Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Börn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hópmyndir
Konur
Menn
1.425 myndir
Flæði
Reitir
Höfðaskóli - safn617
Í október/nóvember 1985 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla. Venjulegt skólahald fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni er mikið um að vera í smíðastofunni. Rúnar Loftsson leiðbeinandi er í dökkri skyrtu fyrir miðri mynd og hjá honum stendur Eiríkur Lýðsson. Næstur okkur á myndinni er Þröstur Árnason. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1064
Myndin var tekin í lok maí 1997 á útivistardegi Höfðaskóla. Kennararnir og annað starfsfólk klæddi sig í búninga og síðan var gengið um bæinn og farið í leiki á Hnappstaðatúninu. Á þessari mynd er leikur í gangi á túninu. Á myndinni eru, frá vinstri: þrjú óþekkt, Helga Ólína Aradóttir og Elín Rafnsdóttir. Unnur Kristjánsdóttir er í síðri ljósri kápu og Hjördís Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022) er með ljósa skuplu um höfuðið en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1062
Myndin var tekin í lok maí 1997 á útivistardegi Höfðaskóla. Kennararnir og annað starfsfólk klæddi sig í búninga og síðan var gengið um bæinn og farið í leiki á Hnappstaðatúninu. Á þessari mynd er hópurinn að leika sér á túninu. Í baksýn má sjá íþróttahúsið í byggingu.
Höfðaskóli - safn590
Krakkarnir á myndinni eru að leita sér að bókum í bókakössunum sem voru fyrsti vísirinn að bókasafni Höfðaskóla. Krakkarnir eru, frá vinstri: Guðný Kristín Finnsdóttir, Jóhanna Karlsdóttir og Óskar Óaskarsson. Strákurinn í forgrunninum er líklega Halldór Gunnar Ólafsson. Myndin var tekin kringum 1990.
Höfðaskóli - safn457
Þórir Óskar Björnsson í hannyrðatíma í Höfðaskóla einhverntíma kringum 2002.
Ingibergur Guðmundsson 450
Víðavangshlaup Íslands fór fram á Miklatúni í maí 1986. Þá var þessi mynd tekin af Soffíu Lárusdóttur að koma í mark í hlaupinu. Soffí keppti ásamt fleiri krökkum úr USAH í hlaupinu.
2001033
Aftan á þessari mynd stendur:" Til Sigga og Höllu frá Signý". Einnig: "Signý Ástmars Bogabraut 5 Skagaströnd". Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklegt að það hafi verið 1963 eða 1964 þegar Signý var fermd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1503
Einar Ari Einarsson á faratæki sínu á Kántrýhátíð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn477
Nemendur Höfðaskóla fóru í heimsókn í Blönduvirkjun 29. apríl 1997. Á þessari mynd er einn bekkur með kennara sínum. Í fremstu röð, frá vinstri: Unnur Kristjánsdóttir kennari, Íris Ósk Jóhannesdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir og óþekktur. Miðröð, frá vinstri: óþekktur, Ester Ösp Víðisdóttir, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Ívar Gylfason, Sindri Jóelsson, Sigurgeir Snævar Árnason og Kristján Pétur Guðjónsson. Aftast, frá vinstri: Rebekka Maren þórarinsdóttir, Arnór Snorri Gíslason, Jón Atli Magnússon, Óðinn Örn Sævarsson og Björgvin Matthías Hallgrímsson.
Höfðaskóli - safn493
Danssýning í Höfðaskóla 18. apríl 1996. Parið lengst til vinstri er óþekkt eins og konan þar. Ljóshærða stúlkan í köflótta pilsinu er Fjóla Dögg Björnsdóttir en dansherrann hennar er Kristján Pétur Guðjónsson. Lengra til hægri dansar Ásdís Adda Ólafsdóttir við ?Rebekku Maren Þórarinsdóttur?. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1204
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd sýnir Skúli Tómas Hjartarson peysu og buxur en stúlkan til hægri er óþekkt.
