hjörtur Jónas Guðmundsson, óþekkt stúlka, Gunnar Þröstur Sæmundsson ?, Jón Ólafur Sigurjónsson, Kristin Sigurðardóttir og Elísabet Eik Guðmundsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Ragna Fanney Gunnarsdóttir?, óþekktur strákur, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir og fjögur óþekkt börn. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson safn 054
Feðgarnir Ómar Jakobsson og Andri Þór Ómarsson í rólegheitunum heima. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn533
Ungir nemendur Höfðaskóla í reiptogi í fjörunni við Sandlæk. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var kringum 2000. Nemendurnir eru, frá vinstri: Lena Rut Jónsdóttir, Þórey Fjóla Aradóttir, Ester Ösp Víðisdóttir, Ómar Ísak Hjartarson og Steinar Ólafsson? en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn543
Krakkarnir á myndinni voru nemendur Höfðaskóla í fjallgönguhóp á útvistardegi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum árið 2000. Nemendurnir eru, frá vinstri: Hákon Unnar Þórarinsson, Sóley Elsa Magnúsdóttir Blöndal (fjær), Árni Halldór Eðvarðsson (nær), Jón Atli Magnússon, óþekkt og Sonja Hjördís Berndsen
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1665
Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir til vinstri og Sigurlaug Máney Sæmundsen til hægri í vinnuskólanum 30. júní 2011.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 154
Á myndinni situr Ragnar Smári Ingvarsson hjá syni sínum Leifi Þór Ragnarssyni þar sem hann liggur veikur á einhverju sjúkrahúsi. Líklega var myndin tekin kringum 1985.
Höfðaskóli - safn484
Sandkastalakeppni í fjörunni við Sandlækinn á útivistardegi í Höfðaskóla. Stúlkurnar á myndinni eru, frá vinstri: Elva Ösp Gunnarsdóttir, Anna María Magnúsdóttir og Jenný Lind Sigurjónsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 2000.
Guðrún Þórbjarnardóttir107
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Þorbjörn Jensson - Hobbi - 7 mánaða gamall. Þorbjörn er sonarsonur Jóns.
Barnaból - safn522
Brynjar Max Ólafsson í leikskólanum Barnaból 1998 - 99.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1594
Myndin var tekin 14. maí 2011 af, frá vinstri: Sigurbjörgu Birtu Berndsen, Guðrúnu Önnu Halldórsdóttur og Sigurlaugu Máney Sæmundsen. Þær eru með "fósturbarn" á burðarpoka. Barnið var reyndar dúkka sem kom frá rauða krossinum gegnum Höfðaskóla. Dúkkan hegðaði sér eins og lifandi barn og þurftu þær að sinna henni með mat og drykk, skipta á henni og vakna til hennar á nóttunni þegar hún grét. Þetta var tilraun til að elstu nemendur Höfðaskóla áttuðu sig á hvernig það er að sjá um ungabarn. Stelpurnar voru með dúkkurnar í nokkra sólarhringa og voru flestar fegnar þegar tilrauninni lauk.
Höfðaskóli - safn494
Myndin var tekin á grímuballi Höfðaskóla í Fellsborg 20. febrúar 1996. Börnin á sviðinu eru óþekktir verðlaunahafar en lengst til hægri er Sverrir Brynjar Berndsen. Til vinstri eru Elva Dröfn Árnadóttir, Erla María Lárusdóttir og óþekkt. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 1076
Jóhann Almar Reynisson til vinstri og Dagur Freyr Róbertsson til hægri kynna næsta atriði á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017.
Barnaból - safn494
Þessi óþekkti strákur var í leikskólanum Barnaból 1998 - 99. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 1040
Guðmundur J. Björnsson býr sig undir að fara út á hnúfubak til að koma á hann böndum til að draga hann upp í fjöru til rannsóknar. Hvalinn drógu Guðmundur og Ólafur Bernódusson til lands á Benna Ólafs Hu í ágúst 1998. Hvalurinn reyndist vera ungur karkyns kálfur um 8 metrar á lengd. Litla stúlkan um borð er dóttir Guðmundar, Kristbjörg Una. Til gamans má segja frá því að kynfærin af honum voru send til Hins Íslenska reðursafns, að þeirra ósk, og þar voru þau höfð til sýnis ásamt öðrum spendýrs líffærum af sama toga.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1502
Elvar Geir Ágústsson að loknum skóladegi í Höfðaskóla 31. mars 2011. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 70
Þórunn Samsonardóttir (d.11.10.1986) situr með dótturdóttur sína, Völu Rós Ingvarsdóttur, í fanginu. Myndin var tekin um jól eða áramót 1966-1967.
