Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Börn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Hópmyndir
Konur
Menn
1.425 myndir
Flæði
Reitir
Höfðaskóli - safn401
Nemendur í Höfðaskóla fædd 1974 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Svava Magnúsdóttir, Guðný Kristín Finnsdóttir, Atli Þór Þórsson, Ása Ósk Ásgeirsdóttir, Friðrik Gunnlaugsson og Björk Axelsdóttir kennari. Miðröð frá vinstri: Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir, Björn Sigurðsson, Jóhanna Karlsdóttir, Gunnar Halldór Hallbjörnsson og Jón Heiðar Jónsson. Fremsta röð frá vinstri: Aðalheiður Sif Árnadóttir, Baldur Magnússon, Reynir Lýðsson og Bryndís Ingimarsdóttir. Myndin var tekin kringum 1985.
2001030
Aftan á þessari mynd stendur:"Þetta er Árni í bátnum þínum". Þetta er Árni Ólafur Sigurðsson í trillubát sem pabbi hans, Sigurður Guðmonsson, átti. Myndin var líklega tekin kringum 1960.
Ingibergur Guðmundsson 464
Arna Guðrún Jónsdóttir og Jónas Fanndal Þorvaldsson sigurvegarar í sínum aldursflokki í 17. júní móti umf Fram 1985 með verðlaunabikara sína. Aðrir á myndinni eru, talið frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson, Heimir Guðmundsson,tveir óþekktir, Arnar Arnarsson, óþekkt. Guðný Finnsdóttir, óþekktur, Hugrún Sigurðardóttir (nær), Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir (fjær).
Höfðaskóli - safn583
Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir með jólaföndrið sitt í Höfðaskóla, líklega á jólaföstunni kringum 1990.
Ingibergur Guðmundsson 407
Svava Magnúsdóttir niðursokkin í sköpunarvinnu í vinnuviku í Höfðaskóla í desember 1987.
Ólafur Bernódusson1115
Myndin var tekin á útivistardegi Höfðaskóla í maí 1996. Vikurnar fyrir daginn höfðu nemendur safnað tómum mjólkurfernum og límt saman eftir ákveðnu kerfi. Samlímingarnar voru svo settar saman í píramíta úti á skólalóð. Á myndinni eru fernukubbarnir komnir út á lóð og á að fara að raða þeim saman. Krakkarnir og kennararnir á henni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn604
Unnið við jóla-gluggaskreytinar í smíðastofunni í Höfðaskóla einhverntíma kringum 1990. Stefán Ægir Lárusson kennari situr á hækjum sér, Jóhanna Sólveig Hallgrímasóttir krýpur og límir en næst okkur er óþekkt stúlka að skera út myndir í karton. Myndina tók einhver nemandi í ljósmyndavali og framkallaði sjálfur eins og sér á gæðum myndarinnar.
Gréta 062
Ásdís Magnúsdóttir frá Syðra Hóli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 426
Hallgrímur Oddsson í vinnuviku í Höfðaskóla í febrúar 1987.
Höfðaskóli - safn496
Myndin var tekin í myndmenntatíma í Höfðaskóla, líklega kringum 2000. Á henni eru, frá vinstri: Tinna Björk Gunnarsdóttir, Jenný Lind Sigurjónsdóttir og Eva Rún Rúnarsdóttir.
Gréta 114
Systkinin á myndinni eru, frá vinstri: Guðjón Örn Arason, Þórey Fjóla Aradóttir og Lýður Ragnar Arason.
Ólafur Bernódusson1161
Myndin var líklega tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg vorið 2014. Á henni eru nokkra stúlkur að sýna frumsaminn dans. Stúlkurnar eru, frá vinstri: Anna Marie Gruenberger, Ástríður Magnúsdóttir, Freyja Dis Jóhannsdóttir, Bylgja Ágústsdóttir, Arna Rún Arnarsdóttir og Karen Líf Sigurbjargardóttir. Á gólfinu framan við sviðið er Sara Diljá Hjálmarsdóttir kennari.
Ólafur Bernódusson1149
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Krakkarnir á myndinni voru að flytja atriði yngri nemenda á skemmtuninni. Krakkarnir eru, frá vinstri: Arna Rún Arnarsdóttir, Ólafur Halldórsson, Benný Blær Sæmundsen Árnadóttir og Magnús Sólberg Baldursson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn624
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Þessir ungu menn eru að gantast í pásu. Þeir sitja framan við "Fuglaskápinn" en í honum var geymt safn skólans af uppstoppuðum fuglum og nokkrum öðrum forvitnilegum gripum úr náttúrunni. Vegna breytinga á húsnæði skólans eru fuglarnir því miður ekki sýnilegir lengur heldur í kössum í geymslu. Strákarnir á myndinni eru frá vinstri: Árni Max Haraldsson, ?Ólafur Elínarson?, Þorlákur Ómar Guðjónsson og Viktor Pétursson.
