Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Börn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hópmyndir
Konur
Menn
1.425 myndir
Flæði
Reitir
Höfðaskóli - safn440
Nemendur Höfðaskóla fædd 1989 gerðu sér glaðan dag í Kántrýbæ 19. maí 2000. Á myndinni eru í góðri sveiflu, frá vinstri: Maríanna Ástmarsdóttir, Arnrún Bára Finnsdóttir, Guðmundur Ingi Ólafsson (d.8.11.2000) og .....?Einarsson. Ef þú veist hvað drengurinn, Einarsson, heitir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn563
Myndin var tekin einhverntíma á árunum 2000 - 2003 í Danmörku af nemendum úr Höfðaskóla í skólaferðalagi. Krakkarnir á mýndinni eru, frá vinstri: Rebekka Maren Þórarinsdóttir, Jóna Gréta Guðmundsdóttir, Kristján Pétur Guðjónsson, Ívar Gylfason og Sindri Jóelsson
Höfðaskóli - safn581
Myndin var tekin á skóla-íþróttamóti líklega á Húnavöllum. Á myndinni eru nokkrir keppendur úr Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1990. Á henni eru, frá vinstri: Guðný Finnsdóttir (nær), Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir (fjær), Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (nær) og Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir (fjær). Strákurinn í forgrunninum er óþekktur.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 130
Hópur fermingarbarna utan við Hólaneskirkju (eldri) á fermingardaginn sinn vorið 1985. Á myndinni eru frá vinstri: Vigdís Ómarsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Dagbjört Jóhannsdóttir, Hans Birgir Högnason (fjær), Hafdís Fanndal Þorvaldsdóttir, Baldur Bragi Eðvarðsson (fjær, snýr baki í myndavélina), Erlingur Ottósson, Hallgrímur Oddsson, þorsteinn Styrmir Jónsson, Sveinn Ingvar Jónasson, Ægir Thorberg Jónsson, Viggó Magnússon og séra Oddur Einarsson. Krakkarnir í baksýn eru óþekktir en þar má sjá hluta af uppslætti fyrir nýja Hólaneskirkju.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1487
Feðginin Stefán Sveinssson og Stefanía Stefánsdóttir undirbúa sig fyrir að dorga á bryggjunni á Skagaströnd. Eitthvað virðist Stefanía ekki vera hrifin af makrílnum sem pabbi hennar er að skera í beitur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn535
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en það var einhverntíma kringum árið 2000. Á henni eru nemendur fæddir 1984 að bíða eftir vitnisburði sínum fyrir veturinn í Höfðaskóla. Nemendurnir eru, frá vinstri: Hákon Unnar Þórarinsson, Árni Halldór Eðvarðsson, Amy Ósk Hentze Ómarsdóttir, Leó Kristberg Einarsson, Jón Ingi Ragnarsson, Guðni Már Lýðsson, Heiða Berglind Fannarsdóttir, Rebekka Laufey Ólafsdóttir og María Guðrún Guðmundsdóttir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 85
Bræðurnir Leifur Þór Ragnarsson til vinstri og Haukur Ægir Ragnarsson til hægri. Myndin var líklega tekin kringum 1985.
Höfðaskóli - safn492
Myndin var tekin í myndmenntatíma í Höfðaskóla 1. október 1998. Á henni eru, frá vinstri: Gunnar Már Sæmundsson, Alexander Ragnarsson, Elías Kristinn Sæmundsson, Hildur Sigrún Guðbrandsdóttir og Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir.
Höfðaskóli - safn549
Fimm stúlkur úr Höfðaskóla. Frá vinstri: Lilja Bjarney Valdimarsdóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir, óþekkt, Sara Rut Fannarsdóttir og Andrea Björk Kristjánsdóttir. Myndin var líklega tekin í október 2002. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1044
Myndin var tekin á brunaæfingu í Höfðaskóla í desember 1992. Þá er skólinn yfirgefinn eftir ákveðnu kerfi eftir því hvar hver og einn er staddur í byggingunni ef eldur kemur upp. Þegar út er komið raða allir sér upp með bekknum sínum og kennarinn telur hvort ekki séu allir komnir út og tilkynnir skólastjóra og eða slökkvistjóra. Á myndinni fer Magnús Ólafsson (d.23.7.2012) slökkvistjóri yfir eldvarnir á heimilum og hvetur nemendurna til að vera brunaverðir, hver heima hjá sér.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1490
Myndin var tekin á afmælishátíð leikskólans Barnabóls þegar haldið var upp á 30 ára afmæli hans árið 2007. Börnin á myndinni eru að syngja fyrir gesti.
gunnar064
Aftan á þessari mynd stendur: Jón Stef. Líklega er hér um að ræða Stefán Sveinsson (d.3.5.1949) bónda á Steinnýjarstöðum með fósturson sinn Jón Ólafsson (d.5.9.1993) sem lengi bjó á Ólafsvöllum/Náttbrún á Skagaströnd.