Ólafur Bernódusson 1090
Frumlegur búningur á grímuballi Höfðaskóla 5. mars 2014. Ekki er vitað hver er í búningnum en hitt er vitað að hann dansaði ekki mikið á ballinu.
Ólafur Bernódusson 1081
Myndin var tekin á lokaballi Höfðaskóla 30. maí 2016. Á lokaballi borða nemendur í unglingadeild saman veislumat í sínu fínasta pússi. Kennararnir þjóna, uppábúnir, til borðs í þessum samkvæmum, sem enda með diskóteki fram eftir kvöldi. Á myndinni eru unglingar fæddir 2001. Þau eru, frá vinstri: Birgitta Bjarnadóttir, Helgi Sveinn Árnason, Guðný Eva Björnsdóttir, Auðunn Árni Þrastarson, Anita Ragnarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Benóný Bergmann Árnason, Laufey Lind Ingibergsdóttir og Sunna Steingrímsdóttir.
Barnaból - safn632
Hópmynd af krökkum í leikskólanum Barnaból líklega tekin 1996 -´97. Aftasta röð frá vinstri: Alex Már Gunnarsson, óþekktur strákur, Lilja Kristinsdóttir, Kristján Ýmir Hjartarson, Helga Bergsdóttir, Elías Kristinn Sæmundsson, óþekkt stúlka og Alexander Ragnarsson. Miðröð frá vinstri: óþekkt stúlka, Guðjón Örn Kristjánsson, Elísabet Anna Blöndal Einarsdóttir, Valþór Óli Vilhelmsson og Guðlaugur Ómar Guðmundsson. Fremsta röð frá vinstri: Sara Rut Fannarsdóttir, Þórir Óskar Björnsson, Kristbjörg Drífa Ragnheiðardóttir og Þórður Indriði Björnsson. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn593
Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir til vinstri og Kristín Jóna Sigurðardóttir til hægri vinna við að útbúa gluggaskreytingar í Höfðaskóla fyrir jólin. Aftan við þær er Ólafur Bernódusson kennari að staulast á fætur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1988.
Höfðaskóli - safn574
Myndin var tekin í Höfðaskóla, líklega 1970. Á henni eru yngstu nemendur skólans ásamt kennara sínum, Elínborgu M. Jónsdóttur (d.7.1.2007). Nemendurnir eru, talið frá vinstri: fjórir óþekktir, Ólafur Þór Valdimarsson, Sigríður A. Sigurðardóttir, þrjú óþekkt, Elínborg kennari (fjær), Elín Íris Fanndal Jónasdóttir (nær), óþekkt, Hallbjörg Jónsdóttir, Þorlákur Axel Jónsson og tveir óþekktir. Ef þú þekkir óþekktu börnin endilega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1709
Frændsystkinin Mikael Garðar Hólmgeirsson og Stefanía Hrund Stefánsdóttir hvíla lúin bein á jóla-barnaballi Lions í Fellsborg 26. desember 2012.
Barnaból - safn442
Þorgerður Björk Guðmundsdóttir á leikskólanum Barnaból 1997 - 98.
Barnaból - safn527
Telma Dögg Bjarnadóttir í leikskólanum Barnaból 1998 - 99.