Höfðaskóli - safn480
Nemendur Höfðaskóla á heimleið eftir heimsókn í Blönduvirkjun 29. apríl 1997. Frá vinstri: Ásþór Óðinn Egilsson, Almar Freyr Fannarsson og Björgvin Matthías Hallgrímsson. Bílstjórinn er óþekktur.
Höfðaskóli - safn602
Myndin var tekin í íþróttahúsinu á flippíþróttadegi Höfðaskóla árið 2000 eða 2001. Á henni eru þáverandi 9. bekkingar með umsjónarkennara sínum. Frá vinstri: Hörður Aðils Vilhelmsson, Eydís Inga Sigurjónsdóttir, Ragnar Ásmundur Einarsson, Eiður Bjarki Þórarinsson, Sóley Elsa Magnúsdóttir Blöndal, Sonja Hjördís Berndsen, Halla Línbjörg Hallgrímsdóttir, Elva Þórisdóttir kennari og Pétur ??. Barnið á myndinni er líklega Harpa Hlín Ólafsdóttir sem er dóttir Elvu kennara.
Ingibergur Guðmundsson 526
Á myndinni er brúðuleikhús í heimsókn í Höfðaskóla. Börnin næst okkur sitja á tröppunum sem voru vestan á skólanum en voru fjarlægðar fyrir mistök. Myndin var líklega tekin kringum 1995 því ekki eru hafnar framkvæmdir við íþróttahúsið sem er u.þ.b. þar sem leikhúsið er á myndinni.
Höfðaskóli - safn570
Myndin var tekin einhverntíma á árunum 2000 - 2003 af nemendum Höfðaskóla í skólaferðalagi í Danmörku. Krakkarnir á myndinni eru, frá vinstri: Valgerður Guðmundsdóttir, Arnór Snorri Gíslason og Kristinn Andri Hjálmtýsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Gréta 074
Reynir Davíðsson frá Neðri Harrastöðum prófar að slá með orfi og ljá í túninu heima. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1950.
Höfðaskóli - safn456
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það einhvertíma kringum 2000. Á henni er eldri hluti nemenda Höfðaskóla á útivistardegi í maí við norðurhlíð Spákonufellsins, tilbúin að leggja í göngu á Borgarhausinn undir leiðsögn Lárusar Ægis Guðmundssonar, sem er lengst til vinstri. Í baksýn sést heim að Brandaskarði.
Ólafur Bernódusson1078
Myndin var tekin í september 1996 þegar tekin var fyrsta skóflustunga fyrir íþróttahúsinu. Eftir að yngstu börnin úr Höfðaskóla höfðu dregið um hvert þeirra fengi að taka skóflustnguna hlaut Þórður Óskarsson hnossið. Á myndinni er hann að bisa við að ná upp fyrstu torfunni meðan aðrir klappa fyrir honum.
Ljósmyndakeppni 2022 72
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Ragnheiður Erla Stefánsdóttir og sendi inn í flokkinn "Heimili".
Ingibergur Guðmundsson 349
Mæðgurnar Vilborg Magnúsdóttir til vinstri og Bára Kristinsdóttir til hægri í Höfðaskóla. Vilborg kenndi þar í nokkur ár. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1990.
Höfðaskóli - safn497
Myndin var tekin einhverntíma kringum 2000 í myndmenntatíma í Höfðaskóla. Á henni eru, frá vinstri: Tinna Björk Gunnarsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Dóra Rebekka Sævarsdóttir og Lilja Nótt Sævarsdóttir.
Höfðaskóli - safn430
Katrín Guðmundsdóttir, Jóhann Már Berry og Alma Eik Sævarsdóttir í hlutverkum sínum á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 24. febrúar 2006.
