Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Börn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hópmyndir
Konur
Menn
1.425 myndir
Flæði
Reitir
Barnaból - safn607
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af krökkunum í leikskólanum Barnaból en líklega hefur það verið einhverntíima á árunum 1978 - 1980. Í fremstu röð frá vinstri: Bryndís Gunnarsdóttir, Svava Magnúsdóttir, Atli Þór Þórsson, Guðmundur Henry Stefánsson, Baldur Magnússon, óþekktur, Aðalheiður Sif Árnadóttir, Björn Sigurðsson og Friðrik Gunnlaugsson. Önnur röð frá vinstri: óþekktur, Margrét Jóhannsdóttir, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, óþekkt, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir, Elísabet Eik Guðmundsdóttir og Brynjar Pétursson. Aftasta röð frá vinstri: Hugrún Pálsdóttir, Þorsteinn Styrmir Jónsson, Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Stefán Sveinsson, Viggó Magnússon, Dagbjört Jóhannsdóttir og Friðrik Jón Birgisson. Aftast eru frá vinstri: Guðrún Hrólfsdóttir starfsstúlka, Bára Þorvaldsdóttir starfsstúlka og Lára Bylgja Guðmundsdóttir leikskólastjóri með Soffíu Lárusdóttur í fanginu. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn506
Þessi nemendahópur Höfðaskóla var í 1. bekk veturinn 2000 - 2001. Á myndinni eru þau stödd í íþróttahúsinu á flippíþróttadegi skólans. Frá vinstri: Guðjón Páll Hafsteinsson, Stefán Velemir, Ingimar Gísli Guðjónsson, óþekktur, Telma Dögg Bjarnadóttir, Þorgerður Björk Guðmundsdóttir, Ellen Lind Sigurjónsdóttir, Elías Gunnar Hafþórsson, Unnar Leví Sigurbjörnsson, Tanja Rán Einarsdóttir, Eva Dís Gunnarsdóttir, Hjördís Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022), Viktor Örn Valdimarsson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 1096
Þessi mynd var tekin 29. júli 2014 af systkinunum Ólafi Halldórssyni til vinstri, Guðrúnu Önnu Halldórsdóttur og Páli Halldórssyni með verðlaunapeningana sína eftir íþróttamót á vegum USAH.
Jónas 5
Á myndinni er óþekkt kona með barn. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 061
Myndin er frá 1983 og á henni er Guðrún Þórbjarnardóttir með ömmustrákinn Hörð Inga í fanginu.
Ólafur Bernódusson 1028
Sævar Rafn Hallgrímsson kom að landi á bát sínum, Hafgeiri HU 121, í september 1998 með fullfermi. Eins og sjá má eru körin á dekkinu full og auðvitað eru svo ílátin í lestinni sneisafull líka. Á myndinni er Sævar byrjaður að landa og búinn að hífa hluta aflans upp á bryggju. Honum til aðstoðar um borð er dóttir hans Alma Eik Sævarsdóttir.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 037
Myndin var tekin heima á Jaðri líklega um jól. Guðmundur J. Björnsson spjallar við frændsystkin sín, Elísabetu Hallbjörnsdóttur nær og Björn Hallbjörnsson fjær. Myndin var líklega tekin 1971 eða 1972.
Barnaból - safn539
Myndin er frá 3. desember 1997 í leikskólanum Barnaból. Krakkarnir við kubbaborðið eru frá vinstri: Aron Snær Fannarsson, Unnar Leví Sigurbjörnsson, Kristmar Ingi Ragnarsson, Sigurjón Elí Eiríksson og Magnús Jens Magnússon.
Höfðaskóli - safn488
Anna Dúna Rúnarsdóttir á hestbaki í gerði vestan við Spákonufellsrétt á útivistardegi Höfðaskóla, líklega vorið 2000.
Ólafur Bernódusson 1079
Nokkrir nemendur í skemmtiatriði síns bekkjar á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 30. nóvember 2017. Frá vinstri: Mathis Gruenberger, Sólveig Baldvinsdóttir, Arnrún Hrólfsdóttir, Erla Mjöll Daðadótti, Þórunn Hólmgeirsdóttir og óþekktur nemandi.
