Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Börn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hópmyndir
Konur
Menn
1.425 myndir
Flæði
Reitir
Höfðaskóli - safn423
Myndin var tekin af sviðinu í Fellsborg á árshátíð Höfðaskóla 24. febrúar 2006. Frá vinstri á myndinni: Einar Arason kennari, Friðmar Kári Eiríksson, tveir óþekktir, Egill Örn Ingibergsson, Guðrún Hjltey Hallgrímsdóttir, Birta Dögg Bessadóttir, María Jóna Jónasdóttir, tveir óþekktir, Páll Halldórsson (situr), Birkir Gunnarsson, óþekkt, Elmar Jóhann Grétarsson, Anton Einarsson, Sæunn Ósk Steingrímsdóttir og Guðrún Rós Hjaltadóttir. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 164
Arna Guðrún Jónsdóttir í útilegu með foreldrum sínum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1985.
Höfðaskóli - safn572
Eyþór Kári Egilsson, Hanna Rúna Gestsdóttir og Ester Ösp Víðisdóttir í skólaferðalagi í Danmörku með skólasystkinum sínum einhverntíma á árunum 2000 - 2003.
Höfðaskóli - safn428
Framkall á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 24. febrúar 2006. Frá vinstri: Linda Rós Hentze Ómarsdóttir, óþekktur, Ásdís Erla Steingrímsdóttir, Sæþór Bragi Ágústsson, óþekktur, Sylvía Ósk Hrólfsdóttir, Magnús Jens Magnússon, Alma Dröfn Vignisdóttir og Saga Lind Víðisdóttir.
Höfðaskóli - safn605
Líklega er verið að mála andlit nemendanna vegna flippíþróttadags Höfðaskóla. Myndin var tekin einhverntíma kringum 2002. Á henni eru, frá vinstri: tvö óþekkt, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Helga Dögg Jónsdóttir, Lena Rut Jónsdóttir (fjær) og óþekkt (nær).
Árni Geir Ingvarsson - safn 1513
Krakkar úr vinnuskólanum leika sér í vatnsrennibraut sem útbúin var fyrir þau í brekkunni við íþróttavöllinn. Krakkarnir eru, frá vinstri: Sylvía Hrólfsdóttir, óþekktur, Tanja Rán Einarsdóttir, Þorgerður Guðmundsdóttir, tvær óþekktar, Líney Þorláksdóttir, Linda Rós Hentze Ómarsdóttir, Anna Dís Ragnarsdóttir og Aldís Birta Árnadóttir. Fólkið uppi á kantinum er óþekkt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1248
Æskuvinkonur gera sér glaðan dag með veisluföngum 20. júlí 1994. Tilefnið er óþekkt. Stúlkurnar eru, frá vinstri: Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna) og Elísabet Eik Guðmundsdóttir.
Ólafur Bernódusson1112
Myndin var tekin á útivistardegi Höfðaskóla í maí 1996. Kennararnir höfðu útbúið þrautabraut á skólavellinum sem nemendur fóru í gegnum sér til gamans. Á myndinni spreyta nemendur sig á að ganga á línu með aðra línu sér til stuðnings. Krakkarnir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 566
Arís Eva Vilhelmsdóttir fjöruferð við Sandlækinn með bekknum sínum í Höfðaskóla. Myndin var líklega tekin kringum 1998.
Ingibergur Guðmundsson 596
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er einhver hátíð í gangi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg. Nemendurnir á henni eru, frá hægri: Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Birna Ágústsdóttir, Þóra Lísebet Gestsdóttir, Ásdís Lýðsdóttir, Geirþrúður Guðmundsdóttir, Elva Dröfn Árnadóttir og fjórir óþekktir nemendur. Birkir Rafn Gíslason spilar á gítarinn lengst til vinstri.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 68
Myndin var tekin vorið 1968 af systkinunum Völu Rós Ingvarsdóttur á þríhjólinu og Árna Geir Ingvarssyni í sparipeysunni á stéttinni við heimili þeirra að Bogabraut 16.
Höfðaskóli - safn622
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni er Hallgrímur Oddsson með verkefni sín.
Höfðaskóli - safn612
Í október/nóvember 1985 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla. Venjulegt skólahald fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á þessari mynd eru þrír drengir að vinna í skólaútvarpinu sem starfrækt var þessa viku. Frá vinstri: Ægir Thorberg Jónsson, Þorsteinn Styrmir Jónsson og Halldór Gunnar Ólafsson.