Höfðaskóli - safn546
Þessi mynd var tekin utan við "Gamla skólann" eða Bjarmanes eins og húsið heitir. Ekki er vitað hvenær en líkleg var það einhverntíma 1956 -57 því skólastarf var flutt í nýjan skóla - Höfðaskóla - haustið 1958. Sitjandi, frá vinstri: Sigrún Jósteinsdóttir, Halla Björg Bernódusdóttir, Harpa Friðjónsdóttir, Anna Eygló Fanndal Skaftadóttir, óþekkt, Fjóla Jónsdóttir, og Helga Ólafsdóttir. Standandi, frá vinstri: Pálfríður Benjamínsdóttir, óþekkt, Þórunn Bernódusdóttir, Elínborg M. Jónsdóttir kennari, Kristín Lúðvíksdóttir, óþekkt og Bylgja Angantýsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1116
Myndin var tekin á útivistardegi Höfðaskóla í maí 1996. Vikurnar fyrir daginn höfðu nemendur safnað tómum mjólkurfernum og límt saman eftir ákveðnu kerfi. Samlímingarnar voru svo settar saman í píramíta úti á skólalóð. Á myndinni er búið að byggja píramítann en hjá honum stendur Páll Svavarsson mjólkubússtjóri á Blönduósi en aðrir á myndini eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 403
Svanur Árnason einbeittur við ritvélina í vinnuviku í Höfðaskóla í desember 1987.
Guðrún Guðbjörnsdóttir140
Myndin var tekin í Fellsborg 28. mars 1996 líklega á árshátíð Höfðaskóla. Krakkarnir á myndinni eru að flyta atriðið sitt fyrir gesti. Frá vinstri: Arnór Snorri Gíslason, Jón Atli Magnússon, Sigurgeir Snævar Árnason, óþekkt, Ragheiður Erla Stefánsdóttir, Eydís Ósk Einarsdóttir, Óðinn Örn Sævarsson, Guðmundur Björn Sigurgeirsson, Valgerður Guðmundsdóttir, Kristján Pétur Guðjónsson, Björgvin Matthías Hallgrímsson, Ester Ösp Víðisdóttir, Íris Ósk Jóhannesdóttir og Rebekka Maren Þórarinsdóttir.
2001014
Upp úr 1960 ákváðu skátarnir í Sigurfara á Skagaströnd að byggja sér skála í Brandaskarðinu. Hafist var handa við bygginguna og steyptur sökkull (og plata?) sem skátarnir gerðu undir leiðsögn vanra manna. Einhverra hluta vegna varð aldrei meira úr framkvæmdum í Brandaskarðinu en í stað þess byggður skáli í suðurhlíðum Spákonufellsins. Myndin var tekin af framkvæmdunum í Brandaskarðinu. Lengst til vinstri á myndinni sér í afturendann á Unumog bíl Jóhanns Péturssonar á Lækjarbakka en hann er fullorðni maðurinn á myndinni. Strákurinn í ljósu skyrtunni er Hallbjörn Björnsson og sá sem er lengst til hægri er bróðir hans Sigurður Björnsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1514
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Hún sýnir hluta af börnunum sem þátt tóku í kofasmíðum umf Fram það árið þegar þau buðu gestum til sín að skoða. Við suma kofana var boðið upp á veitingar. Á myndinni eru, frá vinstri: tvö óþekkt, Birgitta Rut Bjarnadóttir, með bleikan hatt, Guðrún Rós Hjaltadóttir, Guðný Eva Björnsdóttir, Aníta Ragnarsdóttir og Benný Blær Sæmundsen en aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1488
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var líklega einhverntíma kringum 2008. Á henni eru krakkar að sinna ýmsu í skólagörðunum sem voru sunnan við Fellsborg. Strákurinn sem er að rannsaka virkni vatnskranans er Auðunn Árni Þrastarson og stóri strákurinn er Torfi Friðrik Magnason. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn465
Knattspyrnulið frá Höfðaskóla ásamt þjálfara sínum 28. júní 1997. Krjúpandi eru frá vinstri: Friðvin Ingi Ernstsson Berndsen, Sigurbjörn Kristjánsson, Jón Atli Magnússon, Sigurgeir Snævar Árnason og Ívar Gylfason. Standandi frá vinstri: Albert Ingi Haraldsson, Kristján Pétur Guðjónsson, Sindri Njáll Hafþórsson, Eyþór Kári Egilsson, Arnór Snorri Gíslason og Garðar Geirfinnsson þjálfari og íþróttakennari.