Höfðaskóli - safn561
Stúkurnar á myndinni eru staddar í skipasafni í Roskilde í Danmörku. Það skoðuðu nemendur Höfðaskóla í skólaferðalagi einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Stúlkurnar eru, frá vinstri: Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Eydís Ósk Einarsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir og Rebekka Maren Þórarinsdóttir.
Höfðaskóli - safn507
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni eru nemendur Höfðaskóla fæddir 1987 að taka á móti einkunnablöðunum sínum á sviðinu í Fellsborg. Nemendurnir eru frá vinstri: Rósa Björk Einarsdóttir, Björn Viðar Jóhannsson, Jóna Gréta Guðmundsdóttir, Ásdís Adda Ólafsdóttir, Eyþór Kári Egilsson, Katrín Inga Hólmsteinsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Hanna Rúna Gestsdóttir, Friðvin Ingi Berndsen Ernstsson, Sindri Njáll Hafþórsson og Kristinn Andri Hjálmtýsson.
Óþekktur ljósmyndari455
Myndin var tekin í kveðjuhófi þegar María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) lét af störfum hjá Kaupfélagi Húnvetninga á Skagaströnd eftir áratuga störf þar. Halldór Hermannsson verslunarstjóri, til vinstri, færði Maríu blóm og gjöf í tilefni dagsins. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var á Hótel Dagsbrún.
Höfðaskóli - safn515
Myndin var tekin af þessum nemendum á litlu jólum í Höfðaskóla. Krakkarnir eru, frá vinstri í fremri röð: Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Rakel Jónsdóttir, Óli Hjörvar Kristmundsson, Herdís Jakobsdóttir, Elísabet Hallbjörnsdóttir, Katrín Sigurjónsdóttir og Jóney Hrönn Gylfadóttir. Aftari röð frá vinstri: Jóhann Ásgeirsson, Eiríkur Lýðsson, Jón Önfjörð Arnarsson, Hjalti Magnússon, Rafn Ingi Rafnsson og Davíð Reynisson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var einhverntíma kringum 1985.
Höfðaskóli - safn542
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin á jólaballi í Höfðaskóla en líklega var það 1983. Á henni eru, frá vinstri: Gígja Heiðrún Óskarsdóttir, Ingibergur Guðmundsson kennari, Halldór Gunnar Ólafsson, Sigurbjörn Kristjánsson og Guðmundur Óskarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1558
Stefán Sveinsson hjálpar börnum sínum í dorgveiði á bryggjunni 3. maí 2011. Daði Snær Stefánsson til vinstri og Stefanía Stefánsdóttir til hægri.
Höfðaskóli - safn425
Myndin var tekin 24. febrúar 2006 á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Þarna er greinilega verið að grínast með sjónvarpsþáttinn "Fólk með Sirrý" sem var á dagskránni þá. Frá vinstri: Ólína Selma Þórarinsdóttir?, Sonja Sif Ólafsdóttir og óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn412
Myndin var tekin á tröppunum sunnan á "Gamla skólanum" eða Bjarmanesi eins og húsið heitir. Þar var rekinn barnaskóli Skagastrandar í áratugi. Í öftustu röð eru frá vinstri: Þorgerður Laxdal (d.27.6.2013), Hrefna Björnsdóttir (d. 8.10.2018) úr Stórholti og Birna Laxdal. Í næst öftustu röð eru frá vinstri: Helga Berndsen frá Karlsskála, Ólína Marta Steingrímsdóttir (d.4.2.1994) frá Höfðakoti, Ingibjörg Axelma Axelsdóttir (d.6.3.2007) frá Læk, Sigurlaug Magnúsdóttir og Anný Jóhannsdóttir. Í næst fremstu röðinni eru, frá vinstri: Guðrún Björnsdóttir, Sigmund Jóhannsson (d.19.5.2012), Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir í Reykholti og Anna Steingrímsdóttir (d.26.3.2018) frá Höfðakoti. Í fremstu röð, frá vinstri: ?Edda Pálsdóttir? (d.8.4.2016), Ingveldur Anna Pálsdóttir (d.6.8.2020), Ása Pálsdóttir og Stella Magnúsdóttir (d.14.1.2011).