Höfðaskóli - safn505
10. bekkur Höfðaskóla í íþróttahúsinu á flippíþróttadegi skólans veturinn 2000 - 2001. Á myndinni eru, frá vinstri: Dóra Rebekka Sævarsdóttir, Stefán Agnar Gunnarsson, Anna María Magnúsdóttir, Jenný Lind Sigurjónsdóttir (fjær), Guðrún Sigríður Hjálmtýsdóttir (nær), Eva Dögg Bergþórsdóttir, Tinna Björk Gunnarsdóttir (fjær), Anna Dúna Rúnarsdóttir (nær), Birkir Rúnar Jóhannsson, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Eva Rúna Rúnarsdóttir og Ólafur Bernódusson kennari.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1513
16. nóvember er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar og þess vegna Dagur Íslenskrar tungu. Þessi mynd var tekin þann dag 2011 á skemmtun Höfðaskóla í Fellsborg. Skólinn helgar þennan dag minningu Elínborgar Jónsdóttur (d.7.1.2007) kennara. Á myndinni eru nokkrir nemendur að lesa upp ljóð. Nemendurnir eru frá vinstri: Thelma Jónasdóttir, Dagný Dís Bessadóttir, Daði Snær Stefánsson, Dagur Freyr Róbertsson og Haraldur Guðjónsson.
Höfðaskóli - safn413
Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir og Hjörtur Jónas Guðmundsson leika á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin líklega var það kringum 1988.
Ólafur Bernódusson 982
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla 1983. Krakkar úr 11 ára bekk flytja frumsaminn leikþátt fyrir aðra nemendur skólans. Leikararnir eru frá vinstri: Hólmgeir Kristmundsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Friðrik Birgisson og Hólmfríður Oddsdóttir.
Guðrún Þórbjarnardóttir085
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á myndinni er sonarsonur hans, Örn Berg Guðmundsson sem gekk undir nafninu Assi á uppvaxtarárum sínum.
Óþekktur ljósmyndari517
Guðrún Stefánsdóttir (d.6.1.1992) bóndakona í Höfnum á Skaga með dóttur sína Sigríði Sigurðardóttur (d.17.6.1995). Guðrún var sambýliskona Sigurðar Árnasonar (d.10.6.1959) bónda í Höfnum. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson 1004
Myndin var tekin í Höfðaskóla 1985 í viku þegar hefðbundið skólastarf var brotið upp og nemendurnir völdu sér vinnusmiðjur til að vera í. Þessi hópur er að vinna við sauma gardínukappa. Vinstra megin við borðið er Bryndís Ingimarsdóttir og óþekkt stúlka. Hægra megin er óþekkt stúlka næst gluggunum, Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir í miðjunni og Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna) næst okkur. Strákurinn við saumavélina er óþekktur.
Barnaból - safn600
Daði Snær Stefánsson borðar skúffuköku í 30 ára afmælisveislu leikskólans Barnaból 6. júlí 2007.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 36
Harpa Friðjónsdóttir með Bergþóru Huld Birgisdóttur, dóttur sína, í fanginu. Myndin var tekin 1968.
Guðrún Þórbjarnardóttir109
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Karen ?var fósturdóttir Jens Jónssonar (d.7.12.1975) en Jens var sonur Jóns Sölvasonar.
Höfðaskóli - safn557
Ekki er vitað hvar þessar stúlkur úr Höfðaskóla eru staddar í skólaferðalagi en líklega var myndin tekin einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Stúlkurnar eru, frá vinstri: Rósa Björk Blöndal Einarsdóttir, Hanna Rúna Gestsdóttir og Kristbjörg Una Guðmundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1708
Þessir ungu drengir eru í útidyrunum á Fellsborg 26. desember 2012 þegar þar fór fram jóla-barnaball Lions. Strákarnir eru frá vinstri: Gunnar ??, Brynjar Daði Finnbogason, Mikael Garðar Hólmgeirsson og Óðinn Örn Gunnarsson.
Höfðaskóli - safn625
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni er verið að skreyta ruslafötu með skapalónum sem krakkarnir bjuggu til. Frá vinstri: Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir, Jón Örn Stefánsson, Súsanna Þórhallsdóttir leiðbeinandi og Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir.
Ólafur Bernódusson 1104
Dr. James Kennedy tekur myndir þegar opnuð var göngubrú yfir Hrafná 23. júní 2014. Ekki er vitað hvert barnið á myndinni er.
Höfðaskóli - safn434
Dúndrandi diskótek í Fellsborg á árshátíð Höfðaskóla 24. febrúar 2006.