Höfðaskóli - safn514
Hér skoða Ómar Ingi Ómarsson til vinstri og Sigþór Ottó Hallgrímsson til hægri furðufiskinn Geirnyt fyrir utan Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en strákarnir fæddust 1988 og 1989. Samkvæmt Vísindavefnum ber þessi fiskur mörg nöfn: Hafmús, Hámús, rottufiskur eða Særotta. Geirnytin er brjóskfiskur sem hrygnir venjulega tveimur eggjum - pétursskipum - eins og skata gerir. Við Ísland er hann algengastur við suður- og suðvesturland á 100 - 1000 metra dýpi.
Höfðaskóli - safn564
Beðið eftir matnum í skólaferðalagi nemenda Höfðaskóla til Danmerkur einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Stúlkurnar á myndinni eru, frá vinstri: Hanna Rúna Gestsdóttir, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Rebekka Maren Þórarinsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir og Ester Ösp Víðisdóttir.
Höfðaskóli - safn618
Í október/nóvember 1985 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla. Venjulegt skólahald fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni vinna þeir Björn Sigurðsson til vinstri og Hjalti Kristjánsson til hægri að einhverju smíðaverkefni í smíðastofunni.
Ólafur Bernódusson002
Myndin var tekin fyrir jólin 1991 í Hólaneskirkju þegar þar var haldin aðventumessa. Á henni er séra Egill Hallgrímsson (d.9.6.2021) fyrir altarinu ásamt fermingarbörnum sem fermdust vorið 1992. Til vinstri situr meðhjálparinn Steindór Haraldsson. Fermingarbörnin eru, frá vinstri: Hjörtur Jónas Guðmundsson, Arnar Ólafur Viggósson, Viðar Guðmundsson, Jón Örn Stefánsson, Þóra Ágústsdóttir, Árný Guðrún Ólafsdóttir, Bergþóra Hrund Guðjónsdóttir, Guðrún Björk Elísdóttir, Salóme Ýr Rúnarsdóttir, Halla Kristín Árnadóttir, Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir, Ásta Ýr Ásgeirsdóttir, Þórunn Ævarsdóttir, Sigurður Berndsen, Ólína Laufey Sveinsdóttir og Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir. Á myndina vantar Jón Ólaf Sigurjónsson sem tilheyrði hópnum. Hópurinn var sá fyrsti sem fermdist frá Hólneskirkju hinni nýrri en hún var vígð 20. október 1991. Fyrstur allra til að fermast frá kirkjunni var Arnar Ólafur Viggósson.
Ólafur Bernódusson1158
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nemendur að flytja tónlistaratriði með tónmenntakennara sínum, Hugrúnu Sif Hallgrímsdóttur. Börnin eru, frá vinstri: Magnús Sólberg Baldursson, Karen/Rakel Elvarsdóttir, Ástríður Magnúsdóttir, Ólafur Halldórsson, Rakel/Karen Elvarsdóttir, Ívan Orri Eiríksson, Pétur Atli Árnason, Ingólfur Eðvald Björnsson, Freyja Dís Jóhannsdóttir, Hekla Guðrún Þrastardóttir og Guðrún Björgvinsdóttir.
Höfðaskóli - safn460
Einhvertíma að vori til kringum 2000 var lögreglan fengin til að koma og skoða reiðhjól nemenda í Höfðaskóla. Á myndinni eru þau tilbúin með hjálmana sína, frá vinstri: Sævar Hlynur Tryggvason, Ragnar Már Björnsson, Patrik Snær Bjarnason, Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir og tveir óþekktir.
Ólafur Bernódusson1168
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nokkrir nemendur skólans að flytja frumsamið skemmtiatriði. Börnin eru, frá vinstri: Viktor Örn Einarsson, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Victoría Hólmgeirsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir og Sigurður Aron Björnsson.