Höfðaskóli - safn637
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni er Auðna Ýrr Oddsdóttir að teikna mynd til að setja á plakatið á borðinu framan við sig.
Höfðaskóli - safn536
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1988 á sviðinu í Fellsborg að bíða eftir að fá í hendurnar vitnisburð sinn eftir veturinn í Höfðaskóla. Myndin var líklega tekin einhverntíma kringum árið 2000. Nemendurnir eru, frá vinstri: Kristján Pétur Guðjónsson, Arnór Snorri Gíslason, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Ómar Ingi Ómarsson, Rebekka Maren Þórarinsdóttir, Ester Ösp Víðisdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Óðinn Örn Sævarsson, Jón Atli Magnússon, Ívar Gylfason, ?Sigurgeir Snævar Árnason? og Sindri Jóelsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1707
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni er óþekktur unglingur að leiða Ólaf Guðmundsson (d.6.10.1985) úr Brautarholti á kjörstað í Fellsborg. Ólafur var orðinn blindur sem skírir af hverju unglingurinn leiðir hann. Húsin í baksýn er Baldursheimur (hvítur) og Goðhóll fjær.
Höfðaskóli - safn403
Hluti nemenda í Höfðaskóla fædd 1969 á litlu jólum. Frá vinstri: Stefán Ægir Lárusson (fæddur 1970), Þráinn Bessi Gunnarsson, Sigurbjörn Fanndal þorvaldssson (d.13.8.2000), Guðmundur Kristinn Oddsson, óþekktur, Kristjana Jóhanna Jónsdóttir og Sigríður Ólína Ásgeirsdóttir. Myndin var líklega tekin 1983 eða 1984.
Höfðaskóli - safn541
Nemendur Höfðaskóla sem fæddust árið 1992 bíða eftir vitnisburðarblöðunum sínum á sviðinu í Fellsborg einhverntíma kringum 2000. Dagný Rósa Úlfarsdóttir kennari þeirra er til vinstri ásamt skólastjóranum, Ingibergi Guðmundssyni. Nemendurnir eru, frá vinstri: Valþór Óli Vilhelmsson, Laufey Sunna Guðlaugsdóttir, Laufey Inga Stefánsdóttir, Kristján Ýmir Hjartarson, Karl Aron Bender, Elías Kristin Sæmundsson, óþekktur og Alexander Ragnarsson. Ef þú þekkir óþekkta drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 057
Myndin var tekin 1957 eða 1958 á sviðinu í gömlu Tunnunni, sem nú hýsir Spákonuhofið. Ekki er vitað hvert leikritið var en leikendurnir eru, talið frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir, Ari Jónsson, Hallbjörn Björnsson, Guðrún Þórbjarnardóttir, Jóhanna Valdimarsdóttir, Stefán Ingólfsson (d.21.10.2004) og Lárus Ægir Guðmundsson.
Höfðaskóli - safn569
Nemendur Höfðaskóla í skólaferðalagi í Danmörku einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Strákarnir eru, frá vinstri: Ívar Gylfason, Sindri Jóelsson, Óðinn Örn Sævarsson og Oddur Valdimarsson
Höfðaskóli - safn439
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1989 í pitsupartýi í Kántrýbæ 19. maí 2000. Vinstra megin við borðið, talið inn eftir því: Ásþór Óðinn Egilsson, Arnrún Bára Finnsdóttir, Maríanna Ástmarsdóttir og .....?Einarsson. Hægra megin við borðið. inn eftir því: Guðmundur Ingi Ólafsson (d.8.11.2006), Sigþór Ottó Hallgrímsson og Almar Freyr Fannarsson. Ef þú veist hvað drengurinn í grænu peysunni heitir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn629
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni eru Hildur Inga Rúnarsdóttir og Jón Örn Stefánsson í tunnum sem þau voru að vinna með. Kennarinn þeirra Guðrún Kristjánsdóttir stendur hjá þeim.
Höfðaskóli - safn489
Birkir Rúnar Jóhannsson á hestbaki í gerði vestan við Spákonufellsrétt á útivistardegi Höfðaskóla, líklega viorið 2000.
