Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Börn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hópmyndir
Konur
Menn
1.425 myndir
Flæði
Reitir
Óþekktur ljósmyndari586
Hjónin í Dvergasteini með syni sína. Matthildur Jóhannsdóttir (d.12.2.1953) og Björn Benediktsson Fossdal (d.23.10.1969). Synirnir eru: Snorri Sverrir Fossdal (d.7.10.1997) til vinstri og Auðunn Hafsteinn Fossdal (d.23.2.1962) til hægri. Dvergasteinn var lágreist hús sem stóð við Bankastræti rétt vestan við Skálholt (við Skagaveg). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn609
Þrír ungir menn að skreyta Höfðaskóla með ýmsu tengdu fiskveiðum. Frá vinstri: Reynir Lýðsson, Þröstur Árnason? og Jósef Ægir Stefánsson. Myndin var líklega tekin kringum 1990.
Ingibergur Guðmundsson 552
Þessi ungi drengur er óþekktur. Hann er líklega að leika sér í snjónum í Tjaldklaufinni en ekki er vitað hvenær. Tjaldklaufin var vinsæll leikstaður barna og unglinga þegar mikill snjór var þar. Ef þú þekkir drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 374
Myndin var tekin á Skagastrandarvelli líklega árið 1988 eftir utanhúss íþróttamót á vegum USAH. Á myndinni er hópur íþróttafólks sem varð stigahæst á mótinu.
Ljósmyndakeppni 2022 69
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Árný Hálfdánardóttir og sendi inn í flokkinn "Heimili".
Ljósmyndakeppni 2022 55
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Þórey Jónsdóttir og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja".
Ljósmyndakeppni 2022 32
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Eydís Inga Sigurjónsdóttir og sendi inn í flokkinn "Andlit".
Höfðaskóli - safn595
Á myndinni úr Höfðaskóla eru þeir að gantast eitthvað, Þorlákur Sigurður Sveinsson til vinstri og Hjalti Kristjánsson til hægri. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1988.
Ólafur Bernódusson1229
Komið í mark í Landsbankahlaupinu í maí 19987. Stúlkan á myndinni er líklega Þóra Ásgeirsdóttir? Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn538
Myndin var tekin einhverntíma kringum árið 2000 af nemendum Höfðaskóla fæddum 1993 á sviðinu í Fellsborg á skólaslitum. Kamilla Hildur Gísladóttir kennari er lengst til vinstri og Ingibergur Guðmundsson skólastjóri er að rétta henni vitnisburðablöð barnanna. Nemendurnir eru, frá vinstri: Davíð Weerachai Víðisson, Guðjón Örn Kristjánsson, Ólína Selma Þórarinsdóttir, Sonja Sif Ólafsdóttir, Sara Rut Fannarsdóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Kristbjörg Dúfa Ragnheiðardóttir, Halla Björk Víðisdóttir, ? Sæmundsson, Elísabet Anna Blöndal Einarsdóttir, Brynjar Max Ólafsson, Árný Sif Kristínardóttir, Andrea Björk Kristjánsdóttir og Alex Már Gunnarsson.
Höfðaskóli - safn575
Litlu Jól 1970 í Höfðaskóla. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðrún Björg Einarsdóttir, Sesselja Guðmundsdóttir, Guðrún Elvan Friðriksdóttir (d.14.2.2008) (nær), þrjár óþekktar stúlkur, óþekktur kennari (nær), Guðmundur Viðar Guðmundsson (fjær), Unnur Gunnarsdóttir, Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018) (nær), þrír óþekktir, Sigríður Björnsdóttir og þrír óþekktir. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn620
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni eru Sigurbjörg Jónasdóttir til vinstri og Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir til hægri að vinna að hannyrðum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1512
Aldís Embla Björnsdóttir skemmtir sér í vatnsrennibraut sem útbúin var í brekkunni við íþróttavöllinn. Ekki er vitað hveær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1521
Stúlkurnar á myndinni njóta sín á tónleikum í samkomutjaldinu á Kántrýdögum. Freyja Dís Jóhannsdóttir er til vinstri og Hekla Guðrún Þrastardóttir til hægri. Á milli þeirra eru tvær óþekktar stúlkur. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn571
Krakkarnir á myndinni voru í skólaferðalagi á vegum Höfðaskóla í Danmörku einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Þau eru, frá vinstri: Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Eydís Ósk Einarsdóttir, Ásdís Adda Ólafsdóttir, Jóna Gréta Guðmundsdóttir og Albert Ingi Haraldsson.