Höfðaskóli - safn567
Hressir nemendur Höfðaskóla í skólaferðalagi í Danmörku einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Frá vinstri: Oddur Valdimarsson, Sindri Jóelsson og Ívar Gylfason.
Höfðaskóli - safn486
Anna María Magnúsdóttir á hestbaki í gerði vestan við Spákonufellsrétt á útivistardegi Höfðaskóla, líklega vorið 2000.
Höfðaskóli - safn411
Þessi mynd var tekin á tröppunum sunnan á "Gamla skólanum" eða Bjarmanesi eins og húsið heitir. Þar var í áratugi rekinn barnaskóli Skagastrandar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Samkvæmt upplýsingum frá Helgu Berndsen er fólkið á myndinni eftirfarandi. Aftasta röð frá vinstri: Karl Þórólfur Berndsen (d.12.2.1995), Guðný Pálsdóttir (d.17.2.2005), Ingibjörg Lárusdóttir (d.20.9.2010) og Birna Laxdal (d.1983). Miðröð frá vinstri: Pálína Hafsteinsdóttir (d.22.7.2008), Bogga Björnsdóttir, Ásdís Guðmundsdóttir, Þórey Ólafsdóttir, og Hrefna Björnsdóttir (d.8.10.2018). Fremsta röð frá vinstri: Helga Berndsen, Ólína Marta Steingrímsdóttir (d.4.2.1994), Ingibjörg Axelma Axelsdóttir (Didda) (d.6.3.2007) og Anna Steingrímsdóttir (d.26.3.2018). Stúlkan i glugganum er Þorgerður Laxdal (Didda) frá Felli.
Höfðaskóli - safn611
Anna Guðrún Ásgeirsdóttir í Höfðaskóla í október eða nóvember 1985.
Ólafur Bernódusson1184
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 2016 eða 2017. Á henni eru, á sviðinu, frá vinstri: Arna Rún Arnarsdóttir, Bylgja Hrund Ágústsdóttir og Hekla Guðrún Þrastardóttir.
Höfðaskóli - safn550
Börnin á myndinni eru að bíða eftir heimsókn forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, í Höfðaskóla í október 2002. Börnin eru, frá vinstri: Brynjar Max Ólafsson, Guðjón Örn Kristjánsson, Hanna Rúna Getstsdóttir, Sonja Sif Ólafsdóttir, Alex Már Gunnarsson og Halla Björk Víðisdóttir.
Ólafur Bernódusson1048
Myndin var tekin í júní 1997 á 20 ára afmælishátíð leikskólans Barnaból. Börnin hafa stillt sér upp við hlið prinsins og prinsessunnar, sem sitja á borðinu. þau eru Hanna María Gylfadóttir og Sævar Hlynur Tryggvason. Vinstra megin við þau standa Elna Ragnarsdóttir og Hafrún Eva Kristjánsdóttir. Hægra megin standa Guðjón Örn Arason og Patrik Snær Bjarnason næst borðinu. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn597
Kolbrún Jenny Ragnarsdóttir til vinstri og Halla Kristín Árnadóttir til hægri hlusta á leiðbeiningar Ólafs Bernódussonar kennara í jólaföndri í Höfðaskóla einhverntíma kringum 1990. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn623
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Gunnar Þröstur Ásgeirsson er nær okkur og glennir sig fyrir ljósmyndarann en fjær er Erlingur Ottósson.
Höfðaskóli - safn466
Guðjón Ebbi Guðjónsson teymir hest undir frænda sínum Ívari Gylfasyni 14. júní 1997.
Höfðaskóli - safn633
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni, vinstra megin, er Áslaug eða Vilborg Jóhannsdóttir en þær eru eineggja tvíburar og erfitt að þekkja þær í sundur. Stúlkan í hvítu peysunni er óþekkt en ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 051
Myndin var tekin um jólaleytið 1991 í leikskólanum Barnabóli. Börnin á henni eru, frá vinstri: Júlía Guðmundsdóttir, Leifur Vilhelmsson, Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir og Kristbjörg Una Guðmundsdóttir.