Ólafur Bernódusson 1033
Jóel Kristjánsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf til hægri óskar Guðjóni Guðjónssyni skipstjóra á Arnari Hu 1 til hamingju með mettúr í september 1998. Með Guðjóni er sonur hans Kristján Pétur.
Höfðaskóli - safn427
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 24. febrúar 2006. Frá vinstri: óþekkt, Kristján Heiðmar Kristjánsson og Elna Ragnarsdóttir.
Ólafur Bernódusson1173
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru tæknimennirnir sem sáu um hljóð og lýsingu á samkomunni. Birkir Freyr Gunnarsson til vinstri og Ásdís Birta Árnadóttir til hægri.
gunnar075
Þorbjörg Björnsdóttir (d.3.9.2001) frá Hæli.
Höfðaskóli - safn499
Myndin var tekin á flippíþróttadegi Höfðaskóla í íþróttahúsinu 2000 eða 2001. Þá voru þessir krakkar í 3. bekk. Krakkarnir eru, frá vinstri: Laufey Inga Stefánsdóttir, Guðlaugur Ómar Guðmundsson, Alexander Ragnarsson, Laufey Sunna Guðlaugsdóttir, Kristján Ýmir Hjartarson, Karl Aron Bender, Þórir Óskar Björnsson og Þórður Indriði Björnsson. Kennarinn framan við hópinn er Ingibjörg Jónasdóttir.
Höfðaskóli - safn462
Myndin var tekin í íþróttahúsinu líklega á flippíþróttadegi Höfðaskóla kringum 2000. Í gangi er keppni í að kasta pappírsskutlum sem lengst.Frá vinstri: óþekkt stúlka, Sara Rut Fannarsdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir kennari, Þórir Óskar Björnsson, Guðjón Örn Kristjánsson, óþekkt og Kristján Ýmir Hjartarson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 173
Á myndinni eru þrír bræður. Frá vinstri: Haukur Ægir Ragnarsson, Jón Ingi Ragnarsson og Leifur Þór Ragnarsson. Myndin var tekin einhverntíma 1986 - 1988.
Halldór Gunnar Ólafsson 1
Myndin var tekin á öskudegi en árið var líklega kringum 1984. Krakkarnir á myndinni eru, í fremri röð frá vinstri: Ægir Thorberg Jónsson, Anna Þóra Birgisdóttir og Jóhanna Sigurjónsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir?, óþekkt, Hallgrímur Oddsson?, Óli Hjörvar Kristmundsson, Hólmgeir Kristmundsson? og Helga Heiða Helgadóttir. Ef þú getur staðfest nöfnin með spurningarmerkin eða þekkir þau sem einhver önnur,vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 052
Myndin var tekin 1991 eða 1992. Á henni er Kristbjörg Una Guðmundsdóttir í heimsókn hjá afa sínum á Sæborg, Birni Sigurðssyni (d.5.10.1999) frá Jaðri.
Helgi Gunnarsson 1
Haustið 1996 var tekin fyrsta skóflustunga að Íþróttahúsinu. Það gerðu yngstu nemendur Höfðaskóla með gylltri skólfu skreyttri með borðum í fánalitunum. Við verkið nutu þau aðstoðar Adolfs H. Berndsen oddvita til vinstri og Magnúsar B. Jónssonar sveitarstjóra til hægri. Neðst í vinstra horninu er Ingibergur Guðmundsson þáverandi skólastjóri í rauðri treyju.