Ingibergur Guðmundsson 350
Birna Ágústsdóttir að baka í eldhúsinu í Höfðaskóla. Myndin var tekin kringum 1990.
Ljósmyndakeppni 2022 15
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Svanur Sigurbjörnsson og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki.
Höfðaskóli - safn409
Myndin sýnir Svein S. Ingólfsson, Ragnheiði Söndru Ómarsdóttur og Kolbrúnu ?? klædd á japanska vísu í heimsókn í Höfðaskóla. Myndin var líklega tekin kringum 1990. Ef þú veist hvers dóttir Kolbrún er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 379
Árið 1988 fóru fimm nemendur Höfðaskóla í heimsókn til vinabæjar Skagastrandar, Aabenraa, í Danmörku á einhvers konar friðarráðstefnu ásamt kennara sínum, Ingibergi Guðmundssyni. Á myndinni er hópurinn að slappa af og horfa á sjónvarpið. Á gólfinu framan við rúmið er Inga Lára Sigurðardóttir en uppi í því eru, frá vinstri: Hólmfríður Oddsdóttir, Svava Guðrún Sigurðardóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Stefán Sveinsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1472
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líkleg var það kringum 2002 á diskóteki á vegum Höfðaskóla í Fellsborg. Krakkarnir eru frá vinstri: Ellen Lind Sigurjónsdóttir, Telma Dögg Bjarnadóttir, Eva Dís Gunnarsdóttir og Stefán Velemir.
Höfðaskóli - safn537
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1989 bíða eftir vitnisburðarblöðunum sínum á sviðinu í Fellsborg einhverntíma kringum árið 2000. Guðrún Soffía Pétursdóttir kennari er lengst til vinstri með blöðin í höndunum og næstur henni er Ingibergur Guðmundsson skólastjóri. Nemendurnir eru, frá vinstri: Maríanna Ástmarsdóttir, Ívar Kristberg Einarsson, Guðmundur Ingi Ólafsson (d.18.11.2006), Ásþór Óðinn Egilsson, Arnrún Bára Finnsdóttir og Almar Freyr Fannarsson.
Höfðaskóli - safn614
Í október/nóvember 1985 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla. Venjulegt skólahald fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á þessari mynd er Viggó Magnússon að senda út tónlist í skólaútvarpinu sem var í gangi þessa viku.
Ólafur Bernódusson1169
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nokkrir nemendur skólans að flytja frumsamið skemmtiatriði. Börnin eru, frá vinstri: Sigurður Aron Björnsson, Rebekka Heiða Róbertsdóttir, Margrét Sigurðardóttir, Lilja Dögg Hjaltadóttir, Harpa Hlín Ólafsdóttir og Georg Þór Kristjánsson.
Höfðaskóli - safn627
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni er Heiða ?? kennari að fara yfir verkefni dagsins með Ragnheiði Ástu Rúnarsdóttur vinstra megin og Ingu Láru Sigurðardóttur hægra megin.
Höfðaskóli - safn540
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1991 að fá afhent vitnisburðarblöðin sín eftir veturinn. Myndin var líklega tekin kringum árið 2000. Nemendurnir eru, frá vinstri: Sævar Hlynur Tryggvason, óþekkt, Patrik Snær Bjarnason, óþekkt, Gunnar Már Sæmundsson, Eyþór Vilhjálmsson, Elna Ragnarsdóttir, Hanna María Gylfadóttir, Jóhann Örn Stefánsson og Kristján Heiðmar Kristjánsson. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn590
Krakkarnir á myndinni eru að leita sér að bókum í bókakössunum sem voru fyrsti vísirinn að bókasafni Höfðaskóla. Krakkarnir eru, frá vinstri: Guðný Kristín Finnsdóttir, Jóhanna Karlsdóttir og Óskar Óaskarsson. Strákurinn í forgrunninum er líklega Halldór Gunnar Ólafsson. Myndin var tekin kringum 1990.
Höfðaskóli - safn457
Þórir Óskar Björnsson í hannyrðatíma í Höfðaskóla einhverntíma kringum 2002.