Höfðaskóli - safn485
Myndin var tekin á útivistardegi í Höfðaskóla, líklega vorið 2000. Krakkarnir eru að leggja í sjóferð á Benna Ólafs Hu. Krakkarnir stjórnborðsmegin eru, frá vinstri: Stefán Agnar Gunnarsson, Guðrún Sigríður Hjálmtýsdóttir og Dóra Rebekka Sævarsdóttir. Bakborðsmegni, frá vinstri: Anna Dúna Rúnarsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Tinna Björk Gunnarsdóttir, óþekkt og Birkir Rúnar Jóhannsson. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn534
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega hefur það verið kringum árið 2000. Á henni eru nemendur Höfðaskóla fædd 1986 að bíða eftir vitnisburðum sínum eftir veturinn á sviðinu í Fellsborg. Frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson skólastjóri, Sonja Hjördís Berndsen, Eiður Bjarki Þórarinsson, Hörður Aðils Vilhelmsson, Ragnar Ásmundur Einarsson, Sóley Elsa Magnúsdóttir Blöndal, Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir, Þórunn Júlía Guðmundsdóttir, Eydís Inga Sigurjónsdóttir og Pétur ??
Ólafur Bernódusson1159
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nemendur eins bekkjar skólans að flytja atriði sitt. Börnin eru, frá vinstri: Ólafur Halldórsson, Rakel/Karen Elvarsdóttir, Ívan Orri Eiríksson, Pétur Atli Árnason og Ingólfur Eðvald Björnsson.
Ingibergur Guðmundsson 594
María Guðrún Guðmundsdóttir nemandi í Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líkleg var það kringum 1996.
Ingibergur Guðmundsson 447
Myndin var tekin þegar unglingar í Höfðaskóla voru í skólaferðalagi í maí 1986. Á henni eru bekkjarsysturnar Hólmfríður Oddsdóttir til vinstri og Svava Guðrún Sigurðardóttir til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
2001113
Á myndinni sem var tekin einhverntíma upp úr 1990 er verið að sá grasfræi í Spákonufelli fyrir sunnan og neðan skíðaskálann. Á henni er Guðjón ? frá Landgræðslunni að sá með tveimur hjálparmönnum frá Skagaströnd. Þeir eru Jón Örn Stefánsson til hægri og Albert Ingi Haraldsson til vinstri.
Ingibergur Guðmundsson 355
Myndin var tekin í vinnuviku í Höfðaskóla 1989. Á henni vinna nemendur úr þremur árgöngum saman að einhverju smíðaverkefni. Krakkarnir eru, frá vinstri: Særún Níelsdóttir, Ólafur Magnússon og Aðalheiður Sif Árnadóttir.
Ingibergur Guðmundsson 490
Myndin var tekin eftir sundmót líklega 1985. Myndin er ekki góð enda var hún tekin á einnota myndavél. Hún sýnir, frá vinstri: óþekktan, Árna Jón Guðmundsson (d.8.1.2006), Ingvi Sveinn Eðvarðsson og Stefán Ægir Lárusson?. Á myndinni eru þeir búnir að taka við verðlaunum sínum en aðrir á myndinni eru óþekktir.
2001002
Konráð Guðmundsson í hlutverki sínu í leikritinu: Eiginmaður kemur til morgunverðar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1960.
Höfðaskóli - safn433
Diskótek í fullum gangi á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 24. febrúar 2006.
Skagaströnd - safn545
Konan á myndinni er í skautbúningi en litla stúlka í upphlut. Skautbúninginn hannaði Sigurður Guðmundsson málari á árunum 1858 - 1860 sem breytingu á faldbúningnum sem var eldri hátíðabúningur kvenna og hann var óánægðu með.
Ólafur Bernódusson1155
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru yngri nemendur skólans að flytja einhver skemmtiatriði. Börnin eru, frá vinstri: María Gret Gunnarsdóttir, Klara Ósk Hjartardóttir, Bylgja Hrund Ágústsdóttir, Brynjar Daði Finnbogason, Jón Árni Baldvinsson, Sindri Freyr Bjönsson og Almar Atli Ólafsson.
Ólafur Bernódusson1114
Myndin var tekin á útivistardegi Höfðaskóla í maí 1996. Kennararnir höfðu útbúið þrautabraut á skólavellinum sem nemendur fóru í gegnum sér til gamans. Á myndinni keppa nemendur í belgjahoppi. Stúlkan til vinstri er Sigurbjörg Konráðsdóttir en á móti henni keppir Eydís Inga Sigurjónsdóttir. Lengst til vinstri er Hjördís Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022) kennari. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 397
Þessir krakkar úr Höfðaskóla kepptu, ásamt fleirum úr skólanum, á skólamóti á Húnavöllum 1987, þar sem þessi mynd var tekin. Í fremri röð eru, frá vinstri systurnar: Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir, Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir og Margrét Jóhannsdóttir. Standandi eru, frá vinstri: Sigvaldi Guðmundsson, Baldur Magnússon, Skúli Tómas Hjartarson og Atli Þór Þórsson.