Höfðaskóli - safn502
Myndin var tekin á flippíþróttadegi Höfðaskóla í íþróttahúsinu veturinn 2000 - 2001. Á henni er þáverandi 4. bekkur. Erfitt er að þekkja nemendurna vegna þess hve mikið andlitin eru máluð en á henni eru, frá vinstri: Guðrún Elsa Helgadóttir kennari, Kristján Steinar Kristjánsson, Patrik Snær Bjarnason, Sævar Hlynur Tryggvason, Elna Ragnarsdóttir, óþekktur, Aðalheiður Ragnarsdóttir, ?Jóhann Örn Stefánsson?, Hanna María Gylfadóttir, óþekkt, Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir og tvær óþekktar. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn647
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af Jósef Stefánssyni? að prjóna á hjólinu sínu en líklega var það kringum 1990. Í baksýn má sjá verksmiðjuna ennþá með geymsluþrónum og tankana tvo sem stóðu upp við Höfðann vestan við sundlaugina.
Höfðaskóli - safn453
Elna Ragnarsdottir einbeitt í hannyrðatíma í Höfðaskóla 7. október 1998.
Höfðaskóli - safn635
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni er Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir einbeitt að klippa út.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1528
Þessi mynd er úr fórum Herberts Ólafssonar (d.25.4.2007). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og börnin tvö á myndinni eru óþekkt. Ágiskun er að barnið til vinstri sé Arnar Ólafur Viggósson en ef þú þekkir börnin, annað eða bæði, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 398
Þessar kátu stúlkur úr Höfðaskóla tóku þátt í skólamóti á Húnavöllum veturinn 1987. Í aftari röð, frá vinstri: Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir, Soffía Lárusdóttir, og Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir. Í fremri röðinni, frá vinstri: Guðný Finnsdóttir, Guðbjörg Kristmundsdóttir og Hólmfríður Anna Ólafsdóttir.
Gréta 070
Þórgunnur Snædal er dóttir Rósbergs G. Snædal (d. 9.1.1983) frá Ægissíðu og Hólmfríðar Magnúsdóttur (d.6.7.2013) frá Syðra Hóli.
Ólafur Bernódusson1156
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru yngri nemendur skólans að flytja einhver skemmtiatriði. Börnin eru, frá vinstri: Sindri Freyr Bjönsson, Almar Atli Ólafsson, Andri Már Gunnarsson, óþekktur, Hlynur Sæmundsen, Gabríel Goði Tryggvason, óþekkt og Karen Líf Sigurbjargardóttir. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 353
Myndin var tekin í Höfðaskóla í vinnuviku 1989. Á henni eru stúlkurnar að skrifa skólablað á ritvél því tölvuöld var ekki gengin í garð í skólanum. Súlkurnar eru, frá vinstri: Salóme Ýr Rúnarsdóttir, Ásta Ýr Ásgeirsdóttir og Halla Kristín Árnadóttir.
Gréta 105
Myndin var tekin við Laufás 1964. Stúlkurnar tvær eru Gréta Jónsdóttir í Laufási til vinstri og Aðalheiður Másdóttir í Réttarholti til hægri. Í baksýn er Fjóla Sigurðardóttir (d.15.7.1988) móðir Grétu.
Ólafur Bernódusson001
Þessi mynd var tekin á aðventukvöldi í desember 1991. Á henni eru fermingarbörn ársins í hvítu kyrtlunum við altarið ásamt kór yngri barna. Spilararnir fremst eru, frá vinstri: Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, sem var eitt af fermingarbörnunum, Hallgrímur Axelsson, Guðjón Hall Sigurbjörnsson og óþekkt. Séra Egill Hallgrímsson (d.9.6.2021) er svo lengst til vinstri og Steindór Haraldsson meðhjálpari situr framan við hann. Fermingarbörnin eru,frá vinstri: þrír óþekktir, Jón Örn Stefánsson, Þóra Ágústsdóttir, Árný Guðrún Ólafsdóttir,þrjár óþekktar stúlkur, Þórunn Ævarsdóttir, Sigurður Berndsen, Ólína Laufey Sveinsdóttir, Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir og Jón Ólafur Sigurjónsson. Stjórnandi kórsins er líklega Edith Molnar. Aðra á myndinni verður hver og einn að þekkja fyrir sig.