Óskar Kristinsson - safn192
Sveinn S. Ingólfsson heilsar lítilli stúlku á Nýja Sjálandi að sið heimamanna með því að nudda saman nefjum. Myndin var tekin 25. febrúar 1992 þegar Sveinn var í landinu í viðakiptaerindum fyrir Skagstrending hf, þar sem hann var framkvæmdastjóri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1509
Þessir tveir félagar una sér vel í snjónum á leikskólanum Barnaból í heiðríkjunni. Sá til hægri er Sindri Freyr Björnsson en drengurinn til vinstri er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1523
Myndin var tekin í sundlaugarpartýi í sundlauginni á Skagaströnd. Krakkarnir á henni eru í froðubaði í heita pottinum og setja ekki fyrir sig að hafa lítið pláss hvert fyrir sig. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1494
Þessi litla fallega stúlka er óþekkt. Á myndinni situr hún í innganginum í kjallarann í Gamla kaupfélaginu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en ef þú þekkir stúlkuna vinsamlaga sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1110
Myndin var tekin á útivistardegi Höfðaskóla í maí 1996. Kennararnir höfðu útbúið þrautabraut á skólavellinum sem nemendur fóru í gegnum sér til gamans. Á myndinni er óþekktur nemandi að skríða undir net sem hann má ekki snerta. Ef það gerðist þurfti viðkomandi að fara aftur. Tími var svo tekin á hverjum og einum til gamans.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1475
Karen Líf Sigurbjargardóttir á grímuballi Höfðaskóla í Fellsborg líklega kringum 2010.
Höfðaskóli - safn499
Myndin var tekin á flippíþróttadegi Höfðaskóla í íþróttahúsinu 2000 eða 2001. Þá voru þessir krakkar í 3. bekk. Krakkarnir eru, frá vinstri: Laufey Inga Stefánsdóttir, Guðlaugur Ómar Guðmundsson, Alexander Ragnarsson, Laufey Sunna Guðlaugsdóttir, Kristján Ýmir Hjartarson, Karl Aron Bender, Þórir Óskar Björnsson og Þórður Indriði Björnsson. Kennarinn framan við hópinn er Ingibjörg Jónasdóttir.
Óskar Kristinsson - safn 236
Á myndinni setur Óskar Kristinsson stroffu á belginn á trollinu ofan við pokann svo hægt sé að híífa hann upp þannig að fiskurinn í honum renni út og niður í fiskmóttökuna. Hinir mennirnir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn606
Niðursokkin í vinnu sína í Höfðaskóla. Líklega einhverntíma kringum 1988. Vinstra megin við borðið er Óskar Óskarsson og óþekkt stúlka en hægra megin er Gunnar Halldór Hallbjörnsson fjær og Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir? nær. Lengst til hægri er svo Aðalheiður Sif Árnadóttir?. Myndina tók einhver nemandi í ljósmyndavali og framkallaði sjálfur.
Halldór Gunnar Ólafsson 3
Myndin var líklega tekin í 10 eða 11 ára afmæli Halldórs Gunnars Ólafssonar 15. júní 1982 eða 83 utan við heimili hans á Bogabraut 27. Á myndinni eru frá vinstri: Þorlákur Sigurður Sveinsson, Stefán Sveinsson, Ægir Thorberg Jónsson, Halldór Gunnar, Viggó Magnússon og Baldur Magnússon.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 144
Haukur Ægir Ragnarsson mátar sig í koju pabba síns, með bók í hönd, líklega um borð í Ólafi Magnússyni HU 54. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1985.
Ólafur Bernódusson 1083
Myndin var tekin á lokaballi Höfðaskóla 20. maí 2015 í Fellsborg. Á lokaballi borða nemendur í unglingadeild saman veislumat í sínu fínasta pússi. Kennararnir þjóna, uppábúnir, til borðs í þessum samkvæmum, sem enda með diskóteki fram eftir kvöldi. Á myndinni eru unglingar fæddir árið 2002. Þau eru, í fremri röð frá vinstri: Jóhann Almar Reynisson, Dagur Freyr Róbertsson, Daði Snær Stefánsson og Pascal Gruenberger. Aftari röð frá vinstri: Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir, Helga Gunnarsdóttir kennari, Dagný Dís Bessadóttir og Freydís Kristjánsdóttir.
Höfðaskóli - safn404
Nemendur í Höfðaskóla fædd 1976. Krakkarnir eru, frá vinstri: Steinþór Carl Karlsson, Jósef Ægir Stefánsson, Arna Jónsdóttir, Kristján Gunnar Guðmundsson, Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir, Jónas Fanndal Þorvaldsson, Theódór Karlsson, Ingi Björgvin Kristjánsson (fær), Sigríður Margrét Oddsdóttir (nær), Arnar Haukur Ómarsson og Viggó M. Maríasson. Myndin var tekin kringum 1985.