Höfðaskóli - safn566
Síkjasigling um Kaupmannahöfn í skólaferðalagi nemenda úr Höfðaskóla einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Nemendurnir á myndinni eru, frá vinstri: Linda ??, Albert Ingi Haraldsson, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir og aftan við hana Eyþór Kári Egilsson og Hanna Rúna Gestsdóttir, Ester Ösp Víðisdóttir, Sindri Njáll Hafþórsson og Friðvin Ingi Ernsson Berndsen. Ef þú manst hvers dóttir Linda er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn455
Yngra stig Höfðaskóla í skólaferðalagi við Glaumbæ í Skagafirði. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið einhverntíma kringum 2002. Fremst á myndinni liggja Hanna Rúna Kristínardóttir vinstra megin og Kristbjörg Drífa Ragnheiðardóttir til hægri. Sitjandi frá vinstri: Sigurrós Rúnarsdóttir, Kristján Heiðmar Kristjánsson, Helena Mara Velemir, Hanna Gylfadóttir, Patrik Snær Bjarnason, Sunna Guðlaugsdóttir, Aðalheiður Ragnarsdóttir, Elísabet Einarsdóttir, Hafrún Eva Kristjánsdóttir, Þórir Óskar Björnsson (nær), Þórður Indriði Björnsson (fjær), Karl Aron Bender og Gunnar Már Sæmundsson. Standandi frá vinstri: María ???, Jóhann Örn Stefánsson, Guðlaugur Ómar Guðmundsson, óþekktur, Laufey Inga Stefánsdóttir, Guðjón Örn Kristjánsson, Sara Rut Fannarsdóttir, ?Ólína Selma Þórarinsdóttir?, Andrea Björk Kristjánsdóttir, Sonja Sif Ólafsdóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Elna Ragnarsdóttir, Halla Björg Víðisdóttir, Alex Már Gunnarsson, Jóhann Már Berry, Brynjar Max Ólafsson, Kristján Ýmir Hjartarson, Sævar Hlynur Tryggvason og Alexander Ragnarsson.
Óþekktur ljósmyndari546
Jón Hinrik Árnason (d.11.4.1986) bóndi á Steinnýjarstöðum sitjandi til vinstri. Kona hans, Sigurlaug Pálsdóttir (d.18.6.1965), situr til hægri. Milli þeirra er Stefán Ingólfsson (d.21.10.2004) uppeldissonur þeirra. Standandi til vinstri eru dæturnar Una Guðrún Jónsdóttir (d.1.5.2009) og Ingiríður Jónsdóttir (d.21.10.2011) er til hægri. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson - safn 232
Óskar Kristinsson nýtur sólarinnar sunnan undir vegg með litlu frænku sinni Rakel Petreu Finnsdóttur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1990.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 168
Það var aldrei langt í gítarinn þar sem Jón Helgason (d.1.12.2019) var. Á myndinni er hann að kenna afastráknum sínum, Jóni Inga Ragnarssyni, udirstöðuatriði í gítarspili. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það 1987-´88.
Ljósmyndakeppni 2022 33
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir og sendi inn í flokkinn "Andlit".
Árni Geir Ingvarsson - safn 1471
Fjör í sex ára afmæli Guðnýjar Evu Björnsdóttur í júní 2007. Krakkarnir fá útrás úti á lóð eftir rækilegan skammt af sykri í afmælinu og því full af orku. Ásdís Birta Árnadóttir er fyrir miðri mynd með svart hárband. Við hlið hennar er Aldís Embla Björnsdóttir í grænleitum fötum, systir afmælisbarnsins. Sigurður Aron Björnsson er í röndóttum bol og stuttbuxum. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn559
Nemendur úr Höfðaskóla í skólaferðalagi á óþekktum stað líklega einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Krakkarnir eru, frá vinstri: Linda ??, Albert Ingi Haraldsson, Jóna Atli Magnússon og óþekktur. Ef þú manst hvers dóttir Linda er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn636
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni er Guðmundur Henry Stefánsson við skriftir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1705
Myndin var tekin 30. nóvember 2011 þegar kveikt var á jólatrénu á Hnappstaðatúninu. Á henni eru mæðgurnar Kolbrún Ágústa Guðnadóttir með dóttur sinni Þórdísi Kötlu Atladóttur.