Ólafur Bernódusson1042
Myndin var tekin á brunaæfingu í Höfðaskóla í desember 1992. Þá er skólinn yfirgefinn eftir ákveðnu kerfi eftir því hvar hver og einn er staddur í byggingunni ef eldur kemur upp. Þegar út er komið raða allir sér upp með bekknum sínum og kennarinn telur hvort ekki séu allir komnir út og tilkynnir skólastjóra og eða slökkvistjóra. Á myndinni fylgjast nemendurnir með Magnúsi Ólafssyni (d.23.7.2012) slökkvistjóra þar sem hann sýnir rétt handtök við að slökkva eld í potti með eldvarnarteppi.
Gréta 011
Bræðurnir Húnn Snædal til vinstri og Hólmsteinn Snædal (d.31.12.2015) til hægri. Þeir eru synir Rósbergs Snædal (d.9.1.1983) frá Ægissíðu á Skagaströnd og Hólmfríðar Magnúsdóttur (d.6.7 2013) frá Syðra Hóli.
Höfðaskóli - safn517
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það 1983 því nemendurnir á henni fæddust 1969. Vinstra megin sér í Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d.13.8.2000). Hægra megin við borðið frá vinstri: óþekktur, Hjalti Magnússon, óþekktur, Arnar Erlingsson, Hulda Magg Elínardóttir, Pálína Freyja Harðardóttir og Áslaug Sif Gunnarsdóttir.
2001034
Þessi frændsystkin, Guðbjörg Þorbjörnsdóttir og Árni Ólafur Sigurðsson voru fermd saman í Hólaneskirkju 1963. Myndin var tekin af þeim í tilefni þess.
Ólafur Bernódusson1201
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd eru tvíburarnir Svanur Árnason og Þröstur Árnason að stíga niður af "sviðinu". þröstur er til hægri
Höfðaskóli - safn548
Ungir nemendur utan við Höfðaskóla á sólardegi. Líklega var myndin tekin í október 2002 og krakkarnir að bíða eftir heimsókn Ólafs Ragnars Grímssonar forseta í skólann. Krakkarnir eru frá vinstri: Bergrós Helga Hafsteinsdóttir, tvær óþekktar, Ívan Árni Róbertsson, óþekkt, Sigubjörg Katla Valdimarsdóttir, Hanna Maria Gylfadóttir, fimm óþekkt, ?Fannar Guðlaugsson?, Sigríður Sól Indriðadóttir og óþekktur. Ef þú þekkir einhvern af óþekktu krökkunum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ljósmyndakeppni 2022 13
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Guðrún Pálsdóttir og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki.
Ljósmyndakeppni 2022 59
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Eydís Inga Sigurjónsdóttir og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja".
Ljósmyndakeppni 2022 36
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Hólmfríður Anna Ólafsdóttir og sendi inn í flokkinn "Andlit".
Ólafur Bernódusson1188
Skólahljómsveit skemmtir á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg líklega 2016. Ólafur Halldórsson spilar á bassa, Snæfríður Guðmundsdóttir syngur og Laufey Lind Ingibergsdóttir spilar á gítar og syngur.
2001007
Jóhanna Hallgrímsdóttir (Júddý) í skólaferðalagi einhverntíma á sjöunda áratugnum.
Óþekktur ljósmyndari557
Hjónin á Örlygsstöðum með tvo af sonum sínum. Frá vinstri: Sigurlaug Björnsdóttir (d.7.9.1982), Björn Haraldsson (d.21.9.1988), Haraldur William Sigurjónsson (d.13.5.1986) og Grétar Jón Haraldsson. Hjónin Haraldur og Sigurlaug bjuggu mjög lengi á Iðavöllum á Skagaströnd.
Höfðaskóli - safn 640
Þessa mynd tók Inga Matthíasdóttir íþróttakennari í Fellsborg 1985 af fimleikahópi nemenda úr Höfðaskóla sem hún þjálfaði. Myndin var tekin á æfingu fyrir árshátíð þar sem hópurinn sýndi listir sínar. Sitjandi á gólfinu eru, frá vinstri: Anna Dröfn Guðjónsdóttir, María Rós Karlsdóttir, Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir, Skúli Tómas Hjartarson, Kristjana Jónsdóttir og Arna Guðrún Jónsdóttir. Standandi eru, frá vinstri: Inga Lára Sigurðardóttir, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir og Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir. Efst standa Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir vinstra megin og Guðný Finnsdóttir hægra megin.