Höfðaskóli - safn568
Ungir nemendur Höfðaskóla bíða prúðir eftir mat sínum á veitingahúsi í Kaupmannahöfn í skólaferðalagi einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Frá vinstri: Friðvin Ingi Ernstsson Berndsen, Sigurgeir Snævar Árnason, Jón Atli Magnússon og Eyþór Kári Egilsson
Árni Geir Ingvarsson - safn 1473
Rakel Jensína Jónsdóttir að mála í kofasmíði barna sunnan við íþróttavöllinn, líklega sumarið 2006 eða 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1489
Myndin var tekin á afmælishátíð leikskólans Barnabóls þegar haldið var upp á 30 ára afmæli hans árið 2007. Maðurinn til hægri, með afmælispakka undir hendinni, er Guðjón Ólafsson sem var skólamálastjóri í A-Hún á þessum tíma. Börnin á myndinni eru flest fyrrverandi nemendur í leikskólanum.
Höfðaskóli - safn426
Þórður Indriði Björnsson og Laufey Inga Stefánsdóttir leika í atriði bekkjar síns á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 24. febrúar 2006. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn630
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni er Sigvaldi Guðmundsson og óþekktur að skoða einhverja pappíra.
Ólafur Bernódusson 1024
Myndin var tekin í apríl 1998 þegar nokkrir strákar voru að leika sér í pollinum sem myndaðist eftir að búið var að grafa fyrir húsgrunni við Fjörubraut. Drengurinn næst okkur á myndinni er Kristján Pétur Guðjónsson en hinir tveir eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn399
Myndin sýnir glögglega, með því að vera hreyfð, spenning og eftirvæntingu nemenda í Höfðaskóla þegar þeir tóku á móti forsetahjónunum, Ólafi Ragnari Grímssyni og Dorrit Moussaieff, sem heimsóttu skólann 15. október 2002. Myndin var tekin utan við íþróttahúsið þar sem hjónin voru kvödd í lok heimsóknarinnar í skólann.
Ólafur Bernódusson 1025
1998 hélt séra Guðmundur Karl Brynjarsson út vinsælu unglingastarfi í Hólaneskirkju. Myndin var tekin í nóvember á einni unglingastundinni uppi á lofti í kirkjunni. Séra Guðmundur stendur til hægri en unglingarnir eru, frá vinstri: Birna Þórkatla Sæmundsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Guðjón Ebbi Guðjónsson, óþekktur, Eva Rún Rúnarsdóttir, Heiða Berglind Fannarsdóttir, tveir óþekktir, Vignir Örn Hafþórsson, Eyþór Ernstson, Tinna Björk Gunnarsdóttir og Jón Oddur Hjálmtýsson.
Ljósmyndakeppni 2022 12
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Sigríður Björk Sveinsdóttir og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki. Gestir á sýningunni kusu þessa mynd þá bestu í flokknum.
Höfðaskóli - safn406
Nemendur Höfðaskóla fædd 1968. Frá vinstri: Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Ingimar Oddsson, Jón Hilmar Indriðason, Jensína Lýðsdóttir, Guðmundur Óskarsson (nær), Páll Jónsson (fjær), Sigurbjörn Kristjánsson, Ingunn Kristjánsdóttir, Kristín Karlsdóttir og Guðmunda Ólafsdóttir. Myndin var líklega tekin kringum 1983.
Höfðaskóli - safn400
Þessi bekkjarsystkin eru fædd 1970 og 1971. Þau eru: aftast frá vinstri: Davíð Reynisson, Jóhann Ásgeirsson og Óli Hjörvar Kristmundsson. Næst aftast frá vinstri: Rafn Ingi Rafnsson, Jón Önfjörð Arnarsson og Eiríkur Gunnar Lýðsson. Í næst fremstu röð frá vinstri: Jóney Hrönn Gylfadóttir, Stefanía Elísabet Hallbjörnsdóttir, Herdís Þórunn Jakobsdóttir og Rakel Jakobína Jónsdóttir. Fremst frá vinstri: Jóhanna Gunnlaugsdóttir og Katrín Bryndís Sigurjónsdóttir. Myndin var tekin einhverntíma á árunum kringum 1985.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 170
Myndin var tekin á árlegum piparkökudegi í leikskólanum Barnaból. Þá koma aðstandendur barnanna og hjálpa þeim við að baka og skreyta piparkökur. Á myndinni eru mæðgurnar Tinna Björk Gunnarsdóttir og Bryndís Björk Guðjónsdóttir sem mundar kökukeflið. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn551
Nemendur Höfðaskóla bíða eftir komu forsetans Ólafs Ragnars Grímssonar í heimsókn í skólann í október 2002. Nemendurnir eru, frá vinstri: Ásþór Óðinn Egilsson, óþekktur, Almar Freyr Fannarsson, óþekktur, Oddur Valdimarsson (fjær), Sólrún Ágústa Magnadóttir (nær), Sara Rut Fannarsdóttir, Ómar Ingi Ómarsson og tevir óþekktir.