Höfðaskóli - safn617
Í október/nóvember 1985 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla. Venjulegt skólahald fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni er mikið um að vera í smíðastofunni. Rúnar Loftsson leiðbeinandi er í dökkri skyrtu fyrir miðri mynd og hjá honum stendur Eiríkur Lýðsson. Næstur okkur á myndinni er Þröstur Árnason. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 450
Víðavangshlaup Íslands fór fram á Miklatúni í maí 1986. Þá var þessi mynd tekin af Soffíu Lárusdóttur að koma í mark í hlaupinu. Soffí keppti ásamt fleiri krökkum úr USAH í hlaupinu.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1496
Myndin var tekin á afmælishátíð leikskólans Barnabóls þegar haldið var upp á 30 ára afmæli hans árið 2007. Börnin eru að fylgjast með einhverju skemmtiatriði.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 106
Mæðginin Aðalheiður Guðmundsdóttir (d.24.9.2011) og Ægir Thorberg Jónsson við hátíða matborð á jólum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið snemma á áttunda áratugnum.
Ingibergur Guðmundsson 395
Þessir vösku íþróttadrengir úr Höfðaskóla tóku þátt í skólamóti á Húnvöllum, þar sem þessi mynd var tekin, veturinn 1987. Frá vinstri: Guðmundur Henry Stefánsson, Reynir Lýðsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Óskar Ingi Þórsson (d.5.4.2007).
Árni Geir Ingvarsson - safn 1518
Ekki er ljóst hvort krakkarnir á myndinni eru að skoða sjálf sig í speglun sjávarins eða hvort þau eru að fylgjast með lífríknu í sjónum. Börnin eru óþekkt en báturinn gekk undir nafninu Litli- Kópur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1505
Áhuginn leynir sér ekki hjá Antoni Þór Einarssyni þar sem er að smíða hurð á kofann sinn í kofasmíðunum á vegum umf Fram. Þá má líka sjá að björgunarsveitin Strönd skipar sess hjá eigendum kofans. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn459
Lögreglan skoðar reiðhjól nemenda við Höfðaskóla einhverntíma kringum 2000.
Höfðaskóli - safn414
Börn að leika á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg. Myndin var líklega tekin kringum 1988. Börnin eru frá vinstri: Ólafur Magnússon, Jóhannes Heiðmar Indriðason, Viktor Pétursson, Íris Jóna Gunnarsdóttir, óþekkt, Silvía Kristín Sigþórsdóttir og Þorlákur Ómar Guðjónsson.
Höfðaskóli - safn487
Eygló Amelía Valdimarsdóttir og Birkir Rúnar Jóhannsson á hestbaki í gerði vestan við Spákonufellsrétt á útivistardegi Höfðaskóla, líklega vorið 2000.
Höfðaskóli - safn476
Heimsókn nemenda úr Höfðaskóla í Blönduvirkjun 29. apríl 1997. Tveir nemendur lengst til vinstri eru óþekktir en sitjandi í fremri röð eru, frá vinstri: Guðmundur Ingi Ólafsson (d.3.11.2006), óþekkt, Þórey Fjóla Aradóttir, óþekkt, Maríanna Ástmarsdóttir og Þórunn Bernódusdóttir kennari. Í aftari röð frá vinstri: tveir óþekktir, Ásþór Óðinn Egilsson og Almar Freyr Fannarsson.
Höfðaskóli - safn424
Myndin var tekin í Fellsborg 24. febrúar 2006 af árshátíðaratriði 7-8 ára barna Höfðaskóla. Frá vinstri: Friðmar Kári Eiríksson, Eymundur Lórens Grétarsson, tveir óþekktir, Egill Örn Ingibergsson, Guðrún Hjaltey Hallgrímsdóttir, Birta Dögg Bessadóttir, María Jóna Jónasdóttir og þrjú óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn482
Myndin var tekin á toppi Spákonfells - á Borgarhausnum - við vörðuna sem þar er og geymir gestabókina. Hún var líklega tekin kringum 2000 og á henni eru nemendur eldri bekkja Höfðaskóla það ár á útivistardegi að vori. Með hópnum eru tveir kennarar; Ólafur Bernódusson og Lárus Ægir Guðmundsson. Getur þú fundið þá á myndinni ?