Ingibergur Guðmundsson 361
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla líklega 1990. Á henni eru nemendur fæddir 1974 að flyta skemmtiatriði fyrir aðra nemendur og kennarana. Frá vinstri: Jón Heiðar Jónsson, Svava Magnúsdóttir, Guðbjörg Kristmundsdóttir og Guðný Finnsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 471
Skúli Tómas Hjartarson og Jóney Hrönn Gylfadóttir að flétta bastkörfur í vinnuviku í Höfðaskóla í október/nóvember 1985.
Ljósmyndakeppni 2022 14
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók helena Mara Velemir og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki.
Ingibergur Guðmundsson 433
Þór Gunnlaugsson lögreglumaður talar við börn úr Höfðaskóla í vinnuviku í febrúar 1987. Stúlkan til vinstri í grænköflóttri peysu er Árný Guðrún Ólafsdóttir. Aftan við hana sitja Heiða Ósk Stefánsdóttir kennari og Eygló Gunnarsdóttir. Viktor Pétursson styður hönd undir kinn og horfir til himins en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Gréta 116
Á myndinni eru systkini, börn Kristínar Kristmundsdóttur. Börnin eru, frá vinstri: Hrefna Dögg þorsteinsdóttir, Hörður Aðils Vilhelmsson og Kristín Jóna Sigurðardóttir sem situr með Ástrósu Villu Vilhelmsdóttur í fanginu. Myndin var tekin 1991 eða 1992.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1515
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Hún sýnir hluta af börnunum sem þátt tóku í kofasmíðum umf Fram það árið þegar þau buðu gestum til sín að skoða. Stúlkan lengst til vinstri er óþekkt en Harpa Hlín Ólafsdóttir bendir og til hægri er Birta Dögg Bessadóttir.
Höfðaskóli - safn512
Nokkrir nemendur Höfðaskóla í skólaferðalagi við Gullfoss en ekki er vitað hvenær. nemendurnir eru, frá vinstri: Jóhanna Gunnlaugsdóttir, ?Óli Hjörvar Kristmundsson?, Rakel Jónsdóttir, Kristjana Jónsdóttir, Arnar Erlingsson, Davíð Reynisson, Rafn Ingi Rafnsson og Hjalti Viðar Reynisson
Ólafur Bernódusson1066
Myndin var tekin í lok maí 1997 á útivistardegi Höfðaskóla. Kennararnir og annað starfsfólk klæddi sig í búninga og síðan var gengið um bæinn og farið í leiki á Hnappstaðatúninu. Á þessari mynd eru, frá vinstri: Eva Rún Rúnarsdóttir, Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir (fjærst með húfu), Jenný Lind Sigurjónsdóttir (í miðjunni), Anna María Magnúsdóttir (fremst) og Elva Ösp Gunnarsdóttir. Í baksýn til hægri er Helga Ólína Aradóttir með barn í fanginu.
Höfðaskóli - safn415
Börn leika á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg, líklega kringum 1988. Börnin eru óþekkt en ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 338
Rakel Petrea Finnsdóttri hvílir lúin bein í töppunum í Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líkleg var að einhverntíma kringum 1990.
2001011
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin á skátamóti. Á henni eru skátar úir Sigurfara á Skagatrönd og skátum líklega úr Bjarma á Blönduósi. Myndin var líklega tekin einhventíma kringum 1963. Félagsforingjarnir standa til endanna Jón Ísberg úr Bjarma til vinstri og þórður Jónsson úr Sigurfara til hægri. Standandi frá frá hægri eru: Þórður, ?Magdalena Axelsdóttir?, Sigríður Pálsdóttir, Jóhanna Valdimarsdóttir, Frímann Lúðvíksson, tvær óþekktar, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Jóhann Ingibjörnsson, Hallbjörn Björnsson aðrir í röðinni eru óþekktir. Krjúpandi, frá hægri: Fjóla Jónsdóttir, óþekkt, Kolbún Jónsdóttir, tvær óþekktar, Ólöf Jóhanna Smith (Lólý) aðrir í röðinni eru óþekktir. Sitjandi, frá hægri: óþekkt, Margrét Valdimarsdóttir, þrjú óþekkt, Steindór Rúniberg Haraldsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvert þeirra vinsamlega sendu þá athugasemd á
[email protected]
.
Ingibergur Guðmundsson 529
Þær eru að vanda sig við listsköpunina í Höfðaskóla þær Rakel Petrea Finnsdóttir nær okkur og Linda Hafdal fjær. Myndin var líklega tekin upp úr 1990.
1
…
20
21
22
23
24
Leita í myndasafninu
Leita