Höfðaskóli - safn405
Nemendur Höfðaskóla fædd 1975. Fremsta röð frá vinstri: Guðmundur Henry Stefánsson, Þröstur Árnason, Börkur Árnason, Hallgrímur Björgvinsson (d.10.8.2010), Svanur Árnason og Jóhannes Óskarsson. Miðröð frá vinstri: Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir, Særún Níelsdóttir, Áslaug Jóhannsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir, Soffía Lárusdóttir Anna Dröfn Guðjónsdóttir og Berglind Karlsdóttir. Aftast frá vinstri: Berglind Hólm Harðardóttir og Vilborg Jóhannsdóttir. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1983.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 046
Guðmundur J. Björnsson ekur gamla rússanum sínum - H 826 - sem hann hafði sett aflmikla ameríska vél í ásamt gírkassa og drifi. Stelpurnar hafa fengið að sitja á kerrunni stuttan spöl á Skúffugarðinum. Stelpurnar eru, frá vinstri: Linda Hafdal, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir og Auður Eva Guðmundsdóttir. Tvær þær síðast nefndu eru dætur Guðmundar. Myndin var tekin 1991.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1593
Myndin var tekin 13. maí 2011 af Aroni Snæ Fannarssyni. Hann er með "fósturbarn" á burðarpoka. Barnið var reyndar dúkka sem kom frá rauða krossinum gegnum Höfðaskóla. Dúkkan hegðaði sér eins og lifandi barn og þurfti Aron að sinna henni með mat og drykk, skipta á henni og vakna til hennar á nóttunni þegar hún grét. Þetta var tilraun til að elstu nemendur Höfðaskóla áttuðu sig á hvernig það er að sjá um ungabarn.
Óþekktur ljósmyndari568
Hjónin í Barnaskólanum (Bjarmanesi) með elstu börn sín. Eðvarðsína Kristjánsdóttir (d.27.4.1944) og Einar Ragnar Guðmundsson (d.19.11.1984). Börnin eru Kristján Ragnarsson (d.13.7.2018) og Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011). Sigurlaug var dóttir Eðvarðsínu. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn495
Myndin var tekin í tíma í Höfðaskóla 22. október 1998. Á henni eru Eydís Inga Sigurjónsdóttir til vinstri og Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir til hægri.
Höfðaskóli - safn436
Myndin var tekin af tveimur börnum í fallegum grímubúningum á grímuballi Höfðaskóla 5. mars 2006 í Fellsborg. Börnin á myndinni eru óþekkt en ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn408
Þessi mynd var tekin á skólaslitum Höfðaskóla í Fellsborg. Börnin á myndinni eru frá vinstri: óþekkt, lena Rut Jónsdóttir, óþekkt, Alma Eik Sævarsdóttir, Ragnar Már Björnsson, Marínó Freyr Jóhannesson, Ómar Ísak Hjartarson, óþekktur, Ágústa Lóa Jóelsdóttir og óþekktur. Kennararnir lengst til vinstri eru óþekktir. Börnin fæddust 1990 þannið að myndin hefur líklega verið tekin einhverntíma á árunum 1997 - 2000. Ef þú þekkir einhvert óþekktu barnanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
gunnar081
Þessi kona og barnið eru óþekkt. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 1047
Þrjár glaðar stúlkur á Kántrýhátíð í ágúst 1998. Lengst til hægri er María Guðmundsdóttir en hinar tvær eru óþekktar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn606
Niðursokkin í vinnu sína í Höfðaskóla. Líklega einhverntíma kringum 1988. Vinstra megin við borðið er Óskar Óskarsson og óþekkt stúlka en hægra megin er Gunnar Halldór Hallbjörnsson fjær og Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir? nær. Lengst til hægri er svo Aðalheiður Sif Árnadóttir?. Myndina tók einhver nemandi í ljósmyndavali og framkallaði sjálfur.
Guðrún Þórbjarnardóttir105
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Guðrún Árnadóttir (d.7.4.2005) með son sinn Örn Berg Guðmundsson (Assa) í fanginu. Guðrún var fyrri kona Björgvins Jónssonar (d.4.5.1992), sonar Jóns Sölvasonar.
Höfðaskóli - safn516
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla 1983 þar sem nemendur fæddir 1972 flytja skemmtiatriði með kennaranum sínum. Aftari röð, frá vinstri: Hólmfríður Oddsdóttir, Skúli Tómas Hjartarson, Óskar Þór Óskarsson, Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Svava Guðrún Sigurðardóttir og Halldór Gunnar Ólafsson. Fremri röð, frá vinstri: Karl Lúðvíksson kennari, Hólmgeir Kristmundsson, Hjalti Kristjánsson, Stefán Sveinsson og Gunnar Þröstur Ásgeirsson.
1
…
15
16
17
…
24
Leita í myndasafninu
Leita