Guðrún Þórbjarnardóttir065
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er óþekkt stúlka. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Þórbjarnardóttir156
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni eru Þorbjörn Jensson lengst til vinstri, Karen Jensdóttir Aradóttir í miðunni en stúlkan til hægri er líklega Arna Ingibjörg Jensdóttir. Börnin eru börn Jens Jónssonar (d.7.12.1975) sem var sonur Jóns Sölvasonar.
Höfðaskóli - safn504
7. bekkur Höfðaskóla veturinn 2000 - 2001 á flippíþróttadegi skólans í íþróttahúsinu. Frá vinstri á myndinni eru: Ester ösp Víðisdóttir, Björgvin Matthías Hallgrímsson, Rebekka Maren þórarinsdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Arnór Snorri Gíslason, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Sindri Jóelsson, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Óðinn Örn Sævarsson (fjær), Kristján Pétur Guðjónsson (nær), Ívar Gylfason, Sigurgeir Snævar Árnason, Guðmundur Oddsson kennari, Jón Atli Magnússon og óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson - safn 253
Frændsystkinin Rakel Petrea Finnsdóttir og Hákon Unnar Þórarinsson í grillveislu við Hólabraut 4. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1985.
Ólafur Bernódusson 1077
Pascal Gruenberger ábúðafullur sem hljóðmaður í skemmtiatriði bekkjar síns á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1583
Laufey Lind Ingibergsdóttir til vinstri og Guðný Eva Björnsdóttir til hægri spila kubbaspil 9. maí 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1670
Ólafur Bernódusson og afstrákurinn hans Ólafur Halldórsson láta fara vel um sig í blíðunni 3. júlí 2012.
Höfðaskóli - safn454
Ekki er vitað hvar myndin var tekin en líklega var það gert einhverntíma kringum 2001. Börnin eru, frá vinstri: Patrik Snær Bjarnason, Sunna Guðlaugsdóttir?, Hanna Gylfadóttir, Aðalheiður Ragnarsdóttir, María ?? og Helena Mara Velemir. Ef þú veist hvers dóttir María er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Einnig væri gott að fá staðfestingu á að Sunna Guðlaugsdóttir sé á myndinni.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 128
Bæðurnir Haukur Ægir Ragnarsson til vinstri og Leifur Þór Ragnarsson til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1985.
Höfðaskóli - safn596
Hildur Inga Rúnarsdóttir og Jón Örn Stefánsson leika sér að tunnum sem unnar voru í Höfðaskóla sem hluti af þrautabraut úti á skólalóð. Myndin var líklega tekin kringum 1990.
Óskar Kristinsson - safn 263
Óskar Þór Kristinsson utan við Þórsmörk, sumarið 1965, sem var fermingarárið hans. Húsið til hægri er Þórshamar eða Skagavegur 15. Til vinstri er Höfðakot, Bankastræti 2 eða 4 með sambyggðri hlöðu. Hægra megin við Höfðakot er Höfðaberg en milli Höfðakots og Óskars er Dvergasteinn. Hægra megin við Höfðaberg sér í hornglugga á Skálholti eða Skagavegi 17. Húsin Höfðakot, Höfðaberg og Dvergasteinn eru nú löngu horfin.
Barnaból - safn536
Myndin var tekin í leikskólanum Barnaból 8. maí 1998. Í fremstu röð, frá vinstri: Saga Lind Víðisdóttir, óþekkt, Kristmar Ingi Ragnarsson, Magnús Jens Magnússon og óþekktur. Miðröð frá vinstri: Ólöf Hafþórsdóttir, óþekkt, Ellen Lind Sigurjónsdóttir, Unnar Leví Sigurbjörnsson, Einar Ari Einarsson og Tanja Rán Einarsdóttir. Aftasta röð frá vinstri: Hanna Dís Gestsdóttir, óþekkt og Halla Björk Víðisdóttir. Aftan við börnin sitja Ólafur Guðmundsson og Elvar Arinbjörn Grétarsson með Elías Gunnar Hafþórsson. Líklega hafa Ólafur og Elvar verið í starfskynningu í Barnabóli daginn sem myndin var tekin. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1597
Feðginin Þórarinn Brynjar Ingvarsson og Karitas Líf Þórarinsdóttir knúsast 21. maí 2011.
1
…
14
15
16
…
24
Leita í myndasafninu
Leita