Höfðaskóli - safn634
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni eru frænkurnar Hólmfríðu Anna Ólafsdóttir (Día Anna) vinstra megin og Elísabet Eik Guðmundsdóttir til hægri. Í baksýn er Inga Lára Sigurðardóttir í hvítri peysu en aðrir á myndinni eru óþekktir.
2001027
Þessi mynd var tekin einhvertíma kringum 1965. Á henni eru Áslaug Hrólfsdóttir í Bjarmalandi til vinstri og Guðbjörg Vera Kristinsdóttir í Héðinshöfða til hægri. Aftan við Guðbjörgu sér í Eddu Þórarinsdóttur í Höfðaborg.
Höfðaskóli - safn491
Hjalti Sævar Hjaltason teymir undir Guðrúnu Sigríði Hjálmtýsdóttur í hestagerði vestan við Spákonufellsrétt á útavistardegi Höfðaskóla, líklega vorið 2000. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn481
Nemendur Höfðaskóla á heimleið eftir heimsókn í Blönduvirkjun 29. apríl 1997. Frá vinstri: Jón Atli Magnússon, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Arnór Snorri Gíslason og Ómar Ísak Hjartarson.
Ljósmyndakeppni 2022 2
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Stefán Jósefsson og sendi inn í flokkinn "Andlit". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna úr þessum flokki.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1496
Þessi litli drengur er Logi Hrannar Jóhannsson. Hann er fæddur 2008 þannig að þessi mynd hefur líklega verið tekin einhverntíma á árunum 2011 - 2013. Eins og myndin sýnir eru augu Loga ekki eins á litin, annað er brúnt en hitt blágrátt.
Höfðaskóli - safn594
Sigríður Ólafsdóttir sýnir Særúnu Níelsdóttur hvernig á að bera sig að við saumaskap í Höfðaskóla einhverntíma kringum 1988.
Ólafur Bernódusson1166
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nokkrir nemendur skólans að flytja atriði síns bekkjar. Börnin eru, frá vinstri: Sunna Björg Steingrímsdóttir, Guðný Eva Björnsdóttir, Sveinn Halldór Hallgrímsson og Björn Björgvinsson.
Höfðaskóli - safn619
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni eru þær frænkurnar Gígja Heiðrún Óskarsdóttir til vinstri og Anna Guðrún Ásgeirsdóttir til hægri. Drengurinn á myndinni er ?Svanur Árnason? .
Höfðaskóli - safn469
Bekkjarkvöld nemenda Höfðaskóla fædd 1988 með foreldrum í Skíðaskálanum 1. maí 1997. Á myndinni eru, frá vinstri: Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Helga Bergsdóttir, Guðrún Soffía Pétursdóttir, Sindri Jóelsson, Sigurgeir Snævar Árnason og Guðbjörg Kristinsdóttir.
Höfðaskóli - safn435
Árshátíð Höfðaskóla 24. febrúar 2006 í Fellsborg endaði með dúndrandi diskóteki. Rauðklæddi drengurinn er Egill Örn Ingibergsson. Til hægri við hann grillir í Sonju Sif Ólafsdóttur og lengra frá er Lilja Bjarney Valdimarsdóttir. Drengurinn í röndóttu skyrtunni er Alex Már Gunnarsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1063
Myndin var tekin í lok maí 1997 á útivistardegi Höfðaskóla. Kennararnir og annað starfsfólk klæddi sig í búninga og síðan var gengið um bæinn og farið í leiki á Hnappstaðatúninu. Á þessari mynd er hluti hópsins í leik á túninu. Frá vinstri: Elva Ösp Gunnarsdóttir, Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir?, óþekkt, Eydís Inga Sigurjónsdóttir, fjórir óþekktir, Heiða Berglind Fannarsdóttir, Elín Rafnsdóttir, María Guðrún Guðmundsdóttir, tvö óþekkt börn og Helga Ólína Aradóttir. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1152
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru yngstu nemendur skólans að syngja fyrir gesti. Börnin eru, frá vinstri: Arnrún Hildur Hrólfsdóttir, Erla Mjöll Daðadóttir, Gunnar Andri Elvarsson, óþekktur og Helga Margrét Steingrímsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 449
Unglingar úr Höfðaskóla í skólaferðalagi um Snæfellsnes í maí 1986. Á myndinni eru, frá vinstri: Þorsteinn Styrmir Jónsson, Gunnar Þröstur Ásgeirsson, Jón Arnar Arnarsson, óþekkt, Svava Guðrún Sigurðardóttir, Rakel Jónsdóttir og tveir óþekktir. Ef þú þekkir óþekktu krakkana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn556
Myndin var tekin af nemendum Höfðaskóla í skólaferðalagi. Myndin var líklega tekin einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Stúlkurnar tvær fremst á myndinni eru Jóna Gréta Guðmundsdóttir til vinstri og kristbjörg Una Guðmundsdóttir til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1146
Birta Dögg Bessadóttir til vinstri og Guðrún Rós Hjaltadóttir til hægri á sviðinu í Fellsborg að kynna næsta atriði á árshátíð Höfðaskóla árið 2014.