Höfðaskóli - safn402
Nemendur Höfðaskóla fædd 1971 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Jóhanna Sigurjónsdóttir, Erlingur Ottósson, Björk Axelsdóttir kennari, Dagbjört Jóhannsdóttir og Hafdís Þorvaldsdóttir. Miðröð frá vinstri: Sveinn Jónasson, Baldur Eðvarðsson og þorsteinn Styrmir Jónsson. Fremsta röð frá vinstri: Hans Birgir Högnason, Viggó Magnússon, Hallgrímur Oddsson, Ægir Jónsson og Elín Rafnsdóttir.
Höfðaskóli - safn579
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla 1970. nemendurnir eru, frá vinstri: Ragnar Haukur Högnason, þrír óþekktir, Guðrún Ágústsdóttir, Magnús Bjarni Blöndal (d.7.9.2001) (fjær), Vala Ingvarsdóttir (nær), Gréta Ingvarsdóttir (fjær), Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020) (nær), Jón Hallur Pétursson og óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn586
Þessi mynd var líklega tekin kringum 1990 þegar stúlkurnar á henni voru að undirbúa jólin í Höfðaskóla. Erla María Lárusdóttir til vinstri og Salóme Ýr Rúnarsdóttir til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 347
Andri Þór Ómarsson klippir út í Höfðaskóla líklega 1989.
Óskar Kristinsson - safn 252
Systurnar Rakel Petrea Finnsdóttir til vinstri og Guðný Kristín Finnsdóttir til hægri með föðrubróður sínum, Óskari Kristinssyni, í garðveislu við Hólabraut 4. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1985.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1496
Myndin var tekin á afmælishátíð leikskólans Barnabóls þegar haldið var upp á 30 ára afmæli hans árið 2007. Börnin eru að fylgjast með einhverju skemmtiatriði.
Ólafur Bernódusson1217
Þessi mynd var tekin í maí 1993. Á henni er Hrönn Árnadóttir með syni sínum Guðmundi Inga Ólafssyni (d.3.11.2006) að benda á lífshættu sem sköpuð var á róluvelli á staðnum. Rólan sjálf hafði slitnað niður en annar kaðallinn hékk áfram og einhver hafði búið til lykkju á hann svo hægt væri að róla sér með því að hafa annan fótinn í lykkjunni. Sá hinn sami hafði ekki áttað sig á að lítil börn gátu óvart hengt sig í lykkjunni. Eins og sést á myndinni var kaðallinn fjarlægður strax og þetta uppgötvaðist.
Ingibergur Guðmundsson 406
Þessir ungu menn sáu um að spila tónlist af plötum í vinnuviku í Höfðaskóla í desember 1987. Hátölurum var komið fyrir á göngunum þannig að allir gætu notið tónlistarinnar við vinnu sína hingað og þangað um skólann. Strákarnir eru Óskar Óskarsson til vinstri og Baldur Magnússon til hægri.
Höfðaskóli - safn461
Myndin var tekin á dansleik í Höfðaskóla kringum 1995. Á henni eru, frá vinstri: Hans Birgir Högnason, Stefán Agnar Gunnarsson, Anna María Magnúsdóttir, Þröstur Árnason, Kolbrún Freyja þórarinsdóttir og Bæring Jón Skarphéðinsson.
Ólafur Bernódusson1178
Tæknimenn á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg líklega árið 2014. Daði Snær Stefánsson til vinstri og Jóhann Almar Reynisson til hægri.