Ólafur Bernódusson1113
Myndin var tekin á útivistardegi Höfðaskóla í maí 1996. Kennararnir höfðu útbúið þrautabraut á skólavellinum sem nemendur fóru í gegnum sér til gamans. Á myndinni spreyta nemendur sig á að ganga á línu með aðra línu sér til stuðnings. Krakkarnir á myndinni eru óþekktir.
Ragna
Aftan á þessari mynd stendur bara : "Ragna". Ef þú þekkir þessar stúlkur vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1522
Myndin var tekin í sundlaugarpartýi í sundlauginni á Skagaströnd. Þrjár stúlknanna eru óþekktar en lengst til vinstri er Eva Björgvinsdóttir og Rakel Jensína Jónsdóttir er fyrir miðri mynd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 058
Þrjár dætur Guðmundar J. Björnssonar og Þórunnar Bernódusdóttur stilla sér upp til myndatöku heima í stofu. Myndin var tekin 1990. Systurnar eru, frá vinstri: Kristbjörg Una Guðmundsdóttir 3ja ára, Auður Eva Guðmundsdóttir 10 ára og Elísabet Eik Guðmundsdóttir 14 ára.
Höfðaskóli - safn511
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af nemendum Höfðaskóla fæddum 1974. Á henni eru þau í skólaferðalgi. Nemendurnir eru, frá vinstri: óþekktur, Atli Þórsson (fjær), Gunnar Halldór Hallbjörnsson (nær), Reynir Lýðsson, Jóhanna Karlsdóttir, Bryndís Gunnarsdóttir (fjær), Jón Heiðar Jónsson (nær), Baldur Magnússon (fjær), Björn Sigurðsson (nær), Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir (fjær), Guðný Kristín Finnsdóttir (nær), óþekkt, Svava Magnúsdóttir, Aðalheiður Steindórsdóttir, Friðrik Gunnlaugsson og Ása Ósk Ásgeirsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1491
Jósef Valur Þorláksson kyssir langömmu sína, Ragnheiði Birnu Hafsteinsdóttur (Bibbu) (d.26.8.2008), fyrir utan Spákonufellsrétt. Mamma Jósefs, Rakel Tryggvadóttir, fylgist með. Myndin var líklega tekin 2006 eða 2007.
Ólafur Bernódusson1185
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 2016 eða 2017. Á henni er einn bekkur skólans með skemmtiatriðið sitt á sviðinu. Krakkarnir eru, frá vinstri: Bylgja Hrund Ágústsdóttir, Freyja Dís Jóhannsdóttir, Ívan Orri Eiríksson, tvær óþekktar stúlkur, Ólafur Halldórsson, Hekla Guðrún Þrastardóttir, Arna Rún Arnarsdóttir og Magnús Sólberg Baldursson. Sitjandi við borðið er svo Ingólfur Eðvald Björnsson.
Ingibergur Guðmundsson 428
Einbeittir í vinnuviku í Höfðaskóla í febrúar 1987, Baldur Magnússon til vinstri og Gunnar Halldór Hallbjörnsson til hægri.
Höfðaskóli - safn501
Myndin var tekin á flippíþróttadegi Höfðaskóla í íþróttahúsinu. Á myndinni er þáverandi 5. bekkur þannig að myndin var tekin árið 2000 eða 2001. Á myndinni eru, frá vinstri: Brynja Hödd Ágústsdóttir, Helga Dögg Jónsdóttir, Ragnar Björnsson, Ómar Ísak Hjartarson, Alma Eik Sævarsdóttir, Katrín Guðmundsdóttir, Ástrós Villa Vihelmsdóttir, Lena Rut Jónsdóttir og óþekkt. Ef þú þekkir óþekkta nemandann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn438
Bekkjarfélagar úr Höfðaskóla fædd 1989 gera sér glaðan dag í Kántrýbæ 19. maí 2000. Krakkarnir eru, frá vinstri: Almar Freyr Fannarsson, Sigþór Ottó Hallgrímsson, Maríanna Ástmarsdóttir, Ásþór Óðinn Egilsson, Arnrún Bára Finnsdóttir, Guðmundur Ingi Ólafsson (d.8.11.2006) og Ívar Kristberg Einarsson.