Höfðaskóli - safn503
Annar bekkur veturinn 2000 - 2001 á flippíþróttadegi Höfðaskóla í íþróttahúsinu. Á myndinni eru, frá vinstri: Sonja Sif Ólafsdóttir, Ólína Selma þórarinsdóttir, óþekkt, Kristbjörg Dúfa Ragnheiðardóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Sara Rut Fannarsdóttir, Andrea Kristjánsdóttir, óþekkt, Guðjón Örn Kristjánsson, Brynjar Max Ólafsson, Alex Már Gunnarsson, Halla Björk Víðisdóttir og Fanney Svavarsdóttir kennari. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn422
Jóhann Már Berry og Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir kynna næsta atriði á dagskrá árshátíðar Höfðaskóla í Fellsborg 24. febrúar 2006.
Höfðaskóli - safn500
Myndin var tekin í íþróttahúsinu á flippíþróttadegi Höfðaskóla 2001 eða 2002 Þá voru þessir krakkar í 8. bekk. Krakkarnir eru, frá vinstri: Katrín Inga Hólmsteinsdóttir, Ásdís Adda Ólafsdóttir, Linda ??, Hanna Rúna Gestsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Kristinn Hjálmtýsson, Sindri Njáll Hafþórsson, Friðvin Ingi Ernstsson Berndsen, Eyþór Kári Egilsson (fjær), Albert Ingi Haraldsson og Rósa Björk Blöndal Einarsdóttir. Kennarinn þeirra, lengst til hægri, er Ingibergur Guðmundsson.
Ljósmyndakeppni 2022 25
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Erla María Lárusdóttir og sendi inn í flokkinn "Náttúra". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki.
Höfðaskóli - safn585
Jóhannes Óskarsson niðursokkinn í vinnu sína í Höfðaskóla einhverntíma rétt fyrir 1990.
Höfðaskóli - safn558
Myndin var líklega tekin einhverntíma á árunum 2000 - 2003 af þessum stúlkum úr Höfðaskóla í skólaferðalagi. Stúlkurnar eru Valgerður Guðmundsdóttir til vinstri og Linda ?? til hægri. Ef þú manst hvers dóttir Linda er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn468
Bekkjarkvöld í Skiðaskálanum 1. maí 1997 með nemendum Höfðaskóla fæddum 1988 og foreldrum þeirra. Á myndinni er í gangi keppni í að byggja úr Lego kubbum. Til vinstri á gólfinu eru Þorbjörg Magnúsdóttir og Aðalheiður Guðmundsdóttir en hægra megin eru Víðir Ólafsson og Ásthildur Guðmundsdóttir. Við borðið til vinstri situr Gylfi Guðjónsson undir syni sínum Ívari Gylfasyni. Konan með rauða trefilinn er Guðbjörg Kristinsdóttir og hjá henni situr dóttir hennar Rebekka Þórarinsdóttir. Undir landakortinu á veggnum sitja Sindri Jóelsson til vinstri og Sigurgeir Snævar Árnason til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 352
Myndin var líklega tekin 1989. Strákarnir á henni eru að perla í Höfðaskóla, líklega í vinnuviku sem þá stóð yfir. Frá vinstri: Hjörtur Jónas Guðmundsson, Árni Max Haraldsson, Kjartan Arnþór Þórðarson, Pétur Hinrik Herbertsson ? og Viktor Pétursson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn598
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 2000. Hún var tekin á árshátíð Höfðaskóla það ár í Fellsborg. Krakkarnir eru að flytja atriðið sitt á hátíðinni. Frá vinstri: Þórey Fjóla Aradóttir?, Arnrún Bára Finnsdóttir, Rebekka Maren Þórarinsdóttir, Ester Ösp Víðisdóttir, Almar Freyr Fannarsson og Ragnheiður Erla Stefánsdóttir.
Jón Benediktsson
Jón Benediktsson. Ekki er vitað hver Jón var en ef þú veist deili á honum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1
…
16
17
18
…
24
Leita í myndasafninu
Leita