Ólafur Bernódusson1065
Myndin var tekin í lok maí 1997 á útivistardegi Höfðaskóla. Kennararnir og annað starfsfólk klæddi sig í búninga og síðan var gengið um bæinn og farið í leiki á Hnappstaðatúninu. Á þessari mynd eru, frá vinstri: óþekktur, Skúli Már Matthíasson, Gunnlaugur Briem, Elvar Arinbjörn Grétarsson, fjögur óþekkt, Kristín Helga Ólafsdóttir, tveir óþekktir, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir og Gunnar Helgason.
Höfðaskóli - safn560
Rósa Björg Blöndal Einarsdóttir, Hanna Rúna Gestsdóttir og Oddur Valdimarsson skoða bátasýningu í Roskilde í Danmörku í skólaferðalagi á vegum Höfðaskóla einhverntíma á árunum 2000 - 2003.
Höfðaskóli - safn576
Myndin var líklega tekin á litlu jólum í Höfðaskóla 1970. Þriðji frá vinstri (með gleraugu) er Jósef Sigurðsson og næstur honum hægra megin er Ástmar Kári Ástmarsson. Jón S. Pálsson er kennarinn en vinstra megin við hann er sonur hans Páll Jónsson (d. 13.5.2021). Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn437
Myndin er frá grímulballi Höfðaskóla 5. mars 2006 í Fellsborg. Sá sem er númer 44 á myndinni er Egill Örn Ingibergsson en númer 49 er Birgitta Bjarnadóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir
Ólafur Bernódusson1195
Bekkjarmynd úr Höfðaskóla af nemendum fæddum 1972. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1985. Í aftari röð eru, frá vinstri: Stefán Sveinsson, Svava Guðrún Sigurðardóttir, Gunnar Þröstur Ásgeirsson, Þorlákur Sigurður Sveinsson, Óskar Óskarsson og Hólmfríður Oddsdóttir. Fremri röð, frá vinstri: Hólmgeir Hallbert Kristmundsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Ólafur H. Bernódusson kennari, Hjalti Kristjánsson og Skúli Tómas Hjartarson.
Ljósmyndakeppni 2022 26
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Berglind Rós Helgadóttir og sendi inn í flokkinn "Skuggar". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki. Gestir sýningarinnar völdu svo þessa mynd sem þá bestu í flokknum skuggar.
Ingibergur Guðmundsson 514
Myndin var tekin í maí 1985 af nemendum Höfðaskóla í skólaferðalgi. Greinilega gistu þau í skólum einhversstaðar og á myndinni eru þau í einum þeirra. Nemendurnir eru, frá vinstri: Óli Hjörvar Kristmundsson, Jón Arnarsson, Stefanía Elísabet Hallbjörnsdóttir (nær), Guðmundur Oddsson (fjær), Ágúst Ómarsson?, Rakel Jakobínia Jónsdóttir?, Hallgrímur Oddsson og Hans Birgir Högnason. Aðrir á mynbdinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1165
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nokkrir nemendur skólans að flytja atriði síns bekkjar. Börnin eru, frá vinstri: Helgi Sveinn Árnason, Róbert Daði Bogason?, Birgitta Rut Bjarnadóttir, Sunna Björg Steingrímsdóttir og Guðný Eva Björnsdóttir.
Höfðaskóli - safn478
Nemendur úr Höfðaskóla á heimleið úr heimsókn í Blönduvirkjun 29. apríl 1997. Frá vinstri: Arís Eva Vilhelmsdóttir, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Alma Eik Sævarsdóttir, Maríanna Ástmarsdóttir, Brynja Hödd Ágústsdóttir, Ester Ösp Víðisdóttir og Katrín Guðmundsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 357
Þessi mynd var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla líklega 1990. Á henni eru nemendur með skemmtiatriði á sal fyrir aðra í skólanum. Lesararnir hægra megin eru, frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson, Þóra Ágústsdóttir, Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir og Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir. Leikararnir, sem líklega eiga að vera jólasveinarnir, Grýla og Leppalúði, eru óþekktir en krakkarnir eru fædd árið 1978.