Ingibergur Guðmundsson 381
Árið 1988 fóru fimm nemendur Höfðaskóla í heimsókn til vinabæjar Skagastrandar, Aabenraa, í Danmörku á einhvers konar friðarráðstefnu ásamt kennara sínum, Ingibergi Guðmundssyni. Á myndinni eru systurnar Svava Guðrún Sigurðardóttir til vinstri og Inga Lára Sigurðardóttir til hægri í hringekju að bíða eftir að hún fari af stað.
Höfðaskóli - safn562
Krakkar úr Höfðaskóla í skólaferðalagi í Danmörku einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Frá vinstri: Ester Ösp Víðisdóttir, Sindri Jóelsson og Valgerður Guðmundsdóttir skoða hvað þeim hefur tekist að festa á filmu það sem af er degi.
Ólafur Bernódusson1050
Myndin var tekin í júní 1997 á 20 ára afmælishátíð leikskólans Barnaból. Börnin á myndinni eru óþekkt en ef þú þekkir einhvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn621
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni eru Þær Soffía Lárusdóttir til vinstri og Anna Dröfn Guðjónsdóttir til hægri með verkefni sín.
Ólafur Bernódusson1133
Myndin var tekin á eldvarnardegi í Höfðaskóla í desember 1995. Á henni er reykkafari úr slökkviliðinu að sýna nemendahópi hvernig slíkir líta út til að koma í veg fyrir hræðslu ef til alvöru kæmi síðar. Börnin á myndinni eru: talið frá vinstri: í efstu röð: Fjóla Dögg Björnsdóttir, Íris Ósk Jóhannesdóttir og Þórunn Bernódusdóttir kennari. Röð tvö frá vinstri: Ragnheiður Erla Stefánsdóttir?, óþekkt, Björgvin Matthías Hallgrímsson, Rebekka Maren Þórarinsdóttir og Ívar Gylfason. Þriðja röð, frá vinstri: Sindri Jóelsson, Óðinn Örn Sævarsson, Guðmundur Björn Sigurgeirsson?, Ester Ösp Víðisdóttir og Eydís Ósk Einarsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Kristján Pétur Guðjónsson, Jón Atli Magnússon og Sigurgeir Snævar Árnason.
Höfðaskóli - safn 638
Inga Matthíasdóttir íþróttakennari tók þessa mynd í Fellsborg 1985 af krökkum úr Höfðaskóla sem hún þjálfaði í fimleikum. Í aftari röð eru frá vinstri: Kristjana Jónsdóttir, Skúli Tómas Hjartarson, Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir, María Rós Karlsdóttir, Inga Lára Sigurðardóttir? og Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Arna Guðrún Jónsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir, Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir, Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir, Anna Dröfn Guðjónsdóttir og Guðný Finnsdóttir
Höfðaskóli - safn463
Stefán Agnar Gunnarsson og Anna María Magnúsdóttir dansa saman í Höfðakóla einhverntíma kringum 1995. Stúlka aftan við þau til vinstri er Valrún Eva Vilhelmsdóttir.
2001033
Aftan á þessari mynd stendur:" Til Sigga og Höllu frá Signý". Einnig: "Signý Ástmars Bogabraut 5 Skagaströnd". Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklegt að það hafi verið 1963 eða 1964 þegar Signý var fermd.
Höfðaskóli - safn587
María Rós Karlsdóttir í smá pásu frá jólaundirbúningi í Höfðaskóla, líklega kringum 1990.
Óskar Kristinsson - safn 252
Systurnar Rakel Petrea Finnsdóttir til vinstri og Guðný Kristín Finnsdóttir til hægri með föðrubróður sínum, Óskari Kristinssyni, í garðveislu við Hólabraut 4. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1985.
Höfðaskóli - safn584
Anna Dröfn Guðjónsdóttir æfir fingrasetningu á rafmagnsritvél í Höfðaskóla líklega rétt fyrir 1990. Slíkar ritvélar þóttu mikil framför frá gömlu vélunum og voru forverar tölvunnar.
Ingibergur Guðmundsson 467
Myndin var tekin í maí 1985 þegar elstu nemendur Höfðaskóla voru að klára skólagöngu sína í þar. Á myndinni eru, frá vinstri: tvö óþekkt, María Hjaltadóttir, Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007), Áslaug Sif Gunnarsdóttir, Hulda Magnúsdóttir og óþekkt. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1
…
17
18
19
…
24
Leita í myndasafninu
Leita