Guðrún Guðmundsdóttir 061
Í desember 1986 sýndu eldri borgarar á Skagaströnd ýmislegt sem þeir höfðu búið til þann veturinn. Sýningin var í Höfðaskóla og konur úr kvenfélaginu Einingu seldu kaffi þar í tilefni sýningarinnar. Þessi þrjú ungmenni voru meðal gesta á sýningunni. Þau eru, frá vinstri: Helga Brynhildur Kristmundsdóttir (d.20.7.2021), Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir og Reynir Lýðsson.
Ólafur Bernódusson1037
Myndin var tekin á aðventukvöldi í Hólaneskirkju í desember 1997. Húsfyllir var í kirkjunni og meðal atriða var að börnin á myndinni sungu sunnudagasöngvana sína við altarið.
Höfðaskóli - safn479
Nemendur Höfðaskóla á heimleið úr heimsókn í Blönduvirkjun 29. apríl 1997. Aftar eru Ester Ösp Víðisdóttir og Katrín Guðmundsdóttir nær glugganum. Nær okkur eru Brynja Hödd Ágústsdóttir og Ástrós Villa Vihelmsdóttir nær glugganum.
Ólafur Bernódusson1137
Myndin var tekin á eldvarnardegi í Höfðaskóla í desember 1995. Á rýmingaræfingunni var forstofa skólans fyllt af leikhúsreyk til að gera hlutina eins raunverulega og hægt var. Á myndinni er hluti nemendanna kominn út gegnum reykkófið og fleiri á leiðinni.
Ólafur Bernódusson1167
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nokkrir nemendur skólans að flytja frumsamið skemmtiatriði. Börnin eru, frá vinstri: Laufey Lind Ingibergsdóttir, Sunna Björg Steingrímsdóttir, Anita Ragnarsdóttir, Guðný Eva Björnsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Sveinn Halldór Hallgrímsson.
Höfðaskóli - safn591
Þessar stúlkur skipuð keppnislið Höfðaskóla þegar þessi mynd var tekin, líklega í körfubolta eða blaki. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1988. Í aftari röð eru frá vinstri: Inga Lára Sigurðardóttir, Hólmfríður Oddsdóttir, Inga Rós Sævarsdóttir, Hugrún Sigurðardóttir og Hugrún Pálsdóttir. Í fremri röð frá vinstri: Helga Brynhildur Kristmundsdóttir (d.20.7.2021), Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir og Kristín Jóna Sigurðardóttir.
Ingibergur Guðmundsson 537
Maðurinn á myndinni er hinn vinsæli íþróttakennari í Höfðaskóla Milan Djurica. Hjá honum eru Vignir Örn Hafþórsson í hvítum bol og Guðjón Hall Sigubjörnsson í blárri peysu. Myndin var tekin í Fellsborg líklega kringum 2002.
Ljósmyndakeppni 2022 63
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Ragnheiður Erla Stefánsdóttir og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja".
Ólafur Bernódusson1045
Myndin var tekin í júní 1997 á 20 ára afmælishátíð leikskólans Barnaból. Börnin á henni eru, frá vinstri: Elna Ragnarsdóttir, Hafrún Eva Kristjánsdóttir, Hanna María Gylfadóttir, Sævar Hlynur Tryggvason og Þórður Indriði Björnsson.