Ólafur Bernódusson1202
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd er Hólmfríður Oddsdóttir ásamt óþekktir stúlku að sýna nýjustu tísku.
Ólafur Bernódusson1150
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru yngri nemendur skólans að syngja undir stjórn Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur tónmenntakennara, sem situr við píanóið. aftast til vinstri sér í Hildi Ingólfsdóttur skólastjóra.
Höfðaskóli - safn513
Þessi mynd var tekin af nokkrum nemendum Höfðaskóla i skólaferðalagi á Arnarstapa í maí 1986. Í fremstu röð eru, frá vinstri: Ægir Jónsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Herdís Jakobsdóttir. Önnur röð frá vinstri: Jón Önfjörð Arnarsson, Viggó Magnússon og Elísabet Hallbjörnsdóttir. Þriðja röð, frá vinstri: Vigdís Ómarsdóttir, Inga Matthíasdóttir kennari og Jóhann Ásgeirsson. Aftasta röð, frá vinstri: Elín Anna Rafnsdóttir, Rafn Ingi Rafnsson og Davíð Reynisson. Álengdar til hægri er Sveinn Jónasson.
Ingibergur Guðmundsson 533
Myndin var tekin í pylsupartýi við Höfðaskóla líklega á útivistardegi kringum 1990. Á myndinni eru, frá vinstri: ?Sigurður Haukur Grétarsson?, Særún Níelsdóttir (nær), óþekktur (fjær), þrjú óþekkt börn en bak við þau er Árni Max Haraldsson í grænni peysu. ?Guðrún Ásta Guðmundsdóttir?, Gunnar Guðmundsson og tveir óþekktir. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna og/eða getur staðfest að rétt sé það sem giskað er á, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn626
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Leiðbeinandinn William Sillar segir Stefáni Sveinssyni til með verkefni hans. Á töflunni bak við þá er skipulag hópsins fyrir daginn.
Ingibergur Guðmundsson 402
Myndin var tekin í vinnuviku í Höfðaskóla í desember 1987. Stúlkurnar á henni eru í óða önn að útbúa jólasveinadúkkur. Stúlkurnar eru, frá vinstri: Svava Guðrún Sigurðardóttir, Soffía Lárusdóttir, Gígja Óskarsdóttir, Soffía Jónasdóttir og Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1502
Þessi skemmtilega mynd sýnir börn, flest frá Skagaströnd, á skíðum í Tindastóli. Hér á ljósmyndasafninu er mynd af jólakorti eftir Sigurlaugu Jónasdóttur (d.30.12.2004) sem minnir á þessa mynd. Sú mynd er númer 18239.
Ljósmyndakeppni 2022 39
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Sigríður Björk Sveinsdóttir og sendi inn í flokkinn "Andlit".
Höfðaskóli - safn508
Dagný Úlfarsdóttir afhendir nemendum sínum, fæddum 1985, einkunnir sínar á skólaslitum Höfðaskóla í Fellsborg. Nemendurnir eru, frá vinstri: Stefán Agnar Gunnarsson, Tinna Björk Gunnarsdóttir, Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Anna Dúna Rúnarsdóttir, Eva Dögg Bergþórsdóttir, Dóra Rebekka Sævarsdóttir, Lilja Nótt Sæavarsdóttir, óþekkt, Eygló Amelía Valdimarsdóttir og Eva Rún Rúnarsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn545
Nemendum Höfðaskóla í hóp á sal kringum Pál Leó Jónsson skólastjóra. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Páll var skólastjóri 1986 - 1991 þannig að hún var tekin einhverntíma á því tímabili. Nemednunum og foreldrum þeirra er látið eftir að finna þá sem þeir þekkja á myndinni.
1
…
18
19
20
…
24
Leita í myndasafninu
Leita