Ingibergur Guðmundsson 417
Vík hf rak saltfiskverkun í húsi sínu við Fjörubraut árið 1987 og þá var þessi mynd tekin. Á henni er sonur annars eigandans, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson þá sjö- átta ára, að gella þorskhausa fyrir utan húsið.
Ólafur Bernódusson1134
Myndin var tekin á eldvarnardegi í Höfðaskóla í desember 1995. Á rýmingaræfingunni var forstofa skólans fyllt af leikhúsreyk til að gera hlutina eins raunverulega og hægt var. Á myndinni er Sigurgeir Snævar Árnason að koma álútur út úr reykkófinu.
Höfðaskóli - safn631
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á þessari mynd eru Jón Heiðar Jónsson nær okkur og Atli Þór Þórsson fjær.
Gréta 079
Mæðgur frá Neðri Harrastöðum. Anna Gísladóttir (d.22.7.1998) með dætur sínar Jóhönnu Davíðsdóttur vinstra megin og Aðalheiði Davíðsdóttur til hægri.
Höfðaskóli - safn577
Myndin var líklega tekin á litlu jólum 1970 í Höfðaskóla. Nemendurnir eru, frá vinstri: Stefán Þór Árnason, Sigurður Guðmundsson, óþekktur, Ernst Berndsen, Grétar Smári Hallbjörnsson? og óþekktur kennari, Þorgeir Lárus Haukdal Jónsson, Kristinn Guðmundsson með systur sína Soffíu í fanginu og þrjú óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna og kennarann vinsamnlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1203
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd eru tvær ungar stúlkur að sýna spariföt. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn553
Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla bíður komu Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands í heimsókn í skólann í október 2002. Frá vinstri: Björk Hlöðversdóttir, tvær óþekktar, Sólrún Ólína Sigurðardóttir, Sigríður Sól Indriðadóttir, Arnór Snorri Gíslason (fjær), óþekkt (nær), Valgerður Guðmundsdóttir, óþekkt, Friðvin Ingi Ernstsson Berndsen, Sindri Njáll Hafþórsson, óþekktur, Albert Ingi Haraldsson, Eyþór Kári Egilsson, Sindri Jóelsson og óþekktur.
Ingibergur Guðmundsson 513
Nemendur úr Höfðaskóla stilla sér upp til myndatöku í skólaferðalagi vorið 1985, líklega á Þingvöllum. Sitjandi fremst er, frá vinstri: Herdís Jakobsdóttir?, Hafdís Fanndal Þorvaldsdóttir, Erlingur Ottósson, Viggó Magnússon og Hans Birgir Högnason. Standandi í fremstu röð, frá vinstri: Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Sveinn Jónasson, Sigríður Ásgeirsdóttir, Hulda Magnúsdóttir, Kristjana Jónsdóttir, Katrín Sigurjónsdóttir, Áslaug Sif Gunnarsdóttir, Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d.13.8.2000) og Rafn Ingi Rafnsson. Aðrir á myndinni, talið frá vinstri: Arnar Erlingsson, Davíð Reynisson (nær), Hjalti Magnússon ? (fjær), Óli Hjörvar Kristmundsson, Reynir Lýðsson, Guðmundur Oddsson, óþekktur, Baldur Eðvarðsson, Jóhanna Sigurjónsdóttir, óþekktur, Stefanía Elísabet Hallbjörnsdóttir, Rakel Jakobína Jónsdóttir, Dagbjört Jóhannsdóttir (nær), óþekktur (fjær), óþekktur, Þorsteinn Styrmir Jónsson, Stefán Ægir Lárusson, Jón Arnarsson, Ægir Jónsson og Þráinn Bessi Gunnarsson. Ef þú þekkir einhvern af óþekktu nemendunum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
2001509
Á myndinni er hópur ungmenna að gróðursetja trjáplöntur á reitnum norðan vð söluskálann. Til vinstri á myndinni er Aðalbjörg Hafsteinsdóttir dökkklædd. Jón Jónsson formaður skógræktarfélgs Skagastrandar er hægra megin á myninni með ljósa húfu með skaft í hendinni. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ekki er heldur vitað hvenær myndin var tekin.
1
…
19
20
21
…
24
Leita í myndasafninu
Leita